Austurland - 03.02.1956, Qupperneq 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 3. febrúar 1956.
16 gripír farast í Mjóafirði
Tjón af völdum ofviðris
Á föstudag gerði mikla rigningu
í Mjóafirði og stóð hún þar til á
cunnudagsnótt. Þá um nóttina
klukkan hálf þrjú varð mikið
krapa- og vatnsflóð í Borgeyrará
sem rennur skammt fyrir austan
íbúðarhúsið á Borgareyri. Ruddi
flóðið um hlöðu og fjárhúsi, en í
Ur reikningum
Sparisjóðsins
Heildartekjur Sparisjóðs Norð-
fjarðar árið 1955 voru kr. 392.
550.39, en árið áður kr. 334.465.81
og höfðu því vaxið um rúmlega
58 þús. kr.
Gjöldin voru kr. 327.286.83 og
tekjuafgangur, að mestu lagður í
varasjóð, kr. 65.263.56.
Innstæður í sparisjóðsreikningi
voru í árslok 1955 kr. 3.808.321.65
á 1603 reikningum. í árslok 1954
voru innstæðurnar kr. 3.603.345.
09 á 1558 reikningum. Sparisjóðs-
innstæður höfðu því hækkað um
nær 205 þús. kr.
Innstæður á hlaupareikningi
höfðu vaxið úr kr. 925.879.22 í kr.
1.044.367.23.
Lán gegn ríkisábyrgð voru í
árslok 1955 kr. 185.000.00 á móti
kr. 230.000.00 árið áður, veðlán
45 þús. á móti 50 þús., víxlar kr.
3.824.209.81 á móti kr. 3. 413.586.
92, hlaupareikningslán kr. 677.
153.83 á móti kr. 746.927.74,
bankainnstæða kr. 656.718.68 á
inóti 705,564.39.
Heildarútlán Sparisjóðsins
(veðlán, ábyrgðarlán, víxillán og
hlaupareikningslán) námu í árs-
lok 1954 kr. 4.440.514.66 og
höfðu hækkað um kr. 290.848.98.
Varasjóður Sparisjóðsins er nú
kr. 885 þús. og óx á árinu um 65
þús. kr.
Vantrauststillaga
Þjóðvarnarmenn fluttu á þriðju-
dag vantrauststillögu á ríkis-
stjórnina og fékk hún fljóta af-
greiðslu, því hún var afgreidd
samdægurs á 30 mínútum. Pluttu
formælendur andstöðuflokkanna
stuttar ræður og lýstu afstöðu
flokka sinna til vantraustsins, en
f.'nginn ráðherra tók til máls og
■ snginn þingmaður treysti sér til
að mæla ríkisstjórninni bót. En
handjárnin héldu enn sem fyrr,
a.llir þingmenn stjórnarflokkanna,
sem hérlendis eru, 33 talsins,
greiddu atkvæði gcgn vatntraust-
inu. Meira að segja Hermann
Jónasson, sem sagt er að berjist
af megni fyrir því að fella stjórn-
ina, greiddi atkvæði með stjórn-
inni. — Þó var honum leyft að af-
saka þetta athæfi með fáum orð-
um.
Með vantraustinu greiddu at-
kvæði allir þingmenu stjórnarand-
stöðunnar, 11 tulsiriíj.
því voru 40 ær og fórust 11 þeirra
og nokkuð skemmdist af heyi.
Flóðið tók einnig gamalt vöru-
geymsluhús og ruddi því um. í
þvi voru 8 ær, hryssa og naut-
gripur og auk þess bifreið og fleiri
hlutir. Sópaði flóðið öllu þessu á
sjó út. Hrossið, nautgripurinn og
3 ær fórust, en 5 komust aftur á
land.
Flóðið lenti einnig á íbúðarhús-
inu og náði krapið upp undir
glugga, en ekki sakaði húsið.
Á Borgareyri býr Þórarinn Sig-
urbjörnsson og voru auk hans í
húsinu aldraðir téngdaforeldrar
hans og sonur.
Borgareyrará hefur áður hlaup-
ið, síðast fyrir 35 árum.
Margir þingmenn sem til máls
tóku í eldhúsdagsumræðunum,
vöktu máls á því, að það væri
staðreynd, að enda þótt allir
skipverjar á togurunum ynnu
Sigurbjörg SU 88
Fáskrúðsfirðingar hafa eignazt
nýjan fiskibát. Hann var smíðaður
í Hollandi og er bolur úr stáli.
Þessi nýi bátur er fyrsti stál-
fiskibáturinn, sem Austfirðingur
eignast.
Báturinn heitir Sigurbjörg, ein-
kennisstafir hans eru SU 88.
Sigurbjörg er 68 lestir að stærð
með 200—240 hestafla vél, búin
öllum þeim þægindum og örygg-
istækjum, sem nú tíðkast í bátum
af þessu tagi.
Sigurbjörg hreppti illt veður á
heimleiðinni og er ekki annars get-
ið en að skipverjum hafi fallið
vel við bátinn.
Eigendur Sigurbjargar eru þeir
bræður Pálmi og Helgi Þórðar-
syiúr. Óskar blaðið þeim og Fá-
skrúðsfirðingum ö/llum til ham-
ingju með bátinn,
Sigurbjörg verður gerð út frá
Keflavík á vertíðinni.
Or bænum
Kirkjan
Sunnudagur 6. fsbr.:
Messa kl. 2.
