Siglfirðingur - 23.04.1955, Blaðsíða 2
2
SIGLFIRÐINGUR
i------------————~—--------
Siglfirðingur
MALGAGN siglfirzkra
sjalfstædismanna
Ritstjórn: Blaðnelndin
Abyvgðarmaður: Ólafur Ragnars
Auglýsingar: Franz Jónatansson
--------------------------->
VERKFÖLL
(Framhald a£ 1. síðu)
meirihluti verkalýðsins í landinu
er mótfallinn þessum starfshátt-
um. Verkalýðurinn er orðinn
þreyttur á þessum sífelldu kaup-
kröfum og verkföllum. — Hann
hugsar málið þannig, að réttlátast-
sé, að samræmi sé milli kaup-
gjalds og vöruverðs í landinu. —
Hann ■ telur verð landbúnaðaraf-
urða ofhátt og óeðlileg þessi sí-
'fellda verðhækkun á þeirri vöru.
Og fyrst og fremst beri að athuga
hvar geti komið til sanngjarnrar
lækkunar á nauðsynja varningi.
Og einnig að tryggja vinnuna.
Kaupgjald byggt á svo og svo
miklum niðurgreiðslum á land-
búnaðarvörum er eintómt tál og
vitleysa. Ríkissjóður getur ekki
innt af hendi þessar niðurgreiðsl-
ur nema hann fá fé til þess. Hann
aflar sér þessa fjár með ýmis-
konar sköttum og tollum. Hverjir
greiða svo þessa skatta nema
gjaldþegnar ríkisins, jafnt verka-
menn sem aðrir.
Það virðist því vera hlálegt
þetta kaupkröfuæði, þegar vitan-
legt er, að kaupgjaldshækkunin er
greidd til baka í sköttum vegna
niðurgreiðslnanna.
Verkamenn eru óánægðir með
þessa ráðstöfun. Þeir vilja að var-
an í landinu sé seld sanngjörnu
verði og það sé fest og á því
byggist svo kaupgjaldið. Öngþveit
ið og vitleysan, sem komin er í
þessi kaupgjaldsmál og vöruverð
(m.ö.o. verðbólgan í landinu) er
þjóðarmein.
Það er nauðsynlegt að gengið
sé að því í fullri alvöru og ráðn-
um huga að lækna þetta illkynj-
aða mein. Til þess þurfa góðir
menn og sanngjarnir að koma. En
meðan auðnuleysingjarnir og ævin
týramenn í Reykjavík fjalla um
það, er engin meinabót.
Það var árið 1940, sem sú
spurning lá fyrir forráðamönnum
þjóðarinnar, hvort hefjast ætti
dýrtíð og verðþennsla í landinu,
eða hvort stemma ætti stigu fyrir
slíkt.
Heimsstyrjöldin síðari hófst í
septeember 1939. Lengi vel var
ekki séð, hve yfirgripsmikil hún
yrði, og var það ekki fyr en í
apríl og maí 1940, sem hún tók
þá stefnu, að augljóst var, að
áhrif hennar mundi gæta hér á
landi. Samkvæmt þeirri reynslu,
sem fengin var í fyrri heims-
styrjöldinn, mátti búast við ýmis-
konar röskun á sviði verzlunar og
Söngskemmtun Þorsteins H. Hannessonar
viðskipta í þessari seinni heims-
styrjöld.
Það var því búist við, að for-
ráðamenn þjóðarinnar létu sér
víti fyrri styrjaldar að varnaði
verða og reyndu að girða fyrir
ofvöxt og óeðlilega þennslu í verð-
lagi innlends varnings, en slíkt
fyrirbrigði í fyrri styrjöldinni
raskaði efnahag og eðlilegum
viðskiptum.
Menn viðurkenna almennt nú,
að hægt hefði verið á árinu 1940
að stemma stigu fyrir hækkandi
vöruverð og kaupgjaldi, og telja
að ef að því ráði hefði verið
horfið stæði hagur þjóðarinnar í
blóma.
