Pétur er minn maður - 01.06.1996, Blaðsíða 3
Pétur Hafstein -traustsins verður
Baráttukveðjur frá
ko sning askrifstofum
Hrífandi framboð
„ Við sem vinnum hérna í höfuð-
stöðvunum finnum fyrir geysilegum
áhuga fyrir þessu hrífandi framboði,
eins og Sigmund hefur svo hressilega
minnt á í Morgunblaðinu," sagði Val-
gerður Bjarnadóttir sem leiðir kosn-
ingastarf Péturs. Valgerður sagðist
sannfærð um að sú áhersla sem lögð
hefði verið á málefnalega, jákvæða og
skemmtilega kosningabaráttu myndi
skila sér. „Ég finn það á samstarfs-
fólkinu um allt land hversu stolt það
er að taka þátt í þessu framboði og
hversu óhikað það gengur til verks.
Nú er lokaspretturinn eftir og þá drög-
um við ekki af okkur.“
Höfuðstöðvar kosningastarfs Pétur
Kr. Hafstein eru í Borgartúni 20 í
Reykjavík. Kosningaskrifstofan opnar
klukkan átta á hveijum morgni nema
um helgar þá er opnað klukkan tíu.
Skrifstofan er opin til klukkan tíu á
kvöldin.
Fyllilega
traustsins verður
Kosningafundur með Pétri Kr. Haf-
stein var haldinn hér í Borgarnesi
þann 16. júní. Fundurinn var fjöl-
mennur og báru fundargestir fram
ýmsar fyrirspumir. Það er mat manna
sem þarna voru að þetta hafi verið
mjög gagnlegur og skemmtilegur
fundur þar sem Pétur sýndi okkur enn
og aftur að hann er fyllilega traustsins
verður. Sama dag opnuðum við hér
kosningaskrifstofu við Borgarbraut
þar sem gestir og gangandi geta kom-
ið og fengið sér kaffisopa frá kl. 17-
21.
Mikil stemmning
á ísaflrði
Kosningaskrifstofa Péturs Kr. Haf-
stein á Isafirði er að Austurvegi 2, 2.
hæð og er skrifstofan opin alla daga
vikunnar frá kl. 17 og fram eftir
kvöldi.
Pétur kaus að hefja kosningabar-
áttu sína á ísafirði þann I. maí síðast
liðinn og húsfyllir á fyrsta kosninga-
fundi hans á Isafirði en tæplega þrjú
hundmð manns komu á fundinn.
Mikill hugur er í stuðningsfólki
Péturs á Vestfjörðum og finnur fólk
fyrir ört vaxandi smðningi við fram-
boð hans hvar sem litið er. Mikil
stemmning er meðal stuðningsmanna
og leggjast allir á eitt að tryggja það
að Pétur Kr. Hafstein verði næsti for-
seti íslands.
Meðbyr með
framboði Péturs
í upphafi kosningabaráttu Péturs
Kr. Hafstein til embættis forseta fs-
lands, fundum við hér í Norðurlands-
kjördæmi vestra greinilega fyrir því
hér að Pétur var einna minnst þekktur
þeirra frambjóðenda sem boðið höfðu
sig fram til þessa embættis. En eftir
því sem á baráttuna hefur liðið og
frambjóðendur hafa náð að kynna sig,
hefur sífellt betur komið í ljós að Pétur
Kr. Hafstein höfðar til kjósenda, og
fleiri og fleiri lýsa þeirri skoðun sinni
að þeir séu ekki lengur óákveðnir en
muni ljá honum atkvæði sitt.
Kjósendur úr öllum starfsstéttum
og með mismunandi pólitískan bak-
grunn lýsa eindregnum stuðningi við
Pétur og þær áherslur sem hann leggur
til grundvallar í baráttu sinni, það er
mikilvægi embættisins innan íslenskr-
ar stjómsýslu, ábyrgð í rekstri embætt-
isins og trausts sambands þjóðar og
forseta hennar.
Það er verulegur meðbyr með
framboði Péturs og sívaxandi fylgi við
hann eykur ánægjuna af því að vinna
að sem glæsilegustum árangri hans í
kosningunum þann 28. júní næstkom-
andi.
Frábærar viðtökur
fyrir norðan
Inga Ásta og Pétur Hafstein fóru
sannkallaða sigurför um Norðurland
dagana 12. til 14. júní síðastliðinn.
Ferðin hófst með fjölmennum fundi á
Hótel Húsavík miðvikudagskvöldið
12. júní. Undir miðnættið var síðan
opnunartíminn lengdur. Á skrifstof-
unni er oft margt um manninn og um-
ræður líflegar, kryddaðar austfirskri
stemmningu eins og hún gerist best.
