Siglfirðingur - 23.12.2000, Side 3
Sú öld, sem senn kveður,
einkennist af stórkostlegum
framförum á flestum sviðum
þjóðlífsins. Rafmagnið, afl þess
og ótrúlegur eiginleiki, hefur þar
verið einna fyrirferðarmest. Sú
þjóð er ekki til lengur, sem gæti án
þessa tuttugustu aldar undurs
verið. Og við sem búum í þessu
norðlæga landi, sem í þúsund ár
gat ekki brauðfætt fleiri en
sjötíuþúsund manneskjur, hljótum
að gleðjast yfir gjöfum tækni og
vísinda.
Þær hafa breytt frumstæðu
þjóðfélagi á norðurhjara í tækni-
vætt velferðarþjóðfélag sem talið
er í fremstu röð meðal þjóða. En
jafnvel fyrir daga rafmagns og
hvers kyns annarra þýðingar-
mikilla uppgötvana gerðist dálítið
kraftaverk um vetur hvem í nafni
jólanna. Birta þeirra, eiginleg og
óeiginleg, varð þjóðinni haldreipi,
jafnvel þegar harðræðið virtist
vera um það bil að ganga alveg frá
henni. Jólin, og vitundin um þann
atburð, sem varð í gripahúsinu í
Betlehem, gáfu hrjáðu fólki von
um heim allan. Líka í þessu landi.
Ljós jólanna og vonin sem þau
vöktu í hverjum manni, var
fagnaðarundur og gleðiefni í
svartasta skammdeginu. Og
veraldargæði af ýmsu tagi hafa
ekki úthýst jólunum né dregið úr
gildi þeirra. Örðu nær. Þau eru
enn sem fyrr til fyllingar sálarlífi
og trúarþörf okkar, og eru í engum
tengslum við auð og eignir og
annan veraldlegan ávinning, sem
er svo yfirþyrmandi í nútíma
þjóðfélagi.
Stjórnmálaáhugi og lífs-
skoðanir em líka utan vébanda
hinnar helgu hátíðar. A þeirri
stundu horfa flestir landsmenn til
einnar áttar - til þess staðar og til
þeirrar stundar sem ljósið
kviknaði. Ég sendi ykkur öllum
mínar bestu hátíðarkveðjur með
óskum um farsælt ár í upphafi
nýrrar aldar.
Gleðileg jól.
Davíð Oddsson,
forsætisráðherra
Góður rekstur
bæjarfélagsins
Gjöld sem hlutfall
af tekjum 3ju
lægstu á landinu
Arbók sveitarfélaga fyrir árið
1999 er nú komin út. I henni
er að finna upplýsingar um
rekstur og stöðu allra sveitar-
félaga á landinu jafnframt því
sem gerður er samanburður á
hinum ýmsum kennitölum.
Mjög ánœgjulegt er að sjá
hveru vel Siglufjörður kemur
út úr samanburði þessum og
geta Siglfirðingar verið stoltir
afstöðu bœjarfélagsins.
Sá mœlikvarði sem sýnir hvað
best árangur í rekstri félaga
eru rekstrarútgjöld sem
hlutfall af tekjum. Flest
sveitarfélög setja markið á að
rekstrarútgjöld verði ekki yfir
80% af tekjum En þrátt fyrir
göfug markmið ná ekki öll
sveitarfélög þessu markmiði.
1 þessum samanburði kemur
Kópavogur best út með 62% af
tekjum, Vesturbyggð með 74%
af tekjum og Siglufjörður er í
þriðja sœti með 75% aftekjum
til reksturs málalokka.
Starfsfófk íslandsbanka óskar víðskiptavínum aííra heilla á nýju ári og þakkar samskíptín á árínu sem er að !íða Sendum starfsfóCki ofifuir otj Sigíjirðingum öCCum 1 bestu óskir um gCeðiíeg jóC og ifengsceCcC ogfarsceCtC íframtíð.
ÍSLANDSBANKI 4 ■P Þormóður rammi-Sæberg hf.