Siglfirðingur - 18.04.1961, Page 4
Aðalfundur Felags ísL bifreiðaeigenda
Aðalfundur F.I.B. var haldinn
miðvikudaginn 15. marz sl. Var
fundurinn fjölsóttur og ríkti mik-
ill áhugi um verkefni og framtíð
félagsins.
Stjórnin gaf skýrslu um störfin
frá síðasta aðalfundi í júlí 1960,
en þá var algjörlega skipt um
stjórn í félaginu. Fjölda mörg
mál varðandi bifreiðaeigendur og
vegfarendur almennt höfðu verið
tekin til athugunar, en megin á-
herzla lögð á vegamál, bifreiða-
þjónustu, umferða- og öryggis-
mál, tryggingamál og breytingu
á skipulagi félagsins. Hafa sér-
stakar nefndir fjallað um þessi
mál. Fer hér á eftir stuttur úr-
dráttur úr skýrslu stjómar F.B.I.
VEGAMÁL
Athuganir og útreikningar, sem
félagið lét gera hafa leitt í ljós,
að hinir sérstöku skattar, sem
bifreiðaeigendur greiða árlega til
ríkissjóðs, af bilum og rekstrar-
vörum þeirra nema um 250—300
milljónir króna. Árið 1960 var
fjárveiting til brúa og vega að-
eins 110 miUjónir. Rikissjóður
leggur því ekki fram til vegamála
nema % af þeim tekjum, sem
hann hefur af landfarartækjum
og rekstrarvörum þeirra. Hið lé-
lega ástand vega á fjölförnum
leiðum er einn fmmstæðasti þátt-
ur okkar þjóðfélags, sem kostar
þjóðina stórfé í ótímabær og ó-
þörf skilti og eyðHeggingu öku-
tækja, jafnframt því, sem hindr-
ar á margan hátt eðlilega hag-
nýtingu ýmissa tæknilegra og
vísindalegra framfara. En á slík-
um framförum byggjast aUar
kjarabætur þegnanna. Þjóðar-
nauðsyn býður að breytt sé um
stefnu í vegamálum og það er
hlutverk F.B.I., að stuðla að því
að sú breyting verði gerð sem
fyrst.
BIFREIÐAÞJÓNUSTA
Viðgerða- og varahlutaþjónusta
er veigamikið hagsmunamál bif-
reiðaeigenda, sem F.I.B. hefur
tekið til athugunar á sl. ári, og
má í því sambandi nefna álits-
gerð, sem stjórn félagsins ritaði
aUsherjamefnd Alþingis, varð-
andi fmmvarp um löggildingu
bifreiðaverkstæða. Þar segir m.a.:
„Viðgerðaþjónusta er mikið og
vaxandi vandamál fyrir flesta bif-
reiðaeigendur landsins. F.I.B. hef-
ur því áhuga fyrir öUlum þeim
aðferðum, sem líklegar em tU að
bæta núverandi ástand. Við áUt-
um skýrslu Meyer’s mjög glöggt
yfirlit um þetta mál, þó að sjálf-
sögðu megi ekki áhta upplýsingar
hennar óskeikular, né leiðbeining-
ar þær er henni fylgja, einhlítar
til úrbóta. Helztu vandkvæði bíla-
viðgerða teljiun við þessi: léleg
tækni, vankunnátta, skipulags-
leysi, lélegt húsnæði. En þessi
vandkvæði eiga sér þrjár gmnd-
vaUarástæður: ÓeðlUega ströng
verðlagningarákvæði; skipulags-
leysi í innflutningi varahluta og
skortur á tæknUegri iðnfræðslu“.
í niðurlagi tbréfsins segir:
„ Lög þessi era sennilega ó-
þörf, þar eð breytingar á verð-
lagsákvæðum myndi ekki aðeins
ná sama heldur betra árangri.
Þau em ótímabær vegna þess að
Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur ekki
þá aðstöðu, sem nauðsynlegt er
til þess að tryggja að nægilega
ströngum löggildingarákvæðum
verði framfylgt. Má í því sam-
bandi benda á, að slælega mun
framfylgt ýmsum þeim reglum
um iðnað og iðnaðarhúsnæði, sem
náð geta til bifreiðaverkstæða.
Lögin myndu skapa vissum verk-
stæðum einskonar einokunarað-
stöðu, hindra að hægt væri að af-
nema verðlagsákvæði, sem eru
undirrót meinsemdarinnar. Svo
virðist, sem lög þessi myndu
verða til verulegra hagsbóta fyrir
10—20 bifreiðaverkstæði, þau
myndu ekki leysa að verulegu
leyti né á varanlegan hátt vand-
ræði 12—14 þús. bifreiðaeigenda,
og því sennilega óþörf, áreiðan-
lega ótímabær og gildi þeirra tak-
markað. Því álítum við tæplega
verjandi fyrir hið háa Alþingi að
samiþykkja lögin eins og sakir
standa. Við mælum því gegn því
að frumvarpið verði samþykkt".
tJTGÁFA ÖKUÞÓRS
Ætlunin var að hann kæmi út
um áramótin, en því miður hefur
hefur það dregist nokkuð. En nú
er trmaritið komið í prentun og
verður væntanlega sent félögum
um næstu mánaðamót. RitStjóri
ÖKUÞÓRS er Guðmundur Karls-
son. Þá hefur nefndin leitað eftir
íræðslukvikmyndum um um-
ferðamál, bæði hjá Upplýsinga-
skrifstofu Bandaríkjanna og Fél.
danskra bifreiðaeigenda.
