Siglfirðingur


Siglfirðingur - 06.04.1955, Side 4

Siglfirðingur - 06.04.1955, Side 4
4 SIGLFIRÐINGUR t PÁLlNA JÚNSDÖTTIR MINNIN GARORÐ TÍLKYNNING nr. 1/1955. Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið nýtt liámarksverð á smjör- líki sem liér segir: Heildsöluverð ............ kr. 4,79 kr. 9,62 pr. kg. Smásöluverð .............. — 5,66 — 10,60 pr. kg. Söluskattur er innifalinn í verðinu. \ Reykjavík, 31. marz 1955. VERÐGÆZLUSTJÓRINN iÞann 14. marz síðastl. lézt að heimili sínu hér í bæ húsfreyjan í Túngötu 18, Pálína Jónsdóttir, sjötíu ára að aldri. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson fyrrv. hreppstjóri og bóndi í Horn- brekku og síðar að Nýjabæ í Bæjarkleettum og Helga Bene- diktsdóttir, sem var seinni kona Jóns. Jón var Þingeyingur að ætt og var móðir hans af svonefndri Draflastaðaætt, og náskyld Sig- urði fyrrv. búnaðarmálastjóra. — Faðir Helgu, Benedikt Þorsteins- son, bjó í Litlu-lGröf í Skagafirði, en móðir Helgu, Dagbjört, var dóttir Hallgríms læknis Jónasson- ar á Keldum í Sléttuhlíð. Bæði voru þau Jón og Helga vel gefin. Var Jón snjall hagyrðingur, betur að sér í skrift og reikningi en almennt gerðist og var því valinn sem hreppstjóri; þótti hann nýtur maður. í fréttabréfi úr Skagafirði, sem birtist í blaðinu í dag er meðal annars ságt frá veiki í kúm. Er talið að þetta sé nokkurskonar hjartveiki, og muni stafa af óhollu fóðri — trénuðu heyi. Það er ákaflega bagalegt fyrir bóndann og veldur honum tíðum fjárhagslegu tjóni, þegar eitthvað ber út af með heilsu kúnna. Kýrin aflar búinu hollrar og nauðsyn- legrar fæðu, og er þess utan all drjúg tekjulind, sem seitlar inn í bú bóndans. Fóður hennar kostar mikið og til þess, að hún geti greitt bóndanum fóðurkostnaðinn, og auk þess gefið af sér tekjur, má ekki mikið bregða út af með heilsufar. Þess vegna er það áríðandi fyrir bóndann að hafa það hug- fast að reyna að bægja frá kúa- hjörð sinni öllu því, sem orsakað gæti veilu og óhreysti. Ef rétt væri, að umrædd veiki eða kúafaraldur stafi af óhollu fóðri, þyrfti að láta rannsaka, hvað það er í fóðrinu, sem orsakar sjúkdóminn. Það er ekki nýtt fyrirbæri hér á landi, að kýr veikist um og eftir burð af þeim kvilla, sem hefur verið og er í mörgum til- fellum nefndur hjartveiki. Þessi hjartveikissjúkdómur kom — að mig minnir — fyrst í ljós með aukinni nýrækt, notkun til- búins áburðar og kjarnfóðursgjöf. Mig minnir, að hann hafi byrjað í Reykjavík og nágrenni, en þar hófst nýræktin; þar var fyrst not- aður tilbúinn áburður, og þar var Pálína ólst upp á heimili for- eldra sinna til fermingaraldurs, en eftir það var hún í vistum á góðum heimilum. Til Sigluf jarðar fluttist hún árið 1909. Tveim árum síðar 1911, gift- ist hún eftirlifandi manni sínum, Guðna Guðnasyni. Þau eignuðst 9 börn. Af þeim komust 5 til full- orðins ára, en 4 dóu í æsku. — Einnig urðu þau fyrir þeirri sáru sorg að þurfa að sjá af yngsta syninum, Sigþóri, en hann drukkn aði við Vestmannaeyjar á síðastl. ári. — Öll eru börn þeirra, sem uppkomust rnyndarfólk og mann- vænlegt. Pálína var góð húsmóðir og móðir, enda virt og dáð af börn- um sínum og eiginmanni, sem og öðrum, er henni kynntust. Blessuð sé minning hennar. P. E. byrjað fyrst að gefa kúm kjarn- fóður til þess að auka mjólkur- magn. — Þessi kvilli hefur svo fylgt eftir þessari þrenningu út á landsbyggðina. Páll Zophoniasson, búnaðar- málastjóri, sem var um langt skeið nautgriparæktarráðunautur, hélt því fram, að íslenzku kýrnar gætu framleitt meiri hjólk með því að gefa þeim kjarnfóður með töðunni. Hélt Páll því fram, að kúnum gengi illa að umbreyta íslenzku töðunni í mjólk, og taldi að kjarnfóður þyrfti að koma þar til hjálpar. Hann eggjaði menn til þessarar fóðurgjafar. Sjálfsagt hefur Páll haft rétt fyrir sér. — En sá ljóður varð skjótt á, að kúaeigendur gættu ekki hófs í matargjöfinni. Um leið og matar- gjöfin hófst jókst