Siglfirðingur


Siglfirðingur - 22.12.1950, Blaðsíða 1

Siglfirðingur - 22.12.1950, Blaðsíða 1
AuKablað 31. tölublað. BÆRINH Ffffi 250 M)S. KMNA liN HIA RiKISSJÖQI Kemur nýr togari til Sigluf jarðar? Bæjarstjóri Jón Kjartansson, forseti bæjarstjórnar Bjarni Bjarnason og bæjarfulltrúi Þ. Guðmundsson komu til bæjarins með „Esju“ í gær, en þeir hafa að undanförnu dvalið í Reykjavík og unnið að ýmsum hagsmuna- málum byggðarlagsins. Allsherjarnefndarfundur var boðaður þegar eftir heimkomu bæjarstjóra í gær og gat bæjar- stjóri þess á þeim fundi, að hann myndi innan skamms leggja fyrir bæjarfulltrúana skýrslu um för- ina og árangur hennar. Aðaltilgangur fararinnar var að ræða um möguleika á hingað- komu eins af þeim nýsköpunar- togurum, sem ríkisstjórnin er að láta byggja í Englandi. Einnig er vitað, að unnið var að þvi að tryggja áframhald stækkunar rafveitunnar. 250 búsund króna lán. iVitað er, í sambandi við þá við- leitni að tryggja áframhaldandi stækkun rafveitunnar, að ríkis- sjóður hefur lánað Siglufjarðar- kaupstað 250 þúsund krónur til 8 ára. Jafnframt er vitað, að þegar hefur verið pantað frá Bandaríkjunum töfluútbúnaður og fleira tilheyrandi stækkun raf- veitunnar fyrir um það bil 330 þúsundir króna. Lán hjá Tryggingar- stofnun ríkisins Blaðinu er og kunnugt, að rætt mun hafa verið við Tryggingar- stofnun ríkisins um hálfrar millj- ónar króna lán til bæjarins. — Meðan skýrsla bæjarstjóra um málið liggur ekki fyrir, verður ekki með vissu sagt um afdrif þeirrar málaleitunar, en samkv. þeim fregnum, sem blaðinu hafa borizt frá Reykjavík, er ekki úr vegi að áætla, að umrædd lán- veiting muni fást í janúarmánuði n.k. Kemur nýr togari til Sigluf jarðar? Aðaltilefni fararinnar var að vinna að þvi, að Siglufirði yrði úthlutað einum hinna nýju tog- ara og munu bæjarbúar almennt hafa mestan áhuga á þeim lið í starfsemi sendimannanna. Þótt skýrsla bæjarstjórans liggi enn ekki fyrir, getur blaðið í sam- bandi við þetta atriði bent á, að nú nýverið var í sameinuðu þingi — í sambandi við afgreiðslu fjár- laganna — samþykkt heimild til rfkisstjórnarinnar, sem fól það í sér, að henni væri heimilt, að láta þau bæjarfélög sitja fyrir togur- unum, sem verst voru stödd at- vinnulega. Þykir ekki óvarlegt að ætla, að þessi samþykkt samein- aðs þings standi í einhverju sam- bandi við málaleitun Sigluf jarðar- kaupstaðar, og að hans aðstaða sé betri eftir en áður. Að sjálfsögðu eru þetta aðeins lauslegir punktar, en blaðið mun skýra lesendum sínum ítarlegar frá þessum málum strax og skýrsla bæjarstjórans verður lögð fram. Framtíð bæjarins Að sjálfsögðu miðast öll þessi viðleitni bæjarstjórnarinnar að því að tryggja framtíð bæjarins. En það verður bezt gert með því að efla og glæða atvinnulífið í bæn- um og skapa nýja atvinnumögu- leika fólksins sem bæinn byggir — eftir fengna reynslu undan- farinna síldarleysisára. Hingað koma nýs togara og stækkun Skeiðsfoss-rafveitunnar eru veiga miklir liðir í þeirri viðleitni. — Bæjarbúar bundu því miklar von- ir við umrædda Reykjavíkurför og óskuðu þess af heilum huga, að árangur hennar mætti verða sem mestur og heiiladrýgstur fyrir þetta byggðarlag. Það vakti því réttmæta undrun og gremju, er bæjarfulltrúar Al- þýðuflokksins lögðu sig alla