Morgunblaðið - 16.04.2011, Page 9

Morgunblaðið - 16.04.2011, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011 9 Læknir – Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki auglýsir laust til umsóknar starf yfirlæknis sjúkrasviðs við stofnunina. Sérfræðimenntun í lyflækning- um er skilyrði. Staðan er laus frá 1. september 2011 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% stöðu en lyflæknir gengur vaktir á heilsugæslu og annast móttöku með öðrum læknum stofn- unarinnar. Starfskjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráð- herra og Læknafélags Íslands. Leitað er að lækni með víðtæka almenna reynslu. Áhersla er lögð á hæfileika á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnu- bragða. Nánari upplýsingar veita Óskar Jónsson, yfir- læknir sjúkrasviðs, netfang oskar@hskrokur.is og Örn Ragnarsson, yfirlæknir heilsugæslu, netfang orn@hskrokur.is, sími 455-4000. Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendist Hafsteini Sæmundssyni, forstjóra, fyrir 1. júní 2011, netfang hafsteinn@hskrokur.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. H r a f n i s t a R e y k j a v í k h a f n a R f j ö R ð u R k ó p a v o g u R Nánari upplýsingar: www.hrafnista.is - magnea.simonardottir@hrafnista.is - sími: 585 9529 óskast til starfa á Hrafnistuheimilin Sjúkraliðar Óskum eftir sjúkraliðum til framtíðarstarfa og í sumarafleysingar á öll Hrafnistuheimilin. Á Hrafnistu er lögð áhersla á sveigjanleika í starfi og traust starfsumhverfi. Hægt er að sækja um á vef Hrafnistu: www.hrafnista.is Tónlistarstjóri Auglýst er laus til umsóknar staða tónlistarstjóra (programme director) Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá og með 1. september 2011. starfssvið Tónlistarstjóri leggur drög að dagskrá komandi starfsára Sinfóníuhljómsveitarinnar í samráði við verkefnavalsnefnd og gerir tillögur tillögur um hljóm- sveitarstjóra og aðra listamenn sem fram koma með hljómsveitinni. Tónlistarstjóri heyrir undir fram- kvæmdastjóra en starfar auk þess náið með aðal- hljómsveitarstjóra/listrænum stjórnanda við að framfylgja listrænni stefnu hans. Tónlistarstjóri hefur umsjón með tónleikaskrá og annast ritun ýmiskonar efnis sem snertir tónleikahald hljómsveitarinnar. Þá sinnir tónlistarstjóri mótun og framkvæmd fræðslu- starfs og tónlistaruppeldis á vegum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands. hæfnisskilyrði Skilyrði er að umsækjandi hafi yfirgripsmikla þekkingu á sígildri tónlist, nútímatónlist og tónlistarsögu. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi góð tök á rituðu og töluðu íslensku máli og góða tungumálakunnáttu, einkum ensku. Krafist er háskólaprófs í tónlist og/eða á fræðasviðum tónlistar. umsóknir Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. Upplýsingar um starfið veitir Sigurður Nordal framkvæmdastjóri. Umsóknir skulu sendar starfsmannastjóra, Kristínu Sveinbjarnardóttur (kristin@sinfonia.is), á eftirfarandi heimilisfang: Sinfóníuhljómsveit Íslands Hörpu, Austurbakka 2 101 Reykjavík www.sinfonia.is Hvolsskóli á Hvolsvelli Hvolsskóli auglýsir eftir grunnskóla- kennara til starfa tímabundið í eitt ár vegna leyfis kennara. Meðal kennslugreina er:  umsjónarkennsla á yngsta eða miðstigi.  almenn kennsla. Gerð er krafa um kennsluréttindi og góða hæfni í mannlegum samskiptum og sérstaklega góða færni í að umgangast börn og unglinga. Umsækjandi skal vera skipu- lagður, stundvís og snyrtilegur í umgengni. Í Hvolsskóla eru um 240 nemendur í 1. til 10. bekk og er öll aðstaða mjög góð. Í Hvolsskóla er einstaklingurinn í brennidepli, lögð er áhersla á fjöllbreytta kennsluhætti og mikið samstarf kennara sem auðveldar starfið. Kjörið tækifæri fyrir alla sem vilja taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Sjá nánar á heimasíðu Hvolsskóla www.hvolsskoli.is og heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is. Nánari upplýsingar gefa Sigurlín skólastjóri (sigurlin@hvolsskoli.is) eða Gissur deildarstjóri (gissurj@hvolsskoli.is) í síma 488-4240. Skriflegar umsóknir sendist til skólastjóra Hvolsskóla eigi síðar en föstudaginn 29. apríl 2011. Norges Geotekniske Institutt (NGI) leitar að reyndu fagfólki á ofangreindum fagsviðum. Sjá nánar á heimasíðu NGI. NGI verður þátttakandi í starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 15. apríl kl. 16-19 og laugardaginn 16. april kl. 12-18. NGI er leiðandi fyrirtæki í rannsóknum og ráðgjafaþjónustu á sviði jarðtækni og skyldra fagsviða á alþjóðavísu. www.ngi.no/en Jarðverkfræðingur Verkfræðingur á sviði jarðtækni Vatnajarðfræðingur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.