Austurland - 29.06.1956, Blaðsíða 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 29. júní 1956.
íhaldið og herinn
ast út um landið og leggja hugi
fólksins undir sig.
Og leikur íhaldsins verður ekki
stöðvaður með öðru móti en því,
að herinn fari, svo reynslan af-
sanni þá kenningu íhaldsins að hér
sé ekki líft án erlendrar hersetu.
Þjóðin krefst þess af öllum þeim
flokkum, sem í kosningabarátt-
unni hétu að losa hana við her- !
námið og sem nú hafa öruggan
meirihluta á þingi, 33 af 52 þing-
mönnum eins og sakir standa, að
þeir standi við orð sín og láti her-
inn hverfa úr landi á eins skömm-
um tíma og samningurinn heimil-
ar stytztan.
Vei þeim flokkum, sem ekki
standa við það loforð, sem þeir
gáfu þjóðinni, að láta herinn fara.
Maður slasast
Þegar verið var að afgreiða
Brúarfoss á þriðjudagsmorgun,
varð það slys, að aldraður verka-<
maður, Valdimar Sigurðsson, 67
ára að aldri, fótbrotnaði.
Slysið varð með þeim hætti sem
nú skal greina:
Valdimar stóð á palli vörubif-
reiðar og tók á móti vörum frá
skipshlið. Vildi það þá til, að búnt
af bárujárni féll á hann og fót-
braut hann og hrökk Valdimar
jafnframt út af bílnum, en ekki
mun hann hafa meiðst við fallið.
Læknirinn taldi ráðlegast að
flytja manninn á sjúkrahús. Út-
vegaði hann þegar í stað sjúkra-
flugvél og gekk það greiðlega og
eins flutningurinn suður.
Líðan Valdimars er sögð góð
eftir atvikum.
Vanrœktur
vegur
«
Oddsskarðsvegur varð að þessu
sinni fær bilum þegar í apríl, sem
er óvenju snemma árs.
Auðvitað þarf að lagfæra ýmis-
legt á vegum þegar þeir opnast á
vorin. Einkum þarf að bæta úr
skemmdum, sem vatnsrennsli veld-
ur. Og þetta þarf að gera sem
fyrst eftir að vegir þorna.
Nú er komið fram í lok júnímán-
aðar og er enn ekkert farið að
sinna lagfæringum á Oddsskarðs-
vegi. — Þess væri þó full þörf, því
víða hefur leysingavatn skolað
burtu fíngerðum ofaníburði og
fleiri smáskemmdir eru á veginum,
sem auðvelt er úr að bæta án mik-
ils tilkostnaðar. Heflun á veginum
mundi vafalaust verða til mikilla
bóta, en meira að segja svo smá-
vægileg viðgerð er vanrækt.
Það er krafa Norðfirðinga og
annarra, sem um þennan veg fara,
að hann sé þegar í stað lagfærð-
ur. Hafi verkstjórinn ekki tíma til
þess, vegna vinnu á Fáskrúðs-
fjarðarvegi, verður að útvega aðra
menn til að sjá um verkið og
vinna það.
Fáskrúðsfjarðarvegur er mjög
slæmur, enda langt frá því að
vera fullgerður. Tiltölulega smá-
vægilegar lagfæringar á Odds-
skarðsvegi eiga ekki að þurfa að
tefja framkvæmdir á Fáskrúðs—
fjarðarvegi.
íVorðfirðingar á síld
Eftirtaldir 9 Norðfjarðarbátar
taka þátt í síldveiðunum í sumar
og eru þeir flestir þegar farnir út:
Þegar við virðum fyrir okkur
kosningaúrslitin er mjög áberandi
hvað íhaldið hefur mikið fylgi í
þéttbýlinu við Faxaflóa, og svo
aftur á móti hve vegur þess er
lítill viðast hvar utan þessa svæð-
is. Þessi staðreynd er vissulega
þess virði að henni sé gaumur
gefinn.
Hvemig má það vera, að fólkið,
sem flutt hefur til Reykjavíkur
og nágrennis, skuli í jafn ríkum
mæli verða íhaldinu að bráð?
Heima í átthögunum aðhylltist
flest þetta fólk aðra flokka og
skyldi eðli og tilgang íhaldsins.
Allir vita, að íhaldið hefur yf-
ir öflugri áróðurstækjum að ráða
en allir flokkar aðrir samanlagt.
Og með tilstyrk þessara tækja
tekst því að rugla í ríminu furðu
marga, sem ekki hafa fastmótaðar
skoðanir og ekki fylgjast nægi-
lega vel með í þjóðmálum.
íhaldið hefur líka sérstaklega
öfluga fjárhagslega aðstöðu og
þeirri aðstöðu beitir það af full-
komnu samvizkuleysi sér til fram-
dráttar.
Þetta hvort tveggja eru gamaú
kunnar staðreyndir.
En hér við bætist annað.
Allir andstöðuflokkar íhaldsins
lýstu yfir því, að þeir vildu segja
upp hernámssamningnum og reka
herinn úr landi.
íhaldið tók aðra stefnu. Þess
stefna er sú, að viðhalda hernám-
inu með allri þess spillingu og
glundroða. Og jafnframt hóf það
þá kenningu í Reykjavík og á
Suðurnesjum, að brottför hersins
mundi þýða eymd og atvinnuleysi.
