Ísland - 15.09.1934, Page 4
T
4
15. sept. 1934
ISL AND
Kemur út 1. og 15. hvers mánaðar,
og oftar eftir þörfum.
Askriftargjald 5 krónur árg.
Ritstjóri og ábyrgðarmaöur:
Guttormur Erlendsson.
Gjaldkeri: Baldur Jónsson, Bergst.str. 27.
Afgreiðsla í Vallarstræti 4.
I5IAHD
ÚTGEFANDI: FLOKKUR FJÓÐERNISSINNA
Nú vakna ]>ú fsland, við vonsæinu glaum
ni' vorbylgjuni tímans á djúpi;
l>yrg' ejrun el lengur fyr aldnnna struum,
en ní'léttu dej íðanna lijúpi
og drng þér uf nuguin livert dapurlegt ský,
sem dylur þtr heiniinu og freiudarljús ný.
Steingríuiur 'l'liorsteinSson.
Island er iramtíðarland. Frh. af bls. 1
um sviðurn né öðrum. Iðnaður á heil-
brigðum grundvelli getur ekki risið upp
fyr en farið er með málefnin af þekk-
ingu, og afturhaldsvald stéttaklíkuþings-
ins brotið á bak aftur með sigri þjóð-
ernissinna.
Landbúnaðurinn
íslenzki er kominn í kaldakol, vegna
þess að allir stéttaflokkarnir hafa þurft
að »slá sér upp« á lyginni. Enginn hefir
þorað að taka landbúnaðarmálefnin
föstum tökum og segja bændum sann-
leikann. lvreppuhjálpin og allt slíkt
moldviðri hefir bara orðið til ills eins.
Það, sem þarf að gera, er að breyta
landbúnaðinum í nýtízku horf, gera af-
urðir hans fjölbreyttari og stilla fram-
leiðslunni til jafns við markaðinn á
hverjum tíma. Þetta hefir einnig í för
með sér,nauðsyn á því að lækka fram-
leiðslukostnað bænda með aukinni véla-
ilotkun, og þá aftur bein afleiðing þess,
að byggðirnar þurfa að færast saman
og nýbýlahverfi að myndast í hverri
grein framleiðslunnar, eftir því sem
landsskilyrði eru fyrir hendi. En aö
viðhalda einyrkjaholum á hrjóstrugum
blettum langt upp til fjalla, sem ekkert
gefa af sér nema strit, bogin bök og
fátækt, það er of mikil fórn til blindrar
átthagaástar, þegar velferð alls lands-
ins krefst mjög róttækra breytinga á
gamla búskaparlaginu. En hvorc
»þungamiðja þjóðlífsins« hvílir í sveit-
um eða bæjum það skiftir engu máli,
ef hér aðeins skapast þjóðlíf, sem vert
er að nefna því nafni, ef einstaklingur-
inn öðlast skilning á því, að hann til-
heyri þjóð, en ekki stétt, að starf hans
í sinni atvinnustétt sé framkvæmt vegna
þjóðarheildarinnar, að stéttirnar eigi aö
vinna með og fyrir þjóðarheildina sem
nauðsynlegur liður, en ekki gegn henni,
eins og stéttapólitíkin vill vera láta.
Hér bíða óteljandi óleyst verkefni,
sem framtíð þjóðarinnar krefst, að séu
leyst. Iíér ganga ungir og hraustir menn
atvinnulausir, og farlama gamalmenni
til sjávar og sveita vérða að strita alla
leið að grafarbakkanum. Ríkisskuldum
er dengt á herðar þeirrar æsku, sem
ekkert hefir framundan nema atvinnu-
leysi og vaxandi örðugleika. En á Al-
þingi sitja 49 andlaus vesalmenni, sem
rnetast um einskisnýt völd og bitlinga.
Þessir 49 líkkistunaglar hins deyjandi
þingræðis þurfa vonandi ekki að bíða
þess lengi, að Þórshamarinn reki þá á
sinn stað, og að hin uppvaxandi kynslóð
setji kistu þess við hlið annarra hörm-
unga, sem dunið hafa yfir íslenzku þjóð-
ina.
Því þingræðið hefir endað sitt ilía
starf. Víða hefir þurft að beita nokk-
urri hörku, en hér á Islandi mun jarð-
arför þess fara friðsamlega fram. Hér
býr svo gáfuð þjóð, að þegar hún sér til
fullnustu, að þingræðið er ekki köllun
sinni vaxið, heldur skaðlegt og spillandi
fyrir frið og framkvæmdir, þá mun hún
víkja því úr vegi og byggja upp nýtt
þjóðskipulag, sem er samræmanlegt tím-
ans þörfum.
Við legstað þingræðisins mun feðrun-
um frekar fyrirgeíin danska kúgunin
en sú ógæfa, sem þeir skópu niðjum sín-
um með dýrkun þessa stjórnskipulags.
Saga þjóðarinnar mun geyma sagnir
af hinni síðari Sturlungaöld til ævar-
andi viðvörunar gegn ófriði og stétta-
kúgun. Og hin uppvaxandi kynslóð skal
staðfesta dauðadóm þingræðisins með
uppbyggingu hins samvirka þjóðríkis.
Hún skal sýna það, að Island er fram-
tíðarland, því þegar stálvilji æskunnar
hefir brotið á bak aftur örðugleikana
og sett drenglyndi og réttlæti í hásætið,
þá mun sameiginlegt átak allrar þjóðar-
innar tryggja henni síbatnandi framtíð.
