Siglfirðingur - 09.09.1957, Blaðsíða 2
SI6LFIRÐINGUR
*
Georgs Pálssonar minnzt á bæjarstj.fundi.
Á bæjarstjómarfundi, sem haldinn var 5. sept. s.l. minntist
forseti bæjarstjórnar í upphafi fundarins hins látna bæjar'full-
trúa. Risu bæjarstjómarmeðlimir síðan úr sætum í virðingar-
skyni við hinn látna. Forseta bæjarstjóniar, Baldri Eiríkssyni,
fórast þannig orð:
„Síðan vér héldum seinasta bæjarstjórnarfund, hefur einn
úr vorum hópi, Georg Pálsson bæjarfulltrúi, látizt. Hafði hann
svo sem kunnugt er, legið sjúkur syðra og gengið þar undir
holskurð, en um bata, sem þó var vonast eftir, var ekki að ræða.
Hann lézt að morgni hins 25. ágúst, aðeins 48 ára að aldri.
Hafði hann átt heimili hér undanfarin 20 ár og gegnt hér
ýmsum trúnaðarstörfum og síðustu árin fulltrúi hjá fyrirtækinu
Þormóður Eyólfsson h.f. í bæjarstjórn var hann kosinn 31. jan.
1954 og átti því sæti í henni rúm 3 ár. Lét hann sig einkum
varða hafnarmjál Siglufjarðar, enda átti hann alla tíð sæti í
hafnarnefnd, en reyndist og jafnframt tillögugóður og glögg-
skyggn á önnur mál hæjarstjórnarinnar, og lét þar af hendi
mikil og ágæt störf. Áhugamaður mikill um öil framfaramál
Sigluf jarðar og lagði þeim lið svo sem hann taldi rétt og nauð-
synlegt. Hirti minna um aukaatriði og smáatriði, því hann sá
ætóð kjarna hvers máls og aðalatriði og kom þar fram hin
skarpa greind hans og ljósa hugsun, og velvilji hans til allra.
Skapmaður var hann, en kunni vei með að fara, og þéttur
á velli og 'þéttur í lund. Hann var drengur hinn bezti í hvívetna
og hvers manns hugljúfi.
Vinum sínum var hann traustur og hollráður og bar hlýan hug
til samborgara sinna. Óvildarmenn átti hann engan eða fáa. —
Hann var í fáum orðum sagt mannkostamaður og með honum
er hniginn óvenju starfshæfur maður og vel gerður, langt fyrir
áldur fram. Það er sérhverju ibæjarfélagi mikill missir að hverj-
um borgara og enn meiri, þegar um er að ræða mikla hæfileika-
menn, sem mikið starf ibeið og voru vaxandi menn í störfum
og trausti því, sem borið var til þeirra og mest þeirra, er sárast
eiga um að binda.
Vér sendum ástvinum hans öllum kveðjur samúðar og hlut-
tekningar.
Jafnframt þvi, sem ég þákka honum mikil og góð störf
fyrir bæjarfélag vort og í þvá, bið ég yður, háttvirt bæjarstjórn,
að votta hinum látna virðing yðar með því að rísa úr sætum“.
Siglfirðinpr
■ALsaan aiðLriiiHA
IHdlLrai BlatadaUa
UyHliiailm Olafar laiuii
Hlflýitafn: Nll Eilnliiu
-------------------------J
GEORG PÁLSSON, minningarorð.
. (Framhald af 1. síðu)
og móðir heimar Halldóra Hall-
dórsdóttir frá Hálsi í Svarfaðar-
dal.
Er eftir þvú, sem kunnugir
herma, góðar og gagnmerkar ætt-
ir, sem Georg er kominn af. Hefur
móðurætt hana (Krossaættin),
ssm er ailfjö'lmenn, átt innan
sinna vébanda margt vel gefið
hæfileikafólk. Á Seyðisfirði ólst
Geórg upp hjá foreldrum sínum,
ásamt bræðrum sínum, en þeir
eru: Björgvin, dó í æs'ku, Alfreð,
búsettur .á Akureyri, Páll Á. og
Þorgeir, einnig búsettir á Akur-
eýri og Halldór búsettur í Reykja-
vík, allir giftir. .
Georg sótti aám í Gagnfræða-
skóia -Akureyrar og útskrifaðist
þaðan vorið 19218 með ágætis
einkimn.
Réðist hann þá starfsmaður til
Bifreiöastöðvar Akureyrar og
vann þar lun 10 ára skeið. — Á
Akureyri urðu iþáttaskil í lífi
Georgs; þar kynntist hann stúlku,
Hólmfríði Guðjónsdóttur, sem
hann kaus sér sem heitmey og
síðar llfsförunaut og gengu þau í
hjónaband 19. nóv. 1930.
‘ Árið 1939 fluttu þau búferlum
til Sigluf jarðar og hafa dvalið hér
gíðan. Starfaði Georg á skrifstofu
hjá mági sínum, Friðriki Guðjóns-
sýni, í allmörg ár og nú síðastliðin
10 ár hefur 'hann haft skrifstofu-
atjórn og umsjón á hendi hjá Þor-
móði Eyjólfssyni við afgreiðslu
Eimskips og Rákisskipa. Þess utan
háfði hann nokkur sáðari ár um-
sjón og reikningshald fyrir eignir
dánarbús Óskars Halldórssonar
hér á staðnum.
Við slðustu bæjarstjómarkosn-
ingar var hairn í framboði fyrir
Sj&lfstæðisflokkinn hér og hlaut
kosningu. Sat hann í ýmsum
•nefndum bæjarstjómar.
