Austurland - 03.02.1956, Page 3
Neskaupstað, 3. febrúar 1958.
AUSTXJRLAND
Skattahækkun
Frambald af 1. síðu.
árekstra, því verkalýðurinn hlýt-
ur að snúast til varnar.
Það er fjarstæða að halda því
fram, að eftir að kaup hefur lækk-
að um 20—30% og er svo hækk-
að aftur um nokkurn hluta þess,
valdi það verðbólgu. Hver maður
veit, að það eru ekki kauphækk-
anirnar sem valda verðbólgu,
heldur öfugt. Það er verðbólgan,
sem veldur kauphækkun.
Deilt um hver á að bera I
byrðarnar
Enginn ágreiningur er um það,
að óhjákvæmilegt er að veita
framleiðsluatvinnuvegunum stuðn-
ing. Það sem fyrst og fremst er
deilt um er hvar á að taka féð.
Ríkisstjórnin vill skattleggja all-
an almenning, en sósíalistar vilja
taka féð af þeim, sem rakað hafa
saman fé á því að verzla við út-
gerðina og af hermöngurum.
Lúðvík gerði grein fyrir tillög-
um sósíalista um fjáröflun.
Það á að taka féð af okur-
gróða þeirra, sem mest féfletta
útgerðina. Athugum nú gróða
þeirra, sem mest skipti hafa við
hana.
Bankarnir greiði 25 milljónir
Samkvæmt skýrslu Fram-
kvæmdabankans græða bankar og
sparisjóðir 50—60 millj. á ári,
Hlutur sparisjóða í upphæðinni er
hverfandi lítill. Allt er þetta fé
tekið af atvinnuvegunum og al-
menningi. Vextir af verzlunarlán-
um eru lagðir á vörurnar og vext-
ir af húsalánum hækka húsnæðis-
kostnað. — Við sósíalistar leggj-
um til, að bankamir verði látnir
greiða 25 millj. — helming árs-
gróðans — til stuðnings atvinnu-
vegunum.
Olíuhringarnir greiði 20 millj.
í desember var verð á hráolíu í
þýzkum hafnarbæjum 375 krónum
lægra tonnið en hér, og togara-
olía 20% lægri. Ársnotkun Is-
lendinga af olíum er 50 millj. kr.
dýrari en verið hefði í Þýzkalandi.
Það er þó ekkert dýrara að flytja
olíu hingað en til Þýzkalands frá
helztu framleiðslulöndunum.
Engin frambærileg skýring er
til á þessum verðmismun. En al-
menningur sér fjárfestinguna, þar
sem þrefalt dreifingarkerfi hefur
verið byggt upp um land allt. Og
þessa gífurlegu fjárfestingu eru
landsmenn látnir borga í hækk-
uðu olíuverði.
En olíufélögin eru óskaböm rík-
isstjórnarinnar og gróða þeirra
vill hún ekki skerða.
Nýlega var- verð á togaraolíu
hækkað svo að nemur Vá af þeirri
styrkhækkun, sem nú á að veita
togurunum. Næstu daga verður
önnur olía stórhækkuð í verði.
Við leggjum til að olíuhring-
arnir verði látnir greiða 20 millj-
ónir til framleiðslunnar án þess
að þeir fái að hækka verðið.
Skipafélögin greiði 15 millj.
Flutningagkipafélög hafa rak-
að saman fé fyrir að flytja úr
landi frairilieiðsluvörur sjávarút-
vegsins, og til landsins vömr, sem
keyptar eru fyrir andvirði þessara
afurða. SlS hefur á fáum árum
keypt 6 skip fyrir gróða sinn og
Eimskip marga sína stóru Fossa,
sömuleiðis fyrir gróðann. Og
bæði hafa þessi félög notið mikilla
skattfríðinda.
Við leggjum til að skipafélögin
verði látin greiða 15 millj. til
framleiðslunnar.
Tryggingarfélögin greiði 10
milljónir
Tryggingarfélögin, önnur en
Brunabótafélagið og Tryggingar-
stofnunin, eiga í skuldabréfum 68
millj. kr. og hafa veitt 17 millj.
kr. lán á síðasta ári. Þessar tölur
og aðrar fleiri sýna mikinn gróða.
Við viljum láta tryggingarfé-
lögin greiða 10 millj. í aukaskatt.
Hermangarar greiði 15 millj.
Fleiri en þeir, sem bein skipti
hafa við útgerðina hafa grætt. Ég
nefni t. d. verktakafélög, sem raka
saman gróða á hermangsvinnu.
Og þessi gróði er skattfrjáls. Og
nú stendur til að þessi félög taki
að sér 150 millj. kr. framkvæmdir
í Njarðvík.
Við leggjum til að þessir aðilar
greiði 15 milljónir til framleiðsl-
unnar.
Tekur nýja vél 1 NorófjarSarbió
Englandi | María j Marseille
Eskifjarðarbáturinn Hólmaborg
fór héðan á mánudag áleiðis til
Englands eftir að hafa tekið hér
10 tonn af saltfiski. í Englandi
verður sett ný vél í bátinn.
SULTA
lausri vigt á 12.00 pr. kg.
PAN
Til sölu
Vil selja ódýran barnavagn.
Ríkey Guðmundsdóttir.
Bár.
AuglýsiS
Austurlandi
Sýnd laugardag kl. 9.
Geimfararnir
Sýnd sunnudag kl. 5.
Síðasta sinn.
Rommel
Stórfengleg amerísk kvik-
mynd er fjallar um þýzka hers-
höfðingjann Rommel og skýrir
frá hver urðu endalok hans.
Rommel leikur liinn frægi
skapgerðarleikari:
James Mason.
Sýnd sunnudag kl. 9.
Fundarboð
Aðalfundur Kvenfélagsins Narina verður haldinn í Sam-
komuhúsinu þriðjud. 7. febrúar kl. 9 e. h.
FUNDAREFNI:
Venjuleg aðalfundarstörf og fleiri mál.
Skorað er á félagskonur að mæta.
Konur eru beðnar að hafa með sér bolla.
Stjórnin.
Fyrirliggjandi
eru eftritaldar stærðir af stálboruin:
a. Tommustærðir: %, %, 5/16, og Vs.
b. Millimetrastærðir: 3 — 3,5 — 4 5 5,5 6 6,5
7 — 8,5.
Pönhmarfélag alþýðu, Neskaupstað
Margir græða á verðbólgunni
Heildsalar eru látnir sjálfráðir
um álagningu. Þeir græða. Hvers
vegna ekki að skattleggja þá?
Svona mætti lengi telja. T. d.
má nefna, að í Reykjavík eru ein-
stakar lóðir seldar á 1—2 millj.
kr. — Þessi sölugróði er skatt-
frjáls, af því seljendur hafa átt
lóðirnar í þrjú ár. Hér er um
stórfelldan verðbólgugróða að
ræða og á að skattleggja hann.
Leið ríkisstjórnarinnar þýðir
20% hækkun dýrtíðar og þegar á
árið líður, er búið að taka aftur
af útgerðinni þær kjarabætur sem
henni nú eru fengnar.
F ataefni:
Pipar og saltefni, 3 litir, o. fl. alullarefni.
Pipar og salt-efnin kosta aðeins 198.00.
Sendum gegn póstkröfu.
Pöntunarfélag alþýðu, Neskaupstað
Félagsvist
Almenn Félagsvist verður í Samkomuhúsinu laugardags-
kvöld kl. 9. — Góð verðlaun.
Inngjangur kr. 7.00. sisWUWélaglí.