Blað stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens í Hafnarfirði - 01.06.1968, Blaðsíða 2

Blað stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens í Hafnarfirði - 01.06.1968, Blaðsíða 2
2 Blað stuðningsmanna GUNNARS THORODDSENS ■ lllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllBIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIIIIIIIIIIIIIBIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIIIIIIIIIiail^il | Blað stuðningsmanna I GUNNARS THORODDSENS \ | í Hafnarfirði § | Útgefendur: | | Framkvæmdanefnd stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens. | Ritstjóri: Árni Ágústsson. ij Mllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Kjósum styrka forystu Nú líður að lokum þessarar kosningabaráttu. Forsetakosn- ingar eru ávallt örlagaríkar fyrir frjálshuga þjóð. Þær snerta meira hvern einasta þegn, en í fljótu bragði virðist. E. t. v. finnst fólki þetta fjarstæða. En hver og einn, sem hefur kynnt sér valdsvið forseta og hlýtt á ágætt erindi Hákonar Guð- mundssonar yfirborgardómara í útvarpinu, séð og heyrt þá Benedikt Sigurjónsson hæstaréttardómara og Þór Vilhjálms- son prófessor í sjónvarpinu hlýtur að gera sér grein fyrir því að nauðsynlegt er að forsetaembættið sé skipað mjög hæfum manni til að skapa þann styrk og festu, sem nauðsynlegur er í stjórnarháttum. Það leiðir til meiri velferðar og öruggari framþróunar en ella. Vel má vera að fólki finnist að þetta sé tryggt með kosning- um til Alþingis. Forsetakjör snerti ekki hagsmunamál þess. En þetta er mikill misskilningur. Góðir kennarar við skóla njóta sín ekki í starfi nema skólastjórinn stjórni af festu og víðsýni, ella fer allt úr böndunum með alvarlegustu afleiðing- um fyrir nemendur. Á svipaðan hátt getur farið um stjórn landsins, ef ekki er traust forysta af hálfu forseta og afleið- ingarnar geta haft hin alvarlegustu áhrif á afkomu þjóðarinn- ar. Gunnar Thoroddsen er maður sem hefur víðtæka þekkingu á menningar- og atvinnulífi þjóðarinnar. Hann á að baki mikla reynslu í stjórnun hinna veigamestu mála í þjóðfélaginu og hefur honum í þeim vandasömu störfum fylgt farsæld og festa. Hann er því einn af fáum mönnum sem til greina getur komið í hið veigamikla embætti, forsetaembættið. Kristján Eldjárn hefur reynst nýtur maður í stöðu sinni og er einn úr hópi fjölda trúverðugra embættismanna, en hefur ekki öðlast þá þekkingu og reynslu, sem leiðtogi þarf að hafa. Kom þar bezt fram í sjónvarpsviðtalinu, að hann hafði ekki gert sér grein fyrir starfi forseta. Val þeirra manna, sem vilja standa vörð um og efla ís- lenzka lýðveldið er því auðvelt. Þeir hljóta að styðja þann manninn, sem hefur sýnt það, að hann getur haldið styrkri hendi um stýrisvölinn. Það er stutt á milli frelsis og ófrelsis og sundrungin frá 1262, er landið glataði sjálfstæði sínu má ekki endurtaka sig. Við skulum því sameinast um að fela Gunnari Thoroddsen forsetaembættið á sunnudaginn kemur. Stjórnmálaafskipti forsetaefna (Framhald af bls. 4) laust get ég lýst yfir því, að ég myndi greiða honum atkvæði í forsetakosn- ingum^ þrátt fyrir deilur okkar um stjórnmál á fyrri árum, og þrátt fyr- ir það, að hann hefir síðan verið orð- aður við samtök, sem mér eru ekki að skaþi, ef ég teldi