Og til var þá allstór hópur
manna, sem héldu því fram, að
forráðamönnum þjóðarinnar bæri
að búa svo um fyrir þjóðinni, að
hún lenti ekki í innbyrðis styrj-
öld um verðlag og kaupgjald
meðan á heimsófriðnum stæði.
Fyrri hluta árs 1949 virtist
vera viðunanlegt samræmi milli
verðlags og kaupgjalds og heyrð-
ust engar raddir um að fá breyt-
ingu á því. Verðlag á erlendum
varningi hafði þá engin áhrif til
hækkunar.
Þá leggst spurningin fyrir ríkis-
stjórnina. Á að festa vöruverð og
kaupgjald eða á að láta skeika að
sköpuðu og láta það fara sem
vill? j , |
Líklega hefur sumum fundist
erfitt að svara. Ráðherrar Fram-
sóknarflokksins sáu sér þarna
leik á borði. Festu þeir verð á
landbúnaðarvörum, myndi það
hleypa illu blóði í bændur og kjör-
fylgi ráðherranna rýrna. Hinsveg-
ar ef verð færi hækkandi, myndi
fylgið ekki aðeins standa í stað
heldur vaxa.
Þeir þoldu ekki mátið. Um
þjóðarhag var ekki hugsað en
fyrir flokkshagsmununum var
séð. Þeir urðu að sitja fyrir. —
Haustið 1940 skeði svo það, að
kjötið var hækkað í verði, þá var
beizlinu hleypt fram af öllu og
látið taumlaust ráða sér sjálft. —
Verðbólgan hefst.
Kapphlaupið milli verðlags og
kaupgjalds í landinu hefst, og
hefur haldizt nú í 15 ár. Land-
búnaðarvörur hafa hækkað jafnt
og þétt og eftir komið kaupkröfur
og verkföll. Og þó almenningur
hafi staðið í þeirri meiningu, að
við hverja kaupsamningsgerð,
myndi vöruverð stöðvast, þá hef-
ur verðhækkun ávallt eftir litla
stund skotið upp höfðinu. Þessi
verðbólga og kaupgjaldshækkun
hefur komið þyngst niður á sjáv-
arútveginum, því verðið á sjávar-
afurðum hefur verið bundið er-
lendu markaðsverði, sem hefur
ekki verið nægilegt til að standa
straum af síhækkandi fram-
leiðslukostnaði.
Um það hafa ekki Framsóknar-
flokksmenn hugsað. En þeir fundu
ráð við því að fela verðið á land-
Á annan í páskum efndi Þor-
steinn Hannesson, óperusöngvari
til söngskemmtunar í bíó.
Á söngskránni voru lög eftir
innlenda og erlenda höfunda, þar
á meðal nokkrar óperuaríur.
Það eru nokkur ár síðan Þor-
steinn hefur látið til sín heyra í
heimabæ sínum.
Sú var tíðin, að Þorsteinn velti
sér um í hreiðri sínu, ungur og
ófleygur. En strax og vængir
styrktust, hóf hann sig til flugs,
þessi ungi söngvasvanur, kvaddi
hreiðrið og leitaði sér fræðslu og
frama. Við og við hefur hann
flogið heim í hreiðrið og hafið þar
söng sinn fyrir hreiðurbúa, og þá
alltaf verið í stöðugri framför.
Þorsteinn olli ekki neinum von-
brigðum í þetta sinn, frekar en
endranær, og söng flest lögin vel
og sum stórvel og með miklum
glæsibrag, svo sem sumar óperu-
aríurnar. En það sem söngvarann
helzt virtist skorta, voru hinir
glæsilegu hátónar, sem svo mjög
búnaðarvörunum til þess að gera
það glæsilegra í augum almenn-
ings í landinu. Þeir fengu því
framgengt, að ríkissjóður var lát-
inn greiða hluta af verðinu og
töldu, að með því móti gengi var-
an út og auðveldara væri fyrir
fólkið að kaupa hana. Er þetta
eins og vikið var að hér að fram-
an ekkert annað en ,,svindl“. Al-
menningur greiðir sinn mjólkur-
líter og kjötkíló á tveim stöðum,
í mjólkur- og kjötubúðum og svo
hjá bæjarfógeta, en þar heitir það
skattur.