Þarna við Faxaflóa er margt
manna, sem sækir ,,lifibrauð“ sitt
beint eða óbeint til hernámsliðs-
ins. Auk erfiðismanna, sem vinnu
sækja á Völlinn, lifa á honum
margskonar sníkjudýr, allskonar
braskarar, og verktakar raka þar
saman auði. Hverskonar meglarar
og lögbrjótar þrífast í skjóli her-
námsins, o. s. frv. — Sníkjudýrin
vilja auðvitað ekki missa herinn.
Þau eiga sér ekkert föðurland og
enga guði, annan en auð og völd.
Og þessi lýður hefur auðvitað
kosið íhaldið — kosið herinn. Og
hætt er við að margt verkafólk
hafi látið blekkjast at atvinnuleys-
isgrýlunni, þó vitað sé, að íslenzk-
ir atvinnuvegir æpi 4 vinnukraft.
Með þessum svívirðilega áróðri er
ihaldið að reyna að læða þeirri
skoðun inn hjá fólki, að hér á
landi sé raunverulega ekki líft
nema her og hernámsvinna sé í
landinu. Það er verið að brjóta
niður trú þjóðarinnar á landið.
Það er verið að eyðileggja sið-
ferðisþrek hennar og mótstöðuafl
gegn erlendri ásælni. Þennan ljóta
leik verður að stöðva þegar í stað,
áður en spillingaráhrifin af siða-
kenningum íhaldsins taka að braið-
Verdur
síld ?
Þetta er hin mikla spurning sem
allir spyrja og mikið veltur á
hvernig reynslan svarar henni.
Margir eru nú bjartsýnir á
veiðihorfur og talsvert hefur þeg-
ar orðið vart við síld.
Takist vertíðin vel mun margt
breytast á landi hér. Útgerðin mun
bæta hag sinn verulega og veitir
ekki af, sjómenn munu bera góðan
hlut úr býtum og ástandið í pen-
ingamálum þjóðarinnar mun mjög
breytast til hins betra.
Það verður því áreiðanlega
fylgzt af athygli með veiðunum í
sumar.
Síldarverð hefur hækkað veru-
lega. Verð á bræðslusíld er nú 80
krónur og 120 kr. er verð á upp-
mseldri tunnu til söltunar.
Björg
Goðaborg
Glófaxi
Gullfaxi
Huginn
Langanes
Magnús Marteinsson
Sæfaxi
Þráinn.
Fimm þessara báta eru innan
eins árs gamlir.
Ekki von að
vel færi
Oddur Sigurjónsson er mikill ó-
heillafugl. Þar sem hann skipar
sér í sveit er ósigur óumflýjan-
legur.
I þessum kosningum fylgdi Odd-i
ur Eysteini fast og gerðist með-
reiðarsveinn hans hér um sýsluna.
— Eysteinn kom auðvitað fljótt
auga á hve vafasamur ávinningur
var að stuðningi Odds. Hann lét
því ljúga því í hann fyrir hádegi
á kosningadaginn, að Eyþór væri
að fara til Reyðarfjarðar til að
telja Alþýðuflokksmenn á að kjósa
Lúðvík. Var Oddur beðinn að
bregða við hart og hraða sér á
Reyðarfjörð og verða á undan Ey-
þóri. Oddur rauk af stað og beið
daglangt á Reyðarfirði eftir Ey-
þóri, en hann kom aldrei, enda
hafði það aldrei komið til tals að
hann færi.
En það var ekki von að vel tæk-
ist fyrir Framsókn úr því Oddur
var þar í liði og það framarlega.
Ósigur og flótti væri viðeigandi
kjörorð handa Oddi.
Unnið að rafveitu-
kerfi um Austfirði
Á síðastliðnum vetri voru reist-
ir rafmagnsstaurar á leiðinni frá
Reyðarfirði til Eskifjarðar og í
vor var raflína strengd á staurana.
Er þetta hluti af dreifingarkerfi
um Austurland frá Grímsárvirkj-
un.
1 vor hefur verkinu verið haldið
áfram og er nú verið að Ijúka við
að reisa staura milli Eskifjarðar
og Neskaupstaðar, en ekki er enn
byrjað að strengja vír á þá staura.
Á næstunni verður byrjað að
reisa staura frá Eskifirði um Eski-
fjarðarheiði til Egilsstaða.
Áður hefur raflína verið lögð
frá Seyðisfirði til Egilsstaða og
fengu Egilgstaðamenn næturraf-
magn frá Seyðisfirði í fyrravetur.
Sennilega tekst að Ijúka yfir-
standandi framkvæmdum í raflínu-
lögnum í haust og yrði þá hægt að
miðla raforku milli stöðvanna í
Neskaupstað, Reyðarfirði, Egils-
stöðum og Seyðisfirði.
Þakkir
I nýafstöðnum kosningum lögðu margir fram mikið og
óeigingjarnt starf til að stuðla að sigri Alþýðubandalagsins og
kosningu Lúðvíks Jósepssonar.
Alþýðubandalagið vill hér með færa öllu þessu fólki og
öllum þeim, er á einn eða annan hátt stuðluðu að sigri G-list-
ans, alúðarþakkir fyrir árangursríkt starf.