Að sjálfsögðu liggur fyrir heilmikið
lesefni er varðar kosningabaráttuna og
Pétur Hafstein. Einnig hefur verið tek-
in upp sú nýjung að bjóða fólki að
ferðast um veraldarvefinn (intemetið)
til þess meðal annars að kynnast Pétri
Hafstein betur. En í gegnum heima-
síðu Péturs er hægt að spyrja hann
beint spurninga er varða framboð
hans. Að sjálfsögðu er sjónvarp á
staðnum og alltaf er heitt á könnunni.
Pétur var hér staddur þann 6. júm'
og hélt fund um kvöldið í Valaskjálf
þar sem hann flutti góða ræðu. Þar á
eftir svömðu Pétur og Inga Ásta þeim
síma og starfsfólk Sýsluskrifstofunnar
hér á staðnum.
Einnig var komið við í apótekinu
og heilsað upp á starfsfólk þess, en í
sama húsi er starfrækt kosningaskrif-
stofa Péturs Hafstein. Að síðusm var
haldinn fundur í Egilsbúð þar sem
Pétur hélt stutta framsöguræðu áður
en hann svaraði spumingum fundar-
gesta.
Eftir komu Péturs Hafsteins og
konu hans Ingu Ástu hingað til Nes-
kaupstaðar hafa margir haft samband
við starfsfólk kosningaskrifstofunnar
og lýst stuðningi við Pétur Hafstein í
embætti forseta íslands, enda vill fólk
það glöggt hér að í embætti forseta ís-
lands veljist maður sem er traustsins
verður.
Ég finn það á samstarfsfólkinu um allt land hversu stolt það er að taka þátt i þessu framboði og hversu óhikað
það gengur til verks. Nú er lokaspretturinn eftir og þá drögum við ekki af okkur, segir Valgerður Bjarnadóttir
kosningastjóri Péturs Hafstein.
haldið flugleiðis til Grímseyjar þar
sem efnt var til miðnæturfundar með
eyjaskeggjum. Morguninn eftir var
haldið til Hríseyjar, Dalvíkur, Ólafs-
Qarðar og Siglufjarðar og loks til Ak-
ureyrar aftur til fundar í Alþýðuhús-
inu. Norðurlandsreisunni að sinni lauk
með heimsóknum í nokkur fyrirtæki
og stofnanir á Akureyri á föstudags-
morgun.
Þeim hjónum var hvarvetna vel
tekið og fundimir vom bæði fjölsóttir
og vel heppnaðir. Tæplega tvö hundr-
uð manns sóttu fundinn í Alþýðuhús-
inu á Akureyri og er það mun meiri
fundarsókn en nokkur hinna forseta-
frambjóðendanna hefur fengið þar.
Þetta er enn eitt sönnunarmerki þess
hve fylgi Péturs Hafstein vex hratt og
örugglega á Norðurlandi og væntan-
lega er það sama að gerast í öðrum
kjördæmum landsins þessa dagana.
Austfirsk stemmning
Kosningaskrifstofa Péturs Hafstein
á Egilsstöðum var opnuð þann 3. júní
síðast liðinn að Miðvangi 2-4 á þriðju
hæð og er opin 20-22 virka daga, 16-
18 um helgar til að byija með en eftir
því sem nær dregur kosningu mun
spumingum er bmnnu á vömm kjós-
enda og er ekki hægt að segja annað
en allir hafi verið ánægðir með svörin
ef marka má lófaklappið í kjölfarið.
Það er álit austfirskra stuðningsmanna
Péturs að hér fari drengur góður, vin-
gjamlegur, háttvís og réttlátur, búinn
þeim kostum sem forseti lands okkar
þarf að ráða yfir. Þeim Austfirðingum
sem vilja kynnast honum nánar er
bent á að heimsækja kosningaskrif-
stofuna eða hringja þangað í síma
471- 2624/471-2625.
Margir lýst
stuðningi við Pétur
6. júní síðastliðinn heimsótti Pétur
Hafstein nokkra vinnustaði hér í Nes-
kaupstað og kynnti sig og viðhorf sín
til forsetaembættisins. Með í för var
eiginkona hans Inga Ásta Hafstein, en
hún er fædd hér í Neskaupstað, dóttir
Birgis Einarson og konu hans Önnu
sem eitt sinn bjuggu hér.
Pétur heimsótti meðal annars
starfsfólk Frystihúss Sfldarvinnslunn-
ar, starfsfólk og vistfólk Fjórðungs-
sjúkrahúss Neskaupstaðar, starfsfólk
Netagerðar Friðriks Vilhjálmssonar,
starfsfólk og viðskiptavini Pósts og
Stöðugt vaxandi fylgi
Kosningaskrifstofan á Selfossi var
opnuð með lúðraþyt 1. júní að þeim
hjónum Ingu Ástu og Pétri Hafstein
viðstöddum. Hér höfum við fundið
fyrir stöðugt vaxandi fylgi dag frá
degi og „sígandi lukka er best“.
