Siglfirðingur


Siglfirðingur - 18.04.1961, Side 3

Siglfirðingur - 18.04.1961, Side 3
3 ÖTSVÖR 1961 Ákveðið hefur verið að innheiimta fyrirframgreiðslu útsvara 1961 eftir sömu reglum og undanfarin ár. Hinn 1. apríl voru því gjaldfallin ca 25% miðað við útsvarsupphæð sl. ár. — GREIÐIÐ ÚTSVÖRIN MEÐ MÁNAÐARLEGUM AFBORG- UNUM ! Siglufirði, 4. apríl 1961. BÆJARGJALDKERINN FASTfl STARFSSTÚLKU vautar á sjúkraliúsið nú þegar, eða eftir nánara samkomulagi. Gott kaup. — Upplýsingar lijá yfirhjúkrunarkonuimi. BÆJARGJALDKERINN TÍLKYNNÍNG NR.V/Íi'”" Verðlagsnefnd hefur í dag ákveðið eftirfarandi hámarksverð á kaffibæti: I heildsölu pr. kg....................... kr. 21,60 I smásölu pr. kg. með söluskatti ........ — 26,00 I smásölu pr. kg. með söluskatti .. — 26,00 Reykjavík, 17. marz 1961 V E R Ð L A'G SSTJÓRINN ÞAKKARÁVARP Hjartans þakkir til allra þeirra, er heimsóttu mig, sendu mér gjafir og heillaóskir á 80 ára afmæli mínu, 20. febrúar sl., og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð gefi ykkur gleðilegt sumar. Guðlaug Gísladóttir Suðurgötu 26. ) LÍNUR AF VATNSNESI (framhald af 4. síðu ) Vegagerð miðaði vel áfram. Sér staklega fór meira fé til vega- gerðar á Vatnsnesi en áður, og verður framhald á því þetta ár. Er mikilsvert að vegurinn norður fyrir Vatnsnesfjall að vestan, verði sem fyrst greiðfær og sæmi- lega öruggur yfirferðar allt árið. Léttir það og auðveldar alla um- ferð og flutninga umhverfis fjall- ið, t.d. mjólkurflutninga. Byggð var brú á Tunguá í Þor- grímsstaðadal og smábrú á Kambsá Þorkellshólshr. í ár er ætlað fé til brúargerðar á Víði- dalsá hjá Bakka. Er það allmikil brú. Mjólk er nú flutt úr öllum sveitum, þótt enn séu bæir illa settir. Hafa þessir flutningar gengið mjög að óskum í vetur og oftast eins og á sumardegi. Mjólk- urbú tók til starfa á Hvamms- tanga sl. vor. Hyggja margir bændur gott til mjólkursölu, enda nauðsynlegt að skapa möguleika til aukinnar fjörbreytni í fram- leiðslu. Nýtt sjúkrahús tók til starfa á Hvammstanga sl. vor. Er það hið vistlegasta á alla lund. Auk ríkis- framlags lagði sýslan fram fé til þess og svo runnu fleiri staðir þar undir. Munar þar mestu fram lag Kvennabandsins, sem hefir, undir ötulli stjórn frú Jósefmu Helgadóttur, árlega safnað fé til byggingarinnar, síðasta sunudag í júlí. Nemur framlag þess til byggingarinnar um 250 þús. kr., en auk þess hefir það gefið rúm- fatnað. — Bygging þessi er bæði sjúkrahús og dvalarheimili aldr- aðs fólks. Þá hefir verið stofnað fegrun- arfélag á Hvammstanga, en að því hafa aðahega staðið þrjár konur: hjúkrunark. frk. Magnea Guðriadóttir, læknisfrú Hulda Tryggvadóttir og frú Ingibjörg Pálsdóttir, lagt fram mikla vinnu og fyrirhöfn að bæta og prýða urnhverfis sjúkrahúsið. Það eitt skyggir á nú í þessu sambandi, að héraðslæknirinn, Hörður Þorleifs- son, hvarf að fullu burt úr hérað- inu í sl. mánuði. Fór hann til Englands með f jölskyldu sína, en þar nemur hann augnlækningar næstu ár. Er af honum mikil eftirsjá vegna mannkosta hans, enda góður læknir og lánsamur í starfi. Ávann hann sér á fáum árum traust, vináttu og virðingu héraðsbúa. Fylgja þeim hjónum áreiðanlega beztu óskir og ein- lægar þakkir allra hér. Annar embættismaður hefir einnig látið af sínu starfi, sýslu- maðurinn, Guðbrandur Isberg, en syni hans, Jóni Isberg, hefir verið veitt sýslan og tók hann að fullu við því starfi um áramótin. Vissu- lega megum við Húnvetningar þakka fyrrv. yfirvaldi okkar ára- tuga ágæt störf, enda er Guðbr. isberg hinn mesti öðlingur og fyllsta trausts og virðingar verð- ur. Nýja sýslumanninn bjóðum við velkominn í stanfið og óskum honum góðs gengis. Stofnað hefir verið almennt vá- tryggingarfélag, sem nær yfir Húnavatnssýslu alla. Nefnist það Byggðatrygging h. f. Er félag þetta með nokkuð nýju formi, sem lítið mun hafa verið reynt hér á landi. Auk