Siglfirðingur


Siglfirðingur - 22.12.1950, Blaðsíða 4

Siglfirðingur - 22.12.1950, Blaðsíða 4
Flug yfir fjölluni ★ Það er mál flestra, að komi til nýrrar heims- styrjaldar, mnni úrslitaátökin fara fram í Evrópu, en veigamikill liður átakanna á norðlægum slóðum, enda liggja nyrztu lönd Bandaríkjauna, Alaska, og Norðaustur Síbería nær saman, eða aðeins aðskilin af sundi. — Mynd þessi sýnir bandarískar rann- sóknarflugvélar á flugi yfir háfjöUum Alaska. — Kemur þetta landssvæði við sögu átakanna ,brjótist út ný heimsstyrjöld? NÍTT „STEFNirUEFTI Fróðlegt og skemmtilegt, með efni við allra hæfi. Föstudagur 22. des. 1950. Urslitaátökin í Evróþu Athyglisverð ummæli Churchills Blaðinu hefur borizt 3. hefti af tímaritinu „STEFNIR“. Af efni blaðsins má nefna: Víðsjá, eftir Magnús Jónsson; Innlend stjómmál, eftir Sigurð Bjarnason alþingism.; SósíaUsminn sem hug- sjón og veruleiki, eftir prófessof Ólaf Bjömsson. 1 greinarflokkn- um „IsIenZkir kaupstaðir“ skrifar Jónas Rafnar ,alþingism., um Akureyri og Theodór Blöndal, bankastjóri tun Seyðisfjörð. Þá er og í heftinu nokkrar þýddar smásögur og gamansögur; erind- ið „Vorhret í varplandi“ eftir Bjarna Sigurðsson frá. Vigur; greinin „Hversvegna ég trúi á <Juð“, eftir A. J. Cronin o.fl. Allt er heftið liið vandaðasta að frágangi, fróðlegt og skemmtUegt. 1 því er efni við allra hæfi og það kappkostað að tímaritið sé sem fjölbreyttast. 4. hefti tímaritsins mun og nýkomið út eða í þann veginn að koma út og munu nýir kaupendur fá fyrsta árganginn ókeypis. Utanáskrift tímaritsins er: Tímaritið „Stefnir“, Sjálfstæð ishúsinu, Reykjavík. I umræðum þeim, sem urðu í brezka Parlamentinu, að lokinni skýrslugerð brezka forsætisráð- herrans, um för sína á fund Tru- mans Bandaríkjaforseta, lýsti Winston ;ChurchilI yfir þeirri skoð un sinni, að komi til nýrrar heims styrjaldar, myndu úrslitaátökin fara fram í Evrópu. Churchill sagði ennfremur, að 'þótt ekki væri rétt að hætta and- stöðu við ofbeldið í Kóreu, mættu Vesturveldin aðgæta vandlega, að festa ekki herafla sinn um of í Austur-Asíu. Slíkt væri hið kær- komnasta Sovétríkjunum og það sama og bjóða hættunni heim. — Lagði hann megináherzluna á her varnir Evrópu og fagnaði síaukn- um og efldum samtökum lýðræð- isþjóðanna. I þessu sambandi er rétt að taka fram, að enda þótt Alþýðu- fl. brezka og Ihaldsflokknum beri margt á milli í innanlandsmálum, standa þeir þó einhuga um utan- ríkisstefnuna, svo og brezka þjóð- in öll, enda mikið í húfi fyrir hana og aðrar lýðræðisunnandi þjóðir. Þessi skoðun Churcills um úr- slitaátökin í Evrópu, hefur vakið óskipta athygli hvarvetna, því hann hefur áður reynzt sannspár undir svipuðum kringumstæðum. KIRKJAN A '' Messur um hátíðirnar JÓLIN. — Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 6 Jóladagur: Hátíðamessa kl. 2 2. jóladágur: Barnamessa kl. 11 f.h. Skímarmessa kl. 2 e.h. NÝÁRIÐ. Gamlaárskvöld: Aftansöngur kl. 6 Nýársdagur: Hátíðamessa kl. 2 Ábyrgðarmaður: Ólafur Ragnars Reginn komlnn út Nýtt hefti af Œtegin, 5.—6. tbl., blað templara í Siglufirði,ler kom ið út, Af efni blaðsins má nefna: Jólahugleiðing og greinin „Kirkju hátíð að Hólum“ eftir séra Óskar J. Þorláksson; afmælisgreinar um Pétur Sigurðsson, ritstjóra og Kristinn Stefánsson; bókafregn, eftir frú iGuðrúnu Björnsdóttur (Sigurður Guðmundsson, málari). Er heftið hið vandaðasta og læsilegasta, sem hin fyrri. Opnun brauðbúða kaupfélagsins Kaupfélagsstjórinn, herra Hjörtur Hjartar, neitaði blað inu um auglýsingu þá, er skýrir f rá á hvaða tíma. brauðbúðir félagsins verða opnar yfir hátíðimar. Blaðið vill því, vegna .þeirra lesenda sinna er skipta við kaupfélagið, taka sér það bessaleyfi að skýra frá opn- unartímunum. Á aðfangadag verður opið, í Suðurgötu 4 frá 11—12. Á jóladag verður lokað. Á 2. dag jólaUokað. .Á gamlaársdag verður opið frá 10—12. Á nýársdag lok- að. — Búðin við Hvanneyrar braut verður opin sem hér segir: Aðfangadag 10—12 og 1—3. Jóladag lokað. 2. jóla- dag 10—12 og 2—5. Gamla- ársdag 10—12 og 1—3. Ný-. ársdag lokað. Kaupið lesið og útbreiðið „Siglfirðing" YAIIir Sjálfstæðismenn og allir þeir, sem fylgjast vilja vel með innlendiun ogerlendum stjómmálum, þurfa að lesa tímaritið „Stefnir“. Áskriftir í Aðalbúðinni Tímaritið „STEFNIR“

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.