Forsetaval - 20.06.1968, Page 1

Forsetaval - 20.06.1968, Page 1
FORSETAVAL BIAD AUSTFIRZKRA STUDHINGSMANHA DR. KRISTJÁNS ELDJÁRNS 1. tölublað. — Fimmfcudagur 20. júní 1968. LÚÐVlK INGVARSSON, lögfræðingur: Er œskilegt að forsetinn sé stjórnmálamaður? I áróðri við forsetakosningar, sem nú fara í liönd, hefur verið lögð á það meginálierzla af fylg- ismönnum annars forsetaefnisins, að „reyndir stjórnmálamenn“ séu öðrum hæfari til að gegna emb- ætti forseta. Harðast hafa kveðið að þessu sumir þeir, sem við síð- ustu forsetakosningar studdu virðulegan embættismann, sem aldrei hafði srnnt stjórnmálum, gegn tveimur reyndum stjórn- málamönnum. Mætti það vekja grun um, að trúin á þessa kenni- setningu væri ekki gömul. Ef við værum ekki stödd í m;ðri kosningabaráttu, myndum við flest játa, a. m. k. í hugskoti okkar, að æskilegast væri að for- seti íslenzka lýðveldisins nyti ó- skipts trausts og virðingar allra landsmanna. Þess má að jafnaði ekki vænta ef í forsetaembætti velst harðsnúinn forustumaður stjórnmálaflokks, sem lengi hef- ur haft úrslitaáhrif í stjórn lands- ins. Pólitískt siðferði íslenzkra stjórnmálamanna er reikandi. Hér á landi líðst ráðherrum pólitísk hlutdrægni og misbeiting valda- aðstöðu í þágu flokks, flokks- manna og jafnvel fjölskyldu, sem í nágrannalöndum okkar mundi binda endi á stjórnmálaferil manns i slíkri stöðu. Hvaða ís- lenzkur ráðlierra liggur ekki und- :r ásökunum um misbeitingu á valdi sínu í þágu flokksmanna sinna? Og hvaða stjórnmálamað- ur íslenzkur hefur ekki stuðlað að s’.íkri misbeitingu eða varið hana? Þeir finnast áreiðanlega ekki margir. Mig grunar að þeir séu ekki fleiri en fundust réttlátir, þegar þær vansælu borgir Sódóma og Gómorra voru undir smásjá almættisins. Við hljótum að játa, að forseti íslenzka lýðveldisins verði að vera yfir slíkt siðferði hafinn, ef hann á að njóta trausts og virð- ingar allrar þjóðarinnar. Uppistaðan í áróðrinum um að forseta eigi að velja úr hópi stjórnmálamanna er sú fullyrð- ing, að stjórnmálamenn á for- setastóli séu öðrum mönnum lík- legri til að leysa stjórnarkreppur með lýðræðislegum hætti. Þessi villukenning er furðulega barna- leg. Þó að stjórnmálamaður, sem situr í forsetaembætti sé allur af vilja gerður, þá afklæðist hann ekki samúð sinni til einnar stjórn- málastefnu, flokks eða forustu- manna né heldur andúð á öðrum. Og hann öðlast ekki traust fyrri andstæðinga sinna við það eitt að taka forsetakápuna á herðar sér. Við stjórnmálamann á forseta- stóli hlýtur alltaf að loða tor- tryggni um, að gerðir hans mark- ist af fornri samúð og andúð. íslenzk stjórnmál eru ekki það völundarhús, að ekki fái ratað um þau aðrir en stjórnmálamenn. Okkur, sem utan við þau stönd- um, finnst að minnsta kosti oft, að stjórnmálamennirnir séu slegn- ir þeirri blindu, að þeir rati ekki um sitt eigið hús. Reyns’.an sýnir ekki heldur, að stjórnmálamenn séu gleggri mannþekkjarar en aðrir, þvert á móti. Hörðustu fylgismenn og nánustu vinir pólitískra forustu- manna eru að jafnaði hvorki vitr- ir né góðgjarnir. Forseti, sem ekki á stjórnmála- feril að baki en liefur í opinberu starfi og umgengni við fólk úr Forsetakosningar á Islandi eru og eiga að vera algerlega ópóli- tískar. Þess vegna á hver kjós- andi að vera óháður sjónarmiði flokks síns og honum á að vera frjálst að kjósa eftir persónulegri sannfæringu, án þess að vera hræddur við að