fram til að spilla árangri af förinni, m.a. með fáránlegum æsinga- og árásargreinum á sendimennina í Alþýðublaðinu í Reykjavík — á sama tíma sem þeir unnu að þess- um málum þar í borg. En sem betur fer virðist margt benda til þess, að árangurinn af förfnni muni verða til eflingar bæjarfé- laginu og atvinnulífinu á staðn- um. 1 lesenda Eins og áður hafði verið til- kynnt átti síðasta tölublað að vera síðasta blaðið fyrir hátíðina, en sökum þess, að borizt hafa nokkr ar aug'lýsingar, sem birtast þurftu fyrir jól, og að fyrir lá nokkuð efni, var að því horfið að gefa út þetta aukablað. Verður það síðasta tölublað ársins, en blaðið mun að öllu forfallalausu koma út reglulega eftir áramótin og á venjulegum útkomudögum. Góð vinargjöf Siglufjarðarkaupstað hefur bor izt stórt og fagurt jólatré að gjöf frá vinabæ Siglufjarðar í Noregi, Holmestrand, Norræna félagið þar og Walter R. Tandberg. — Jólatré þetta er fagur vottur vin- arhugar gefendanna til Siglu- fjarðar, og einmitt sökum þess mun það verða okkur meira en aðeins augnayndi. Tréð mun sett upp fyrir framan Mrkjuna og þá væntanlega þar sem það nýtur sín bezt og getur orðið til sem mests fegurðarauka yfir jólin og nýárið. Siglfirðingar munu kunna vel að meta þennan vinarvott sinna norsku frænda, og þeir senda þeim þakkir sínar og vinarkveðj- ur. Siglfirðingar! Gleymið ekki að gefa smá- fuglimum í vetrarhörkunum. | Skarð fyrir skildi | Mannskaðinn 30. nóv. s.l. Það er mikill skaði litlu Ibæjar- félagi er ungir og vaskir menn falla frá í blóma lífsins. Og sann- arlega er skarð fyrir skildi hér li Siglufirði við fráfaJI hinna ungu sjómanna, Ólafs Á. Kristjánssonar og Gests Vigfússonar, er voru á vélbátnum „Skrúður“ sem týndist milli Haganesvíkur og Sigluf jarð- ar 30. nóv. s. 1. 1 litlum bæ eins og Siglufirði, þar sem allir þekkja ala, veldur slíkur mannskaði sorg í allra hugum, þótt hún hvili þyngst á skyldmennum og vinum hinna brottkölluðu, er gerst þekktu þá og mest unnu þeim. Ólafur heitinn var sonur hins góðkunna athafnamanns, Kristj- áns Ásgrímssonar og konú hans Guðrúnar Sigurðardóttur. Hann var því sonarsonur hins iþekkta sjósóknara og góðkunna siglfirzka borgara, Ásgríms Þorsteinssonar frá Kambi, sem lézt fyrir fáum árum, en setti sinn svip á bæinn um langt skeið. Ölafur heitinn var aðeins 28 ára að aldri er kallið kom, duglegur og vinsælil, og við hann bundnar miklar vonir. Það er því þung sorg systkynum hans og foreldrum að sjá nú á bak ást kærum syni og bróður, en minn- ingin um góðan dreng veitir styrk í sorg þeirra. Gestur heitinn var somir Vig- fúsar Þorsteinssonar og Soffíu Sigurðardóttur. Hann var 30 ára að aldri, duglegur sjómaður og góður félagi og stoð og stytta aldraðra foreldra. Móðir hans, Soffía Sigurðard., lézt skömmu eftir fráfall sonarins og fór minn ingarathöfnin um hjna látnu sjó- menn fram um leið og hún var til moldar borin. Hiún er því stór sorgin, sem hvilir á eiginmanni og föður, þótt minningar Mðinna samvistarára séu huggun harmi gegn. Fráfall þessara trngu manna og vösku sjómanna vakti harm í huga Siglfirðinga allra og þeir senda aðstandendum þeirra sínar innilegustu samúðarkveðjur og samhryggjast þeim í þungri sorg. Sigjfirðingur.

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.