Helgi S. Jónsson.
Flokksfréttir.
Hinn 19. fyrra mánaðar fóru um 20 fána-
liðsmenn í búningum austur að Laugar.atni
og til Þingvalla. Lagt var af stað úr Reykja-
vík um morguninn og komið aftur um kvöld-
ið. Eru slíkar ferðir vel til þess fallnar, að
þjóðernissinnar kynnist hver öðrum, jafnframt
þvi sem þeir njóta útiloftsins í íslenzkri r.átt-
úru og væri vel að fleiri slíkar ferðir yrðu
farnar.
Baldur Johnsen stud. med. hefir undanfariö
verið S ferð á Austfjörðum og stofnað félög
þjóðernissinna á Eskifirði og undirbúiö fé-
lagsstofnun á Fáskrúðsfirði. Má því búast vi-\
að innan skams verði stofnuð félög í ölluin
kaupstöðum á Ausfjörðum.
Miklar viðgerðir hafa farið fram á skiif-
stofu flokksins i Vallarstræti, svo að þar er
nú orðið mjög vistlegt. Hafa félagar staðið
fyrir viðgerðum, svo að alt gæti orðið þar
sem vistlegast. Skrifstofan er opin frá kl.
11—-12 f. h. og 8—10 e. h. og ættu flokks-
menn að líta þangað inn sem oftast til skrafs
og ráðagerða.
Nokkur dráttur hefir orðið á útkomu blaðs-
ins og liggja til þess margar ástæður, sem
kaupendur taka væntanlega gildar. Fyrst og
fremst eru engir launaðir starfsmenn við blað-
ið, heldur einungis áhugamenn, sem látið hafa
aðstoð sína í té endurgjaldslaust, en um há-
bjargræðistímann verða þeir að vinna. önnur
ástæðan er sú, að flokkurinn hefir mjög tak-
markað fjármagn yfir að ráða til blaðaútgáfu
og ekki farið að innheimta áskriftargjöld
ennþá.
Er vonandi að regla komist á um ú tkomu
blaðsiris með haustinu, þega félagar koma til
bæjarins og vetrarstarfsemin hefst fyrir al-
vöru.
Þeir kaupendur, sem kynnu að vilja greiða
áskriftargjald sitt nú þegar, eru vir.samlegast
beðnir að snúa sér til Baldurs Jónssonar, Berg-
staðastræti 27. Væri slíkt þegið með þökkutn.
Til hans ber að snúa sér með allar aðrar fjái-
reiður blaösins.
A skrifstofu flokksins í Va!lar=træti ;
4 fæst þórshamarsmerkið úr silfri. — I
; Ennfremur oddveifur á reiðhjól mcð I
i þórshamrinum og borðfánar úr silki. j
Vörurnar sendar um land alt eftirpönt. j
(með póstkröfu). i
Berið þórshamarinn sem tákn þjóðern- j
is og norræns anda. j
.....................HIIIU...I.........
Þjóðernissinnar!
Þad er eindregin tilmæli okkar
að þið fvlgist vel med því hverjir
auglýsa í blöðum okksr, og Iátið
þau fyrirtæki sitja fyrir vidskift-
um ykkar.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.
«
Munið, að svona lltur merkið út (klukku-
skifa) á dósunum á Monopol’s »Original«, 4
tíina lakkinu, sem er tvímælalaust bezta gólí-
lalckió, sem fyrirfinnst á markaðinum. Þorn-
ar á 4 tímum. Sé það borið á að kveldi, er
það glérhart að morgni. Verður spegilgljáandi.
Endingin óviðjafnanleg.
Monopol’s »()riglnal«, 4 t’ma lakk, notasl
með góðum árangri á gólfdúka, eldhúsborð,
allskonar húsmuni úr tré og veggi innanhúss.
— Lakk þetta er sérlega ódýrt, miðað við
gæði þess. (> ára rejnsla hér á landl. Það
er ekkert skrum, þótt sagt sé, að aðdáenduin
Monopol’s »Original«, 4 tima lakksins fjölgi
dag frá. degi.
Vaidst eftirlíkingar!
Monopol’s »Origin»l«, 4 t’ma góll'lakkió, fæst
Verzluninni Vaðnes, Laugavegi 28, sími 3228,
í eftirtöldum verzlunum, í V og 1 lcg. dósum, meö loftþéttu loki:
Verzluninni Málning & Járnvörur, Laugavegi 25, sími 2876,
Verzlun Sigurðar Kjartanssonar, Laugavegi 41, simi 3830,
Verzlun Ferdínands Har.sens, Hafnarfirð'i, simi 9240,
Veiðarfæraverzluninni Geysi, simi 1350,
Veiðarfæraverzlun O. Ellingsens, sími 4605,
Járnvöruverzlun Jes Zinlsen, simi 3336.
Fyrirliggjandi stórsölubirgðir til kaupmanna og kaupfélaga hjá undirrituðum
umboðsman íi verksmiðjunnar, er einnig útvegar lakk þetta beint frú verksmiðjunni.
Laugaveg 28. Sími 4361.
Hjörtur Hansson.
&
Laugaveg 28.
Sími 4361
Margt gott í
MATINN
Kjötbúðin
HERÐUBREIÐ
HAFNARSTR. 18. 8ÍMI 1575 2 íínur.
V
E
R
Ð
tk
PAKKINN
KOSTAR
J/Ma.a
MAY BL0SS0M
VIRGINA CIGARETTUR
Z%íst i c&um vetýámum