Morgunblaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2011 „Erum svo sannar- lega á lífi“ Á VELLINUM Andri Yrkill Valsson sport@mbl.is Það er leikið til þrautar í einvíginu um Ís- landsmeistaratitilinn í handknattleik, en Akureyringar voru komnir með bakið upp við vegg þegar kom að þriðja leiknum fyrir norðan í gær. Eftir enn einn spennuþrung- inn leik fóru heimamenn með sigur af hólmi, 23:22. Leikurinn var jafn og spennandi allan fyrri hálfleikinn. Liðin skiptust á að skora þar sem varnarleikir beggja liða voru góðir. Lítið var um markvörslu í hálfleiknum og var hnífjafnt á öllum tölum, en FH-ingar voru hænufeti á undan þegar flautað var til leikhlés, 12:13. Í síðari hálfleik bitu heimamenn í Ak- ureyri betur frá sér. Varnir beggja liða voru áfram góðar en mikið munaði um Sveinbjörn Pétursson, markvörð Akureyr- ar, sem hrökk heldur betur í gang í síðari hálfleik, en hann varði samtals 24 skot í leiknum. Heimamenn náðu þriggja marka forskoti þegar tæpar fimm mínútur voru eftir af leiknum, en FH-ingar gáfust ekki upp og komu sér aftur inn í leikinn. Mikil spenna var síðustu sekúndurnar þar sem FH-ingar gátu jafnað, en þeir náðu ekki skoti á markið. Akureyringar fögnuðu því sigri og komu sér um leið aftur inn í einvíg- ið, en FH leiðir þar 2:1. Framganga Sveinbjörns Það var fyrst og fremst framganga Sveinbjörns í markinu sem skóp sigurinn fyrir Akureyringa, en hann var án efa mað- ur leiksins. Sóknarleikurinn var hins vegar svolítið sveiflukenndur og fór liðið illa með ágæt færi, en fyrirliðinn Heimir Örn var markahæstur með 7 mörk og átti fínan leik. Hjá FH var Ásbjörn Friðriksson marka- hæstur með 8 mörk, en þrátt fyrir fínan varnarleik fóru FH-ingar oft á tíðum illa að ráði sínu í sókninni. Þegar Sveinbjörn hrökk í gang í marki Akureyrar fór að halla undan fæti hjá Hafnfirðingum, en mark- verðir þeirra létu lítið fyrir sér fara og því fór sem fór. Það var því þungu fargi létt af Atla Hilmarssyni, þjálfara Akureyrar, í leikslok. „Við erum svo sannarlega á lífi og spiluðum mjög vel í þessum leik. Það sést vel hvað er stutt á milli í þessu, liðin eru það jöfn að nánast ekkert skilur þau að. Ég var mjög ánægður með baráttuna hjá okk- ur allan tímann og finn fyrir mikilli stígandi í okkar leik enda vorum við mikið betri núna en í fyrsta leiknum.“ Atli hrósaði varnarleik sinna manna sér- staklega. „Það var frábær varnarleikur, sérstaklega í síðari hálfleik, sem skipti sköpum. Ég var einnig mjög ánægður með Bubba [Sveinbjörn Pétursson] í markinu, hann varði vel og við fengum nokkur hraða- upphlaup í kjölfarið sem hefur vantað svo- lítið í þessu einvígi, en við lifum svolítið á því.“ Mætum fullir sjálfstrausts í Krikann Atli stýrði liði KA sem varð Íslandsmeist- ari árið 2002 eftir að hafa lent 2:0 undir í einvíginu um titilinn. Aðspurður hvort hlut- irnir séu að endurtaka sig er Atli hinn ró- legasti. „Svona samanburður er svolítið erf- iður. En ég sé það á liðinu mínu að þeir vilja þetta gríðarlega. Þeir eru í fínu standi og við getum alveg unnið tvo í viðbót, það er alveg á hreinu. Við áttum flottan leik fyrir sunnan á föstudaginn og okkur líður ágæt- lega í Krikanum. Við fengum fínan stuðning þá og vonandi verður það aftur í næsta leik. Við munum því mæta fullir sjálfstrausts til leiks, vitandi það að við getum farið heim með tvo sigra enda eigum við alveg inni fyr- ir því.