Pétur er minn maður - 01.06.1996, Page 5

Pétur er minn maður - 01.06.1996, Page 5
Pétur Hafstein -traustsins verður Hvort sem menn vilja kalla það skyldurækni eða eitthvað annað, þá á ég erfitt með að láta ekki til mín taka ef ég get lagt eitthvað til málanna og gert gagn. Þegar mikið er í húfi verður hver maður að finna til ábyrgðar og taka af- stöðu. á að koma fram í þágu heildarinnar, þjóðar- heildarinnar eða hagsmuna heilla atvinnugreina svo sem sjávarútvegs, landbúnaðar eða ferða- þjónustu. Forsetinn á hins vegar ekki að gerast erindreki einstakra manna eða fyrirtækja. I heimsóknum mínum í fyrirtæki um allt land hefur þessi skoðun mín styrkst. Frammi- staða fyrirtækja í viðskiptum ræðst af því hvemig þau geta sjálf nýtt sér þau tækifæri sem bættar samgöngur og upplýsingatækni skapa þeim. Það hefur vakið athygli mína hversu ís- lensk fyrirtæki eru vakandi fyrir nýjungum og færa sér þær í nyt. Því er ég enn sannfærðari um það en áður að markaðsstarf erlendis er og verður best unnið af fyrirtækjunum sjálfum. Við verðurn að átta okkur á því að tímamir hafa breyst. Alþjóðleg samskipti hafa orðið ein- faldari og ódýrari og eru einfaldlega hluti af okkar daglega lífi. Um leið og það skapar aukin tækifæri krefst það líka aukinnar ábyrgðar af hverjum og einum. Hver og einn verður að standa fyrir sínu. Þjóðarleiðtoginn stendur á bak við þetta fólk en tekur hvorki af því ffum- kvæði né ábyrgð heldur hvetur menn til þess að nýta sóknarfæri sem sífellt em að skapast milli landa. Þess vegna er mikilvægt að við stöndum vörð um menntun unga fólksins og að hún sé fyllilega sambærileg við það sem gerist erlend- is. Við verðum að búa þannig að unga fólkinu að hæfileikar þess geti nýst sem best bæði hér heima og á alþjóðlegum vettvangi. í rauninni er sjálfstæði þjóðarinnar að miklu leyti undir því komið." Hverl er viöhorfþitl til orðuveitinga? „Þar ber að minni hyggju að hafa það sjónar- mið að leiðarljósi að forseti sé með heiðurs- nterki að færa fram þakklæti fyrir hönd þjóðar- innar fyrir störf eða afrek sem ekki verður þakkað fyrir með öðrum hætti. Ef þetta sjónar- mið verður ríkjandi þá hlýtur það að leiða til þess að sparlega verður farið með orðuveiting- ar, en þar á engin sjálfvirkni að ráða ferðinni. Orðunefnd starfar samkvæmt lögurn um hina íslensku fálkaorðu og er aðeins ráðgefandi aðili í þessum efnum. Það er forsetinn einn sem tek- ur ákvarðanir um veitingu orðunnar.“ Finnst þe'r aðforsetinn eigi að greiða skatta? „Já, ég tel miður að Alþingi hafi ekki afgreitt með einhverjum hætti það frumvarp sem lá fyr- ir þinginu um skattamál forseta. Skattfrelsi for- setans er arfur frá liðinni tíð. Forsetinn er ekkert annað en fremstur meðal jafningja og honum ber að greiða skatta eins og öðrum.“ Mikið verkefni Nú fer þetta á annan hvorn veginn, þú vinnur eða lapar. „Auðvitað fer enginn út í svona baráttu nema með því markmiði að ganga með sigur af liólmi. Ef á annan veg fer er mér það manna best ljóst að allir verða að una dómi og ekki síst dómi þjóðarinnar." Nú er nokkur munur á ykkur Ólafi Ragnari í skoðanakönnunum. Gerirðu þe’r vonir um að vinna hann? „Já, ég er bjartsýnn. Kjósendur eru að gera upp hug sinn og niðurstöðu þeirra kvíði ég ekki.“ Nú ertu i kosningabaráttu þar sem hver mín- úta er skipulögð, þú þarft að vera á ferð og flugi og þessu fylgir vafalaust mikill erill. Verð- urþetta tímabil ekki eftirminnilegt? „Þetta er mikið verkefni og mikil og skemmtileg lífsreynsla. Þegar vel gengur gleymir maður öllurn þreytumerkjum. Það er nægur tími eftir kosningar til að láta þreytuna líða úr sér. Við Inga Ásta höfum kynnst fjölda fólks að undanfömu, sem er tilbúið til að leggja rnikið af mörkum fyrir okkur. Ný vináttubönd hafa skapast, önnur hafa styrkst. Þessi reynsla verður okkur Ingu Ástu dýrmætt veganesti og ánægjuleg minning í framtíðinni hvemig sem allt fer.“

x

Pétur er minn maður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pétur er minn maður
https://timarit.is/publication/809

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.