Austurland - 03.08.1956, Síða 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 3. ágúst 1956.
Bílasmiðja
Við komum aftur til Moskva úr
för okkar til Stalíngrad og Astra-
kan 13. maí.
Daginn eftir skoðuðum við bíla-
smiðju. Þar vinna um 10 þús.
manns og eru um 22% þei'rra kon-
ur. Verksmiðja þessi smíðar hinar
cvonefndu Moskoviteh-bifreiðar.
Þegar vi'ð komum þarna var verið
að hefja smíði bíla eftir nýju mód-
eli og er þeim breýtt og stækkað-
ir verulega frá því sem áður var.
Meðallaun í verksmiðjunni voru
sögð um 950 rúblur á mánuði.
Bílasm'ðjan rekur þrjú barna-
heimili, tvær vöggustofur, tvo
kvöldskóla og eiim tækniskóla.
Skrifstofufólk verksmiðjunnar
virtist nær eingöngu konur.
Sælgætisverksniiðja
Við heimsóttum mikla sælgæt-
isverksmiðju, sem bsr nafnið
„Rauði október". Þar vinna um
3000 manns og er 75—80% þeirra '
konur, þar á meðal framkvæmda-
stjórinn. I verksmiðju þessari er
mikil tækni og margbrotnar vélar. '
Verksmiðja þessi framleioir hvers
konar sælgæti1 og fengum við að
bragða það sem okkur lysti og
vorum leyst út með sæ'gætisgjöf-
um.
Kreml
Kreml er sá staður, sem oftar
er nefndur en flestir staðir aðrir.
Sumum stendur ógn og ótti af
nafnihu, en aðrir telja þar höfuð-
stöovar frelsis og mannréttinda.
Kreml er margar gamlar bygg-
ingar og er múr einn mikill um-
hverfiis. Þarna er t. d. þinghúsið
og margar kirkjur :ru innan múrs-
ins. I Kreml var aðsetur keisar-
anna eftir að þeir fluttu aðsetur
sitt frá Pétursborg (nú Lenin-
grad) til Moskva og síðar aðsetur
Sovétstjórnarinnar.
Kreml er nú að miklu leyti
sögulegt safn.
Við heimsóttum þennan sögu-
fræga stað, en ekki höfðum við
tíma til að skoða nema lítið eitt
af því, sem þar var að sjá.
Þarna er að sjá mikið safn alls
konar vopna og vopnabúnaðar frá :
fyrri tíð, t. d. vopn og verjur ridd-
ara og fótgönguliða á fyrri öldum.
Einnig er þar safn hverskonar
persónulegra muna úr eigu kefs-
aranna. Við sáum t. d. klæðnað
Péturs mikla og stígvél hans, sem
eru þau stærstu, sem ég hef séð. j
Pétur mikli var stór maður vexti
2 metrar og 4 sentímetrar að hæð
að því er okkur var sagt. Þarna
var og skrautlegur og íburðarmik-
511 borðbúnaður keisaranna, t. d.
drykkjarhorn gullskreytt og tveir
gullbakkar, annar frá tíma Ivans
grimma og var þyngd þeirra 3 og
4 kg. Hásæti kei'saranna eru mjög
skreytt gulli og gimsteinum.
Hestvagnar keisaranna og sleð-
ar voru líka varðveitti'r þarna og
voru stoppaðir hestar spenntir
fyrir, rétt eins og farartækin væru
Ferðaþæilir frá
Sovéiríkj unum
Frásögn Siguröar Hinrikssonar
thbúin til notkunar. Fyrir keisara- | 1500 rúblur í mánaðarlaun greiðir
sleða sá ég spennta 6 uppstoppaða -\ 54 rúbiur. Þessir menn eru 1—2
gæOinga, alla snjóhvíta og stór- j daga að vinna fyrir mánaðarhúsa-
vaxna.
Þó frá mörgu sé að segja frá
komu okkar til Kreml, verður
þetta að nægja.
I matvörubúð
Við komum í matvörubúð. Var
þar mikið að gera og margir að
verzla og virtist mér fólk ekki
skorta fé. Hið sama sýndist mér í
öorum verzlunum, sem ég kom í.
breytt matvöruúrval, þar á meðal
'slsnzkur freðfiskur og Faxasíld.
Var okkur sagt, að fiskurinn værf
eftirsóitur og líkaði mjög vel.
Nýtt íbúðarliús skoðað
Húsnæðisekla er í Mokva vegna
mikilla flutninga til borgarinnar,
sem stækkar mjög ört. Og þó mjög
mikið sé byggt, býr þó margt fólk
enn í eldri timburhúsum. Ég sá
margar byggingar vera að rísa í
Moskva, en þó sérstaklega í Stal-
íngrad, enda er þar veríð að reisa
úr rústum stríðseydda borg.
