Siglfirðingur


Siglfirðingur - 25.03.1960, Side 3

Siglfirðingur - 25.03.1960, Side 3
SIGLFIEÐIN GUE 3 Fyrirframgreiðsla útsvara 1960 Bæjarstjóm Sigluf jarðar hefur ákveðið að nota heimild útsvars- lfiganna nm innheimtu fyrirframgreiðslu útsvara 1960. Samkvæmt því ber gjaldendum að hafa lokið greiðslu á upphæð sem nemur helmingi útsvars 1959, fyrir 1. júní nk. með jöfnum mán- aðargreiðslum.,— I þessu sambandi em gjaldendur minntir á, að þeir sem lokið hafa útsvarsgreiðslum fyrir 1. september nk., fá 10% eftir- gjöf af væntanlegu útsvari sínu. Siglufirði 17. marz 1960. BÆJARSTJÓKINN TILKYNNING Nr. 5/19C0 Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á brenndu og möluðu kaffi frá innlendum kaffibrennslum: I heildisölu pr. kg ............. kr. 38,60 1 smásölu pr. kg.................. — 44,40 Reykjavík 5. marz 1960. VERÐLAGSSTJÓRINN TILKYNNING Nr. 4/13E0 Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið hámarksverð á eftirtöldum unnum kjötvörum, svo sem hér segir: Heildsöluverð Smásöluverð Vínarpylsur pr. kg..... kr. 23,50 kr. 28,00 Kindabjúgu — — — 21,50 — 26,00 Kjötfars — — ...... — 14,75 — 17,60 Kindakæfa — — — 29,30 — 38,00 Reykjavík 3. marz 1960. VERÐLAGSSTJÓRINN Tilkynning Frá og með 15. marz, höfum við undirritaðir ákveðið, að greitt skuli fyrirfram hekning áætlaðs verðs, af öllum verkum, er við tökum að okkur, að undanskyldum nýbyggingum húsa. Verði verkið ekki að fullu greitt við afhendingu, reiknast vextir af skuldinni 1% pr. mánuð. Af öllum eldri skuldum, sem ekki hafa verið greiddar upp eða samið um fyrir 1. apríl n.k. reiknast bankavextir. Siglufirði, 1. marz 1960. Trésmíðaverkstæðið Aðalgata 1: BJARKI ÁRNASON Trésmíðaverkstæðið Túngötu 40: GlSLI ÞORSTEINSSON Byggingarverkstæðið s.f., Grundargötu 1: MAGNtJS BLÖNDAL — SKÍJLI JÓNASSON Trésmíðavinnustofa Kristjáns Sigtryggs: KRISTJÁN SIGTRYGGSSON Trésmíðavinnustofan Laugarvegi 13: ÞÓRARLNN VILBERGSSON I. Þróun efnaihags- og atvinnumáia hefur orðið með öðrum og nei- kvæðari hætti á Islandi en hinum Norðurlöndunum. Bræðraþjóðir oikk- ar búa við traustan gjaldmiðil, næga atvinnu, fullkomna tryggingar- löggjöf — og öryggi þegnanna. Þessi mál eru samofin þjóðmálabaráttunni, megin viðfangsefni stjórnmálanna. — Það er því ofur eðlilegt, að ólík þróun þessara mála hjá okkur og öðrum Norðurlandaþjóðum sé sett í samband við ólík styrkleikahlutföll á stjórnmálasviðinu í þessum löndum. Tímaritið „NORDlSiK KONTAKT", sem einmitt fjallar um hag- fræðileg efni og póhtísk, birti nýverið samanburð á styrkleika komrn- únistaflokkanna á Norðiu'löndum. Samanburður þessi er ail athyghs- verður, sé hann settur í samband við þróun atvinnu- og efnahagsmála í þessum löndum. Samkvæmt yfirhti blaðsins eru hlutföHin þessi: SVÍÞJÓiÐ: Þar eiga kommúnistar 5 þingmenn af 231 DANMÖRK: Þar eru 179 þingmenn, þar af 5 kommúnistar NOREGUR: Þar er aðeins einn kommúnisti af 150 þingm. ÍSLAND: Hér eru 10 þingmenn af 60 kommúnistar. Er ekki tímabær þjóðleg vakning í íslenzkum stjómmálum, sam- stillt átak allra góðra íslendinga gegn þeim anga alþjóðakommún- ismans, sem hér hefur, illu heilh, fest rætur ? Hin óeðlilegu áhrif kommúnista hér á landi verka til niðurrifs inn á við, skapa tortryggni út á við — og vaxandi þekking og skilningur á þjóðarbúskap okkar sjálfra verða að vinna bug á þeim skaðvaldi, sem þessi áhrif eru. Æskan á mest í húfi — og hennar þarf forystan að vera í þessu efni. H. Þessi samanburður á styrkleika kommúnista á Norðurlöndum á sér aðra hlið. — Til viðbótar snæð flokksims þar bætist algjör einangrun hans; enginn ljáir honum hð til samstarfs eða áhrifa; óþjóðlegt eðh hans og annarleg sjónarmið eru hættumerki í augum réttsýnna mannna. Hér er þroski og ábyrgð stjómmálamanna og annarra, á öðm og lægra stigi. Samstarf við kommúnista og bein þjónkun bætist við ó- eðlileg áhrif þeirra. Framsóknarflokkurinn, næst stærsti flokkur þjóðarinnar, leiðir kommúnista í ráðherradóm á íslandi, kýs þá til valda í verkalýðs- félögum, haslar sér völl í þjóðmálabaráttunni við lilið þeirra. —5 Er þeim sverð og skjöldur í baráttu gegn viðreisn og velmegun í borgara- legu þjóðfélagi. Hlutverk kommúnista, hins kreddufaista sértrúarflokks aldargamals marxisma, er lítt glæsilegt — en hlutverk F'ramsóknarflokksms er viðurstyggð. — Enginn helbrigt hugsandi æskumaður getur lengur fylgt þeim flokki, sem taglhnýtt hefur sig aftan í steinrunna kommún- ista. ÞAKKARÁVARP Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför eiginmanns mins VIGFÚSAR GUNNLAUGSSONAR Fyrir hönd aðstandenda. Sigfússína Stefánsdóttir Tilkynning frá olíufélögunum Vegna ráðstafana þeirra, sem gjörðar hafa verið í efnahagsmálum, hafa olíufélögin gefíð fyrirmæli til umboðanna, að í mesta lagi verði veitt mánaðarviðskipti, isem verða að vera að fullu greidd fyrir 15. næsta mánaðar. Eftir þann tíma reiknist vextir, 1% á mánuði. Jafnframt er ákveðið, að olía verði eigi afgreidd áfram til þeirra viðskiptamanna, sem ekki hafa gjört upp viðskipti sín. Siglufirði, 21. marz 1960. Olíufélagið Skeljungur h. f. — Olíuverzlun íslands h. f. Olíufélagið h. f. umboðin Siglufirði

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.