Siglfirðingur - 25.07.1952, Page 2
'Trt*fwr^7\' q /ig«pr-"y»yv!w
SIGLFIBÐINGUB
#####>###\##^#####>#>#>####>#######>#>##<##>##>###>*#v##>#>#'#'##*'*#'#'#,'#'***'#'**'^#'**'***'*'**'**>**
MÁLGAGN SIGLFIRZKRA SJALFSTÆÍÐISMANNA
Ritstjórn: Blaönefndin Ábyrgðarmaður: Ólafur Ragnars
Augl.: Franz Jónatansson títkomudagur: Fimmtudagur
' SPIT ALANÍALIÐ
Langt er nú síðan að Siglu-
fjarðarspítali var byggður. Hann
var á þeirri tíð byggður af litlum
efnum og því ýmsir vankanntar
þar á, svo sem von var, en mikil
voru þó viðbrigðin fyrir okkur
hér að fá hann, og mörgum hefir
þar verið hjálpað til heilsu með
aðstoð þeirra ágætu lækna, sem
við höfum verið svo heppin að
hafa þar. En ekki get ég varist
þeirri hugsun ,að við Siglfirðing-
ar höfum ekki verið nógu hugs-
nnn.rsa.mir um viðhald, eða öllu
heldur endurbyggingu sjúkrahúss
okkar, sem full þörf væri þó á.
Eyfirðingar hafa nú, eins og
ok'kur er kunnugt, hafizt handa
um byggingu sjúkrahúss, sem
brýn þörf var fyrir, og þeir hafa
gengið svo rösklega til verks, að
til fyrirmyndar er. Með frjálsum
samskotum hafa þeir safnað stór-
fé til að fullgera bygginguna.
En hvað hugsum við Siglfirð-
ingar um okkar sjúkrahússbygg-
ingu? Sjálfsagt þurfum við ekki
að vænta stórra gjafa utan byggð
arlags okkar til hennar. Eg minn-
ist þess, að þegar sjúkrahúsið
það, sem nú er, var byggt, að þá
söfnuðu nokkrar konur myndar-
legri upphæð (tugum. þúsunda) til
styrktar þvi máli. Satt er það, að
þá var ólíkt blómlegra yfir at-
vinnuvegunum hér en nú, svo að
næstum má segja, að nú sé úti-
lökuð stór peningasöfnun eins og
ástæður fólksins eru.
En góður vilji er mikils megn-
ugur ef hann er fyrir hendi og
hann á að vera það. Hér er fjöldi
af listfengu fólki, konum og körl-
um. Mér kemur til hugar að vekja
athygli almennings á því, að hér
yrði stofnað til héraðssýningar
þessu spítalamáli til framdráttar,
ek'ki af fáeinum konum, heldur af
almenningi, gömlum og ungum.
Handavinnusýning gagnfræðaskól-
ans á dögunum sýndi það bezt,
að kennarar og aðrir, sem að
henni stóðu, voru starfi sínu vaxn
ir og að framleiðsla þeirra var
þannig, að hún var þeim og sveit
okkar til sæmdar, enda er mikill
munur nú, þegar svo margbreyti-
legar vörur fást í búðum til góðr-
ar og fallegrar handavinnu. Satt
er það, að bóknámið er ómissandi
og að það er okkur eða hneigðin
til þess, í blóðið borin bæði fyrr
og s'íðar, en tæknin er engu síður
'nauðsjmleg fyrir hið daglega líf.
Það eykur manndóm hvers og eins
sem skapar góða og gagnlega
hluti, og þar kemur líka til greina
feguroarsmekkurinn, sem mi'kið
er upp úr lagt nú á tímum.
Siglfirzkar konur hafa mikið
unnið að líknarstörfum á undan-
förnum árum. Þær þarf ekki að
brýna. Eg skora nú á ykkur karl-
mennina, bæði faglærða og ekki
faglærða, smiði og lagtæka, sem
eru margir hér í Siglufirði, að
smíða marga og fallega og vand-
aða muni til héraðssýningar hér,
til ágóða fyrir sp’italann okkar.
Eg er viss um, að slíkir munir
myndu ganga út og að þeir
myndu ekki verða héraði okkaf
til vanza, hver á sínu sviði. Og
það myndi sýna sig, að við mynd-
um ekki þurfa að sækja alla hluti
sem heimili okkar þarfnast, út úr
héraðinu. Og það er meira en mál
að hrynda af sér því sliðruorði, að
hér sé allt ómenning, en slíkt hafa
öhlutvandir menn stundum látið
sér um munn fara um Siglufjörð.
Eg man þó svo langt, að margur
s'kólamaðurinn gat haldið áfram á
menntabraut sinni fyrir það
drjúga tillegg, sem siunaratvinna
hans hér lagði honum til. Eða eru
það þessir fyrrv. námsmenn, sem
nú vilja hafa aðeins selstöðu hér.