Við komum í nýbyggt íbúðarhús,
sem átti að fara að f'ytja í. 1
þessu húsi voru 130 tveggja og
þriggja herbergja íbúðir. Til að
fyrirbyggja m:sskilning er rétt að
geta þess, að eldbús er ekki talið
með í herbergjafjöldanum, en í
hverri íbúð er að sjálfsögðu eld-
hús og baðherbergi.
Húsið er 8 hæðir, þar af 7 íbúð-
arhæðir, en á neðstu hæð eru verzl-
anir og önnur fyrirtæki, sem ætlað
er að fullnægja fyrst og fremst
íbúum hússins.
Ég vil gera tilraun til að lýsa í
stórum dráttum þriggja herbergja
íbúð. Hver hinna þriggja stofa er
15 fermetrar að flatarmáli, með
parketgólfi og tvöföldum glugg-
um og fylgja svalir hverri íbúð.
Eldhúsið er meðalstórt á okkar
mælikvarða og fylgir því gaselda-
vél. Er það flísalagt upp á miðja
veggi og gólf dúklagt. Ekki ætti
að þurfa að taka það fram, að
þarna eru jafn sjálfsagðir hlutir
og miðstöðvarhitun og heitt og
kalt vatn í baðherbergi og eldhúsi.
Húsaleiga er mishá eftir því hve
leigjandihn hefur há laun. Maður,
sem hefur 1000 rúblur í laun á
mánuði þarf að greiða í húsaleigu
í þriggja herbergja íbúð í þessu
húsi 43 rúblur á mánuði og er ljós
og hiti innifalið, en maður með
leigu með ljósi og hita.
Hús sem þetta er 6—7 mánuði !
í smíðum.
Jarðarför
Þegar við komum frá því að
skoða matvörubúðina og íbúðar-
húsið, hafði mikill mannfjöldi
safnazt saman á götunum í grennd
við hótelið. Við komumst brátt á !
snoðir um, að fólk hafði safnazt !
hér saman til að heiðra minningu
rithöfundarins Fadejeff, sem þá j
var nýlátinn og átti útför hans að
, fara fram frá húsi þar í grennd-
j inni.
j Otförin virtist viðhafnarmikil.
j T. d. voru þarna 11 litlir vöru-
bílar með krönsum og voru 6 stór-
ir kransar á hverjum bíl.
Suður að Svartahafi
Það síðasta sem við skoðuðum
í Moskva var mikið safn málverka
og höggmynda frá ýmsum tímum |
og löndum. Átti þá samkvæmt
ferðaáætluninni dvöl okkar þar I
eystra að vera lokið. En þá var
íslenzku sendinefndinni boðið suð-
ur að Svartahafi i nokkurskonar
ferðaauka. Hef ég grun um, að
gestgjafar okkar hafi heyrt á ein-
hverjum nefndarmanna, að þang-
að langaði okkur að koma, og þá
var sjálfsagt að verða við þeirri
ósk.
Við fórum á fætur kl. 4 18. maí
og héldum á flugvöllinn og var svo
íiogið í suðurátt og lent á leiðinni
í Voronisj og Rostov og komið í
áfangastað kl. 2.30 eftir hádegi1.
Flugleiðin var 1655 km. — Áfanga-
staður okkar var borgin Sochi við
austanvert Svartahaf.
Heilsuhælaborgin
Sochi er stundum nefnd Heilsu-
hælaborgin. Kemur það til af því,
að mikið er um hvíldar- og hress-
ingarheimili, eða 62 talsins. Mjög
mikið er um slíkar stofnanir við
Svartahaf, t. d. á Krímskaga.
Sum þessara heimila eru í eign
ríkisins, en önnur eiga verklýðs-
samtökin. Þarna dvelur verkafólk
og annað starfsfólk hvaðanæva að
úr Sovétríkjunum mikið í sumar-
leyfum sínum og eins leita menn
þ&ngað mikið til að fá bót meina
sinna.
Við bjuggum á einu þessara
heimila og voru þar um 400 gest-
ir. Yfirlæknir þess og stjórnandi
var kona.
Við komum á hvíldarheimlli
kolanámumanna. Þar dvöldu um
350 gestir. Skoðuðum við m. a.
íbúðarherbergi heimilisins. Eru
þau mjög vistleg. Hverju þeirra er
ætlað að hýsa tvo gesti. Dvelji
hjón á heimilinu fá þau til afnota
snotra tveggja herbergja íbúð.
Þarna var kona líka yfirlæknir
og stjómandi.
Tilheyrandi heimilinu eru marg-
vísleg skemmti- og íþróttatæki svo
sem sundlaug með sjó, íþróttahús,
kvikmyndahús o. s. frv.
Eins og í Hveragerði
Við komum í lækningastöð þar
sem leirböð eru notuð til lækninga
á svipaðan hátt og í Hveragerði.
Eru böð þessi mikið sótt og daginn
Framk ild á 4. síðu.
Nýjar íbúöabyggingar í Moskva.