Siglfirðingur


Siglfirðingur - 18.09.1952, Síða 3

Siglfirðingur - 18.09.1952, Síða 3
SIGLFIKÐINGUR 3 t/ahfn n*n imuliUU' Brjóta þarf blað Hinn landsfrægi Arnarhóls- fundur er talandi dæmi um um- komuleysi hins svokallaða Al- þýðuflokks. Hin seinheppna for- ysta flokksins hafði hóað hingað til lands helztu broddum sós'ial- demókrata á Norðurlöndum og auglýst með veldi og látum mikl- um útifund á Arnarhóli — undir styttu hins fyrsta landnáms- manns. Þessi útlendu stórmenni skyldu verka sem segull, er sygi fólkið að flokksnefnunni. En svo illa tókst til, að áheyrendurnir. urðu litlu fleiri en ræðumennirnir og hinir erlendu gistivinir boðuðu sósíaldemókratiið yfir fölnandi grasi og fallandi bifukollum. Svo illa þreifst Alþ.fl. undir fótstalli hins fyrsta landnámsmanns! Þessi sögulegi fundur væri ekki umtalsins verður ef hann væri ekki svo táknrænt dæmi um sögu Alþ.fl. síðustu árin. Það er sem sé víðar en við styttu landnáms- mannsins, sem flokkur þessi hef- ur sopið dauðann úr skál. Hér er ekki og hefur aldrei verið sú múgmennska, sem slíkar stefnur dafna í- Hér gefur fólkið sér t'íma til umþenkingar, hér mótar einstaklingurinn eigið sjónarmið — og í því er fólgið skapadægur þeirra kenninga, er þarfnast hóp- sefjunar og múgmennsku til að dafna í. Æska Islands í dag má ekki skera á þau bönd, sem binda hana horfnum kynslóðum. Hún veit, að á lærdómi liðinnar tíðar verður að byggja hagsæld fram- tíðarinnar. Og sá lærdómur ber þess gleggstan vottinn, að frelsi til framtaks, ekki siður en and- legt frelsi, er hornsteinn sannra framfara. Það er vegna þessa lærdóms, sem æskan á samleið með Sjálfstæðisflokknum. Ríkis- og bæjarrekstur hefur reynzt algjörlega vanmáttugur þess að halda uppi blómlegu at- hafnalífi- Reynsla Siglufjarðar, háborgar slíks reksturs, er þar talandi dæmi, sem ekki verður með rökum móti mælt. Hér sem annars staðar verður endurvakn- ing einkaframtaks, samfara hóf- legri skattapólitík og heilbrigðri lánastarfssemi, eina trygga leið- in til viðreisnar byggðar og byggjenda. Sósíalisminn er verri en síldarleysið. Hann er deyfilyf; sem lamar athafnaþrá og athafna yilja eínstaklinganna. En orka til athafna, knúin af heilbrigðri ágóðavon, er þörf og fær til að þrýsta þjóðiuni úr öldudal of- stjórnar og, eymdar og skapa atvinnu handa öllum og velmegun. Atvinnuleysið er böl. Sósíalism- inn er ópíum, fölsk fróun, sem lyiftir fólkinu upp í ský og hyll- ingar, en er raunverulega flótti frá róttækum aðgjörðum. Sér- eignarstefnan, sjálfstæðisstefnan, leysir úr læðingi vilja og getu til átaka. Það þarf að létta á skatta- birði þess opinbera á atvinnu- vegunum, skapa framgjörnum einstaklingum fjármagn til fram- ★ Mikill viðbúnaður er í Kreml undir flokkssamkundu Kommún- istaflokks Ráðstjórnarríkjanna, sem boðað hefur verið til í fyrsta skipti í herrans háa tíð. Eru nokkrar breytingar sagðar á döfinni á skipan flokksins. Þær helztu ku í því fólgnar, að enn frekara vald verður fært til Kreml úr hinum ýmsu hlutum einveldisins, og er það kallað á fínu máli „þróun frá sósialisma til kommúnisma!“ Jafnframt "er talið, að Stalín hyggi nú á val eftirmanns síns, en hann gerist nú hrumur og elliþreyttur. ★ Mikið hefur borið á utanstefn- um leppflokkanna í ýmsum lönd- um heims til „föðurlands sósíal- ismans“. Skýra margir það á þann veg, að endurskipulagning flokksins utan „föðurlandsins“ eigi að fylgja breytingunum heima fyrir. Mesta athygli hefur vakið för kinverkskrar sendi- nefndar undir forsæti Chou En- Lai, þess slungna refs, sem næstur stendur hinum mikla Maó, einvalda Kina. Þá hefur og, spurst, að Thorez hinn franski, sé á heimleið eftir 2 ára Rúss- landsdvöl með nýjasta línuspott- ann. ★ Brynjólfur Bjarnason, íslenzki deildarstjórinn, hefur og brugðið sér í pílagrímsför til Rússlands. Kommúnistablöðin íslenzku þegja vendilega yfir för hans sem öðr- um utanstefnum