Nú er verð á íslenzkum land-
búnaðarvörum orðið svo hátt, að
enginn lítur við þeim á erlendum
markaði. Englendingar, sem
keyptu talsvert af kjöti fyrir stríð
eru alveg hættir. Þeir fá sitt kjöt
annarsstaðar frá með miklu væg-
ara verði. Enginn markaður fyrir
svona dýrt kjöt finnst hvergi í
öðrum löndum.
S.Í.S. gerði tilraun til markaðs-
leitar fyrir kjöt í vetur í Amer-
íku. Sú sorgarsaga verður ekki
sögð hér, en þess getið þó, að lítið
seldist af því kjöti, sem sent var
þangað. Mun meginið af því hafa
verið sent til baka.
Ef svo verður, sem sagt er, að
kjötmagnið í landinu vaxi mikið í
ár og jafnvel svo að landsmenn
torgi ekki, og svo muni það fara
vaxandi á næstu árum, hvað
“verður þá gjört við kjötið?
Liggur þá ekki fyrir tvennt:
annaðhvort að fleygja því, sem
landsmenn ekki éta, eða þá að
lækka verðið, svo að það seljist á
erlendum markaði. Það verða sjálf
sagt ekki viðfelldin skuldaskil, er
sú verðlækkun veldur. Þriðju leið-
ina má fara, þó að kjötið verði
greitt niður fyrir erlendan markað
einkenna mikinn tenórsöngvara,
en ef af líkum lætur, og dæma má
eftir stöðugri framför hans, þá
mun hann ná þessari fyllingu í
hátónana innan tíðar.
Við íslendingar höfum eignast
marga ágæta og velmenntaða
söngvara á undanförnum árum,
en mér er sagt af fróðum mönn-
um um þessa hluti, að Þorsteinn
muni þeirra glæsilegastur, ekki
kannske fyrir það, að hann hafi
fegri rödd en hinir, heldur fyrir
hitt, að hann hafi til brunns að
bera meiri tjáningarhæfileika, en
án þeirra verður engin list til. —
Það er því trúa mín og einlæg ósk,
að þegar Þorsteinn hefur náð
meiri fyllingu og glæsibrag í há-
tónana, þá bíði hans glæst fram-
tíð á söngvarabrautinni, sem þó
oft er þyrnum stráð.
Siglfirðingar tóku Þorsteini for-
kunnarvel og varð hann að syngja
mörg aukalög.
Undirleik annaðist Haukur Guð-
laugsson af mikilli prýði, en óvið-
kunnanlegt verður það að teljast,
að hafa sérstakan mann til að
fletta fyrir sig nótum.
Áheyrandi
Húseign til sölu
Húseignin Lækjargata 2 er til
sölu nú þegar. Tilboð óskast. —
Réttur til að taka hvaða tiiboði
sem er eða hafna öllum.
Tilboðum sé skilað í Aðalbúð-
ina til Óla Blöndal.
eins og heimamenn.
Ákvörðun sú, sem tekin var
1940, og nefnd hefur verið hér að
framan, hefur leitt öngþveiti og
óáran yfir íslenzku þjóðina. — í
kjölfar hennar hefur runnið ýmis-
legt, sem raskað hefur jafnvægi í
þjóðarbúskapnum, aukið skatta-
og tollabyrðar á almenningi í
landinu.
Nú er orðið sjálfsagt að ríkis-
sjóður greiði með ekki aðeins land
búnaðarafurðum, heldur og sjávar
afurðum og ýmsu fleiru. Ef á það
bætist svo, að greitt verði með
kjötinu á erlendan markað, þá
þyngist enn skattabyrðin á lands-
mönnum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gjört ítarlegar tilraunir til að
stöðva dýrtíðina og leitað sam-
vinnu við Framsóknarflokkinn í
því efni. Og jafnvel þó Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi lagt sig
mjög. fram um að gera eitthvað
raunhæft í dýrtíðarmálunum og
teflt hagsmunum flokksins í tví-
sýnu, hafa Framsóknarmenn
verið þar þversum og látið flokks-
hagsmuni sína ráða en ekki þjóð-
arhag.