Austurland - 17.03.1956, Blaðsíða 1
Málgagn sósfalista á Anstnrlandi
6. árgangur. Neskaupstað, 17. marz 1956. 8. tölublað.
Hin illræmda ríkisstjórn Ey-
steins og Ólafs Thors að falla
Kosningar í vor. — Samstarf vinstri manna undirbúið
Þau tíðindi hafa nú gerzt, sem
fáum munu harmsefni, að Fram-
sóknarmisnn hafa séð sig til-
neydda að lýsa yfir því, að þeir
muni rjúfa stjórnarsamstarfið við
íhaldið. Þessi ákvörðun, sem tekin
var af flokksþingi Framsóknar-
manna nýlega, kom engum á ó-
vart, því það var á almannavit-
orði, að svo mundi fara. Andstað-
an gegn íhaldssamvinnunni var
orðin svo mögnuð, að sýnt var, að
hinir afturhaldssömu foringjar
mundi tilneyddir að láta að vilja
hinna almennu flokksmanna, ef
þeir áttu ekki að stefna tilveru
flokksins í beinan voða.
Framsókn er samábyrg
íhaldinu
Með því-að slíta stjórnarsami-
vinnunni hyggst Framsókn vinna
tvennt. 1 fyrsta lagi að koma í
veg fyrir algjört fylgishrun hjá
flokknum og í öðru lagi að skjóta
sér undan ábyrgðinni á þeim
stjórnarathöfnum, sem óvinsæl-
astar eru. En ótrúlegt er, að
flokknum takist það. Hann ber
fullkomlega sinn hluta af ábyrgð-
inni. Eysteinn hefur síður en svo
verið eftirbátur Ólafs Thors og
Bjarna Ben. í árásunum á lífskjör
alþýðunnar, Aldrei hefur staðið á
Framsókn í þeim efnum og oft
hlefur hún átt frumkvæðið. —■
Var það ekki Eysteinn Jónsson,
sem krafðist þess í vetur, að 80
millj. kr. nýjum sköttum væri
bætt á skattabyrði þá, semi fyrir
var, algerlega að þarflausu? —
Voru það ekki Framsóknarmenn
sem ásamt íhaldinu veltu 230—
240 millj. kr. byrði á bök al-
mennings í stað þess að taka það
fé af okurgróða stórfyrirtækja
eins og sósíalistar hafa lagt til ?
Hefur ekki Framsókn ásamt
íhaldinu staðið í samningamakki
við brezka útgerðarmenn um und-
anhald í landhelgismálinu ? Svona
mætti lengi spyrja og svarið er
jafnan það, að Framsókn hafi
engu síður en íhaldið staðið að
óhæfuverkum hinnar feigu ríkis-
stjórnar.
Til skammis tíma hefur ekki
annars orðið vart, en að Fram-
sóknarforingjarnir kynnu vel við
sig í faðmlögunum við íhaldið.
Og foringjatryggir Framsóknar-
menn hafa af kappi varið gerðir
stjórnarinnar og talið öll hennar
verk góð. Það er dálítið broslegt
að sjá limaburð þessara manna
nú. Nú geta þeir eiginlega í hvor-
uga löppina stigið af monti yfir
því, að foringjarnir skuli nú hafa
slitið stjórnarsamvinnunni og nú
sjá þessir skrítnu menn harla fátt
nýtilegt við Eysteins-Thors-
stjórnina.
Miðflokkasamvinna
I allan vetur hafa staðið yfir
viðræður milli Framsóknar og
Alþýðuflokksins — þ. e. a. s.
hægra arms hans, sem ræður mið-
stjóminni — umi samstarf í næstu
kosningum. Tveir sprenglærðir
prófessorar hafa af kappi lagt
saman og dregið frá til að reyna
að finna það út hvemig hagan-
legast væri að haga framboðum
til þess að samsteypan fengi sem
flesta þingmenn. — En gallinn er
bara sá, að allir þessir útreikn-
ingar eru bandvitlausir. Reikni-
meistararnir taka það ekki með í
reikninginn, að fólkið lætur ekki
verzla með sig eins og fénað. Það
er vitað að báðir þessir flokkar
eru þverklofnir og einkum hefur
það verið áberandi með Alþýðu-
flokkinn,
Tilgangur þessa samstarfs er
sá einn, að reyna að forða nokkr-
um Framsóknarþingmönnum frá
að falla, en við borð liggur að
Framsókn tapi nokkrum þing-
sætum.
