Siglfirðingur - 09.09.1957, Blaðsíða 1
6E0R6 PALSSOH
bæjarfulltrúi - Minningarorð
„Skjótt hefur sól brugðið sumri“
Þessi ljóðlína leitaði i huga
minn, er mér var tilkynnt lát vin-
ar míns, Georgs Pálssonar.
Hafði hann, að vísu verið sjúk-
ur um hríð. Legið á sjúkrabeði
syðra og þar gengið undir hol-
skurð. En vonir þær, er við þá að-
gerð voru bundnar, rættust ekki
og enginn mannlegur máttur gat
þar um neinu þokað.
Eigi ráðum vér, manneskjur,
hvort oss verður auðið að líta sól
að morgni, þá er vér leggjumst til
hvílu að kvöldi.
Georgi varð þetta eigi auðið. —
Lífsvonin og lífsþrótturinn varð
að lúta í lægra haldi, fyrir sterk-
ara mætti. Hann lézt að morgni
þess 25. ágúst s.l. langt fyrir ald-
ur fram, aðeins 48 ára að aldri.
Það er hverju bæjarfélagi mikill
missir, er borgarar þess falla frá,
því þá er mannsliðinu færra til
starfa, og enn meiri er sá missir,
þegar um er að ræða mikla hæfi-
leiikamenn, sem mikið starf beið
og voru vaxandi menn í störfum
og athöfnum og trausti því, sem til
þeirra var borið og áliti því, er
þeir nutu.
Og þó maður komi í manns stað
til starfa, sem er að visu rétt,
verður það þó aldrei sá sami og
áður var.
Með Georg hné til foldar einn
starfhæfasti borgari þessa bæjar.
Okkur samferðamönnum hans
fannst hans bíða svo mörg störf
og óleyst viðfangsefni, sem kröfð-
ust úrlausnar og sem við reyndar
vissum, að hann vildi glínia við og
hlakkaði til þess að fást við.
En á miðjum aldri er hann hrif-
inn brott af starfssviðinu og vett-
vangi lífsins og það skarð, sem
eftir varð, verður ei fyllt.
Þetta eigum við bágt með að
sætta okkur við, en eigi tjáir að
deila við dómara allra tíma. Það
eru óræð örlög, sem vér rekum
oss þráfaldlega á á lífsleiðinni, að
þeir, sem mest er eftirsjónin í og
fegurstu vonir eru tengdar við, eru
kallaðir burtu í blóma lífsins,
þegar bjartast virðist fram undan
og engum kemur í huga að á
næsta leiti, við næsta fótmál bíði
okkar harmur og söknuður en
ekki gleði og fögnuður.
Slíkt hlutskipti er okkur
ógjarnt að sætta okkur við og er-
um ætíð eða oft eigi nægilega við-
búin þeirri raun. En stoð er það
í harmi og raun að geta í fullu
trausti leitað styrks og hjálpar í
fölskvalausu trúartrausti og viss-
unni um það, „að látinn lifir“, og
að hann hefur verið kallaður
burtu af vettvangi þessa lífs til
þess „meira að starfa Guðs um
geim“.
„Skjótt hefur sól brugðið
sumri“.
Nú er hljóðnuð gleði og horfinn
unaður, en eftir lifa minningarnar
um mikilhæfan, góðan dreng og
mannkostamann og mikinn hæfi-
leikamann. Þær minningar verða
eigi frá oss teknar. Þær er gott
að eiga og orna sér við á lífsleið-
inni.
„Ég finn til skarðs við auðu
ræðin allra,
sem áttu rúm á sama aldarfari“.
Sjálfur þakka ég honum margra
ára vináttu, hugljúf ikynni og við-
mót allt frá fyrstu kynnum til
hinzta fundar.
Tjái honum þakikir fyrir mjög
ánægjulegt samstarf á undanförn-
um árum við lausn sameiginlegra
áhugamála og þau viðfangsefni er
að hafa borið á hverjum tíma.
Heimili hans, konu og börnum
og öðrum ástvinum, sendi ég
kveðjur samúðar og hluttekn-
ingar og hið þess að minnjngar
þeirra um ástfólgin vin og hug-
umkæran megi verða þeim afl-
gjafi og styrkur i hinni þungu
raun þeirra.
Nú þegar Georg hefur gengið á
Guðs síns fund, iþökkum við hon-
um ferðina, sem við áttum saman
og biðjum honum blessunar á
hinum nýju leiðum, sem hann
hefur nú haldið á.
