Morgunblaðið - 23.05.2011, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2011
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Bodrum Tyrklandi
11. júní í 10 nætur
Kr. 139.900 – 10 nætur með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2- 11 ára, á Hotel Royal Palm Beach Hotel ***+ í 10
nætur með „öllu inniföldu“. Verð m.v. 2 fullorðna og 1 barn kr. 139.900. Verð m.v. gistingu í tvíbýli
kr. 149.900. Aukagjald fyrir einbýli kr. 31.900.
Frá aðeins 134.900 með „öllu inniföldu“
Góð gisting - Royal Palm Beach Hotel ***+
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í 10 nátta
ferð til Bodrum í Tyrklandi 11. júní. Í boði er frábært sértilboð á Royal
Palm Beach Hotel ***+ með „öllu inniföldu“ á ótrúlegum kjörum. Royal
Palm Beach Hotel er gott og vel staðsett hótel sem býður fjölbreytta
þjónustu og góðan aðbúnað. Gríptu þetta einstæða tækifæri og skelltu
þér í frábæra ferð til Bodrum og njóttu lífsins á hreint ótrúlegum kjörum.
Aðeins örfá herbergi í boði - bókaðu strax!
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Loftrými yfir Íslandi var lokað í gær
vegna gossins í Grímsvötnum. Tekin
var ákvörðun um að loka Keflavíkur-
flugvelli kl. 8.30 í gærmorgun eftir
að óhagstæð öskuspá barst frá al-
þjóðaflugumferðarstofnuninni á
Bretlandi og skömmu seinna, eða
rétt fyrir kl. 10, var einnig búið að
aflýsa öllu flugi innanlands.
Flugfélag Íslands felldi niður allt
innanlandsflug í gær og sagði að
ákvörðun um flug í dag yrði tekin nú
í morgun. Flugfélagið Ernir gerði
ekki ráð fyrir að skoða flug fyrr en í
hádeginu í dag.
Það þótti snemma ljóst að litlar
líkur yrðu á því að Keflavíkurflug-
völlur yrði opnaður á ný í gær og
sendi Icelandair frá sér tilkynningu
strax í gærmorgun þar sem sagði að
allt flug yrði fellt niður þann daginn.
Seinnipart dags tilkynnti félagið síð-
an að allt flug fyrir hádegi í dag yrði
einnig fellt niður.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, sagði í gær að
framhaldið yrði skoðað nú í morgun
en vonast væri til að flug gæti hafist
á hádegi. Alls hefðu 37 flugferðir
verið felldar niður en um 6000
manns hefðu verið bókaðir í þær vél-
ar.
Annríki í þjónustuverum
„Það er stóra verkefnið í svona
málum að leysa úr óskum og þörfum
hjá hverjum fyrir sig og fólk á rétt á
aðstoð og endurgreiðslu og þess
háttar,“ sagði Guðjón en félagið
hvatti farþega til að fylgjast vel með
fréttum og var gripið til sérstakra
ráðstafana til að aðstoða þá sem á
þurftu að halda.
„Það voru kallaðir út í morgun
tugir starfsmanna sem eru búnir að
standa vaktina í allan dag. Þjónustu-
verið verður opið fram eftir kvöldi
og svo opnum við aftur snemma í
fyrramálið,“ sagði Guðjón.
Fjórar ferðir voru felldar niður
hjá Iceland Express í gær en Matt-
hías Imsland, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, sagðist í gærkvöldi vongóð-
ur um að Keflavíkurflugvöllur yrði
opnaður einhvern tímann á milli kl.
12 og 18 í dag og þá yrði hægt að
hefja flug frá Evrópu en allar vélar
félagsins voru erlendis í gær. Morg-
unferðir dagsins í dag hefðu því ekki
verið felldar niður en yrði seinkað.
Uggandi í Bretlandi
„Það er allt fyrirtækið búið að
vera í vinnu í dag. En það eru ekki
komin nein stórvægileg viðbrögð frá
útlöndum enn, þannig að maður er
að gæla við að verði þetta ekki verra
en orðið er þá komi þetta ekki til
með að hafa stórvægileg áhrif á
ferðaþjónustuna,“ sagði Matthías.
Í gær var ekki vitað til þess að
gosið hefði haft áhrif á flug annars
staðar í Evrópu en í Bretlandi voru
menn þó uggandi yfir því að með
breyttri vindátt gætu öskuský borist
í átt að norðurhluta Skotlands í
kvöld eða á morgun.
„Á þessari stundu er útlitið þann-
ig að ef eldfjallið heldur áfram að
gjósa með sama afli og til þessa gæti
Bretland átt á hættu að fá eldfjalla-
ösku til sín síðar í vikunni,“ sagði
Helen Chivers, talsmaður bresku
veðurstofunnar, í samtali við Gu-
ardian í gær. Hvenær eða í hvaða
mæli væri ómögulegt að segja til
um.
Loftrými yfir Íslandi lokað í gær Þúsundir farþega áttu bókað far í tugum ferða sem felldar voru
niður Enn engin áhrif á flug annars staðar í Evrópu Öskuský gætu borist til Bretlands í kvöld
Ekkert flogið vegna eldgossins
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Lokað Það var tómlegt í Leifsstöð í
gær þegar völlurinn var lokaður.
VIÐTAL
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Öskumistur tók að færast yfir
Hunkubakka skammt frá Kirkju-
bæjarklaustri, nokkrum klukku-
stundum eftir að eldgosið hófst á
laugardagskvöld.
„Um tíu eða hálfellefu, þá var
orðið mistur hérna. Þá sáum við að
það var eitthvað að byrja. Svo var
þetta allt í lagi fram eftir nóttu. Um
fimmleytið héldum við að þetta væri
nú allt í lagi, en aðeins hálftíma
seinna var komið myrkur,“ sagði
Björgvin Harðarson, bóndinn á bæn-
um, í gær.