mjólkin. Þá var stefnan þessi: meiri matargjöf — meiri mjólk. Það var svo sem gott. En matargjöfin var þá í svo miklu óhófi, að kýrnar veiktust — lítið eitt vanalega um burð. Ekki voru mikil brögð að veikinni meðan kúnum var gefin safarík og smá- gerð taða. En þegar farið var að gefa þeim trénaða fæðu og illmelt- andi, uppheiglaða af tilbúnum áburði eingöngu, þá kom veila og óstarfhæfni meltingarfæranna fram, sem matargjöfin hafði stutt að. Kýrnar veiktust, urðu gagn- lausar eða drápust. Nafnið á þess- ari veiki var í fyrstu nefnt hjart- veiki; sumsstaðar var sagt, að kýrnar vantaði kalk. Nú kemur nafnið blóðkreppusótt sunnan af landi. Ætli það sé ekki rétta nafn- f ÞAKKARÁVARP Þökkum innilega auðsýnda hluttekningu við andlát og jarðarför litla drengsins okkar. Betty Antonsdóttir Páll Gestsson ið á þessum almenna kúakvilla. — Það er mjög líklegt. - Það er skiljanlegt, að bændur vilji, að kýrnar mjólki vel, og þá er gripið til matargjafar og þessa trénaða fóðurs. Margir munu standa í þeirri meiningu, að með matargjöfinni verði þetta trénaða fóður auðmeltanlegra, en ég tel það rangt reiknað. Eg held, að menn hafi oftrú á þessum tilbúna áburði. Einhvern veginn hefur það festzt í mér, að hann sé ekki notandi nema á frjó- efnaríkt land, þar sem gnótt er af áburði fyrir í jarðveginum. Hlut- verk tilbúins áburðar sé að leysa áburðarefnin, sem í jarðveginum eru, og gera þau aðgengilegri og auðunnari fyrir jurtirnar. Meðan heimaáburður er til í moldinni vex upp góð, smágerð og safarík taða. Eftir því sem hann minnkar, breytist gróðurinn smátt og smátt, smágresið hverfur en í stað þess kemur puntgresið þerr- ið, þurt og trénað. Og ef notaður er tilbúinn áburður á sama landið til langs tíma eingöngu, verður grasrótin laus í sér og hverfur smátt og smátt. Tilbúinn áburður er góður með heimaáburði. Hófleg matargjöf með auðmeltu fóðri — töðu — er einnig góð. En það má ekki mis- bjóða gróðrinum með ofnotkun til búins áburðar, og það má heldur ekki misbjóða meltingarfærum kúnna á ofnotkun kjarnfóðurs með ómeltanlegu fóðri. Mjólkur- framleiðslan getur orðið vafasöm hér á landi ef ekki er gætt hófs í þessu. Ætli garnaveikin sé af sömu rótum runnin? Einkennilegt að hennar verður fyrst vart á Hólum í Hjaltadal. Fréttðbréf úr SKagafirði Alauð jörð er nú um byggðir Skagafjarðar ,og bezta bílfæri um héraðið allt út að Reykjarhóli á Bökkum. Eru sneiðingarnir í fjallshlíðinni utan við Reykjar- hólinn ófærir bílum. Er sjálfsagt ekki vanþörf á uppbyggðum vegi eftir mýrunum eða bökkunum. Nýlega er afstaðin hin þjóð- kunna Sæluvika Skagfirðinga á Sauðárkróki. Var þar fjölmargt til skemmtunar. Leiksýningar, kvikmyndasýningar, fyrirlestur o.fl. Svo var dansað á hverju kvöldi skikkanlega fram eftir nóttu. Segja má, að mestan hluta sólarhringsins hafi fólk átt kost á einhverri skemmtun. Þegar þess ari skemmtun lauk, tók önnur við, sem sagt ein syngjandi sæla alla vikuna. \ Innflúensufaraldur hefur gengið um héraðið og hefur verið ann- ríkt hjá læknum. Mikil veiki er í kúm í hérað- inu. Á sumum bæjum hafa legið 1—3 kýr við borð, en rétt við aftur með þeim afleiðingum, að þær urðu básgeldar. Á öðrum bæjum hefur drepist ein og ein kýr. Talið er, að þetta sé hjartveiki, og halda menn að hún stafi af óhollum heyjum, þ.e. trénuðu fóðri. — Loðna er að byrja að ganga inn fjörðinn, og gera menn sér vonir um fiskigegnd. Enn er fiskafli tregur, þá sjaldan að róið er. 0 Takið eftir! Happdrættismiðar í Happdrætti aldraðara sjómanna verða til sölu hvern virkan dag milli kl. 4—7 í Lækjargötu 2. — Styrkið heimili gömlu sjómann- anna og kaupið miða. Þar er nýrækt mikil, líklega trén- að fóður gefið og matargjöf sjálf- sagt líka. Er því garnaveikin ekki hrein blóðkreppusótt? Líklega er of langt gengið að blanda mæðiveikinni inn í þetta Jíka. P. E. Veikin í skagfirzku kúnum

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.