Síðastl. ár tók Georg ásamt
tveimur mönnum á leigu hrað-
frystihúsið „Hrímnir“ og rak þar
bæði sáldarsöltun og frystingu
beitusildar. Snemma á þessu ári
réðiat hann ásamt nokkrum öðr-
um í að festa kaup á Hrímniseign-
inhi, og var hann þar framkv.stj.
Má segja, að þar hafi verið í upp-
siglingu fyrirtæki, sem vonir
stóðu til að styddi að vaxandi at-
vimiu og vellíðan bæjarbúa.
Á þessu litla og ófullkomna
yfirliti sézt, að Georg hefur verið
áhugasamur, slingur og afkasta-
mikill starfsmaður og framsækinn
athafnamaður.
Eins og fyrr segir stofnaði
Georg til hjúskapar með heitmey
sinni, Hólmfráði Guðjónsdóttur. —
Þau eignuðust 3 börn, tvo sonu
og eina dóttur. Dóttirin, Soffia,
lauk stúdentsprófi við Mennta-
skólann á Altureyri og giftist
síðan Arnold Bjarnasyni viðskipta
fræðingi og eiga þau 3 börn. —
Annar sonurinn, Kristinn, vél-
smíðanemi, er giftur Hönnu Stellu
Sigurðardóttur múrarameistara og
eiga þau tvö börn.
Hinn sonurinn, Ingvar, var
fermdur síðastl. vor.
Frú Hóknfráður bjó manni sín-
um og börnum hið híbýlaprúðasta
heimili, og það sæti verður ekki
fyllt, sem þessi gjörfulegi og góði
drengur skipaði þar. Söknuðurinn
verður iþví sár hjá eiginkonunni
og börnum við fráfall heimilis-
föðurins. Og tregi fyliir hjörtu
bræðra og annarra náinna vina
og samstarfsmaona. Og að síðustu
móðir hans, þessi geðþekka, gáf-
aða, aldraða kona, sem mörgu ár-
in hafa 'kennt að þekkja og skilja
tilgang lífsins, strýkur sinni
mjúku móðurhönd, eins og hún
hafði oft áður gert, á vanga síns
elskulega sonar á síðasta sinn.
Guð blessi okkur öllum minningu
þessa góða drengs.
Páll Erlendsson
f
Georg sál. Pálsson var jarðsung
inn síðastl. miðvi'kudag, 4. þ.m.,
Bæn var flutt á heimili hans.
I kirkju flutti sóknarprestur
nokkur kveðjuorð til Georgs frá
ástvinum hans og nokkrum vinum,
og síðan bæn.
Danáel Þórhallsson söng einsöng
í kirkjunni. Kirkjukórinn annaðist
sönginn. Bræður Georgs sál., son-
ur, tengdasonur og móðurbróðir,
báru kistuna i kirkju.
Félagar úr Rótaryklúbb Siglu-
fjarðar stóðu heiðursvörð hjá
kistunni. Bæjarstjórn Siglufjarðar
bar kistuna úr kirkju. Á kirkju-
tröppum tóku Sjálfstæðismenn við
og báru áleiðis til kirkjugarðs, en
þá tóku verzlunarmenn við og
báru, ásamt Sjálfstæðismönnum,
kistuna upp garðinn til legstaðar.
Athöfnin fór virðulega fram að
viðstöddu miklu fjölmenni.
Þakkarávarp
Iljartans þakkir fyrir auð-
sýnda samúð og liluttekn-
ingu við andlát og jarðariör
eiginmanns míns
GEORGS
PÁLSSONAR
Sérstaklega ]>akka ég bæj-
arstjórn, Rótarýklúbb, Sjálf-
stæðisfélögunum og síma-
stúlkum í Siglufirði.
Fyrir mina hönd og ann-
arra vandamanna,
Hólmfríður Guðjónsdóttir
t
Guðmundur Kj.
Guðmundsson
MINNINGARORÐ
Hann hafði 22. ág. síðastl farið
í róður á litlum vélbáti, sem hann
átti.
Var búizt við honum úr róðr-
inum að kveldi sama dags. Kvöld-
ið leið og Guðmundur kom ekki
að landi. Þótti það harla grun-
samlegt.
Var m.b. Þorsteinn fenginn til
að leita hans um nóttina og í dög-
un þess 23. ág. fannst vélbátur-
inn rekinn í Héðinsfirði og
skammt frá bátnum var Guð-
mundur þar örendur.
Engum getum vérður leitt að
því hvernig þetta sorglega slys
hefur viljað til. Gamalt islenzkt
máltæki h'ljóðar þannig: „segir
fátt af einum“, og býr enn yfir
þeim sannindum, og enginn verð-
ur til að afsanna það.
Guðmundur heitinn var góð-
menni hið mesta, óádeilinn og orð-
fár, og bjó yfir rólegri og prúð-
mannlegri skaphöfn. Hann þótti
góður verkmaður, laghentur vel.
Hann stundaði jöfnum höndum
oftast nær bæði vinnu í landi og
róðra á litlum vél'bát, sem hann
átti. Hann var giftur og átti fyrir
stórri fjölskyldu að sjá, og var í
þessari síðustu för að ná björg í
bú eins og svo oft áður.
Jarðarför hans fór fram frá
heimili hans hér í bæ 30. ág. s.l.
að viðstöddu fjölmenni.
Blessuð sé minning hans.
Siglfirðingar góðir!
Minnist þess, að Min,ningar-
spjöld Kvenfélagsins „Vonar“, eru
til sölu á neðangreindum stöðum:
I Bókaverzlun Hannesar Jónas-
sonar; hjá Sigurbjörgu Hólm,
Hafnargötu 20; hjá Magdalenu
Hallsdóttur, Hvanneyrarbraut 40.