foringjaliðsins. En þessi þögn blaða þeirra vekja enn frekari athygli islenzks al- mennings á för Brynjólfs, og þess er að vænta, að varhugur verði goldinn þeim kenningum og fyrirmælum, sem geymd verða í hnakktösku hans er hann kemur þeysandi síntun gerska gæðingi í hlað Fjallkonunnar á ný- kvæmda. — Þá mun vissulega muna „nokkuð á leið“, svo sem Jónas kvað forðum. Það er ekki undarlegt, þótt æskan fylki sér undir merki sjálf- stæðisstefnunnar. Flóttin úr her- búðum ,,hækjuliðsins“ (Þorvaldur Garðar etc.) er eðlileg og heil- brigð þróun málanna. Æskan á ekki samleið með fölnandi haust- laufi Alþ.flokksins & kommún- ista, hún er sjálf vor komandi tíma, þeirra tíma, þar sem frelsi og framtakssemi eru aðalsmerki fólks, sem unir glatt við sinn hag. FUS-félagi ★ Lítið hefur borið á þjóðnýt- ingarversum í húslestrum komm- únista nýverið. Þykir reynslan af ýmsu bæjarreksturs- og þjóðnýt- ingarbrölti lítt til þess fallin, að flagga um of með slík stefnu- skrármál rauðliða. Það sem flýt- ur ofan á í áróðri bolsévikka þessa dagana eru „frigðarpillur“ og „hernám Grímseyjar“, en heilarúm þeirra og blaðakostur virðist trauðla rúma annað né meira um þessa mundir. Heldur þykir þó slíkt heilafóstur lélegur vopnakostur í baráttunni við dómgreind almennings, sem stað- ið hefur af sér brimsjóa áróðurs- ins. Er þess að vænta, að byggða- lög þau, sem enn eru haldin bakteríu kommúnismans, leiti sér lækningar í lind lýðræðislegs hugarfars og kenningum klass- iskrar hagfræði um frjálsa sam- keppni og framtak einstaklinga. Þá mun rísa á ný sól velmegunar og vinnandi handa, en rauðar stjörnur hrapa af himni stjórn- málanna. ÖNGÞVEITIÐ 1 ATVINNU- LlFINU Framhald af 1. síðu á sviði atvinnumálanna. Þess vegna tóku þeir einn liðinn, kaup- gjaldsmálin, úr tengslum, og ruddust fram með stórbreytingar á honum i þeirri góðu trú, að vænlegar horfði um að koma því skipulagi á, isem þeim hefur ver- ið falið að berjast fyrir. Sem betur fer hefur þeim fat- ast 1 útreikningnum. Það er enn eftir dálítið sjálfstæði í eðli Is- lendingsins. Það er enn eftir þrá og þróttur til framtaks og at- hafna. Og þó dimmur og 'iskyggi- legur skuggi hvíli yfir atvinnu- rekstri þjóðarinnar í dag, þá mun Islendingurinn, eftir reynslunni að dæma, rísa upp með mörg vopn á lofti og svifta af sér öll- um einræðisfjötrum og ganga frjáls og einhuga að þegnlegum þjóðfélagsstörfum. Islenzkur verkalýður. Nú er stundin komin. Hafið þið veitt því athygli? ★ að það var fyrir forgöngu Sjálf ' stæðisflokksins, að horfið var inn á braut smáíbúðabygging- anna, sem lausn á húsnæðis- vandanum. ★ að það var fyrir forgöngu Ól- afs Thors, að sett voru bráða- birgðalög, sem tryggja síldveiði sjómönnum greiðslu kauptrygg ingar, nú eftir 8. síldarleysis- sumarið. '★ að virkjanir Sogs- og Laxár, ásamt áburðarverksmiðju og sementsverksmiðju, er jákvætt áframhald nýsköpunarstefnu Ólafs Thors: Sköpun vaxandi athafnalífs. ★ að vikkun landhelginnar, sem framkv. var af núv. ríkisstjórn, vegna forystu sjávarútvegs- málaráðherra sem er form. Sjálfst.fl., er stærsta skrefið til tryggingar íslenzks sjálfstæðis, sem stigið hefur verið frá stofn un lýðveldisins. TILKYNNING UM LÖGTÖK Samkvæmt beiðni bæjargjaldkerans í Siglufjarðarkaupstað og að undangengnum úrskurði, tilkynnist hér með, að lögtök til lúkningar ógreiddum gjöldum til bæjarsjóðs Siglufjarðar fyrir árið 1952, auk dráttarvaxta, kostnaðar við lögtaksgerðina og eftirfarandi uppboð, ef til kemur, mega án frekari fyrirvara fara fram að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar tilkynningar. Gjöldin eru þessi: Utsvör, kirkjugarðsgjöld, fasteignaskattur, vatnsskattur og lóðargjöld. t Lögtökin fara fram á kostnað gjaldenda, en á ábyrgð bæjarsjóðs. Bæjarfógetinn í Siglufjarðarkaupstað, 16. sept. 1952. EINAR INGIMUNDARSON Raudar stjörnur

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.