Eg vona að svo sé ekki.
Unglingarnir hafa oft margar
tómstundir. Það ætti því að vera
kært mál og metnaðarmál, að
verja slíkum stundum vel og hér
er hentugt tækifæri að styðja
þetta góða málefni og það eins
þótt þeir þyrftu að neita sér um
eitt skemmtikvöld af og til. Og ég
er viss um, að eftirá myndu þeir
finna mikla ánægju af því, að
geta látið af hendi eigulegan sýn-
ingarmun til styrktar góðu mál
efni. Þeir mega líka minnast þess,
þeir sem að þessu kynnu að vinna,
að slíkt tómstundastarf kann lika
að koma þeim sjálfum að notum,
því enginn, þótt hann sé nú heill
og hraustTir, á það víst að verða
það alla æfina. Og við Siglfirðing-
ar megum sízt af öllu við því að
missa okkar ágæta sjúkráhús-
lækni héðan burtu vegna þess, að
við höfum ékki búið nógu vel að
honum. Eg vil í þessu sambandi
minna á það, að gamla sjúkrahús-
ið okkar er mjög hentugt fyrir
gamalmennahæli, sem hér er brýn
TILKYNNING nr. 12/1952
Fjárhagsráð hefur ákveðið nýtt hámarksverð á smjörl'iki,
sem hér segir:
Niðurgreitt Óniðurgreitt
Heildsöluverð án söluskatts ...... kr. 4,42 kr. 9,25
Heildsöluverð með söluskatti ....... — 4,70 — 9,53
Smásöluverð án söluskatts .......... — 5,39 — 10,29
Smásöluverð með söluskatti ......... — 5,50 — 10,50
Reykjavík, 30. júní 1952.
VERÐLAGSSKRIFSTOFAN
Hús til sölu
Ibúðarhúsið Hólavegur 17 er til .sölu og laus til íbúðar nú
þegar.
Húsinu fylgir afgirt lóð í góðri rækt.
Tilboð óskast í eignina í því ástandi, sem hún er nú og sé
þeim skilað til undirritaðs, isem gefur nánari upplýsingar, fyrir
1. ágúst n.k.
PÉTUR LAXDAL
þörf fyrir. Það er í hæfilegri fjar-
lægð frá ys miðbæjarins, stutt til
heimsókna þangað og stutt til
læknis og prests. Þar er skjólsælt
og fögur, grasigiróin brekka norð-
an við, og ég sé í anda síðarmeir
fagran trjá- og blómagarð, með
bekkjum og blómskrúði til yndis
og hvíldar fyrir gamla fólkið og
útsýn er úr gamla spítalanum
hin fegursta yfir bæinn og út á
fjörðinn okkar fagra. Enda meg-
um við því vel una, og ekki meg-
um við grafa gamalmennin okkar
fyrr en þau eru önduð.
Eg vil svo enda þessar línur
með þeirri ósk til almennings, að
hann taki þetta mál til góðvilj-
ugrar athugunar, hugleiði það og
ræði um það og riti, og það hvort
sem þeir eru með því eða móti.
Eflaust mætti benda á ýmsar
fleiri leiðir og eflaust verður það
gert. Máltækið segir að trúin
flytji fjöll. Eflaust væri beinasta
leiðin í þessu efni bein peninga-
sönfnun, en hvorttveggja er, að
peningar eru nú á þessum síðustu
og verstu tímum takmarkaðir
meðal fólks, enda hægt fyrir þá
sem þá hafa að láta þá. Sama er
með dagsverk eða þá aflahlut úr
róðri frá sjómönnunum. Mest er
um það vert, að almenningur trúi
á málefnið. Og mér finnst satt að
segja að hugmyndin um héraðs-
sýningu hafi í sér talsvert af þvi,
sem stefnir i menningaráttina.
Góðir Siglfirðingar! Gerið mál
þetta að ykkar máli og berið það
fram til sigurs. Sigurinn er því
vís, ef við fylkjum okkur um það.
Gömul kona
Nýkomið
Nýkomnar amerískar mjmda-
peysur á böm og fullorðna, —
einnig myndaveski, plastic-
dúkar, plastic í metratah, plast-
ic-bomsur, plastic-eldhúsgard-
ínur, vinnuvettlingar (gulir og
hvítir), herraskyrtur (hvítar
og mislitar).
★
Þýzk saft, eplasafi, orange.
★
Ódýrar krakkabomsur nýkomn-
Einnig aliskonar matvara
og hreinlætisvara.
★
Reynið Johnsons barnavör-
urnar.
★
KOMIÐ — SJAIÐ — KAUPIÐ
Verzlunin ,8ræðraá‘
Sími 76
Herbergi til leigu
á góðum stað í bæmun.
Afgreiðslan vísar á.