Siglfirðingur - 20.09.1958, Blaðsíða 3
SIGLFIRÐINGUR
3
t
!
♦
I
t
l
i
*
HÉR Á LANDI HEFUR
atcher
OLIUBRENNtRINN
notið »ívaxandi vinsælda og viðurkenningar, bæði meðal
húseigenda og fagmanna á sviði hitalagna.
THATCHER-brennarimi er traustbyggður, gang-
öruggur og sérstaklega sparneytinn.
* THATCHER-BRENNARINN er framleiddur í 8
gerðum og hentar því í allar stærðir miðstöðvar-
katla, bæði í íbúðarhúsum og stærstu verk-
smiðjum.
Kynnið yður verð og gæði THATCHER-
brennaranna, og þér munið sannfærast
um, að þér fáið ekki betri brennara.
EYÞOR HALLSSON
Lindargötu 24 — Sími 60.
KÆRUFRESTUR !
Frestur til að kæra til yfirskattanefndar Siglufjarðar úrskurði
niðurjöfnunarnefndar Siglufjarðar út af útsvörum 1958 er til 6. októ-
ber 1958. > l
Frestur til að kæra til yfirskattanefndar úrskurði skattstjóra át
af tekju og eignaskatti og öðrum gjöldum, er greiðast eiga á ímmui-
talsþingi 1958 er einnig til 30. september 1958.
Kærur skulu sendar til bæjarfógetans í Siglufirði.
Siglufirði, 15. september 1958.
YFIRSKATTANEFND SIGLUFJARHAR
Tilkynning frá tannlæknimim.
Vegna brotttiutnings liætti ég að starfa að tannlækningum hér á
Siglufirði þ. 5. október n.k.
E. BEHRENS, tannlwknir
T I L L E I G U
Sjálfstæðishúsið, Siglufirði, er til leigu frá 1. nóv. u.k. að telja
(húsgögn, eldhúsáliöld og borðbúnamir fylgir).
Leigutilboðum sé skilað til Ólafs Ragnars eða Kjartaas Bjaraa-
sonar fyrir 15. okt. n.k.
SJÁLFSTÆÐISHtSH) h.f.
THEÓDÓRA PÁLSDÓTTIR
(Framhald af 1. síðu)
lífi og því sýndi hún frábæran
hetjuskap, er hún varð fyrir þeim
gtóru áföllum að missa sinn
ágæta eiginmann fyrir tímann, og
son sinn Jóhannes, sem var að
hefja listamannsbraut sína. Við
fráfall feðganna, sá frú Theódóra
hverfulleik mannlegs lífs, vonir og
óskir bundnar við þessa feðga,
brostnar og verða að engu.
Við þetta sætti frú Theódóra
sig, og var það hennar mesta fró-
un, að mega hlynna að börunum
sínum, sem hún síðar naut verð-
skuldaðrar umönnunar og ástúðar
hjá.
Við söknum frú Theódóru úr
samferðamannahópnum, en gleðj-
umst moð henni yfir kærkomnum
endurfundi vinanna, sem yfir
mó'ðuna miklu eru komnir á und-
an henni.
Blessuð sé minning hennar.
*- „xitcei
Páll Erlendsson
' i. <V
. —oOo—1
Theódóra Pálsdóttir Árdal er
dáin. , „ i i !
£g, sem þetta rita, kynntist
henni fyrir tiltölulega fáum árum,
og mór finnst nú sem kynni okkar
hafi orðið allt of stutt og kannske
tíkki náin. Samt finnst mér, að
ég geti ekki látið hjá liða, nú er
,vegir skiljast, að votta minningu
bennar, virðingu, og henni liðinni,
innilega þökk. !Ég er ekki kunn-
ugur Hfsferli hennar, en veit þó
að henni hlotnuðust, frá vöggu
til grafar, ýmiskonar gæði, andleg
og veraldleg, sem fjarri fer að
öllum falli í skaut.
Hún var komin af og uppalin
hjá vel metnum foreldrum, sem
sköruðu fram úr, vegna gáfna
sinna og andlegra yfirburða og
hafði enda sjálf hlotið frá þeim
í vöggugjöf Hsthneigð og góða
greind. Hún naut þess sem ung
stúlka að verða glæsileg og dáð
heimasæta, og ung var hún gefin
glæstum ingissveini af höfðingja-
ættum. Með honum bjó hún með-
an þau lifðu bæði og ól honum
mannvænleg börn, sem urðu stoð
hennar og stolt, eftir að hún
missti mann sinn og aldur tók að
færast yfir hana. Hún fór að vísu
ekki varhluta af mótlæti á Mfs-
leiðinni fremur en annað fólk, en
mun hafa mætt slíku með andleg-
um styrk sínum trúartrausti.
Hún var kona bjartsýn og trúði
á sigur hins góða.
Theódóra heitin var á margan
hátt sérstæð kona sem setti
„svip á bæinn“ um áratuga skeið
og bar svipmót tiginnar ættar í
útliti og framkomu. Hún var glað-
vær og hressileg í framkomu,
hreinskiUn og alls órög við að
lýsa skoðunum sínum i hvers
manns eyru. Ekkiveit ég þó til að
hún hafi aflað sér óvináttu nokk-
urs maxuxs fyrir einurð sína, held-
ur hafi menn metið við hana
hreinskilni hennar og einlægni.
Hún var hrókur alls fagnaðar
í vinahópi, hnittin og hittin í
svörum, ef því var að skipta og
hvarvetna hinn mesti aufúsugest-
ur í mannfagnaði. Hún gat glaðzt
með glöðum, enmun ekki síður
hafa hryggzt með hryggum, er
því var að skiptá, enda hjartahlý,
mild og mannúðleg.
Theódóra heitin var félagslynd
kona og áhugasöm um framgang
þess málstaðar, sem hún taldi
réttan vera. Var hún um langt
skeið starfsamur félagi í Kvenfél-
aginu Von, og um áratuga skeið
ein ötulasta baráttukona fyrir
Sjálfstæðisflokkinn hér á staðn-
um. Hún var frumkvöðull að
stofnun hinnar gömlu svonefndrar
„Spítalanefndar“, sem starfaði til
styrktar sjúkrahúsinu, og síðar
meðlimur Kvenfélags Sjúkrahúss-
ins. Var frú Theódóra ein orðin
eftir af þeim konum sem gömlu
nefndina skipuðu 1 fyrstu.
Var hún í þessum félagsstörfum
hin aðsópsmesta, ódeig og traust
sem bjarg.
Fyrir þetta, svo og aðra liðveizlu
hennar við góðan málstað er heni
nú þakkað af heilum huga og hún
kvödd með söknuði.
Hinsvegar munum við öll, þótt
við söknum hennar, unna henni
ljúfrar værðar, eftir langa ævi,
mikið starf og erfið veikindi undir
. Jþað síðasta, nú er hún er lögð til
hvíldar hér inni á milli f jallanna,
sem hún á unga aldri batt tryggð
við og þar sem hún v ann sitt «vi-
starf.
■Við vottum ástvinum hennar og
aðstandendum samúð um leið og
biðjum Guð að blessa minningu
þessarar góðu konu.
B. I.
—oOo—
Jarðarför frú Theódóru fór
fram fimmtudaginn 18. þ.m. 9r.
Ragnar Fjalar Lárusson sóknar-
prestur hélt húskveðju að Norður-
götu 1 á æskuheimili eiginmanns
hennar og nú heimili dóttur þeirra.
1 kirkju flutti Sr. Ragnar nokk-
ur kveðjuorð, en tengdasonur
hennar sr. Emil Björnsson flutti
aðalræðuna. Sr. Ragnar jarðsöng.
Mikið fjölmenni var viðstatt, og
var kirkjan fullskipuð.
Athöfnin í heimahúsi og kirkju
fór mjög virðulega og hitíðlega
fram.
Slys við höfnina
Það slys vildi til í gærkvöldi um
kl. 10 að Kristinn Sigurðsson
bryggjuformaður hjá Reykjanesi
h.f. féll í sjóinn af bryggjunni. —
Kristni var fljótlega náð upp og
þegar hafnar lífgunartilraunir, en
án árangurs. Blaðinu er ekki
kunnugt, þegar það fór í presa-
una, hvort banameinið var drukkn
un eða hjartaslag. t