Morgunblaðið - 02.05.2011, Síða 2
ENGLAND
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Það var fagnað vel í gær. Ég get al-
veg lofað þér því að menn héldu ekk-
ert aftur af sér. Þetta dómsmál er
eitthvað sem við getum ekkert gert
í, við ætluðum bara að vinna deildina
og gerðum það,“ sagði Heiðar
Helguson landsliðsmaður í knatt-
spyrnu við Morgunblaðið í gær. Á
laugardag urðu Heiðar og félagar
hans í QPR meistarar í næstefstu
deild á Englandi, og tryggðu sér þar
með sæti í ensku úrvalsdeildinni á
næstu leiktíð með 2:0 útisigri á Wat-
ford.
Draumurinn að martröð?
QPR hefur átt frábæru gengi að
fagna á leiktíðinni og er 8 stigum á
undan næsta liði, en svo gæti farið
að draumurinn breyttist í martröð í
vikunni. Þá verður nefnilega dæmt í
máli sem varðar leikmann QPR,
Argentínumanninn Alejandro
Faurlin, en talið er að félagið hafi
brotið reglur enska knattspyrnu-
sambandsins varðandi aðkomu
þriðja aðila að kaupum á leikmann-
inum og samningum við hann. Mál-
inu svipar því til þess þegar West
Ham keypti Javier Mascherano og
Carlos Tevez á sínum tíma. Óvíst er
hvort stig verða dregin af QPR eða
hvort félagið verður sektað.
„Fer allt til andskotans“
„Ef það verða tekin af okkur stig
þá held ég að allt fari til andskotans.
Okkur heyrist að það sé líklegast að
félagið fái sekt en sleppi við að missa
stig. Þessir kallar sem eiga félagið
eiga nægan pening til að borga
hvaða sekt sem kemur, svo það kem-
ur varla að sök. En ef það verða tek-
in stig af okkur þurfum við vænt-
anlega að fara í umspil og eigum á
hættu að komast ekki upp.
Þar að auki munu liðin sem falla
núna og í fyrra, þegar leikmaðurinn
var líka hjá okkur, væntanlega leita
réttar síns í þessu máli ef það fer svo
að stig verða tekin af okkur. Með því
að taka stig af okkur er nefnilega
búið að staðfesta að leikmaðurinn sé
ólöglegur. Þetta getur því haft mikl-
ar afleiðingar en þessir gæjar sem
eiga félagið munu ekki gefast upp
og eru tilbúnir að fara með málið
eins langt og hægt er,“ sagði Heið-
ar.
Svarfdælingurinn er næst-
markahæstur í liði QPR með 12
mörk en markahæstur er Marokk-
ómaðurinn Adel Taarabt sem hefur
gert 19 mörk og lagt upp önnur 16.
Markatala QPR er +40 en næsta lið
er með 25 mörk í plús, svo segja má
að liðið hafi unnið deildina með
nokkrum yfirburðum undir stjórn
Neil Warnock, sem var að koma liði
upp í úrvalsdeild í sjöunda sinn.
„Enginn reiknaði með þessu“
„Ég held að það hafi enginn
reiknað með þessu í upphafi en eftir
fyrsta mánuðinn gerðu menn sér
grein fyrir því að það væri góður
möguleiki á að fara upp í úrvals-
deildina. Við byrjuðum mjög vel og
það er feikilega mikilvægt í þessari
deild,“ sagði Heiðar sem er enn ekki
alveg öruggur um hvort hann verð-
ur áfram hjá QPR á næstu leiktíð,
en það ætti að koma í ljós á næst-
unni. Núgildandi samningur hans
við félagið er að renna út:
„Nýr samningur er í raun klár á
borðinu en menn vildu bíða þangað
til við værum enn öruggir um að
komast upp. Ég vonast því eftir að
fá að skrifa undir en það er ekkert
pottþétt í þessum bransa.“
Héldu ekkert aftur af sér
Meistaratitill 1. deildar og sæti í úrvalsdeild í höfn hjá Heiðari og félögum í
QPR og mikið fagnað Faurlin-málið getur þó sett strik í reikninginn
Ljósmynd/Sakis Savvides
Drjúgur Heiðar Helguson hefur skorað 12 mörk fyrir QPR í vetur og líklegt
er að hann spili með liðinu í úrvalsdeildinni næsta vetur.
