Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurmaí 2011næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    1234567
    891011121314
    15161718192021
    22232425262728
    2930311234
    567891011

Morgunblaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 8
8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2011 31.12.2010 Fyrstu 50 áskrifendur fá 2 miða á leik Fylkis og Grindavíkur Mættu við innganginn og framvísaðu Moggaklúbbskortinu til að fá miða BÝÐUR ÁSKRIFENDUM ÁVÖLLINN FYLKIR - GRINDAVÍK 2. maí kl. 19:15 í Kórnum KORTIÐ GILDIR TIL 31.05.2011 MOGGAKLÚBBURINN – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn og 7. sæti á gólfi, og Sigurður Andr- és Sigurðsson í 7. sæti á tvíslá. „Svíarnir eru í sérflokki“ „Þetta er bara glæsilegur árang- ur, hjá stelpunum alla vega, og með því betra sem hefur náðst. Besti ár- angurinn var auðvitað 2007 þegar Fríða Rún Einarsdóttir vann allt sem hægt var að vinna, en það afrek er alveg einstakt,“ sagði Guðmundur Brynjólfsson einn af þjálfurum ís- lenska hópsins. „Við lítum alltaf mikið til liða- keppninnar og þar eru stelpurnar búnar að slíta sig svolítið frá Noregi og Danmörku. Við rétt töpuðum fyr- ir Finnunum núna, þar sem munaði 0,5 stigum, en auðvitað er bara já- kvætt að fá brons. Við náðum því líka fyrir tveimur árum en erum greinilega að nálgast Finnana. Sví- arnir eru hins vegar í sérflokki og við erum ekkert að keppa við þá. Svíar hafa sett í gang mikið pró- gramm til að fara með lið á Ólympíu- leikana 2016 og það er greinilega að skila árangri,“ sagði Guðmundur en Svíar áttu til að mynda 5 af 6 efstu stúlkunum í fjölþraut. „Fylltum kvótann“ Fyrrnefndar Þórey og Freyja sköruðu fram úr af íslensku stúlk- unum en Guðmundur segir gott að sjá hve jafnt íslenska liðið sé. „Löndin mega svo vera með tvo að hámarki í úrslitum á hverju áhaldi og við fylltum þann kvóta hjá stelpunum sem er mjög gott, og sýnir breiddina sem við höfum. Þetta er mjög jafnt lið. Keppend- urnir koma líka úr mörgum fé- lögum og það er mjög jákvætt,“ sagði Guðmundur og ljóst að erfitt verður að velja keppendur fyrir næsta stóra verkefni þessa aldurs- flokks. „Næst á dagskrá hjá þessum krökkum er að fara á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í lok júlí. Þar mega þrír strákar og þrjár stelpur keppa, og það kemur í ljós von bráð- ar hver það verða.“ „Með því besta sem hefur náðst“ Silfur Freyja Húnfjörð Jósepsdóttir leikur listir sínar en hún fékk silfur í stökki í gær og varð fimmta í fjölþrautinni á laugardaginn.  Ísland hálfu stigi frá 2. sæti á NM unglinga í fimleikum í Versölum  Þórey og Freyja fengu silfur  Tvær íslenskar í úrslitum á öllum áhöldum FIMLEIKAR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Íslendingar náðu ágætum árangri á Norðurlandamóti unglinga í áhalda- fimleikum sem fram fór í Versölum í Kópavogi um helgina frammi fyrir fjölda áhorfenda. Í liðakeppni náði kvennalið Íslands 3. sæti, og var hársbreidd frá silfurverðlaunum, en Ísland hlaut 135.800 stig og var hálfu stigi á eftir Finnum í 2. sæti. Í úrslit- um á einstökum áhöldum fengu tvær íslenskar fimleikakonur silfur. Freyja Húnfjörð Jósepsdóttir, sem varð í 5. sæti í fjölþraut á laugardag- inn, varð í 2. sæti í stökki með 13,10 stig og Þórey Kristinsdóttir varð í 2. sæti í gólfæfingum með 11,70 stig. Íslensku strákarnir náðu sér ekki eins vel á strik en Garðar Egill Guð- mundsson varð í 6. sæti á bogahesti Sjötti Garðar Egill Guðmundsson náði lengst af íslensku strákunum á Norðurlandamótinu í Versölum og varð í sjötta sæti á bogahesti. Morgunblaðið/hag Silfur Þórey Kristinsdóttir varð önnur í gólfæfingum á Norðurlandamótinu í Versölum um helgina.

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55869
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: Morgunblaðið B (02.05.2011)
https://timarit.is/issue/341577

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

Morgunblaðið B (02.05.2011)

Aðgerðir: