Morgunblaðið - 23.05.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.05.2011, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2011 ✝ Þóra Elín Þor-valdsdóttir fæddist á Sauð- árkróki 19. júlí 1990. Hún lést í Reykjavík 12. maí 2011. Foreldrar hennar eru Kristín Snorradóttir, f. 19. október 1963 og Þorvaldur Einar Þorvaldsson, f. 17. október 1964, bú- sett á Sauðárkróki. Foreldrar Kristínar eru Margrét Helga Kristjánsdóttir, f. 7.8. 1933 og Snorri Sigbjörn Jónsson, f. 9.9. 1926. Foreldrar Þorvaldar eru Jenný Marta Kjartansdóttir, f. 3.4. 1936 og Þorvaldur Þorláks- son, f. 21.9. 1919, d. 17.12. 1992. Bræður Þóru Elínar eru Jón Þór Þorvaldsson, f. 11.9. 1992 og Einar Logi Þorvaldsson, f. 26.12. 1995. Þóra Elín lætur eftir sig ungan son, Jóhann Einar Ax- elsson, f. 5.10. 2008. Þóra Elín ólst upp hjá foreldrum sínum og bræðrum á Sauðárkróki til 16 ára aldurs. Þá lá leið hennar til höf- uðborgarinnar. Þar bjó hún um tíma hjá vinum og ætt- ingjum, við nám og störf. Árið 2007 flutti Þóra Elín aftur til Sauðárkróks, stofnaði sitt fyrsta heimili og eignaðist son sinn ári síðar. Árið 2009 flutti hún til Hafnarfjarðar þar sem hún vann ýmis verslunar- og þjón- ustustörf. Útför Þóru Elínar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 23. maí 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Það er ólýsanlega sárt að kveðja barnið sitt sem unga konu. Þó atburðir eða aðdrag- andi andláts virðist stundum ógnvekjandi eða skelfilegir, er slíkt léttvægt miðað við þá til- hugsun og þann veruleika að fá ekki framar að faðma barnið sitt, styðja það og styrkja í gleði og sorg. Þóra Elín er fædd inn í trausta sambúð sem hafði stað- ið barnlaus í 8 ár þegar hún fæddist. Hún var því að vonum sólargeisli, bæði elskuð og þráð við fæðingu. Hún var afar fljót til, lærði snemma að tala og heillaði okkur foreldra sína með dugnaði og útsjónarsemi strax og hún hafði líkamlega burði til. Örlítil písl raðaði hún saman kökuboxum til að kom- ast upp á eldhúsbekkinn. Hún virtist alltaf finna ráð til að framkvæma það sem hún ætl- aði sér og til að komast þangað sem hún vildi fara. Sem barn þurfti Þóra Elín gjarnan að skipuleggja hlutina mikið og vel, þannig að bæði tíminn, tilefnið og gestirnir voru oft og tíðum farnir þegar yfir lauk. Þóra Elín hafði alla tíð afar sterka réttlætiskennd. Hún sá sig knúna til að verja ólíklegustu hluti og einstak- linga af því að henni fannst á þá hallað. Þá skipti engu þó það kæmi henni sjálfri stundum illa. Þóra Elín var mikil fé- lagsvera og átti auðvelt með að kynnast fólki, en hún féll illa í hópinn á seinni stigum grunn- skólans og átti þar erfitt upp- dráttar. Eftir móður sinni tók hún á unglingsárum upp mikinn áhuga á skyldfólki sínu. Hún vissi af og hafði samband við ótrúlega breiðan hóp ættingja sinna. Þessi áhugi náði einnig til þeirra sem höfðu kvatt þetta líf á undan henni. Hún bar mikla virðingu fyrir því fólki og heimsótti það gjarnan með blómum og hlýjum hugsunum. Þóra Elín fór snemma að heim- an og hugsaði um sig sjálf. Það var okkur ekki gleðiefni, en við völdum frekar traust samband við dóttur okkar en boð og bönn sem hefðu getað leitt til vinaslita. Eftir dvöl við nám og störf í Reykjavík flutti Þóra Elín aftur á Sauðárkrók og stofnaði sitt fyrsta heimili, ásamt sambýlis- manni sínum. Þau eignuðust son sinn eftir stutta sambúð, en ári síðar fluttu þau til Hafn- arfjarðar eftir ódrengilegt mót- læti sem þau urðu fyrir og fundu ekki aðra lausn á. Þóra Elín vann eftir þetta ýmis verslunar- og þjónustustörf. Hún hafði mikinn áhuga á fé- lagsskap ungra mæðra í Hafn- arfirði og hafði ánægju af þeim samskiptum. Traust samband Þóru Elínar við okkur foreldra sína slitnaði aldrei og við móður sína átti hún dagleg samskipti fram á síðasta dag. Í þessum sam- skiptum reyndi stundum á þol- inmæði móður, sem alltaf gaf sér þó tíma til að leiðbeina og hvetja. Seinnipart dagsins sem líf Þóru Elínar endaði með sviplegum hætti, voru þær mæðgur í símasambandi. Hún hafði átt góðan dag með drengnum sínum og föður hans. Hún kvaddi móður sína glöð í bragði. Þóra Elín var yndisleg dóttir sem er sárt saknað. Það að eiga jákvæðar minningar um samskipti sín við látinn vin er öllu öðru betra og það hlýjar og huggar okkur í dag. Hvíldu í friði, ljósið okkar. Mamma og pabbi. Aðgát skal höfð í nærveru sálar, þær eru allar neistar frá sömu sól. Lífið er eins og að spila á spil, sagði Steinn Stein- arr. Fyrir rúmum tuttugu árum kom lítil stúlka til okkar í þenn- an heim og var skírð Þóra Elín. Þessi skínandi gimsteinn ólst upp hjá ástríkum foreldrum. Nú kveð ég þig með söknuði og þakka þína endalausu hlýju og kærleik. Þegar ég verð á leiðinni yfir landamærin og þú færð að heyra af því veit ég að þú segir: Já, það er ekkert mál, ég fer að taka á móti ömmu minni. Ég bið Guð að vernda litla soninn þinn um alla framtíð. Guð blessi og styrki okkur öll. Angrið sækir okkur tíðum heim sem erum fávís börn í þessum heim við skynjum fátt, en skilja viljum þó að skaparinn oss eilíft líf til bjó, að upprisan er öllum sálum vís og endurfundir vina í paradís. (Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarholti.) Takk fyrir allt, elsku ömmu- stelpan mín. Jenný Kjartansdóttir. Þú, Guð, sem stýrir stjarna her og stjórnar veröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. Þetta erindi úr sálmi las ég alltaf á kvöldin með bænunum fyrir börnin mín. Það getur oft verið erfitt að trúa því að Guð stjórni veröldinni, og í straumi lífsins ber því miður marga af leið, þrátt fyrir sterka hönd Guðs. Hræðilegt slys hefur orð- ið, líkt og bílslys, algjörlega ófyrirsjáanlegt og systurdóttir mín lést í slysinu. Óvænt og ótímabært fráfall setur okkur öll hljóð. Þóra Elín og Árni sonur okk- ar voru á sama ári. Ein af fyrstu minningum mínum um hana er þau voru um eins árs aldur. Hann var farin að ganga en hún var þung á sér og skreið um, og notaði hvert tækifæri til þess að hanga aftan í honum. En vegna þess hvað hún var þung þá komst Árni ekkert áfram með hana aftan í. Þegar hún var níu ára voru þeim systkinunum öllum gefnar 1500 krónur hverju. Þóra Elín fór með sinn pening í Hlíð- arkaup og keypti kex fyrir all- an peninginn. Hún sagðist hafa keypt kex til að eiga með kaffinu, það væri gott að eiga það ef einhver kæmi í heim- sókn. Þetta var ekta Þóra Elín. Hún reddaði sér með alla hluti, hvort sem um var að ræða varahluti í bíla, bílaviðgerðir, hún fann hagkvæmustu leiðirn- ar í öllu, smá-vesen en allt þess virði. Ég hef aldrei kynnst betra sambandi móður og dóttur en þeirra Kristínar og Þóru El- ínar. Þær töluðu saman dag- lega. Hún fékk mikinn stuðning frá foreldrum sínum og bræðr- um, þau hvöttu hana og studdu í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Þrátt fyrir allt það góða í Þóru Elínu þá átti hún erfitt uppdráttar í skóla. Hún var öðruvísi, kannski bara of góð, hún féll ekki inn í hópinn. Mér er það mjög minnisstætt þegar hún var í 10. bekk og fór ekki í bekkjarferðina til Dan- merkur af því að hún átti ekki vini í bekknum. Sorglegt. En þrátt fyrir þetta talaði hún aldrei illa um neinn og bar ekki kala til nokkurrar manneskju. Elsku Þóra Elín, ég skil það núna af hverju þú ert búin að gera svo margt, þér var greini- lega ætlað annað og þú hafðir lítinn tíma. Nú ert þú farin í ferðalag og átt marga vini. Valdi afi hefur örugglega verið fremstur í röðinni og tekið brosandi á móti litlu dúllunni sinni sem var honum svo kær. Að lokum, elsku Þóra Elín. Ég hef verið þeirrar gæfu að- njótandi að fá að kynnast Jó- hanni Einari, litla gullmolanum þínum, ennþá betur í liðinni viku. Við höfum fundið fyrir nærveru þinni og það hefur hjálpað okkur. Ég get fullviss- að þig um að hann er umvafinn ást og hlýju. Þessi yndislegi litli drengur sem er geðgóður og alltaf brosandi eins og þú varst, er nú móðurlaus, en á góða fjölskyldu sem mun sjá um að framtíð hans verði tryggð eins og honum er fyrir bestu. Ég og fjölskylda mín þökk- um Þóru Elínu samfylgdina og biðjum góðan Guð að varðveita hana. Elsku litli Jóhann Einar, Kristín, Þorvaldur, Jón Þór og Einar Logi. Megi góður Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg og veita ykkur styrk til að horfa fram á veginn því við vit- um að það hefði verið vilji Þóru Elínar. Guðný Snorradóttir. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Með þessum fallegu orðum langar okkur að kveðja Þóru Elínu, systurdóttur okkar. Þóra Elín var engri lík. Dugleg og vinnusöm og umfram allt hjálp- söm. Hún mátti ekkert aumt sjá og var alltaf boðin og búin að rétta öðrum hjálparhönd og gleymdi þá jafnvel sjálfri sér. Hún var mjög fjölskyldurækin og hélt sambandi við margt af sínu skyldfólki, ungt sem gam- alt, um allt land. En fallegast var samband hennar við foreldra sína og bræður. Heima hjá þeim hafði hún ætíð fast land undir fótum og gat leitað til þeirra með öll sín mál. Ekki leið sá dagur að hún hringdi ekki í mömmu sína og jafnvel oft á dag. Erindið þurfti ekki að vera brýnt, hana langaði aðeins að heyra í henni. Elsku Kristín, Þorvaldur, Jó- hann Einar, Jón Þór og Einar Logi. Guð veri með ykkur og veiti ykkur styrk á þessum erf- iðu tímum. Helga, Þórunn og fjölskyldur. Að setjast niður og skrifa eftirmæli um unga og flotta stelpu finnst okkur ekki vera eðlilegur þáttur í lífinu. Hvað sem því líður er það staðreynd að í dag er verið að bera til hinstu hvílu frænku okkar, vin- konu og heimiliskött. Þóra var í miklum samskiptum við okkur frá því hún var unglingur, það minnkaði aðeins þegar hún og Axel fóru að vera saman, en varð svo meira þegar þau fluttu í bæinn 2009. Þóra var ávallt hress og kát og boðin og búin til að gera allt fyrir alla. Okkur líður eiginlega eins og að sím- inn fari að hringja og á skján- um standi Þóra Elín sem segir: „hæ eruði heima á eftir?“ og að við munum vakna upp af ljótum draumi. En það gerist víst ekki, heldur er það staðreynd að Þóra Elín er komin á englahill- una okkar. Hryggðar hrærist strengur hröð er liðin vaka ekki lifir lengur ljós á þínum stjaka … Klukkur tímans tifa telja ævistundir ætíð lengi lifa ljúfir vinafundir. Drottinn veg þér vísi vel þig ætíð geymi ljósið bjart þér lýsi leið í nýjum heimi. (Hákon Aðalsteinsson.) Elsku Jóhann Einar, Kristín, Þorvaldur, Jón Þór, Einar Logi, Snorri, Kristbjörg og Margrét, við vonum að þið finn- ið styrk til að takast á við þá miklu sorg og söknuð sem þið glímið við og getið yljað ykkur við góðar minningar um mömmu, dóttur, systur og barnabarn um ókomna tíð. Þorgeir, Helena, Hlyn- ur, Jóna María, Jón Ingi og Gunnar Ingi. Ég á engin orð, get ekkert gert, ég verð bara að vera. Elskuleg frænka mín er dáin og minningarnar streyma um hugann. Minningar um lífs- glaða fallega stúlku sem alltaf sá það góða og fallega í öðrum en mætti því miður allt of oft andstæðunni. Þóra Elín var ákveðin stúlka og aldrei tilbúin að játa sig sigraða. Það kom berlega í ljós þegar hún aðeins nokkurra vikna gömul var óviðráðanleg bæði pabba sínum og frænku sem þó voru harðákveðin í að mamman fengi að bregða sér frá kvöldstund án dótturinnar. Stuttu eftir að mamman fór byrjaði stúlkan að gráta og varð tvíeykinu ofviða að hugga hana þrátt fyrir margskonar tilraunir. Mamma varð að koma heim og þurfti sú stutta ekki annað en að heyra rödd hennar í útidyrunum þá þagnaði grát- urinn. Mamma var best og það hélst allt að leiðarlokum. Sjálfsbjargarviðleitnin kom líka fljótt fram og frænka mín var útsjónarsöm að finna leiðir til að nálgast takmark sitt. Hún var innan við tveggja ára þegar hún bjó sér til stiga með kö- kudunkum til að nálgast nammi sem var geymt ofan á eldhús- innréttingunni og að sjálfsögðu virkaði stiginn og upp komst hún. Eitt sinn langaði Þóru El- ínu að taka þátt í söngvakeppni á öskudaginn og enginn söng- hópur henni opinn. Þá ákvað hún að koma fram einsömul í stað þess að leggjast í eitthvert volæði og söng einsöng af hjartans lyst og vann keppnina. Þannig bauð hún áskorunum lífsins birginn og sá alltaf nýjar dyr opnast þegar einar lokuð- ust. Vinirnir voru á Suðurlandinu og þangað fór hún en kom til baka á heimaslóðir þegar von var á gleðigjafanum hennar í heiminn, honum Jóhanni Ein- ari. Hann átti að fá að alast upp nálægt móðurfjölskyldu sinni. Þetta gekk eftir í nokkurn tíma en þá sköpuðust aðstæður sem urðu til þess að Þóra Elín flutti til Hafnarfjarðar. Hún gætti þess samt vel að drengurinn hennar tengdist ömmu og afa á Sauðárkróki tryggðaböndum þó þau væru flutt suður yfir heið- ar. Þóra var hjálpsöm og gott að leita til hennar því svarið var alltaf: Já, ekkert mál, ég redda því. Hún mátti aldrei neitt aumt sjá, þá varð hún að hjálpa til og fannst engin brekka of brött til að leggja í. Þóra Elín var félagsvera og dugleg að heimsækja skyldfólk sitt. Síð- asta heimsókn mín til hennar var á tvítugsafmælinu hennar. Við ruddumst inn til hennar ell- efu saman, nýkomin frá útlönd- um og Þóra Elín tók vel á móti okkur. Boðsgestir afmælisveisl- unnar mættu illa og höfðu ekki séð sér fært að afboða sig svo veisluborðið var hlaðið alls kyns kræsingum sem undirbún- ar höfðu verið af natni og kær- leik. Næstu skref í lífi Þóru El- ínar áttu að liggja heim. Elsku fallega frænkan mín stígur ekki þessi skref og sorgin ríkir í hjörtum okkar allra. En við sem fengum að njóta þess að þekkja hana eigum minningar sem aldrei verða frá okkur teknar. Elsku, elsku Þorvaldur, Kristín, Jón Þór, Einar Logi og Jóhann Einar, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi algóður guð vera ykkur við hlið og styrkja á þessari erfiðu göngu lífsins. Jóhanna Þorvaldsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Sumarið er komið með birt- una og eftirvæntinguna sem fylgir komandi tímum. Eins var frænku okkar Þóru Elínu farið, eftirvænting eftir nýjum áherslum í lífinu og þroska Jó- hanns Einars og gleði við að takast á við lífið framundan. Enginn veit hvar eða hvenær Drottinn tekur persónur út úr jarðnesku lífi og færir þær til nýrra heimkynna. Okkur finnst að æskan ætti að vera ósnert- anlegri í þeim skilningi og fyll- umst því skilningsleysi og sorg þegar ung kona sem sér fram á sumar lífsins er skyndilega hrifsuð frá okkur . Þóra Elín systurdóttir okkar var ein af þeim sem alltaf var boðin og búin til hjálpar öðrum, sama hverjar hennar eigin að- stæður voru. Hún var glaðlynd og dugleg og fór sínar eigin leiðir. Hún var úrræðagóð og kunni