Morgunblaðið - 18.04.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.04.2011, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Hreinræktaður Chihuahua rakki til sölu 6 mánaða Chihuahua rakki er til sölu. Hann er ljúfur og yndislegur í alla staði og hefur fengið allar sprautur. Boðið er upp á greiðsludreifingu. Nánari upplýsingar í síma 695 8351. Gisting AKUREYRI Höfum til leigu 85 ,140 og 160m² sumarhús 5 km frá Akureyri, öll með heitum potti og flottu útsýni yfir Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir á Akureyri. www.orlofshus.is, Leó, s. 897- 5300. Þú átt skilið að komast í hvíld! Í Minniborgum bjóðum við upp á ódýra gistingu í notalegum frístunda- húsum. Þú færð 3 nætur á verði 2. Fyrirtækjahópar, óvissuhópar, ættarmót. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. Minniborgir.is Gisting á góðum stað. Upplýsingar í síma 868 3592. Sumarhús Sumarbústaðalóðir Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á Skeiðum, 75 km frá Rvk. í stærðunum 0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til gróðursetningar og er með fallega fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja fasa rafmagn að lóðarmörkum, til afhendingar strax, hagstætt verð og góð kjör. Verið velkomin. Hlynur í síma 824 3040. www.kilhraunlodir.is Glæsilegar sumarhúsalóðir! Til sölu einstaklega fallegar lóðir á einum vinsælasta stað landsins við Ytri-Rangá. Aðeins 100 km frá Reykjavík. Kjarri vaxið hraun, mikil veðursæld og fallegt útsýni. Uppl. á www.fjallaland.is og í síma 8935046 eða leirubakki@leirubakki.is Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Tómstundir STIGA borðtennisborð Til afgreiðslu strax. Pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2.h.) 108 Reykjavík, s: 568 3920. Til sölu Ódýr gæðablekhylki og tonerar í prentarann þinn. Öll blekhylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517 0150 Smáratorgi Lágvöruverðsverslun fyrir heimilið Mikið úrval af nýjum vörum. Lægsta verð kr. 290. Gott verð kr. 390. Hæsta verð kr. 690. Augnablik Geisladiskur með lögum við ljóð Hákonar Aðalsteinssonar, flutt af Nefndinni og gestum. Fæst í Hagkaupum, Tónspili, Samkaupum Egilsstöðum og hjá útgefanda í síma 863 3636. Netfang: darara@gmail.com Mbl. 1. febr. ★★★✰✰ ,,Það sem gerir plötur eins og þessar svo mikilvægar er hreinleikinn sem við þær er bundinn og forsendur allar”. Arnar Eggert Thoroddsen Klappastíg 44 – Sími 562 3614 Mortél Granít stærð 16 cm í þvermál Verð 4.500,- Verslun Trúlofunar- og giftingarhringar í úrvali. Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðar- þjónusta. ERNA, Skipholti 3, s. 5520775, www.erna.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald Bókhald – skattframtöl Öll almenn bókhaldsþjónusta fyrir einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög o.fl. Fagleg þjónusta á sanngjörnu verði. Mikil reynsla. Gaius – bókhalds- þjónusta, sími 892 5784. Bókhald, laun, öll skattþjónusta Áreiðanleiki, traust og gagnkvæmur trúnaður. www.fsbokhald.is. Fyrirtæki og samningar ehf., Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík, s. 552 6688. FSbókhald.is. Skattframtöl Framtöl - bókhald - ársreikningar Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga og rekstraraðila. Mikil reynsla. Einnig bókhald, ársreikn. o.fl. fyrir fyrirtæki. HAGSTÆTT VERÐ. S. 517-3977. www.fob.is Þjónusta Húsgagnahreinsun Eldshöfða 1 Hreinsum flestar gerðir hús- gagna. Stök teppi, rúmdýnur o.fl. Upplýsingar í síma 577 5000 og 892 1460. Ýmislegt Mjóddin s. 774-7377 Bikini 9.900 kr. - Sundbolur 11.900 kr. TILBOÐ – TILBOÐ Dömustígvél úr leðri. Tilboðsverð: 4.900,- Sími: 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18, laugardaga 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Teg. GABE - léttar aðhaldsbuxur í stærðum M,L,XL,XXL, fást í hvítu og svörtu á kr. 2.990,- Teg. VEGA - glæsilegar buxur í S,M,L,XL á kr. 2.990,- Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, laugardaga 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is - vertu vinur Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '11. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar, gler og gluggaskipti. og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Kaupi silfur! Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is – Sími 551-6488. Félagslíf  HEKLA 6011041819 VI GIMLI 6011041819 I° fannst mér agalega fyndið. Ég lærði líka mína fyrstu umferðar- reglu hjá ömmu og það var sú regla að ef maður er stopp á rauðu ljósi og enginn bíll er að koma á móti þá er allt í lagi að fara yfir. Ég er nú ekki viss um að þessi regla hafi verið í gildi ann- ars staðar en í umferðarheimi frú Halldóru. Ótal minningar streyma fram um ferðir í berjamó, bæjarferðir þar sem ég náði yfirleitt að rella út eitthvert dót og síðan þau dýr- mætu menntaskólaár sem ég bjó hjá ömmu og afa. Það má nú segja að væri ekki fyrir þau þá væri ég sennilega ekki að útskrifast sem tannlæknir eftir 2 mánuði. Amma var stolt og ánægð og við vorum nú búnar að semja um að hún myndi þrauka fram undir sumar til að vera viðstödd útskriftina en svona er lífið, maður fær víst engu ráðið. Á síðustu árum nefndi amma oft við mig hversu lánsöm hún hefði verið í lífinu, kynnast afa, fá mömmu upp í hendurnar, þurfa aldrei að hafa peningaáhyggjur og geta gert flesta hluti sem hana langaði. Hún lifði svo sannarlega lífinu fyrir hvert augnablik og lífs- gleði hennar vil ég tileinka mér. Ég er ótrúlega heppin og rík að hafa átt ömmu og afa að. Engir peningar eða veraldlegir hlutir gætu vegið upp mitt ríkidæmi sem ég hlaut frá ömmu og afa, það fölnar allt í samanburði við þau. Ég vil kveðja bestu og lang- flottustu ömmu í heimi með kvæð- inu sem hún fór svo oft með: Það vex eitt blóm fyrir vestan, og vornóttin mild og góð kemur á ljósum klæðum og kveður því vögguljóð. Ég ann þessu eina blómi, sem aldrei ég fékk að sjá. Og þangað horfir minn hugur í hljóðri og einmana þrá. Og því geng ég fár og fölur með framandi jörð við il. Það vex eitt blóm fyrir vestan og veit ekki, að ég er til. (Steinn Steinarr) Elísa Kristín Arnarsdóttir. Trén vaxa og dafna en jafnvel þau sterkustu falla að lokum. Það vantaði ekki vöxtinn og gróskuna í fjölskylduna á upp- vaxtarárum mínum á fyrri hluta liðinnar aldar. Við vorum ellefu systkinin – þrír bræður og átta systur – og vinnufólk allt að þrjá- tíu manns þegar mest var. Ég var elstur bræðranna og níundi í systkinaröðinni. Allur þessi hóp- ur bjó í einu húsi, Ingimarsstöð- um á Þórshöfn, sem seint mun teljast stórt á nútíma mæli- kvarða. Til að ala önn fyrir þessum stóra hópi þurfti að hafa mörg járn í eldinum. Bóndi, póstaf- greiðslumaður, útvegsmaður og umboðsmaður Eimskips voru meðal margra starfstitla pabba. Mamma annaðist heimilið af út- sjónarsemi og alúð og eitt verk- anna var að hjúkra rúmfastri konu um langt árabil. Við systk- inin lögðum hönd á plóg og geng- um í þau verk sem okkur var falið. Tíu af ellefu komumst við til manns, eins og það er orðað. Ein- ungis Árni Sigfús Páll, bróðir minn, dó ungur, fjögurra ára að aldri. Þrátt fyrir annríkið fann ég aldrei fyrir hörku lífsbaráttunnar. Þvert á móti situr gleðin ein eftir í minningunni. Ég man hvernig átta systur kenndu ungum bróður að dansa og leiðbeindu honum smám saman til nokkurs þroska. Við Halla systir vorum alla tíð mjög náin enda bjuggum við lengst af bæði á Akureyri og höfð- um mikil samskipti. Eftir að Halla varð ekkja og flutti á Hlíð heim- sótti ég hana nær daglega, við borðuðum saman í hádeginu og rifjuðum upp gamla tíma. Einung- is örfáum vikum eftir að Ingimar bróðir okkar kvaddi þennan heim slokknaði ljósið hennar bjarta. Þar með hef ég séð á eftir öllum systkinum mínum og söknuðurinn er vissulega sár. Ég hef nokkrum sinnum verið líklegur til að bætast í hópinn, en jafnan hætt við á ell- eftu stundu. Sjáum hvað setur. Ég vil að leiðarlokum þakka Höllu og öllum systkinum mínum samfylgdina. Ég sendi ástvinum samúðarkveðju. Jóhann Ingimarsson (Nói). Elsku langamma. Ég man svo vel eftir nammiskápnum inni í borðstofu á Ásveginum, þar sem þú áttir alltaf eitthvað gott handa mér, kisunni ykkar henni Skoru- vík á Langanesi, og síðast en ekki síst okkar sameiginlegu ást á flottum fötum. Ég man þegar ég var lítil og hjólaði til þín, og þú leyfðir mér að máta alla fínu kjól- ana þína og alla dýrðlegu skóna. Svo þegar ég var orðin unglingur þá vorum við farnar að versla í sömu fatabúðunum! Já, elsku Halla amma mín, þú eltist seint og vel. Núna getið þið afi verið saman á himnum og verið í friði. Guð geymi ykkur. Kristrún Dröfn. Halldóra Ingimarsdóttir  Fleiri minningargreinar um Halldóru Ingimars- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.