HANDBOLTI
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„Seinni hálfleikurinn hjá okkur var
stórkostlegur og verður lengi í minn-
um hafður,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson, þjálfari Rhein-Neckar Lö-
wen, eftir að liðið hafði slegið franska
liðið Montpellier út í átta liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu á laugardag-
inn.
Löwen fór til Frakklands tveimur
mörkum undir því Montpellier sigraði
í fyrri leiknum með tveimur mörkum.
Staðan í hálfleik á laugardaginn var
17:15 fyrir heimamenn og útlitið allt
annað en bjart. Guðmundi og félögum
tókst heldur betur að snúa leiknum
sér í vil og sigra 35:26, gerðu 20 mörk í
seinni hálfleik en fengu aðeins níu á
sig.
„Tilfinningin eftir fyrri leikinn var
að við ættum helling inni og við unnum
út frá því fyrir þennan síðari leik. Við
höfum verið sterkir á útivöllum í vet-
ur og náð góðum árangri þar þannig
að það truflaði okkur ekkert að spila
úti. Í hálfleik ákváðum við að gera
smá áherslubreytingar í vörninni, fór-
um framar á móti vinstri vængnum
hjá þeim og ákváðum að halda áfram
að keyra hratt í hraðaupphlaupum
þannig að við myndum þreyta þá.
Þetta var áætlunin og hún gekk eftir
og skóp sigurinn,“ sagði Guðmundur.
Fáum 20 þúsund áhorfendur
„Það segir sína sögu um góða vörn,
frábæra markvörslu og síðast en ekki
síst flotta sókn. Sóknin brást hjá okk-
ur í fyrri leiknum en núna var hún
flott,“ sagði Guðmundur.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu félags-
ins sem það kemst í fjögurra liða úr-
slit, en þau fara fram í Köln í lok maí.
„Þetta er gaman fyrir félagið því
þetta er svona stærsti viðburðurinn í
handboltanum, þarna verða um
20.000 áhorfendur og undanúrslita-
leikirnir eru leiknir á laugardegi og
síðan úrslitaleikurinn á sunnudegi.
Það er gríðarleg stemning þessa helgi
og virkilega gaman fyrir félagið að
komast svona langt,“ sagði Guð-
mundur, en dregið verður í undan-
úrslitin í dag.
Róbert Gunnarsson gerði þrjú
mörk fyrir Löwen í Frakklandi og
þeir Ólafur Stefánsson og Guðjón
Valur Sigurðsson eitt mark hvor.
Íslendingarnir drjúgir
„Róbert spilar alla leiki núna meðal
annars vegna þess að hinn línumað-
urinn, Bjarte Myrhol, er meiddur.
Guðjón Valur spilaði frábærlega í
vörninni í síðari hálfleik og Ólafur lék
mun betur en í fyrri leiknum. Hann
spilar mikið núna og fékk litla hvíld
þar sem Michael Müller, sem spilar á
móti honum, er meiddur,“ sagði Guð-
mundur.
Það er nóg framundan hjá Guð-
mundi og liði hans. „Já, já, það er nóg
að gera. Við komum heim í nótt með
leiguflugi, spilum síðan á þriðjudag-
inn við Hamburg hér heima og síðan
er þýska bikarhelgin í Hamburg um
næstu helgi. Þar mætum við Flens-
burg í undanúrslitum á laugardeg-
inum og Kiel og Göppingen mætast í
hinum leiknum. Úrslitaleikurinn
verður síðan á sunnudaginn,“ sagði
Guðmundur.