vel að bjarga sér. Hún var ættrækin og heimsótti gjarnan frændfólk sitt austur á Héraði eða hvar sem var, vega- lengdir voru ekkert vandamál. Hún var í mjög sterku sam- bandi við foreldrana og mús- íkölsk eins og þeir. Við sitjum vanmáttug gagnvart Drottni okkar. Þóra Elín er farin til annarra ættingja sem farnir eru og heimsækir þá með bros- ið sitt blíða. Jóhann Einar hef- ur mikils misst við þetta hræði- lega slys, móður og að sumu leyti föður og er því heppinn að amma hans og frænkur um- vefja hann sínum örmum. Elsku Kristín systir, Þor- valdur, Jón Þór og Einar Logi, megi Guð gefa ykkur styrk í gegn um þessa erfiðu lífs- reynslu með Jóhann Einar sem tákn ljóssins sem lýsir fram á veginn. Kristján Björn, Anna Jóna og fjölskyldur. Þegar ég sit hérna úti á sjó og óska þess að tíminn líði hraðar svo ég komist í faðm fjölskyldunnar fyllist ég sam- viskubiti því tíminn er forrétt- indi sem var rænt frá þér svo samviskulaust í blóma lífsins. Þegar maður er tvítugur er tíminn það eina sem maður heldur að nóg sé af. Þótt minnið sé gloppótt man ég þá tíma þegar ég brá mér í gervi barnapíu og leit eftir þér og bræðrum þínum. Ég minnist þess hve lífsglöð og hamingju- söm þið voruð og það gerði mér starfið auðvelt og skemmtilegt þrátt fyrir að bræður þínir hafi augljóslega haft með sér sam- ráð þar sem þeir fengu báðir gat á hausinn í minni umsjá. Oft er fólk fegrað í virðing- arskyni þegar ævi þess er lok- ið. Í þínu tilviki, Þóra mín, er engin þörf á því. Þú varst eins og þú komst fyrir; heiðarleg, hugljúf, elskandi, treystandi, góð mamma, dóttir, systir, frænka og vinkona. Þú hefðir aldrei gert flugu mein. Þú varst góð manneskja, líkast til betri en mörg okkar. Ég fyllist eftirsjá þegar ég hugsa til þess að ég missti svo mikið sambandið við þig, Þóra mín. Ég vildi að ég hefði kíkt í kaffi til ykkar þegar þið voruð í Birkihlíðinni áður en ég fór út á sjó. Þá kannski hefði ég getað kvatt þig á einhvern hátt. Sorg, reiði og ráðleysi einkennir reik- andi hugann á meðan ég reyni að trúa því að þú sért farin. Mér finnst eins og þegar ég kem heim sértu loksins flutt aftur á Sauðárkrók og komir til með að líta til mín og Sæunnar í heimsókn. Þó svo að ég viti að það gerist ekki er samt hluti af mér sem neitar að trúa að heimurinn sé svona grimmur og miskunnarlaus. Heimurinn átti þig ekki skil- ið, elsku Þóra mín. Ég ætla að muna hvernig þú lifðir lífinu, ekki hvernig þér var rænt frá okkur. Því í söknuðinum get ég glaðst yfir því að ég hafi fengið að kynnast þér og fylgjast með þér í gegnum árin. Ég get glaðst yfir að muna þig með brosið sem einkenndi þig. Hvíldu í friði, elsku Þóra Elín. Elsku fjölskylda, þið eigið hug minn allan. Birgir Smári Sigurðsson. Æ Æ. Þetta var hræðilegt símtal sem við fengum þetta örlagaríka kvöld. Við vildum ekki trúa þessum fréttum, og gerum ekki enn, að þú værir farin frá okkur. Það eru ekki til þau orð sem geta lýst þeim sár- um sem hjörtu okkar urðu fyrir þetta kvöld, sem eiga eftir að taka langan tíma að gróa. Við sem höfðum verið að tala saman kvöldið áður um nútíð og framtíð, að þið ætluðuð að flytja norður á Sauðárkrók og þú værir komin með vinnu og Jóhann Einar kominn með pláss á leikskóla og allt var svo bjart framundan. Litlu frænd- urnir léku sér saman þetta kvöld og þú gerðir grín. Þín hlýtur að bíða stórt hlut- verk sem þér er ætlað, úr því þú varst tekin svona snemma frá okkur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Kveðja. Þórarinn, Guðrún, Guðjón Hrafn og Ólafur Kolbeinn. Þóra Elín Þorvaldsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.