Siglfirðingur


Siglfirðingur - 20.09.1958, Blaðsíða 4

Siglfirðingur - 20.09.1958, Blaðsíða 4
4 SIGLFIRÐINGTJE íslenzkir kennarar í boði í.Danmörku Eins og getið var í blöðum nýlega fóru 15 íslenzkir kennarar til Danmerkur í byrjun ágúst. Þeir dvöldu þar rúmar 3 vikur í boði Norrænafélagsins og Kenn- arasamtakanna í Danmörku. Tveir kennaranna voru frá Siglufirði, þeir Flosi Sigurbjörnss- on og Guðbrandur Magnússon. Blaðið snéri til Guðbrands.sem er nýlega kominn heim, og bað hann um stutta frásögn af ferðalaginu. Fer frásögn hans hér á eftir: Við fórum utan með m.s. Heklu 2. ágúst sl. og komum til Hafnar 7. ágúst að morgni. Þar dvöldum við 3 fyrstu dagana í góðu yfirlæti. Erik Andersen skólastjóri við Bavnehöj-skólann í Kaupmannahöfn, tók á móti okkur og urðum við þess fljótt vör, að það var maðurinn, sem bar veg og vanda af heimboði þessu. Hann var með okkur þrjá fyrstu dagana og reyndist hinn traustasti og bezti fararstjóri. Þá daga þáðum við heimboð ýmissa merkra stofnana, komum m.a. í Handelsbanken og Politik- ens blaðhus. Okkur var haldin vegleg veizla á báðum þeim stöð- um. Ekki vannst tími til að skoða nema hluta af þessum stofnunum, enda vinna þar þúsundir manna. Stofnanir þessar reka einnig skóla þar sem ungt fólk er þjálfað áður en það byrjar störf. Handelsbank- en hefur 49 útibú í Danmörku og rekur stórglæsilegt félagsheimili í ,,Uglemose“. Þar var íburðar- mikil veizla og allir leystir út með gjöfum. Frá „Uglemose", var haldið til Stefáns Jóh. Stefánssonar am- bassadors og dvalið þar um hríð. Móttökur hjá honum og hans glæsilegu konu voru mjög elsku- legar. Þrjá fyrstu dagana í Höfn sýndi Erik Andersen okkur margt fleira, t.d. Þjóðminjasafnið og Listasafn ríkisins og fór með okkur til Hove á Norðvestur Sjá- landi en þar er nýtt og glæsilegt skólaheimili, þar sem börn dvelja einnig að sumarlagi. Þann 10. ágúst var svo haldið til Sonderborg á Als. Þar dvöld- um við til 23. ágúst á Xþróttahá- skólanum. Skólastjórinn heitir A. Sogárd Jorgensen. Kynni okkar af þeim skóla, og ekki síður skólastjór- anum, munu seint gleymast. So- gárd er mjög elskulegur maður, ágætur ræðumaður og svo músík- alskur að af ber. Við vorum þarna á námskeiði, sem kallaðist „14 daga áháskóla". Þar var hlustað á fyrirlestra, iðk- aðar íþróttir, sund og sjóböð. Um 180 manns voru á þessu nám- skeiði og sumir langt að komnir, t.d. tveir frá Hollandi, einn frá Ameríku, einn frá Líbanon, en flestir voru danskir. Fjórar lang- ar fræðsluferðir voru farnar þessa daga, m.a. til Slésvig í Þýzka- landi og til Romo við Vesturhafið. Margt var skoðað á þessum ferð- um. Kennarar skólans voru með og fluttu margar frásagnir um hina merku staði. Iþróttaháskólinn í Sonderborg er nýr, og mjög glæsileg bygging. Land skólans er um 10 dagsláttur. Þar eru víðir velhr og skógi þakt- tar hæðir og mikil náttúrufegurð. Við skólann kennir einn Islend- ingur. Hann heitir Jón Þorsteins- son frá Dalvík. Jón er mjög glað- vær og skemmtilegur og hefur unnið sér traust og vináttu allra, sem hann þekkja. Hann kennir #íþróttir, en er auk þess einn af fyrirlesurum skólans og kynnir Islendingasögurnar. Á skólanum í Sonderborg kynnt umst við dönsku sálarlifi og dönskum lýðskólaanda, og vitum nú betur en áður, að Islendingar eiga góðan vin þar sem hinn danski lýðháskóli er. Eftir að við komum aftur til Kaupmannahafnar dvöldum við hjá star-fsbræðrum okkar. -Við höf- um öll góðar endurminningar um þá dvöl enda var ekkert til sparað að gera hana sem ánægjulegasta. Þá daga sáum við einnig margar merkar stofnanir og nýja skóla. Má t.d. nefna skólann í Gladsaxe, þar sem um 5000 nemendur stunda nám daglega. Þarna er barna- skóla, gagnfræðaskóli, allskonar iðnkennsla, gagnfræðaskóli, alls- konar iðnkennsla og menntaskóli, allt undir sama þaki. Skólinn er mjög víðáttumikill og í mörgum byggingum, enda mestallur á einni hæð. Kennt er frá kl. 8 að morgni til kl. 10 að kvöldi. 