þeirra hluta- bréfa, sem stofnendur kaupa, gefst öllum, sem tryggja hjáfé- laginu kostur að kaupa hlutabréf eftir nánari ákvæðum og fylgja þeim bréfum sömu réttindi og stofnbréfum. Hér er um almenn- ingshlutafélag að ræða, félag tryggjendanna sjálfra. Má góðs vænta af starfsemi þessa félags og líklegt að Húnvetningar meti þá merku nýjung sem hér er á ferð, að verðleikum. Kann svo að fara, reynist hér um hagkvæmt form að ræða, sem vonir standa til, að fleiri félög rísi, stærri eða smærri í sniðum og víðar, á sams konar grunni og þetta er byggt á. Frekar er dauft yfir félagslífi hér. Ungmennafél. Hvöt í Kirkju- hvammshreppi átti 30 ára afmæli í fyrra mánuði. Var þess minnst með ágætri samkomu núverandi og fyrrverandi félagsmanna. Fé- lag þetta var upphaflega mál- fundafélag, en var síðar breytt í ungmennafélag. Er hugur í fé- lagsmönnum að láta til sín taka í framtíðinni á ýmsum sviðum. Þann 7. ágúst í sumar sem leið, var stofnað félag Sjálfstæðis- manna í V.-Hún. Vaim Birgir Gunnarsson mjög að undirbúningi félagsstofnunarinnar. Um 100 manns tóku þátt í stofnun félags- ins. Formaður þess er Benedikt Guðmundsson. á Staðarbakka. Aðrir í stjórn eru: Jóhannes'Guð- mundsson, Auðunnarstöðum, Ósk- ar E. Levý, Ósum; Sigurður Tryggvason, Hvammstanga og Þórarinn Þorvaldsson, Þórodds- stöðum. Hyggja Sjálfstæðismenn hér gott til þessa félags síns og er ekki að efa að það verður lyfti- stöng okkar mála. Munu nú sjálf- stæðisfélög starfandi um allt þetta nýja kjördæmi okkar og liggur fyrir að treysta samstarfið sem bezt, til hagsbóta þessu svæði í heild og landinu öllu. Guðjón Jósefsson. Augtýsið í Siglfirðingí FLUGFÉLAG ÍSLANDS (fraliald af 1. síðu). 22,30—23,55, nema sunnudags- ferðir frá Hamborg, Kaupmanna- höfn og Osló, sem koma til Reykjavíkur kl. 16,40. Flugfélag Islands hefir nú á leigu Cloudmasterflugvél af full- komnustu gerð til millilandaflugs, og mun svo verða um nokkurn tíma, þar sem önnur Viscount- fiugvéhn er bundin við störf í Grænlandi en hin er í skoðun ytra. Á sumri komanda munu Viscount flugvélarnar hins vegar annast milhlandaflugið að mestum hluta, en að nokkru mun verða notuð DC-6B (Cloudmasterflugvél), sem Flugfélag íslands hyggst kaupa. Sú flugvél, er hinn glæsilegasti farkostur og búin fuUkomnustu tækjum, m.a. ratsjá. Um þessar mundir eru nokkrir flugmenn Flugfélags Islands að Ijúka bóklegu námi í meðferð DC-6B-flugvéla og eftir heimkom- una munu þeir hefja flug sem að- stoðarfulgmenn á þeirri flugvéla- tegund, unz þeir, eftir tilskilinn tíma, öðlast flugstjórnarréttindi. Þangað til, munu flugstjórar SAS stjórna flugvélinni. Nú, eins og nokkur undanfarin ár, hefir Flugfélag íslands vandað mjög til útgáfu sumaráætlun sinn ar, og er hún jafnframt hin ágæt- asta kynning. I sumaráætluninni, sem prentuð er á mjög góðan pappír, eru margar litmyndir frá fögrum stöðum hér á landi auk teikninga og annarra mynda. Á tímabilinu frá 1. apríl—31. maí og frá 1. október—31. marz 1962 munu verða í gildi sérlega lág fargjöld frá Reykjavík til nokkurra staða í S.-Evrópu. Hér er um að ræða 25% afslátt frá gildandi ferðamannafargjöldum á þessum leiðum, en skilyrði er, að farþegar ljúki ferðinni á einum mánuði. Samkvæmt hinum lágu fargjöldum kostar flugfar frá Reykjavík til Barcelona og heim aftur kr. 7.820,00. Frá Reykja- vík til Nizza og heim aftur kr. 7.468,00. Frá Reykjavík til Palma (Mallorca) og heim aftur kr. 8.188,00 og frá Reykjavík til Rómaborgar fram og aftur kr. 8.354,00. Árnað heilla Nýlega voru gefin saman í hjónaband á Akureyri siglfirzku hjónaefnin, frk. Olga Óladóttir, skrifstofumær og Gunnar Guð- brandsson, rafvirkjam. Siglfirðingur óskar brúðhjón- unum gæfu og gengis. Q Munið heillaskeyti Kvenfélags Sjúltrahúss Siglufjarðar. Þau fást ávallt I Bókaverzlun Ilannesar Jónassonar.

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.