Björgvin sagði að um miðjan
dag í gær, á milli tíu og tvö, hafi hann
ekki getað séð á milli húsa á bænum.
Myrkrið hafi verið slíkt að hann hafi
rétt svo greint traktorinn sem var
lagð beint fyrir utan fjárhúsið, þar
sem hann vann hörðum höndum við
að koma fénu í skjól í allan gærdag.
Skyggnið við Hunkubakka var
alls ekki gott þegar blaðamaður hitti
Björgvin, en það var þó talsvert
betra en það hafði verið stuttu áður.
„Núna finnst okkur þetta bara mjög
gott, en auðvitað er ástandið ekki
gott. Það er rosalegt ryk hérna.“
Sjónarspilið var að sögn Björg-
vins ótrúlegt þegar öskuskýið dró
fyrir sólu.
„Maður hefði ekki trúað því ef
einhver hefði sagt að þetta gæti orð-
ið svona. Maður var voða bjartsýnn í
morgun, um fimmleytið, um að þetta
yrði aðeins mistur – við höfum séð
mistur oft hérna í Skaftárhreppi,
þegar gerir austanátt þá er oft mist-
ur hérna – en að það myndi verða
svartamyrkur, maður hefði ekki trú-
að því.
Við urðum aðeins vitni að þessu
í fyrra í Eyjafjallajökulsgosinu. En
það var bara sýnishorn. Við fengum
pínulítið niður á okkur og maður sá
svona mökkinn. Maður gat bara ekki
ímyndað sér hvað þetta gæti orðið
rosalegt.“
Sauðburði lauk fyrir nokkru á
Hunkubökkum, þannig að um helm-
ingur fjárins var kominn úr fjárhúsi
þegar tók að gjósa.
„Það voru eitthvað um 250 ær
inni í húsinu. Þá var um helmingur af
fénu kominn út. Við erum með fimm
hundruð fjár hérna. En við erum bú-
in að ná utan um allt saman. Við er-
um komin með hluta af því í lögrétt
og erum að fara með það í fjárhús
hér á næstu jörð. Þannig að í kvöld
ætti allt að vera komið í húsaskjól.“
Björgvin kvaðst ekki hafa
skynjað mikinn óróleika hjá búfén-
aðinum.
„Það var ekki mikill æsingur í
fénu, það var rólegt og vildi bara
komast heim. Því sem er komin hér
inn líður vel,“ sagði Björgvin og
benti inn í fjárhúsið fyrir aftan sig.
Bóndinn játaði að dagurinn
hefði verið erfiður.
„Við vitum ekki framhaldið.
Hvað tekur við? Þeir segja sumir að
síðasta stóra gos hafi staðið yfir í sjö
mánuði. Reyndar var ekki öskufall í
svo langan tíma en þetta er auðvitað
ekki góð staða. Heyið sem við eigum
– jú, við getum kannski gefið í svona
einn og hálfan mánuð en þá fer okk-
ur að vanta hey. En ég vona að það
verði nú ekki svo slæmt.“
„Hálftíma seinna
var komið myrkur“
Öskuský dró fyrir sólu á örskotsstund Gosið í Eyja-
fjallajökli sýnishorn miðað við í Grímsvötnum, segir bóndi
Morgunblaðið/Ernir
Skyggni ekkert Björgvin Harðarson bóndi á Hunkubökkum rétt greindi
traktorinn á hlaðinu þegar askan var sem þéttust.
til að horfa á
myndskeið sem
sýnir ástandið á
bænum Hunku-
bökkum á Suður-
landi.
Skannaðu kóðann
Sprengigos í Grímsvötnum
„Þetta hefur verið mjög langur og
strembinn dagur. Maður er bara
orðinn hálflúinn,“ sagði Guð-
mundur Kristján Ragnarsson úr
Björgunarsveitinni Víkverja í Vík,
þegar blaðamaður náði tali af hon-
um í gærkvöldi. Hann var þá á leið
á vakt við lokun á hringveginum við
Höfðabrekku rétt austan Víkur.
Það væri kannski ekki í frásögur
færandi nema fyrir það að undir
kvöld lauk hann langri vakt sem
hófst með útkalli snemma í gær-
morgun. Þá barst beiðni um aðstoð
við smölun á Kirkjubæjarklaustri.
„Þegar við fórum að nálgast
Klaustur var orðið það dimmt að
maður sá ekki stikur, vegkanta eða
eitt eða neitt,“ segir Guðmundur.
„Manni leið bara eins og á dimmri
vetrarnótt.“ Að smöluninni lokinni
rak eitt útkallið annað. „Við feng-
um beiðni um aðstoð niðri í Land-
broti og Meðallandi [í Skaftár-
hreppi], en þar aðstoðuðum við við
að koma hestum á hús í Hátúni. Svo
sátum við þar föst í klukkutíma áð-
ur en við fórum aftur á Klaustur,“
segir Guðmundur, en á meðfylgj-
andi mynd sýnir hann öskudýptina í
Landbroti.
Tekið var að skyggja í Vík í gær-
kvöldi og áætlaði Guðmundur að
skyggnið væri 500 metrar hið
mesta. „Við upplifðum þetta hérna í
fjórar vikur á síðasta ári. Ég stóð
allan tímann í því gosi. Það er svo-
lítið meira en að segja það að
standa í þessu,“ segir Guðmundur.
Sáu ekki stikur
eða kanta
Langar vaktir hjá björgunarsveitum
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Aska Guðmundur Kristján Ragn-
arsson mælir þykkt öskulagsins.