Austurland - 18.05.1956, Page 1
Málgagn sósfalisfa á Austurlandi
6. árgangur. Neskaupstað, 18. maí 1956. 16. tölublað.
Kosningafmidir
á Austurlandi
Framboð Alþýðubanda-
lagsins í Suður-Múlasýslu
Frantboðslista Alþýðubandalagsins í Suður-Múlasýslu skipa
þessir menn:
Lúðvík Jósepsson, aiþingismaður, Neskaupstað.
Helgi Seljan, kennari, Reyðarfirði.
Sigurður Blöndal, skógarvörður, Hallormsstað.
Ásbjörn Karlsson, sjómaður, Djúpavogi.
Lúðvík Jósepsson er ekki þörf
að kynna fyrir austfirzkri alþýðu.
Hann hefur í fulla tvo tugi ára
staðið í fylkingarbrjósti í baráttu
austfirzkrar alþýðu og Austfirð-
inga yfirleitt fyrir hagsmunamál-
um fjórðungsins. Á Alþingi hefur
hann átt sæti síðan 1942 og reynzt
þar sem annars staðar hinn ötul-
asti maður. Hann er viðurkennd-
ur af andstæðingum jafnt sem
samherjum fyrir dugnað og ósér-
plægni og þekking hans á sérmál-
um þessa fjórðungs og atvinnu-
málum þjóðarinnar er frábær. 1
bæjarstjórn Neskaupstaðar hefur
hann átt sæti síðan 1938 og lengst
af verið forseti hennar.
Lúðvík er löngu landskunnur
fyrir afskipti sín af þjóðmálum
og er viðurkenndur sem sérstak-
lega glöggskyggn stjórnmálamað-
ur og laginn við að koma sínu
máli fram.
Lúðvík Jósepsson er glæsilegur
fulltrúi austfirzkrar alþýðu, hold
af hennar holdi og blóð af hennar
blóði. Og í þessum kosningum mun
alþýða þessa kjördæmis launa
honum ötula og óeigingjarna for-
ystu með því að veita honum meira
brautargengi en nokkru sinni áð-
ur. Og nú þarf líka mikils við. Til
að tryggja Lúðvíki þingsæti þarf
austfirzk alþýða að fylkja sér um
lista Lúðvíks fastar en nokkru
sinni. Fylgi Alþýðubandalagsins
mun livarvetna reynast mjög mik-
ið og koma margir frambjóðendur
þess til greina við úthlutun upp-
bótasæta. Þess vegna þarf Lúðvík
á allmjög auknu kjörfylgi að
halda. Og það er mikið hagsmuna-
mál Austfirðinga, að þeir láti það
kjörfylgi í té, því fall Lúðvíks er
þeirra tjón. Og þetta munu kjós-
endur skilja og haga sér sam-
kvæmt því.
Helgi Seljan er annar maður á
lista Alþýðubandalagsins. Hann
er aðeins 22ja ára gamall, en er
þó þegar þekktur maður fyrir þátt.
töku sína í félagsmálum. M. a. var
hann um skeið formaður Sam-
bands bindindisfélaga í skólum.
Helgi lauk kennaraprófi vorið
1953 og næstu tvo vetur var hann
kennari á Fáskrúðsfirði, en er nú
kennari við barnaskólann á Reyð-
arfirði. Hefur hann hvarvetna
getið sér hið bezta orð.
Helgi hefur fylgt Þjóðvarnar-
flokknum að málum, en telur
hann hafa brugðizt skyldu sinni,
er hann hafnaði þátttöku í Al-
þýðubandalaginu. Hann er vara-
maður í miðstjórn flokksins.
Helgi er í flokki yngstu fram-
bjóðenda við þessar kosningar, ef
ekki yngstur. Það má því líta á
hann sem fulltrúa æskulýðsins á
listanum. Og austfirzkum æsku-
lýð er sómi að þeim fulltrúa og
mun Ijá honum brautargengi.
Helgi er maður vel máli farinn og
fylginn sér.
Sigurður Blöndal, þriðji maður
á listanum er þekktur maður hér
um slóðir. Hann er greindur mað-
ur og gegn sem hann á kyn til.
Hann er alinn upp á Hallormsstað,
einhverjum fegursta reit á Islandi
og hann hefur valið sér það starf
að hlúa að þeim stað. Sigurður er
skógfræðingur að menntun.
