Morgunblaðið - 02.05.2011, Síða 1
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Í kvöld verður brotið blað í sögu ís-
lenskrar knattspyrnu þegar leikið
verður innanhúss í fyrsta skipti í
efstu deild karla. Á föstudag var
ákveðið að færa viðureign Fylkis og
Grindavíkur í knattspyrnuhúsið
Kórinn í Kópavogi og leikurinn
hefst þar á sama tíma og áður var
fyrirhugað, eða klukkan 19.15.
Tuttugu ár eru síðan leikur var
síðast fluttur af grasi yfir á annað
undirlag í fyrstu umferð efstu deild-
ar karla. Það var árið 1991 þegar
tveir leikir þurftu að fara fram á
malarvöllum vegna slæmra vall-
arskilyrða, á malarvelli Stjörn-
unnar í Garðabæ og KA á Akureyri,
en þeir eru nú báðir horfnir og vell-
ir af annarri tegund komnir í stað-
inn.
Það er hins vegar vel þekkt úr 1.
deildinni að spila innanhúss í byrj-
un Íslandsmótsins. Þar hefur verið
spilað í Kórnum, Fjarðabyggð-
arhöllinni á Reyðarfirði og Bog-
anum á Akureyri í fyrstu umferð-
unum síðustu árin, og einnig í
Reykjaneshöllinni í lokaumferð
deildarinnar.
Fylkir – Grindavík
Leikir Fylkis og Grindavíkur
hafa verið óútreiknanlegir und-
anfarin ár og liðin sigrað hvort ann-
að á útivöllum. Fylkir vann þó báða
leiki liðanna í fyrra og hefur haft
betur í 12 af 22 viðureignum félag-
anna í efstu deild.
ÍBV – Fram
Íslandsmótið hefst í Vest-
mannaeyjum þar sem ÍBV tekur á
móti Fram klukkan 18.
Þetta er þriðja árið í röð þar sem
þessi félög mætast í fyrstu umferð.
Tvö síðustu ár hafa þau mæst á
Laugardalsvellinum og Fram sigr-
aði 2:0 í bæði skiptin.
Leikurinn er líka sögulegur vegna
þess að Eyjamenn og Fram tóku
bæði þátt í fyrsta Íslandsmótinu árið
1912.
Framarar hafa aðeins sótt tvö stig
til Eyja í síðustu fimm heimsóknum
sínum þangað.
Keflavík – Stjarnan
Liðin mætast á Nettóvellinum,
eins og völlur Keflvíkinga heitir nú,
klukkan 19.15. Stjarnan sótti síðast
þrjú stig til Keflavíkur fyrir 15 árum
og vann þá þar sinn eina sigur í efstu
deild til þessa.
Halldór Orri Björnsson hefur
reynst Keflvíkingum erfiður en hann
hefur skorað fjögur mörk í fjórum
viðureignum liðanna undanfarin tvö
ár.
Valur – FH
Þetta eru tvö þeirra liða sem flest-
ir spá að berjist á toppnum í ár,
ásamt KR og Breiðabliki. Þau mætt-
ust líka í fyrstu umferðinni á Hlíð-
arenda í fyrra og þá urðu lokatölur
2:2. Viðureign þeirra hefst á Voda-
fonevellinum klukkan 19.15.
Valsmenn hafa aðeins fengið tvö
stig úr síðustu sex viðureignum sín-
um við FH undanfarin ár. FH hefur
unnið Val í sex af átta heimsóknum
sínum á Hlíðarenda á þessari öld.
Íslandsmótið hefst
í Eyjum í kvöld
Fjórir leikir á dagskrá Sá fyrsti inni í efstu deild karla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Byrjar ÍBV og Fram mætast í fyrstu umferðinni þriðja árið í röð.
KÖRFUBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Karlalandslið Íslands í körfu-
knattleik kemur saman að nýju í
sumar eftir hátt í tveggja ára hlé frá
keppni. Landsliðið getur reyndar
ekki tekið þátt í Smáþjóðaleikunum
um næstu mánaðamót eins og venja
er, því ákveðið hefur verið að ekki
verði keppt í körfuknattleik á leik-
unum að þessu sinni en þeir fara
fram í Liechtenstein.