ekki þann fram- bjóðanda, sem við hann keppir hæf- ari til að gegna embætti þjóðhöfð- ingja af ýmsum ástæðum. Þess vegna skil ég ekki af hvaða sökum er nú lögð svo mikil áherzla á, af fylgismönnum dr. Kristjáns Eld- járns og jafnvel honum sjálfum, að hann hafi „aldrei tekið virkan þátt í stjórnmálum". Ég tel það engan ó- kost á forsetaefni, þótt það hafi tekið virkan þátt í stjórnmálum og „stúdentapólitík" er líka pólitík að mínum dómi, enda hafa stúdentar jafnan verið taldir góðir og eftir- sóttir liðsmenn í hvaða stjórnmála- flokki sem er og flokkspólitískar kosningar innan Háskólans áratugum saman verið taldar hinar þýðingar- mestu. Senn munu íslenzkir kjósendur ganga að kjörborðinu og velja með atkvæði sínu mann í æðsta embætti þjóðarinnar, sjálfan þjóðhöfðingjann. Margt hefir þegar verið um það rit- að og þó meira spjallað manna á meðal. Hefir því miður blandazt inn í það umtal ýmislegt, sem betur mætti vera ósagt. Hver íslenzkur kjósandi ætti þó að setja metnað sinn í það, hvorum frambjóðandanum hann hyggst greiða atkvæði eða með áróðri sín- um til stuðnings hvorum frambjóð- andanum sem er, að yfir kosninga- baráttuna brygði blæ reisnar og virðuleika, en ekki hið gagnstæða. Og umfram allt að forðast það, að víkja af götu sannleikans. Ég trúi heldur ekki öðru en að báðum frambjóðendunum ( þessum kosningum séu þeir starfshættir lika bezt að skapi. Sigurður T. Sigurðsson, auglýsingastjóri: Að velia forseta Sigurður T. Sigurðsson. Það sem ég hef í huga þegar ég kýs mann i æðsta embætti þjóðarinn- ar er það að hann hafi ákveðnar skoðanir og þori að standa við þær. Ég vil mann sem er kunnugur stjórnmálum og lögum hins íslenzka lýðveldis. Ég vil mann, sem gæti með þekk- ingu sinni og lipurð verið sáttasemj- ari hinna stríðandi afla í þjóðfélag- inu. Ég vil mann, sem þekkir atvinnu- hætti íslenzku þjóðarinnar. Ég vil mann, sem villir’ekki á sér heimildir. Þess vegna kýs ég GUNNARTHORODDSEN Það, hvernig stuðningsmenn Krist- jáns Eldjárns hafa rekið kosninga- baráttuna hingað til veldur mér von- brigðum. Þegar menn eru farnir að nota níð og róg um andstæðing sinn og villa á sér heimildir með röngum upplýs- ingum þá er kominn tími til að taka afstöðu á móti þeim. Hér á eftir eru nokkur dæmi um tvöfeldni Kristjáns Eldjárns og stuðningsmanna hans: 1. Stuðningsmenn Kristjáns Eldjárns segja hann aldrei hafa verið flokksbundinn þrátt fyrir þá stað- reynd að hann var ofarlega á lista eins stærsta stjórnmálaflokks landsins við borgarstjórnarkosn- ingar í Reykjavik. 2. Fyrir 20 árum síðan tók Kristján Eldjárn ákveðna afstöðu á móti þátttöku íslands [ Atlantshafs- bandalaginu, en nú þegar hann eygir von i embætti forseta kallar hann þessa afstöðu sína „barna- trú og einfeldni“. 3. Meðmælendur Kristjáns Eldjárns I Hafnarfirði eru samtals 1 á lista þeim, sem lagður hefur verið fram. (Hvað skrifuðu sig margir á þann lista hér í Hafnarfirði? Hvað var gert við nöfn þeirra, sem töldu sig vera að styðja Kristján Eldjárn? Hver er sá eini sem eftir er?) Ég skora á hafnfirzka kjósendur að kynna sér þessi mál til hlitar og þá verður valið auðvelt. X GUNNAR THORODDSEN Garðar Sigurðsson, verkstjóri: Spurt um kunnóttu og reynslu Þegar Gunnar Thoroddsen ákvað að gefa kost á sér til