Morgunblaðið - 18.04.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.04.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011 BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Tómum íbúðum á höfuðborgarsvæð- inu hefur fækkað um 340 milli ára, samkvæmt nýlegri talningu á vegum Samtaka iðnaðarins, SI. Er þá miðað við fokhelt húsnæði og lengra komið. Ef bætt er við sökklum og byggingum í uppsteypu er fækkunin 368 íbúðir milli ára, eða úr 2.016 árið 2010 í 1.648 í ár. Sambærileg talning hefur verið gerð á Akranesi, Selfossi og í Reykja- nesbæ. Tómar íbúðir voru að auki taldar núna í fyrsta sinn á Akureyri og reyndust þær ríflega 100, fokheldar og lengra komnar, þar af 86 í fjölbýli. Talningin fór fram í mars sl. þar sem tómar íbúðir og grunnar voru tal- in samkvæmt staðlinum IST 51, flokk- að eftir mismunandi byggingarstigi. Kom þá í ljós að 916 íbúðir í fjölbýli voru tómar á öllu höfuðborgarsvæð- inu, fokheldar eða lengra komnar, 262 rað- og parhús og 122 einbýli, eða 384 sérbýli. Jón Bjarni Gunnarsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri SI, og Friðrik Ágúst Ólafsson, forstöðumaður hjá SI, höfðu veg og vanda af talningunni. Þeir segja hana eins vel úr garði gerða og mögulegt er, alltaf séu einhver skekkjumörk, en talningin var borin undir embætti byggingarfulltrúa sveitarfélaganna, fasteignasala og verktaka, sem komu með ábendingar og athugasemdir ef með þurfti. Mark- miðið er ekki síst að gefa verktökum sem gleggsta mynd af stöðunni hverju sinni, þannig að auðveldara sé að ákveða hvers konar íbúðir eigi að framleiða næst. Ódýrari íbúðir Um niðurstöðu talningarinnar segja þeir Jón Bjarni og Friðrik hana ótvírætt benda til þess að aukin þörf sé að skapast á frekari byggingar- framkvæmdum, einkum smærra og ódýrara húsnæði fyrir fyrstuíbúðar- kaupendur. Talið er að byggja þurfi 1.500 til 2.000 íbúðir á ári til að upp- fylla eðlilega þörf markaðarins og þeir segja ennfremur uppsafnaða þörf hafa myndast þar sem lítið hafi selst af húsnæði eftir hrunið 2008. „Það er ástæða til að fara af stað en með öðrum hætti en hefur verið,“ seg- ir Jón Bjarni og bendir á að lausar íbúðir, sem nú eru í framleiðslu, henti flestar ekki kaupendum sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Fara þurfi af stað með ódýrari íbúðir; tveggja til þriggja herbergja á 70-100 fermetrum án bíla- kjallara, og byggja með ódýrari hætti. Til að koma hreyfingu á markaðinn að nýju telja þeir Jón Bjarni og Frið- rik að sveitarfélögin skipi þar eitt stærsta hlutverkið. Þau hafi tekið þátt í góðærinu með hækkun á lóðaverði, þegar eftirspurn var mikil, en nú sé lag til að lækka verðið þegar eftir- spurnin hefur minnkað. „Sveitarfélög- in þurfa að breyta skipulaginu þannig að hægt sé að byggja ódýrari og minni íbúðir,“ segir Jón Bjarni. Einnig þurfi sveitarfélögin að lækka ýmis gjöld, eins og heimtauga- og veitugjöld, kostnað við byggingarleyfi og úttektir og leggja ekki fasteignagjöld á mann- virki fyrr en flutt sé inn í þau. Rukkun fasteignagjalda á byggingartíma hafi m.a. átt þátt í því að verktakar hafi flýtt sér um of við framkvæmdir. „Ekki er hægt að láta þess ógetið að framkvæmdalán eru allt of dýr hér á landi og ýta enn frekar undir hraða í framkvæmdum,“ segir Friðrik. Þeir segja verktaka einnig geta lagt sitt af mörkum með að koma mark- aðnum af stað, einkum með betri gæðastjórnun. Með því sé hægt að lækka byggingarkostnað. „Við þurf- um líka að líta í eigin barm og hvetja verktaka til að bæta sína stjórnun. Menn fóru of geyst en það hefur líka mikið að segja að sveitarfélögin fóru í keppni sín á milli og skipulögðu lóðir og íbúðabyggingar án þess að horfa til þess hvaða húsgerð hentaði hverju sinni,“ segir Friðrik. Verkþekking glatast Þeir leggja áherslu á að samtökin séu ekki að hvetja til annarrar þenslu eða bólu á fasteignamarkaðnum. Mik- ilvægast sé að skapa meiri stöðugleika og greina betur þarfir markaðarins. Það taki líka tvö til þrjú ár frá því að lóð undir fjölbýli sé úthlutað þar til að íbúð verður fullbúin. Þeir benda á að lager íbúðarhúsnæðis geti klárast á mjög skömmum tíma, miðað við upp- söfnuðu þörfina, og þá sé hætta á að önnur þensla skapist verði ekkert að gert. Haldi sala á fasteignum áfram að aukast geti myndast skortur á íbúð- um. En gæta