Sigurður Blöndal er virðulegur
fulltrúi frjálslyndrar og framsæk-
innar sveitaalþýðu og verður ekki
öðru trúað, en að margir úr henn-
ar hópi veiti honum brautargengi
með því að kjósa lista Alþýðu-
bandalagsins.
Ásbjörn Karlsson, fjórði maður
á listanum, er formaður verklýðs-
félagsins á Djúpavogi og meðlim-
ur í sambandsstjórn Alþýðusam-
Lúðvlk Jósepsson.
bands Islands. Hann er meðlimur
í Alþýðuflokknum og fréttaritari
Alþýðublaðsins í sínu byggðalagi.
Við síðustu Alþingiskosningar
skipaði hann þriðja sæti á lista
Alþýðuflokksins í þessu kjördæmi.
Listi Alþýðubandalagsins í Suð-
ur-Múlasýslu ber það greinilega
með sér að hann er listi framsæk-
inna vinstri manna. Menn, sem til
þessa hafa skipað sér í ýmsa
stjórnmálaflokka, hafa tekið
höndum saman og látið niður falla
fornar væringar. Þeir eru stað-
ráðnir í því að koma á öflugum
samtökum þess fólks, sem í höf-
uðatriðum á sömu hagsmuna að
gæta og hefur svipaðar skoðanir
á þeim málum, sem einhverju
skipta í þjóðmálum.
Orðsending
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
liefst sunnudaginn 27. maí. Allir
kjósendur Alþýðubandalagsins sem
ekki gera ráð fyrir að verða heima
á kjördegi, eru áminntir um að
greiða atkvæði.
Áður en utankjörfundaratkvæða
greiðslan hefst mun Alþýðubanda-
iagið opna kosningaskrifstofu og
verða þar veittar aliar uppiýsing-
ai varðandi kosningarnar.
Framsókn og íhald hafa nú
haldið nokkra kjósendafundi hér
á Austurlandi, íhaldið 5 og
Framsókn 6. Á íhaldsfundinum
mættu sem frummælendur Bjarni
Benediktsson og Jóhann Haf-
stein, en Eysteinn hafði með sét
frítt föruneyti Sunnlendinjga og
var auðséð að ráðherranum þótti
nú mikið við liggja. Auk hans og
Vilhjálms á Brekku mættu sem
frummælendur bæjarstjórarnir
Stefán Gunnlaugsson og Daníel
Ágústínusson, sem báðr eiga líf
sitt sem bæjarstjórar undir náð
sósíalista, Guðmundur 1. Guð-
mundsson, sýslumaður, og alþing-
ismennirnir Eggert Þorsteinsson
og Páll Zophoníasson.
Af hálfu Alþýðubandalagsins
var mætt á tveim fundum íhalds-
manna þg öllum hræðslutjanda-
lagsfundunum. Var þó aðstaða
bandalagsins á hræðslubandalags-
fundunum erfið að því leyti, að
því var skammtaður naumur
ræðutími, þrír stundarfjórðungar
á hverjum. fundi, en hinir höfðu
ótakmarkaðan ræðutíma og tóku
til sín að jafnaði þrjár til fjórar
stundir. Og á fundinum* hér í bæ
henti það sig, sem menn telja yf-
irleitt til ódrengskapar, að frum-
mælendur notuðu lokaræður sínar
þegar víst var að menn áttu þess
ekki kost að andmæla, til að hella
botnlausum svívirðingum yfir and-
stæðinga sína.
Þrátt fyrir þennan aðstöðumun
kom það greinilega í ljós, að Al-
þýðubandalagið á miklu fylgi að
fagna hér í kjördæminu og á það
áreiðanlega eftir að sýna sig betur
þegar líða tekur á kosningabar-
áttuna, og á kjördegi.
Hér eru ekki tök á að rekja
þessi fundarhöld og það sem fram
fór á fundunum, en athygli vakti
það, hve málefnafátækt stjórnar-
flokkanna beggja var áberandi.
Af þeirra hálfu liggur ekkert fyr-
ir um það hvað flokkarnir ætla sér
yfirleitt að gera eftir kosningar.
Fundirnir voru yfirleitt vel
sóttir og fóru vel fram þar sem
blaðið hefur haft spurnir af.