Liðið mun hins vegar taka þátt í
Norðurlandamótinu sem fram fer í
lok júlí, eftir að hafa verið í hléi frá
haustinu 2009 vegna þröngrar fjár-
hagsstöðu.
Grunnvinna verið í gangi
Sigurður Ingimundarson þjálfaði
karlalandsliðið síðast þegar það
keppti en ljóst er að nýtt teymi mun
taka við liðinu núna. Nýr landsliðs-
þjálfari mun svo kalla saman æf-
ingahóp í júní og júlí til undirbún-
ings fyrir NM. Þetta segir Hannes
S. Jónsson, formaður stjórnar KKÍ.
„Það er ákveðin grunnvinna búin
að vera í gangi og það verður til-
kynnt nýtt þjálfarateymi karla-
landsliðsins á næsta hálfa mánuði,“
sagði Hannes í samtali við Morg-
unblaðið.
„Við erum búnir að vera að teikna
svolítið upp afreksstarfið hjá okkur
að nýju, fara í gegnum það frá a til
ö, og það er náttúrlega ástæðan fyr-
ir því að við tókum þessa pásu með
landsliðin. Þetta verður kynnt á
körfuknattleiksþinginu hjá okkur
um næstu helgi,“ sagði Hannes.
Fleiri verkefni bíða svo landsliðsins
í framtíðinni en liðið þarf þó að bíða
þar til á næsta ári með að taka þátt í
nýju Evrópumóti.
A-landslið kvenna verður ekki
endurvakið í ár en stefnt er að því
að það taki þátt á Norðurlanda-
mótinu sem fram fer á næsta ári.
Morgunblaðið/hag
Landslið Jakob Örn Sigurðarson í
leik með íslenska landsliðinu.
Landsliðið endurvakið
Karlalandsliðið í körfubolta keppir á Norðurlandamótinu í sumar Tilkynnt
um þjálfara á næstunni Ekki boðið uppá körfubolta á Smáþjóðaleikunum
MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2011
Golfkortið 2011
Spilað um Ísland - 23 golfvellir
Upplýsingar á golfkortid.is
íþróttir
Handboltinn Atli Hilmarsson ánægður með sína menn þegar Akureyri lagði FH í þriðja úrslita-
leik Akureyrar og FH í gær. Ætla sér að jafna metin í Kaplakrika á miðvikudagskvöld. 4-5
Íþróttir
mbl.is
Margrét Lára
Viðarsdóttir
skoraði tvö
marka Kristians-
tad og lagði upp
það þriðja þegar
liðið vann Piteå
3:1 á útivelli í
sænsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu í gær.
Markadrottn-
ingin úr Eyjum er þar með orðin
markahæst í deildinni ásamt Lin-
nea Liljegärd hjá Kopparbergs/
Göteborg, en báðar hafa skorað
fjögur mörk í fyrstu fjórum leikj-
unum.
Kristianstad, sem leikur undir
stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur,
fer vel af stað í deildinni og er með
níu stig en lið Tyresö er eitt á toppi
deildarinnar með 10 stig.
Fleiri íslenskar knattspyrnukon-
ur voru á skotskónum um helgina
því Dóra María Lárusdóttir opnaði
markareikning sinn fyrir Djur-
gården með marki í 4:1-sigri á botn-
liði Dalsjöfors á föstudagskvöld.
Edda á sjúkrahús
Edda Garðarsdóttir var í liði
Örebro sem vann góðan 1:0-
útisigur á Umeå í gær. Þetta var
fyrsti sigur Örebro á leiktíðinni.
Hann fékkst þó ekki ókeypis því
Edda var flutt á sjúkrahús eftir
harðan árekstur undir lok leiksins,
en hún var sögð hafa nefbrotnað.
Ólína G. Viðarsdóttir hefur ekkert
getað leikið með Örebro á leiktíð-
inni vegna meiðsla. sindris@mbl.is
Margrét Lára orðin
markahæst í Svíþjóð
Margrét Lára
Viðarsdóttir