styggja einhverja pólitíska húsbændur. Talsvert mun þó hafa borið á því í her- búðum Sjálfstæðismanna, að það yrðu talin einskonar flokkssvik að kjósa dr. Kristján Eldjárn til forseta en ekki dr. Gunnar Thoroddsen. Að mínum dómi er þetta hin herfilegasta blekking. Sá Sjálf- stæðismaður, sem kýs Kristján Eldjárn í væntanlegum forseta- kosningum, er alveg jafn góður flokksmaður eftir sem áður og leyfi ég mér í því sambandi að skírskota til athugasemdar Péturs Benediktssonar í Morgunblaðinu þann 7. maí sl. Ég dreg það ekki í efa, að báðir frambjóðendurnir til for- setakjörs séu mjög vel hæfir til að gegn því tignarembætti. En hinsvegar tel ég það mikil með- mæli með dr. Kristjáni Eldjárn, að hann skuli aldrei hafa haft opinber afskipti af stjórnmálum. Forsetinn á að vera einskonar sameiningartákn þjóðarinnar. Hann þarf að njóta fylgis og virðingar allrar þjóðarinnar, sem sameinast um hann, heil og óskipt. SliUt held ég, að næðist aldrei, ef öllum stéttum, öðlazt margvíslega reynslu af mannlegum viðbrögð- um og viðhorfum, er ekki verr fallinn til að dæma rétt um hæfni stjórnmálamanna við lausn á stjórnarkreppum en sá, sem áður hefur barizt með eða móti sömu mönnum. Hann getur litið á menn og málefni án litaðra gleraugna samúðar og andúðar. Og honum mætir ekki sú tortryggni, sem í hugskoti stjórnmálamannsins loð- ir v'ð pólitískan andstæðing á forsetastóli. Hinn óháði forseti, sem nýtur trausts og virðingar manna úr öllum stjórnmálaflokkum verður líklegastur til að leysa stjórnar- kreppur eftir lýðræðislegum leið- í forsetastól sett;st maður, sem lengi hefði barizt í fremstu víg- línu einhvers sérstaks stjórnmála- flokks. Slíkur maður hlyti alltaf að eiga fjölmennan hóp andstæð- inga. Öil kynni mín af dr. Kristjáni E’.djárn, frá því að hann kenndi mér í Menntaskólanum á Akur- eyri og fram á þennan dag, eru þannig, að ég hika ekki við^ að kjósa hann til forseta, fullviss þess, að hann muni skipa þann sess með sóma. Hann er maður skörulegur og stjórnsamur, fjöl- hæfur gáfumaður og fjölmennt- aður. Hið ábyrgðarmikla og fjöl- þætta starf sem þjóminjavörður hefur hann rækt með slíkum ágætum, að betur verður víst ekki á kosið. Með Kristjáni Eldjárn mundi setjast í forsetastól virðulegur þjóðhöfðingi, reglusamur og ein- arður embættismaður og drengur góður. FORSETAVAL Ritnefnd: Guðlaugur Jónsson, Sigurður Blöndal, Sigurður Ó. Pálsson (,áb.) Vilhjálmur Sigurbjörnsson. NESPRENT (WWVWWWWWWW\/WVWVWV\/WWWWVWWWWWVWWWVWWWWWWVV>/VWWWV» I Fró útgefendum Blað það, sem hér kemur fyrir almenningssjónir, er gefið út af kjördæmisnefnd stuðningsmanna dr. Kristjáns Eldjárns í Austurlandskjördæmi. Ekki er fyrirhugað, að út komi nemá þetta eina tölublað, en með því vilja útgefendur gefa nokkr- um Austfirðingum kost á að segja hug sinn um forsetakosn- ingarnar og þá frambjóðendur, sem valið verður um eftir tíu daga. Aðeins fáir komast að í litlu blaði sem þessu, en að baki þeim standa þúsundir austfirzkra kjósenda, sem leggja munu atkvæði sín á metaskálarnar þann 30. júní næstkomandi. í kjördæmisnefnd Guðlaugur Jónsson. Sigurður Blöndal. Sigurður Ö. I’álssou. Villijáhuur Sígurbjörnsson. um. SÉRA SVERRIR IIARALDSSON, Borgarl’irði: Það eru engin flokkssvik

x

Forsetaval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forsetaval
https://timarit.is/publication/811

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.