verði þess að bygging- arhraðinn verði ekki sá sami og þegar mest lét í góðærinu. Lítil sem engin útboðsverk eru í gangi og verktakar hafa því verið að reyna að halda sér gangandi með kaupum á hálfkláruðum fasteignum til að vinna við. Jón Bjarni og Friðrik benda á í þessu sambandi að gríðarleg verðmæti geti farið í súginn ef hálf- kláruð mannvirki standi auð árum saman. Jafnframt sé hætta á að dýr- mæt verkþekking og reynsla flytjist úr landi þar sem verktakar eru farnir að flýja land vegna verkefnaskorts. Framkvæmdir fari af stað á ný  Tómum íbúðum hefur fækkað um 18% samkvæmt talningu Samtaka iðnaðarins  Telja þörf hafa skapast fyrir frekari framkvæmdir  Mest þörf fyrir smærri og ódýrari fasteignir fyrir unga fólkið Talning á íbúðum » Samtök iðnaðarins hand- töldu í mars sl. tómar ný- byggingar í íbúðahverfum á höfuðborgarsvæðinu og í fjórum sveitarfélögum á landsbyggðinni. Svipuð talning fór fram í maí í fyrra. » Tómum íbúðum í fjölbýli í Hafnarfirði hefur fækkað um 25% milli ára. » Lítil hreyfing hefur orðið á markaðnum á Seltjarn- arnesi og Álftanesi. Tómar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu 500 450 400 350 300 250 200 150 100 50 0 Mosfellsbær Fjölbýli Reykjavík Seltjarnarnes Kópavogur Álftanes Garðabær Hafnarfjörður samkvæmt talningu Samtaka iðnaðarins 2010 og 2011 Fokhelt og lengra komið 2010 Að fokheldu 2010 Fokhelt og lengra komið 2011 Að fokheldu 2011 73 44 Samtals 2010 Samtals 2011 Sérbýli Fjölbýli Sérbýli Fjölbýli Sérbýli Fjölbýli Sérbýli Fjölbýli Sérbýli Fjölbýli Sérbýli Fjölbýli Sérbýli 101 131 364 430 117 134 3026 02 292 279 96 109 101200 59 118 60 83 370 496 105 123 Morgunblaðið/Júlíus Fasteignir Samtök iðnaðarins telja aðstæður hafa skapast á fasteignamark- aði til að hefja byggingu íbúðarhúsnæðis á ný á höfuðborgarsvæðinu. Höfuðborgarsvæðið í heild Alls tómar íbúðir: 2.016 Alls tómar íbúðir: 1.648 2010 2011 Fokhelt og lengra komið Að fokheldu 375 1.641 348 1.300 Akranes, Selfoss og Reykjanesbær 2010 2011 Alls tómar íbúðir: 539 Alls tómar íbúðir: 449 127 412 101 348 Hvílíkur léttir Hreinsaðu nefið og náðu andanum á ný loft á nokkrum mínútum OTRIVIN nefúði og nefdroparnir innihalda xýlómetasólin sem vinnur gegn bólgu, nefstíflu og slímmyndun vegna kvefs og bráðrar bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin virkar fljótt og áhrifin vara í 10-12 klst. Otrivin getur valdið aukaverkunum, s.s. ertingu í slímhúð og sviðatilfinningu. Einnig ógleði og höfuðverk. Otrivin má nota þrisvar á dag en ekki lengur en í 10 daga í senn. Otrivin 1 mg/ml: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára. Otrivin 0,5 mg/ml: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Einungis ætlað 2-10 ára börnum að læknisráði. Varúð: Langtímanotkun Otrivin getur leitt til þurrks í nefslímhúð. Sjúklingar með gláku eða þeir sem hafa ofnæmi fyrir xýlómetasólin ættu ekki að nota Otrivin. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Mikilvægasta skrefið til að auka umsvif í hagkerfinu er að fjárfest- ing taki við sér, segir Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Í almennri umræðu sé helst talað um atvinnuvegafjárfest- ingu en þrátt fyrir kreppuna sé að myndast veruleg þörf fyrir aukna fjárfestingu í íbúðarhúsnæði. Aukin velta á íbúðamarkaði og mikil spenna á leigumarkaði beri þess skýr merki. Bendir Bjarni á að árið 2010 dróst íbúðafjárfesting saman um 17% en árið áður var samdrátturinn 55,5%. Síðustu tvö árin hafi verið byrjað á sárafáum nýjum íbúðum, en fjárfestingin einkum falist í að klára húsnæði sem þegar var hafin bygging á. Bjarni Már segir lýðfræðilega þætti eins og mannfjölda og aldurs- samsetningu ekki síður skipta máli eins og tekjur, vexti og aðgang að fjármagni. Frá þessum sjónarhóli sé margt sem bendi til aukinnar þarfar fyrir nýtt húsnæði. Bendir Bjarni á að inn á markaðinn streymi nú ungt fólk í óvenjumikl- um mæli. Einir fjölmennustu ár- gangar sögunnar, 1989-1993, fari að auki fljótlega að leita sér að hús- næði. Mæta þurfi þeirri þörf með auknu framboði af nýju húsnæði. Mikilvægast að fjárfesting taki við sér Fjárfesting í íbúðarhúsnæði 2000-2010 á föstu verðlagi í m. kr. eftir ársfjórðungum 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4 16.000 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.