Morgunblaðið - 23.05.2011, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 3. M A Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 119. tölublað 99. árgangur
BÚVÍSINDI
OG ÞJÁLFUN
HEILLA DÚXA
ANNA ÚRSÚLA
EFTIRSÓTT
ERLENDIS
NÝ PLATA
MEÐ LADY
GAGA
MÖRG LIÐ ÍÞRÓTTIR GAGA HEIMUR 35FRAMTÍÐIN 6 OG 8
Eldstöðin í Grímsvötnum sýndi klærnar í gær er
ösku rigndi yfir stóran hluta landsins, allt frá
Eyjafjarðarsveit til Reykjaness og Reykjavíkur.
Á helsta áhrifasvæði gossins, á Kirkjubæjar-
klaustri og í nærsveitum, var fólk hvatt til að halda
sig innandyra þegar verst lét enda sást ekki út úr
augum fyrir þykkri öskunni. Þeir sem þurftu að
fara út voru með rykgrímur fyrir vitum en björg-
unarsveitarmenn fóru á milli bæja og dreifðu
þeim. Mest voru á annað hundrað björgunarsveit-
armanna að störfum í einu.
Dæmi eru um að barnafjölskyldur hafi komið
sér í burtu af öskusvæðinu.
„Ég hélt að maður væri búinn með kvótann,“
sagði Þórarinn Eggertsson, bóndi í Hraungerði í
Álftaveri. Álftaver er austan við Mýrdalssand og
því í útjaðri öskufallssvæðisins. Það fékk sinn
skammt af öskufalli í gosinu í Eyjafjallajökli í
fyrra.
Þegar rofaði til eftir hádegið beindist athygli
íbúanna að skepnunum. Bjarga fé í hús eða að hús-
um og gefa hey og hreint vatn. Heyra mátti sárt
jarm nýborinna lamba sem vissu ekki hvaðan á sig
stóð veðrið.
Öskufallið hefur áhrif á störf fleiri stétta en
bænda og þegar er farið að bera á afbókunum hjá
ferðaþjónustufyrirtækjum og er óttast að þeim
rigni yfir í dag.
Ólíklegt er að aska úr Grímsvötnum komi til
með að raska flugumferð í Evrópu í dag en ekkert
var flogið yfir Íslandi í gær. Askan raskaði dag-
legu lífi fólks. Áhrifin gætu orðið verri í dag og
næstu daga.
Morgunblaðið/Eggert
Sótsvartur Bændur í Álftaveri fengu ösku ofan í ösku því öskulagið frá Eyjafjallagosinu var ekki horfið. Örvar Egill Kolbeinsson óð um í ösku og ryki þegar hann vitjaði lambánna.
Grímsvötnin gretta sig
Tífalt öflugra eldgos
en það sem varð í Eyja-
fjallajökli á síðasta ári
Ólíklegt talið að askan
úr sprengigosinu raski
flugumferð í Evrópu
Gríðarlegt öskufall og
dæmi um að barnafjöl-
skyldur hafi flúið svæðið
Spá um dreifingu öskuskýs
Sýnd er spá fyrir
öskudreifingu undir
20.000 feta hæð.
Spáin er gefin út
kl. 18.22 í gær og á við
kl. 12 á hádegi í dag.
Grænland
Ísland
Noregur
Bretland
Svalbarði
Jan Mayen
Heimild: Breska Veðurstofan.
Askan föst í hægum vindi 2
Öskuský á örskotsstundu 4
Tífalt öflugra gos 12-13
„Þetta er viðbjóður“ 14-15
Virkasta eldstöðin 16-17
Sprengigos í Grímsvötnum
Sigurlaug Linnet er 17 ára áhuga-
ljósmyndari sem tók á laugardag-
inn mynd af gosinu í Grímsvötnum
þar sem hún stóð á hlaðinu heima
hjá sér. Í gær birtist myndin síðan í
mörgum helstu fjölmiðlum heims,
t.d. New York Times, Huffington
Post, Le Monde, El Pais, BBC, Die
Zeit og Sky News.
Myndin birtist fyrst með frétt á
mbl.is sem var lesin 240 þúsund
sinnum á tæpum sólarhring. »6
Ljósmynd/Sigurlaug Linnet
Heimsfræg
ljósmynd