Sett vom upp stór auglýsingaskilti
milli Selfoss og Hveragerðis og einnig
inni í bænum og er hrífa fest yfir.
Þetta tiltæki vekur mikla athygli og
maðurinn með hrífuna rakar saman at-
kvæðum.
Þegar tvær vikur em til kjördags
eru margir enn óákveðnir og fjöldi
þeirra sem skiptir um skoðun vex.
Þegar skammt er til leiksloka tryggir
aðeins „maður á mann“ aðferðin ör-
ugg úrslit. Við hegðum okkur sam-
kvæmt því og sigmm.
Vel heppnaður
fundur í Vík
Allt er á rólegum nótum í kosninga-
baráttunni í Mýrdalnum, enda eru
Skaftfellingar þekktir fyrir hógværð
og geðprýði. í endaðan maí kom Pétur
Hafstein í heimsókn til Víkur, heim-
sótti vinnustaði og hélt að því loknu
kynningarfund á Ströndinni í Víkur-
skála. Fundurinn var í alla staði mjög
vel heppnaður og er ennþá sá fjöl-
mennasti sem hér hefur verið haldinn
af forsetaframbjóðendum.
Bjartsýni
og eldmóður
Skipulag kosningabaráttunnar í
kjördæminu hefur verið unnin með
hliðsjón af öllum þeim mörgu þéttbýl-
iskjörnum sem í kjördæminu eru.
Kosningaskrifstofur vom settar upp í
Reykjanesbæ og Kópavogi, tveimur
helstu sveitarfélögunum utan Hafnar-
fjarðar, þar sem aðalskrifstofam er
staðsett.
Að kosningastarfinu hefur komið
mikill fjöldi sjálfboðaliða, bæði vant
fólk og óvant, vinir og kunningjar Pét-
urs Hafstein auk þeirra mörgu sem
hrifist hafa af framkomu, hæfni og
eiginleikum Péturs.
Það hefur greinilega komið fram að
hratt og skipulega varð að vinna til
kynningar á frambjóðandanum, sem
ekki var mikið þekktui' öllum almenn-
ingi. Með þessum miklu kynningum
og heimsóknum á fundi í fyrirtæki og
stofnanir hafa kjósendur hrifist af Pétri
og Ingu Ástu og skipað sér í þeirra
raðir.
Starfsfólk, sjálfboðaliðar og stuðn-
ingsmenn Péturs og Ingu Ástu í
Reykjaneskjördæmi eru bjartsýnir og
fullir af eldmóði í baráttunni sem
framundan er til kjördags, með það að
leiðarljósi að Pétur Hafstein sé trausts-
ins verður og hann sé sá frambjóð-
andi, sem þjóðinni verði mikill sómi
af að kjósa sem næsta forseta Islands.
Gríðarleg viðbrögð
í Reykjanesbæ
Fimmtudaginn, þann 13. júní síð-
astliðinn opnuðu smðningsmenn Pét-
urs Hafstein. í samráði við kosninga-
stjórn á Reykjanesi, kosningaskrif-
stofu hér á Suðurnesjum. Eftir að
skrifstofan var auglýst í bæjarblöðun-
um þann sama dag, hafa viðbrögðin
ekki látið á sér standa. Straumur fólks
hefur legið inn til okkar í kaffi og
hressilegar samræður hafa verið um
kosningabaráttuna í heild. Þetta stað-
festir grun okkar um vaxandi fylgi
okkar manns meðal kjósenda. Sjálf-
boðaliðar hafa einnig boðið fram
starfskrafta sína og er hér um að ræða
fólk úr öllum áttum.
Pétur Hafstein hefur í tvígang í
þessari kosningabaráttu sótt Suður-
nesjamenn heim. f fyrra skiptið fór
hann á vinnustaðafúndi í Reykjanesbæ
þann 4. júm' síðastliðinn en þann 10.
heimsójti hann sveitafélögin hér í
kring. Áhrif þessara heimsókna hafa
ekki látið á sér standa. Viðbrögð fólks
hafa verið gríðarleg og er það sam-
róma álit allra sem við höfum talað
við, að Pétur og Inga Ásta hafi svo
sannarlega náð að heilla fólk. Þann 25.
næstkomandi mun Pétur koma hingað
enn einu sinni. Þá mun hann vera á
baráttufundi með Suðumesjamönnum
í félagsheimilinu Stapa, en síðar um
kvöldið mun hann halda fund með
ungu fólki á göngugötunni við Flug-
hótel, Hafnargötu.
Nú, þegar tæpar tvær vikur eru til
kosninga, vonumst við til þess að
þetta vaxandi fylgi Péturs verði nóg til
þess að gera hann að næsta forseta ís-
lenska lýðveldisins.