Austurland - 22.06.1956, Page 6
6
AUSTURLAND
Neskaupstað, 22. júní 1956.
Eyþór Þórðarson:
Oddur og drengskapurinn
Ég hafði ekki ætlað mér að
fara að eiga í blaðadeilum við þig,
Oddur A., en mér finnst ég varla
komast hjá að beina til þín nokkr-j
um orðum, þar sem þú sýnir mér
þann einstæða drengskap í síðasta
Hamri þínum að sletta að mér
nokkrum dylgjum og uppnefnum.
Þú dreifir þessum óhroða vítt
um blaðið, líkt og rúsínum er dreift
í kepp, og þótt þetta sé þannig
framsett, að lítt sé skiljanlegt er
reynt að vekja á því athygli með
gæsalöppum og undirstrikunum.
Sjálfsagt gengur þér dreng-
skapur einn til þessa, hefnigirni
getur það trauðla verið, því að
ekki er mér kunnugt um að ég
hafi nokkuð gert á hluta þinn.
Þú telur þáð bera vott um spillt
siðferði, að ég skuli leyfa mér að
hvetja Alþýðuflokksmenn hér í
kjördæminu til þess að kjósa Lúð-i
vík nú og stuð.'a þannig að því að
Alþýðuflokkurinn geti fengið upp-
bótarmann á kostnað Pramsókn-j
ar, en þú viðurkennir þó að þetta
sé rétt athugað hjá mér.
Ég get ekki séð neitt ódrengi-
legt við það, þótt menn breyti
samkvæmt sannfæringu sinni eins
og líka þú ætlaðir að gera áður en
þú eygðir Eystein með bauna-
skammtinn. Vonandi gleymir Ey-
steinn þér ekki að afstöðnum kosn-
ingum, þótt hann kannski gleymi
þörfum kjördæmisins.
Ef við Alþýðuflokksmenn í S-
Múlasýslu hefðum verið spurðdr
um það hvort við vildum styðja
Framsókn í þessum kosningum og
við samþykkt það áður en fram-
boð voru hér ákveðin, þá hefði
mátt segja að ódrengilegt hefði
verið að hvetja menn til hins
gagnstæða. En því var nú ekki
að heilsa. Álits okkar var ekki
leitað þar um, en í þess stað var
sendur hingað sérstakur sendiboði
þegar allt hafði verið ákveðið, til
þess að skipa okkur að hlýða og
sætta okkur við gerðir flokks-
stjórnar.
Ég spyr þig nú Oddur A. Eru
slík vinnubrögð drengileg og í
samræmi við það lýðræði, sem þú
þykist dá og fylgja?
Ég kalla að með þessu sé okkur
Alþýðuflokksmönnum hér sýnd
sérstök lítilsvirðing og það miklu
meiri en almennt gerist jafnvel í
þessum kosningum. Hví mátti ekki
senda manninn fyrst og leita á-
lits okkar og samþykkis eins og
gert var víðast hvar annars stað-
ar, t. d. hér í næsta kjördæmi,
Seyðisfirði. Þar leyfði flokkstjórn-
in sér ekki að gefa út neinar fyr-
irskipanir, heldur fóru þeir bón-
arveg að flokksmönnum þar og
þeir féllust á og samþykktu að
láta að óskum hennar.
Þá er það hin kristilega kenning
um að menn skuli fyrirgefa mót-
gerðir og gjalda illt með góðu.
Svo virðist sem þessi kenning hafi
! eitthvað bögglast fyrir brjósti
, þínu Oddur A. ekki síður en mínu.
I Að minnsta kosti virðist þú mjög
| hneykslaður á því að ég skuli geta
stutt Lúðvík nú, þar sem hann
hafi beitt mig hörðu fyrir mörgum
árum. Hinsvegar finnst þér ámæl-
isvert að ég skuli ekki leggjast
hundflatur fyrir Eysteini og
Framsókn þegar í mig er sparkað
úr þeirri átt.
É|g hafði nú ekki hugsað mér að
spyrja þig leyfis Oddur A. um það,
hverjum ég megi reiðast, né hverj-
um ég eigi að fyrirgefa mótgerðir.
En það get ég sagt þér að Ey-
steinn hefur ekki síður brotið á
mér rétt og siðferðileg lög en Lúð-
vík og kommarnir og átti ég það
þó áreiðanlega síður skilið af hon-
um en þeim.