Engum dettur í hug að -þessi
óbjörgulega samsteypa geti feng-
ið meirihluta á þingi.
Hvað verður eftir kosningar?
Eysteinn veit það eins vel og
allir aðrir, að hægri Framsókn-
armenn og hægri kratar geta ekki
fengið meirihluta. Þegar sú stað-
reynd liggur fyrir eftir kosning-
ar, hugsar hann sér að taka
íhaldssamvinnuna upp á ný og þá
eiga hægri kratar að vera mieð,
ef þeir verða þá ekki þurrkaðir út
af þingi.
Ihaldið er að tapa
Allar líkur benda til þess, að í
vetur, sérstaklega frá því um ára-
mót, hafi mjög þorrið fylgi
íhaldsins og mun það nú vonlaust
um meirihluta, sem það þóttist
áður sjá hylla undir. Mjög er lík-
legt að það tapi einhverjum þing-
mönnum til vinstri manna, t. d. á
Siglufirði og Vestmannaeyjum, en
það ber að játa, að það hefur
Þriðjudaginn 21. febr. var
hleypt af stokkunum í skipa-
smíðastöð Dráttarbrautarinnar
h. f. nýjum fiskibáti nær 59 lesta
stórum. Hlaut hann nafnið Langa-
nes N. K. 30. Eigendur hans eru
bræðurnar Ársæll og Þorsteinn
Júlíussynir,
Langanes fór áleiðis til Kefla-
víkur um mánaðamótin, en þaðan
verður það gert út í vetur.
Langanes er sterklegur bátur
og vel útbúinn. Meðal annars hef-
ur hann fisksjá og 10—12 manna
gúmmíbjörgunarbát. í bátnum er
240—375 ha. dieselvél og er gang-
hraði a. m. k. 13 sjómílur.
Báturinn var smíðaður eftir
teikningu Egils Þorfinnssonar,
skipasmíðameistara í Keflavík.
Yfirsmiður var Sverrir Gunnars-
son. Vélsmiðja Dráttarbrautar-
innar annaðist niðursetningu vél-
ar og fleira þar að lútandi. Yfir-
möguleika til að vinna örfá
sveitakjördæmi frá Framsókn.
Alþýðusambandið beitir sér
fyrir vinstri samvinnu
Alþýðusambandið hefur nú um
skeið barizt fyrir því, að vinstri
öflin í landinu tækju höndum
saman um myndun ríkisstjórnar,
sem starfaði í samræmi við hags-
muni alþýðunnar. Sambandinu er
það ljóst, að verkalýðurinn verður
að ná áhrifum í stjórn landsins,
eigi ekki jafnóðiun að eyðileggja
árangra kjarabaráttunnar. —
Ekki hefur tekizt að gera banda-
lag vinstri flokkanna að veru-
leika, en viðleitni Alþýðusam-
bandsins hefur fengið miklar og
góðar undirtektir um land allt.
Og f jöldi manna í öllum) andstöðu-
flokkum íhaldsins krefst vinstra
samstarfs. Þeim er það ljóst, að
bandalag hægri manna krata og
Framsóknar á ekkert skylt við
vinstra samstarf, heldur er þar
einungis um að ræða pólitískar
brellur og hrossakaup.
Sambandsstjórn Alþýðusam-
bandsins, en í henni eiga sæti
Framhald á 2. síðu.
maður vélsmiðjunnar er Reynir
Zoega. Raí'iagnir annaðist Raf-
tækjavinnustofa Kristjáns Lund-
berg.
Á nýsköpunarárunum voru
smíðaðir hér þrír fiskibátar, en
siðan hefur nýsmíði legið niðri.
Það er mjög ánægjulegt að þessi
iðnaður skuli hafinn að nýju, því
hann er ákaflega mikils verður.
Og ekki mun skipasmíðastöðina
skorta verkefni á næstunni, því
hún hefur te,kið að sér smíði
þriggja báta til viðbótar.
Langanes mun vera stærsti bát-
urinn sem smíðaður hefur verið á
Austurlandi til þessa.
Skipstjóri á bátnum) er Þor-
steinn Júlíusson, annar eigandi
hans.
Austurland óskar eigendum
Langaness ýl hamingju með þenn-
an myndarlega bát.
Nýr bátur:
Lctnganes N. K. 30