“ Mikil spenna hefur einkennt leiki liðanna í einvíginu þar sem úrslitin hafa ráðist á síðustu sekúndunum. Liðin eru gríðarlega jöfn að getu og það er því ómögulegt að spá um hvernig fer. FH-ingar fá hinsvegar ann- að tækifæri til að tryggja sér titilinn þegar liðin mætast í fjórða sinn fyrir sunnan næstkomandi miðvikudag, en sigri Ak- ureyringar ráðast úrslitin í hreinum odda- leik fyrir norðan. Fljúgandi Bjarni Fritzson svífur í áttina að marki FH-inga og skorar fyrir Akureyringa í gær. Bjarni og félaga  Þriðji spennuleikur Akureyrar og FH  Nú hafði Akureyri betur og minnkaði muninn í 2:1  Miðvikudagur næst Höllin, Akureyri, þriðji úrslitaleikur Ís- landsmóts karla, sunnudaginn 1. maí 2011. Gangur leiksins: 1:0, 3:3, 6:6, 9:9, 11:11, 12:13, 15:15, 18:16, 19:18, 22:19, 22:21, 23:21, 23:22. Mörk Akureyrar: Heimir Örn Árnason 7, Bjarni Fritzson 4, Oddur Gretarsson 4/2, Halldór Logi Árnason 3, Daníel Ein- arsson 2, Hörður Fannar Sigþórsson 1, Guðlaugur Arnarsson 1, Hreinn Hauks- son 1. Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 24/1 (þar af 5 til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 8/5, Ólaf- ur Guðmundsson 6, Ólafur Gústafsson 5, Atli Rúnar Steinþórsson 2, Örn Ingi Bjarkason 1 Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 5, Pálmar Pétursson 8. Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guð- jónsson, sæmilegir. Áhorfendur: Um 1.050 og mikil stemn- ing.  Staðan er 2:1 fyrir FH og fjórði leikur í Kaplakrika á miðvikudagskvöld. Akureyri – FH 23:22 „Þetta var alveg eins og fyrstu tveir leikirnir eru búnir að vera, stál í stál allan tímann, en féll þetta okkar megin í lokin,“ sagði varnarjaxlinn Guðlaugur Arnarsson í liði Akureyrar sigurinn á FH í þriðja leiknum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn, 23:22. Guðlau var undir handleiðslu nuddara þegar blaðamaður spjallaði við hann eftir leik. „Þetta er ba endalaus barátta og ekkert annað. Viljinn spilaði sterkt inn hjá okkur, við vildum þetta alv urlega mikið. Við höfum tapað síðustu tveimur leikjum mjög naumlega og það vantaði ekk ann hjá okkur þar, en við vildum þetta alveg ógurlega í þetta skiptið. Það er þungu fargi a ur létt og við munum fagna í kvöld en mætum alveg brjálaðir í Krikann á miðvikudaginn. var frábær stemning fyrir sunnan í síðasta leik og ég skora á alla að mæta.“ Spurður hvort hann hefði meiðst eitthvað að ráði fyrst verið væri að hlúa að honum nei hann því hlæjandi á meðan nuddarinn skaut á hann fyrir kerlingavæl. Guðlaugur segir að menn Akureyrar hafi fulla trú á að ná góðum úrslitum í næsta leik sem fer fram næstkom miðvikudag í Kaplakrika. „Það verður rosalega erfiður leikur fyrir sunnan, alveg eins og þetta er búið að ve Það er ekkert hægt að segja til um hvernig fer, þetta er bara stöngin út, stöngin inn. Við ætlum að koma hér ur á föstudaginn og spila fyrir fullu húsi, það kemur ekkert annað til greina,“ sagði Guðlaugur Arnarsson, le maður Akureyrar. „Vildum þetta alveg ógurlega mikið“ Guðlaugur Arnarsson Sveinbjörn Pétursson Varði 24 skot, þar af eitt vítakast, og skóp sigurinn fyrir liðið. Sveinbjörn hefur verið gríðarlega öflugur í marki Akureyrar í allan vetur og ekki að ástæðulausu að hann er gjarnan talinn vera besti markvörður deildarinnar. Moggamaður leiksins Skannaðu kóðann til að sjá fleiri myndir úr leik Akureyrar og FH.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.