forsetakjörs ákvað ég að gerast stuðningsmaður hans. Þá ákvörðun byggði ég á þeim rökum, að um val í forsetaem- bætti ættu að gilda sömu reglur og þegar ráðnir eru menn í aðrar stöð- ur. Þegar rætt er við umsækjendur um stöður er fyrst spurt er mað- urinn vanur slíkum störfum eða hlið- stæðum? Guðlaugur Bjarnason, verkamaður: Viðhöldum reisn forsetaembœttisins Guðlaugur Bjarnason. Það er mér mikil ánægja, að vera stuðningsmaður Gunnars Thorodd- sen. Því álit mitt er, að hann sé hinn hæfasti íslendingur sem hugsast getur, í virðulegasta embætti íslenzku þjóðarinnar. Vegna hvers? Vegna þess að hann hefur eins mikla reynslu og framast er hægt að hugsa sér í stjórnlaga, stjórn og félagsmála starfi, á mestu umbrotatímum ís- lenzku þjóðarinnar. Hann gjörþekk- ir íslenzkt þingræði, og kann sögu hins virðulega alþingis og hinna djúpvitru löggjafa, sem það skópu og þess virðingu hafa á lofti haldið, islendinga bezt. Aðeins tuttugu og þriggja ára varð Gunnar Thoroddsen þingmaður. Alþjóð er kunnugt um hans feril síðar, kunn- ugt um hans orðsnilli, prúðmennsku og glæsileik í hvívetna, og við hlið honum stendur eiginkona hans, sem er hin glæsilegasta kona. Þrátt fyrir þessa talningu, þá hittir maður varl nokkurn fylgjanda hins frambjóðand- ans, sem vafalaust er hinn ágætasti embættismaður, að hann geti ekki haldið langa fyrirlestra um ótölulega lesti á einkalífi Gunnars Thorodd- sens og fjölskyldu. Reyndar fyrirverð ég mig að nokkru, fyrir að láta það á þryk út ganga, að ég hafi gert mig svo lítinn mann að rökræða við þessa manntegund, en það furðu- lega er, að þessir menn viðurkenna, að Gunnar Thoroddsen hafi, betri framkomu, betri þekingu, meiri glæsileik, en það sé bara vegna þess að hann hafi meiri þjálf- un! ÞAÐ ER GALLINN! Sam- kvæmt þessum rökum, ætti svifflug- maður hæglega að geta flogið þotu þjálfunarlaust. Látum virðuleik for- setaembættisins ekki dvína, stuðlum öll að glæsilegum sigri Gunnars Thoroddsens. GarSar Sigurðsson. Hefir viðkomandi þá hæfileika sem þarf til að bera, svo hann geti leyst starfið sómasamlega af hendi.? Þessar spurningar koma fyrst upp í huga manns þegar rætt er um frambjóðendur til forsetakjörs þann 30. júní næstkomandi. Enginn vafi er á þvl að Gunnar Thoroddsen er sá maðurinn sem ég tel að uppfylli bezt allar þær kröfur sem islendingar ungir og gamlir gera til forseta lands vors. Því skora ég á alla hugsandi menn að styðja og styrkja okkar unga lýðveldi með þvi að kjósa Gunnar Thoroddsen næsta forseta. I FRAMKVÆMDANEFND STUÐNINGSMANNA GUNNARS THORODDSENS í HAFNARFIRÐI ERU: Hermann Guðmundsson, Guðríður Elíasdóttir, Vilhjálmur Skúlason, Sigurður T. Sigurðsson, Páll V. Daníelsson, Reynir Guðmundsson, Laufey Jakobsdóttlr, Elin Jósefsdóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Helga Guðmundsdóttlr, Ingvar Viktorsson, Sigurður Emilsson, Ólafur Pálsson, Þórður Þórðarson, Hörður Hallbergsson. Fólkið fylkir sér um GUNNAR THORODDSEN

x

Blað stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens í Hafnarfirði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blað stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens í Hafnarfirði
https://timarit.is/publication/810

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.