Baldur Eiríksson
t
Ég hafði ekki dvelið nema ör-
fáa daga hér i bænum, éftir að ég
settist hér að fyrir rúmlega 5 ár-
um, er ég veitti sérstaka athygli
manni háum og karlmannlegum,
spengilegum á vöxt, röskum og
hispurslausum í framgöngu og
óvenju fríðum sýnum. Maður þessi
var Georg Pálsson. Brátt tókust
með okkur nökkur kynni, sem
smám saman uxu í vináttu og nú
er við nauðug viljug verðum að
að sjá á bak Georg heitnum Páls-
syni, tel ég það mikla hamingju
mína að hafa átt hann að vini.
Sjaldan held ég, að ég hafi
kynnzt manni, sem að innri gerð
svaraði eins til ytra útlits síris og
var um Georg heitinn.
Hann var sérstákt glæsimenni á
ytra útlit, en bjó einnig yfir þeim
mannkostum, sem prýða góðan
dreng. Hann var dugmikill og
vaxandi athafnamaður, djarfur og
áræðinn í framkvæmdum sínum
og tilþrifum, án þess þó að vera
ógætinn, hispurslaus og framsæk-
inn, án þess þó að vera framur,
hélt fram hlut sínum og rétti, en
vildi þó á einskis manns hlut gera
og var manna góðviljaðastur og
reiðubúinn að leysa hvers manns
vanda, ef hann átti þess nokkum
kost. Hann var trúr og tryggur
þeim málstað, sem hann taldi rétt-
an vera og taldi ekkert eftir, sem
hann vissi þeim málsstað verða til
framdráttar. Hann var laus við
mærð og yfirborðsmennSku i mál-
flutningi, en hélt þó vel og traust-
lega á máli sínu við hvem sem
var. Hann var maður hreinskilinn
og hreinskiptinn. Við fráfall
Georgs Pálssonar hefir Siglu-
fjörður mikils misst. Þar sem
hann er, er í valinn fallinn í blóma
lífsins, einn af mest metnu og
vinsælustu borgurum þessa bæjir-
félags, vaxandi athafnamaður,
sem allir væntu sér góðs af.
Siglfirðingar krveðja hanri hinztu
kveðju iriéð söknuði, én það er
sþá mín, að minningin iim góðan
og göfugan mann muni úm langan •
aldur varðveitast hér inni á milli
hinna háu norðlenzku fjalla.
Sárastur harínur er þó kveðinn
að eftirlifanöi ástvinum haris,
eiginkonu, aldraðri móður, börn-
um hans, tengdabörnum og bama-
börnum. Úr því sem ikomið er, get-
um við ekki annað en vottað þeim
innilega samúð og beðið Guð að
styðja þau og styrkja i hínfli
miklu sorg.
Sjálfur þakka ég hinum horfna
vini mínum og samiherja vináttu
hans og hollráð og trýggð haris
og hollustu við góðan málstað ura
leið og ég bið honum velfarnaðór,
nú er hann heldur imi í vegi hins
eilífa sumarlands.
Etnar Ingimundamm
t
Georg heitinn Pálsson áttí gáfui*
og gjörfuleik til langrar ævi, «n
var kallaður brott í blómá lifsitís'
í önn dagsins, frá verkefnum, sem
þörfnuðust hans. Það er erfitt að
skilja og sætta sig við þá ’rás við-
burðanna, er tekur burt af sjónar-
sviði lífsins hæfileikamann á miðju
ævisumri hans; mann, sém sám-
borgararnir áttu bundnar við mikl-
ar vonir.
Við, sem áttum samleið með
Georg heitnum Pálssyni skemmri
eða lengri vég, og áttum málefna-
lega samstöðu með honum, minn-
umst hans með hlýhug óg virð-
ingu. Er leiðir skilja, þökkum við
honum störf í þágu góðra toál-
efna — og óskum horiura farar-
heilla fram á þann veg, sem allra .
bíður.
Það. dregur ský fyrir sólu við
andlát góðra drengja. Að baki
skýja sorgar og trega, er þó ævin-
lega sól góðra minninga. — Megi
það verða huggun þeirra, será nú
hafa mest misst við fráfall þessa
góða drengs. Og megi minningin '
um hann verða ofekur ölium hvöt
til drengilegs starfs í þágu þeirra
málefna, sem til heiUa horfa. Sá
er beztur minnisvarðinn yfir.
menn, sem við eigum öU skuld aó
gjalda. St. F.
t , ;
Georg Pálsson andaðist í Landíi-
spítalanum i Reykjavik 25. águst
s.l., eftir nokikra mánaða légu hér
heíma og þar syðra. i
Georg sál. var fæddur 21. des.
1908 að Vestdalseyri við Seyðis-
fjörð. - ,
Faðir hans Páll A. Pálssón, yar t,
austfirðingur að ætt og uppruna .
og lézt fyrir nokkrum árum. ,
Móðir Georgír er Söffíá Vigfús- .
dóttir Vigfússonar Gunnlaugsson-
ar frá Krossum á Árskðgsströrid,
(Framhald á %. síðu) *