40 konur ræsta skólinn frá kl. 5—8 að morgninum. Skólastjórinn heitir Thorkild Hansen. Einnig voru okkur sýnt barna- heimili og gamelmennahæli. Boðinu lauk með veizlu, sem menntamálaráðuneytið danska hélt íslenzku kennurunum og mörgum öðrum gestum á gömlum sögufrægum veitingastað, sem kallast ,,Josty“ og er á Friðriks- bergi. Flestir komu svo heim með Gullfossi 4. september. Byggingarframkv. við frystihúsið Isafold Einhuga áskorun bæjarstjórnar á Innfiutnmgsnefnd ,,Siglfirðingur“ skýrði frá því í janúarmánuði sl. í viðtali við Þráinn Sigurðsson, hverjar bygg- ingaframkvæmdir væru fyrirhug- aðar á hans vegum við frystihúsið Isafold. Nú í sumar hefur Þráinn unnið að þessum þörfu framkvæmd um, sem eru liður í atv.legri upp- byggingu Siglufjarðar og barátt- unni við árstíðabundið atvinnu- leysi hér. Því miður hafa fjárfest- ingaryfirvöldin ekki sýnt þessu máli nægan skilning, vægast sagt, og gerði bæjarstjórn Siglufjaróar einróma samþ. 5. sept. sl., er flutt var af öllum bæjarfulltrúunum 9 og send hefur verið f járfestingar- yfirvöldum. Héraðsmótið á Siglufirði. Valdir ræðumenn - Orvals listafólk Héraðsmót Sjálfstæðisfélaganna verður háð í kvöld kl. 8,30 að Hótel Höfn. Sjálfstæðisfélögin hafa undanfarin haust efnt til liéraðs- móta hér í Siglufirði, sem hafa gefið góða raun og verið ánægju- leg tilbreytni í félagslífi bæjarbúa. Hafa þar í senn komið fram ýmsir úrvals skemmtikraftar úr liópi listamanna höfuðborgar- innar og framámenn flokksins, er túlkað hafa stefnu hans og sjónarunið. Þannig hefur farið saman stjórnmálalegur fróðleikur og kynning á listamönnum olikar. Að þessu sinni tala á mótinu JÓN PÁLMASON, alþingis- maður og fyrrv. forseti sameinaðs þings, og GEIR HALL- GRÍMSSON, hæstaréttarlögmaður, form. Sambands ungra Sjálf- stæðismanna. Menn þessa þarf ekki að kynna lesendum Sigl- firðings, en flesta bæjarbúa mun fýsa að heyra til þeirra, því þeir eru með betzu málsvörum Sjálfstæðisflokksins. SKEMMTIATRIÐI MÓTSINS ANNAST ÞESSIR AÐILAR: ★ Brynjólfur Jóhannesson, leikari ★ Sigurður Ólafsson, söngvari v.„ ★ Nína Sveinsdóttir, leikkona . cS* •' ★ Skúli Halldórsson, píanóleikari Flytja þau fjölbreytta skemmtidagskrá, sem liér verður ekki rakin, því sjón verður sögu ríkari, en vel. mun til hennar vandað, og fáir munu verjast brosi við flutning liennar. Sigurður Ólafsson mun og syngja með danshljómsveitinni að loknum dagskrárliðum. 1 i „Bæjarstjórn Siglufjarðar samþ. að óska eindregið eftir við Innflutningsskrifstofuna að Þráinn Sigurðsson, útgerðar- maður, fái nú þegar nauðsynleg fjárfestingarleyfi til að ljúka við stækkun á frystihúsinu ísafold, Siglufirði, sem byrjað var á á sl. vori. 1 frystihúsinu hafa unnið milli 20 og 30 manns mest allt árið, og myndi það fólk missa atvinnu sína, ef frystihúsið kæmist ekki upp eins og fyrirhugað er. Stöðvun frystihússins myndi verða til stórtjóns fyrir bæjarfélagið, og jafnframt þjóðarbúið, og gagn- stættþeirri stefnu núverandi ríkisstjórnar, að auka beri at- vinnu, sérstaklega í hinum dreifðu byggðum landsins.. En vegna hins árstíðabundna at- vinnuleysis, sem stöðugt vofir yfir, er Siglufirði lífsnauðsyn að öll atvinnutæki séu nýtt til hins ítrasta, og þá sérstaklega þau, sem vinna að framleiðslu sjávarafurða. Bæjarstjórn Siglufjarðar vill því leggja sérstaka áherzlu á þá áskorun sína, að Þráinn Sigurðsson fái nauðsynleg fjár- féstingaleyfi nú þegar“. Þegar blaðið var að fara í pre$s- una, barst sú fregn, að fjárfest- ingarheimild væri fengin. Kaupstaðaráðstefnan Fulltrúafundur kaupstaðanna á Vestur-, Norður- og Austurlandi hófst á Sauðárkróki sl. föstudag. Formaður framkvæmdanefndar samtakanna Baldur Eiríksson, Siglufirði setti ráðstefnuna og tilnefndi Guðjón Sigurðsson bæj- arfulltrúa Sauðárkróki sem fund- arstjóra og Sigurjón Sæmundsson bæjarstjóra Siglufirði til vara. Ráðstefnan ræddi sameiginleg hagsmunamál kaupstaðanna og gerði ýmsar samþykktir þar um. Nánar. verður sagt frá ráðstefn-s unni í næsta blaði. \',

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.