UMFERBAFRÆÐSLA
Upplýsingaþjónustan hefir boð-
ið tvær gagnlegar kvikmyndir að
láni og var ætlunin að sýna þær
sem aukamyndir í kvikmyndahús-
unum, en tU þess að þær komi að
fuUum notum þarf að semja við
þær íslenzka skýringartexta, og
hefur ekki unnizt tími til þess.
Danska bifreiðaeigendafél. ihefur
látið gera forkunnargóða kvik-
mynd um akstur í háiku, og getur
F.I.B. fengið keypt eintak af
þeirri mynd. Tjón af völdum
hálku eru hér æði mikU. Oft veld-
ur vangá og vankunnátta í akstri.
Kvikmynd sem þessi, gæti bætt
úr því og stuðlað að minnkuðum
tjónum og þar með lækkuðum ið-
gjöldum beifreiðatrygginga.
TRYGGINGAMÁL
Þar er lögð megináherzla á
eftirfarandi atriði:
Sameiginlegar bifreiðatrygging-
ar F.I.B., þannig að iðgjöld reikn-
Tæpast verður sagt að um auð-
ugan garð sé að gresja, ef skrifa
á fréttir héðan af Vátnsnesi.
Rangt væri þó að segja að hér
skeði aldrei neitt. Hvar sem eitt-
hvert Mf er, gerist eitthvað, þótt
jafnan sé ekki um stórtíðindi að
ræða í fámennum byggðarlögum,
enda verður reynt að skyggnast
nokuð um sýsluna aUa í línum
þessum.
Of seint er að fara nú að skrifa
um liðið ár og þó hafa blöðin,
allt fram að þessu, verið að flytja
fregnir af því úr hinum ýmsu
byggðarlöguim. Héðan er líka svip
aða sögu að segja og víðast ann-
ars staðar að, um góðæri og guðs-
blessun. Hvað veðunfar áhrærir,
hefir Vatnsnesið þó nokkra sér-
stöðu meðal sveita þessa héraðs.
Oft er hér óþurrkasamt á sumrin.
ist eftir þeirra eigin tjónum. Unn-
ið hefur verið að þessu í sam-
vinnu við öll almenn bifreiða-
tryggingafélög. Iðgjöld af bif-
reiðatryggingum 1 heild geta ekki
lækkað, nema tjónin minnki. Að
þessum verkefnum viU F.I.B.
vinna með því að lába gera ná-
kvæma athugun á tíðni, eðh og
orsökum slysa, og auka umferða-
fræðslu, sem að verulegu leyti
byggist á upplýsingum um þessi
atriði. Vinna að breyttu fyrir-
komulagi á bifreiðatryggingum, á
þann hátt að draga úr oftrygg-
ingu og stuðla að því að ábyrgðin
lendi meira á iþeim, sem tjónunum
valda heldur en nú er. Vinna að
því að reglum um veitingu og
sviptingu ökuleyfa verði breytt,
og tekinn verði upp sá háttur,
sem víða tíðkast erlendis, að öku-
menn, sem títt brjóta ökureglur
sökum kæruleysis eða vankunn-
áttu í akstri, séu sviptir ökuleyfi.
Slík ökuleyfissvipting er ekki
refsing, heldur nauðsynleg ör-
yggisráðstöfun og er ekki tíma-
(Framliald á 2. síðu)
Gætti þess nokkuð sl. sumar þótt
í minni mæU væri en títt er. Nokk
uð hröktust þó hey sums staðar,
en yfirleitt má segja að heyfeng-
ur hafi verið góður. Haustveðr-
áttan var með ágætum sem og
veturinn allt til hátíða. Frá ára-
mótum hefir tíð einnig verið hin
bezta, en nokkrir rosar og um-
hleypingar nú á Góunni.
Ýmsar framkvæmdir hafa verið
miklar hér í V.-Húnavatnssýslu
árið sem leið. Ræktaðir vora um
220 ha og hefir aldrei áður verið
svo mikið ræktað. Ræktunarsam-
bandið á og starfrækir fjórar
jarðýtur, er ein þeirra ný, keypt
sl. sumar. Hefir rekstur vélanna
jafnan gengið vel og vinnan seld
ódýrari en víða annars staðar. Má
það óefað mikið þakka hagsýni og
og góðri stjórn héraðsráðunauts-
ins, Aðalbjörns Benediktssonar,
frá AðalbóU. — Jarðtætari var
lika í notkun en reyndist hætt við
bilunum. —Grafnir voru rúml.
60 km langir skurðir, eða rnn 240
þús. m3. Þá á Ræktunarsamband-
ið stálmót til bygginga votheys-
geymsla. Voru byggðir 11 turnar,
en tveir menn fóm um með mótin
og önnuðust byggingu tumanna
með nauðsynlegri hjálp heimilis-
manna á hverjum stað.
I sveitunum em þrjú allstór
íbúðarhús í smíðum. Ennfremur
byggð fjós, ýmist fuUgerð eða
komin nokkuð áleiðis, þar á meðal
eitt yfir 40 gripa, á Gauksmýri i
Kirkjuhvammshr. Þá hafa einnig
verið byggð fjárhús og ýmsar
aðrar byggingar risið.
(Framhald á 3. síðu)
i-----------------------------------—-----------------
Félag Sjálfstæðismanna,
Siglufirði
heldur aðalfund sinn mánudaginn 24. apríl n.k., í húísi flokks-
ins og hefst fundurinn kl. 8,30 Isíldegis.
D AGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Einar Ingimundarson, alþ.m., flytur þingmálayfirlit
3. Már Elísson, hagfr., talar um efnahagsmál (af segulb.)
STJÓRNIN.
Línur af Vatnsnesi