Þá lineykslast þú, sjálfur lang-
hundahöfundurinn, á því að ég
skrifi of langar greinar. Hefði ég
beðið um rúm fyrir þær í Hamri
þínum, þá var það skiljanlegt að
þú sæir eftir rúminu, en þar sem
þær komu í Austurlandi, sé ég
ekki að lengd þeirra komi þér við.
En mikið hefðir þú líklega skrifað
langar, drengilegar og vingjarn-
legar greinar um mig ef ég hefði
átt í jafnlöngum erjum við þig og
ég hef átt við kommana hér í
Framhald á 2. síðu.
Verkamaður, verkakona
Hafið þið gert ykkur grein fyrir eftirfarandi, sem nauðsynlegt
er, að hver einasti verkamaður og verkakona geri sér grein fyr-
ir áður en gengið er að kjörborðinu?
1. Framsóknarflokkurinn hefur enga grein gert fyrir því,
hvaða leiðir hann ætlar að fara til að leysa efnahagsvandamál-
in. En það hefur óvart skotizt upp úr sumum leiðtogum flokks-
ins, að úrræðin eru gengisfelling og kaupbinding. Það á með
öðrum orðum enn á ný að „leysa“ vandann á kostnað almenn-
ings en auka að sama skapi gróða braskaralýðsins í Reykja-
vík.
Verkalýðurinn hefur áður fengið að kynnast þessum „úrræð-
um“ og hefur reynslu af því, að gengislækkun og kaupbind-
ing er ekkert bjargráð. Hann hefur líka þá reynslu, að Fram-
sóknarflokkurinn er höfuð málsvari gengislækkunar og kaup-
bindingar. -
Ætlar þú svo, verkamaður og verkakona, að kalla yfir þig
gengislækkun og kaupbindingu með því að kjósa Framsóknar-
flokkinn ?
2. Tilgangurinn með því að stofna Alþýðubandalagið er sá,
að efla áhrif alþýðusamtakanna á Alþingi. Svo er nú komið, að
ríkisvaldið er orðinn hinn raunverulegi gagnaðili verkalýðsins í
samningum um kaup og kjör, og hægt er með opinberum ráð-
stöfunum að svipta verkalýðinn hverri kjarabót sem honum
tekst að ávinna sér. Er þar skemmst að minnast, er Alþingi og
ríkisstjórn hefur að mestu eða öllu leyti eyðilagt árangur síð-
ustu verkfallsbaráttu með skefjalausum verðhækkunum. Á með-
an alþýðusamtökin ekki hafa ríkari ítök á Alþingi en nú, er víst,
að hverri kjarabót verkafólks verður mætt með nýrri verð-
hækkunaröldu. Verkfallsvopnið er því að verulegu leyti óvirkt
sem stendur. Það er því lífsnauðsyn fyrir alþýðuna, að efla
stjórnmálasamtök alþýðusamtakanna í kosningunum á sunnu-
daginn kemur. Því aðeins getur hún vænzt þess að árásunum á
lífskjör hennar linni.
Telur þú, verkamaður og verkakona, að þú hafir efni á því
að standa gegn stjórnmálasamtökum verklýðssamtakanna ? Tel-
ur þú þig hafa efni á að kjósa íhald eða Framsókn og veita
þeim flokkum aðstöðu til áframhaldandi árása á lífskjör þín?
Kjörseðill
við Alþingiskosningarnar í Suður-MúlasýslU 24. júní 1956.
B-listi Framsóknarflokkur. D-listi Sjálfstæðisflokkur. F-listi Þjóðvarnarflokkur. X G-listi Alþýðubandalagið.
Eysteinn Jónsson Vilhjálmur Hjálmarsson Stefán B. Björnsson Stefán Einarsson Einar Sigurðsson Axel V. Tulinius Páll Guðmundsson Ingólfur Fr. Hallgrímsson Björn Sveinsson Kristján Ingólfsson Lára Jónasdóttir Árni Stefánsson Lúðvík Jósepsson Helgi S. Friðriksson Sigurður Blöndal Ásbjörn Karlsson
A-listi Landslisti Alþýðuflokksins. B-listi Landslisti Framsóknarflokksins. D-listi Landslisti Sjálfstæðisflokksihs. F-listi Landslisti Þjóðvarnarflokksins. G-listi Landslisti Alþýðubandalagsins.
Þannig lítur kjörseðillinn út þegar listi Alþýðubandalagsins — G-listinn — hefur verið kosinn.
Samiaka nú, Lúðvík skal á ping xG