„Seinni hálfleikur lengi
í minnum hafður“
Löwen í undanúrslit Meistaradeildar
í fyrsta sinn Ævintýralegur sigur í
Frakklandi Skoruðu 20 gegn níu
Ljósmynd/Michael Heuberger
Sigursæll Guðmundur Þ. Guðmundsson er kominn með Löwen í undan-
úrslitin í Meistaradeild Evrópu og í undanúrslit þýska bikarsins.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2011
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Sverre Jak-obsson stóð
vaktina í vörn
Grosswallstadt í
gær þegar liðið
komst í úrslita-
leik EHF-
bikarsins í hand-
knattleik með
fimm marka sigri
á Lemgo í síðari leik liðanna, 30:25.
Grosswallstadt hafði unnið tveggja
marka sigur í fyrri leiknum. Sverre
á því möguleika á að verða Evr-
ópumeistari í fyrsta sinn. Í úrslit-
unum mætir Grosswallstadt liði
Göppingen en Göppingen vann sam-
anlagt sex marka sigur á Nat-
urhouse La Rioja.
Í gær varð ljóst að Alfreð Gíslasonog lærisveinar hans í Kiel munu
ekki verja titil sinn í Meistaradeild
Evrópu í handknattleik. Kiel tapaði
á heimavelli gegn Barcelona í átta
liða úrslitunum, 36:33, eftir að hafa
tapað fyrri leiknum með tveimur
mörkum. Barcelona var fjórum
mörkum yfir í hálfleik og komst
meðal annars í 24:16 snemma í
seinni hálfleiknum. Aron Pálm-
arsson var ekki á meðal markaskor-
ara hjá Kiel.
Ársþing HSÍfór fram um
helgina og þar
var meðal annars
ákveðið að lengja
úrslitakeppnina í
úrvalsdeildum
meistaraflokka
karla og kvenna.
Ákveðið var að lið
þurfi að vinna þrjá leiki í undan-
úrslitum í stað aðeins tveggja áður,
og að ef níu eða tíu lið eru í deildinni
muni sex lið taka þátt í úrslitakeppn-
inni í stað fjögurra eins og nú er.
Þetta mun hafa áhrif á úrslitakeppn-
ina í N1-deild kvenna en ekki karla
því karladeildin er aðeins skipuð
átta liðum. Knútur G. Hauksson var
endurkjörinn formaður á þinginu.
Þá kom fram á þinginu að hagnaður
HSÍ á síðasta ári hefði verið tvær
milljónir króna og að eiginfé væri nú
jákvætt um 22 milljónir.
Sigurður Ari Stefánsson skoraðifjögur mörk fyrir Elverum í úr-
slitaleik norsku úrslitakeppninnar í
handknattleik um helgina. Það dugði
þó ekki til því Elverum tapaði 28:24
fyrir Haslum. Haslum hafði áður
orðið Noregsmeistari með því að
enda í efsta sæti deildarinnar, en El-
verum varð þar í 2. sæti.
Jón ArnórStefánsson
var stigahæstur
hjá Granada þeg-
ar lið hans tapaði
á heimavelli fyrir
Meridiano Alic-
ante, 57:71, í mik-
ilvægum fallslag í
spænsku A-
deildinni í körfuknattleik. Jón Arnór
skoraði 12 stig í leiknum og tók þrjú
fráköst. Liðin voru jöfn að stigum í
fallbaráttunni fyrir leikinn en nú sit-
ur Granada eftir í næstneðsta sæt-
inu, hefur aðeins unnið sjö af 32
leikjum sínum þegar tvær umferðir
eru eftir, en Meridiano og Manresa
hafa unnið níu leiki hvort lið.
Auðunn Jónsson úr Breiðabliki ogMaría E. Guðsteinsdóttir úr
Ármanni verða á meðal keppenda á
Evrópumótinu í kraftlyftingum sem
hefst á morgun í Plzen í Tékklandi.
María keppir í 63 kg flokki kvenna
og Auðunn í yfirþungavigt karla.
Hörður Magnússon verður á meðal
dómara á mótinu.
Fólk sport@mbl.is