Aímæli:
Árni Haraldsson, verkamaður,
Lækjamóti, varð 60 ára 31. jan. —
Hann fæddist á Tandrastöðum í
Norðfjarðarhreppi, en fluttist
hingáð 1913.
Síðan 26. jan. hefur liér verið
suðlæg átt, stundum hvasst og
rigning. Snjórinn, sem orðinn var
mikill, er nú horfinn, nema úr
giljum.
I fyrradag gerði mjög mikið
hvassviðri og olli það talsverðu
tjóni þá um daginn og í fyrrinótt.
Maður slasast
1 fyrradag var Stefán Þorleifs-
son, íþróttakennari, en hann hef-
ur umsjón með byggingu sjúkra-
nússins, staddur við einhver störf,
ásamt fleiri mönnum, í stofu á
neðstu hæð hússins. Brotnar þá
rúða í stofr.nni og hefur líklega
fok’ð á hana. Lenti hún á andliti
kauplaust, bæri útgerðin sig ekki.
Var auðheyrt, að sumir þingmenn
höfðu ekki fyrr áttað sig á þessu
og að þeir voru furðu lostnir yfir
því.
Þá kom það og fram, að styrk-
irnir til bátaútvegsins væru helm-
ingi hærri en kaup sjómanna og
hlutarmanna í landi.
Og svo dirfast menn að halda
því fram, að verðbólgan og öng-
þveitið í efnahagsmálunum stafi
af því, að hið vinnandi fólk beri
of mikið úr bítum.
En þessar staðreyndir munu
opna augu margra fyrir því, að
það er sjálf stjórnarstefnan, sem
á höfuðsök á öngþveitinu.
Friðrik tapaði
Þegar 7 skákir höfðu verið
tefldar í einvígi þeirra Friðriks
Ölafssonar og Bengt Larsen, voru
þeir jafnir með 31/?. vinning hvor.
Áttunda og síðasta skákm vai
tefld í fyrrakvöld og fóru leikar
svo, að Friðrik tapaði skákinni og
þar með titlinum Skákmeistari
Norðurlanda. Hefur nú keppinaut
urinn, Bengt Larsen, unnið titil-
inn og verður ekki annað sagt en
hann sé vel að honum kominn.
Islendingar hafa árum saman
átt þennan titil, fyrst Baldur
Möller og síðan Friðrik. Væntan-
lega jafnar Friðrik sakirnar við
Larsen næst þegar keppt verður
um titilinn.
Úrslitaskákin birtist í blaðinu i
dag og geta nú skákunnendur i
hópi lesenda skemmt sér við að
grufla það upp hvar Friðriki
hafa orðið mistök á.
Athyglisverð staöreynd
Útgerðin væri rekin með tapi þó
sjómenn störfuðu kauplaust
Stefáns og skarst hann mikið.
Heppni verður það að teljast, að
augun skyldu sleppa ósködduð.
Járn fýkur af gagnfræða-
skólanum
Um þriðjungurinn af járnklæðn-
ingunni á þaki gagnfræðaskólans
sviptist burtu og féll kennsla nið-
ur, enda streymdi vatn niður í
stofurnar.
Járnplötur hafa fokið af nokkr-
um íbúðarhúsum og víða brotnuðu
rúður.
Útihús fjúka
Miklar skemmdir urðu á útihús-
um. Tvö gömul sjóhús fuku, bíl-
skúr Gunnars Ólafssonar fauk
með bílnum og eyðilagðist skúr-
inn en bíllinn skemmdist. Skemma
sem stóð við gamla Prestshúsið
fauk og skemmdir urðu á fjár-
húsum og nokkurt annað tjón
varð.
Fiskhjallar brotna, fiskur
skemmist
Talsvert tjón varð á fiskhjöll-
um Bæjarútgerðarinnar inni á
Sandi og skemmdir á skreið. Það
tjón hefur enn ekki verið metið,
en verður endurgreitt, því hjall-
a.rnir og skreiðin voru tryggð fyr-
ir tjóni af veðri.
Heytjón
Nokkurt tjón varð á heyi »
þrem bæjum í sveitinni, Grænanesi,
Skorrastað og Þrastalundi.
Peningar hverfa
úr íbúð
Fyrir 2-—3 vikum vildi það til,
að úr íbúð einni hér í bænun1
hvarf peningakassi og voru 1
honum 462 krónur. 1 íbúðinni býr
fátæk ekkja með börnum sínun1
og átti sonur hennar ungur pen-
ingana.
Mikil leit hefur verið gerð að
peningunum, en án árangurs °$
telur ekkjan fu'lvíst að þeim haf'
verið stolið. Ekki hefur hún þe
enn kært þjófnaðinn.
Hér á Norðfirði erum við bleSS'
inarlega laus við atburði af þess11
:agi og því vekur það athygli Þe&'
ir slíkf gerist. Hér er að viS11
;kk’ um stórfé að ræða, en Þa^
/ai- sparifé lítils drengs og honu111
ujög sárt um það.
Þeim, sem valdur er að þjófnað
ínum væri sæmzt að skila þýf1111
iftur áður en frekar verður að
lafzt.
Goðanps
landaði hér í gær tveggja dag’
veiði, sem var 104 tonn. Afli^
fékkst fyrir Austurlandi. Skip11
fór aftur á veiðar í morgun.