Austurland - 03.08.1956, Page 4
4
AUSTUTOLAND
Neskaupstað, 3. ágúst 1956.
Ferðabæliir
Framhald af 1. síðu.
áður voru þar afgreiddir 7500
gestir. Vinnutími starfsfólksins er
6 st. á sólarhring.
Þessi lækningastöð var reist
1938—1940 og er mikil bygging.
Yfirlæknir hennar var karlmaður.
Komið á ríkísbú
Við skoðuðrm ríkisbú þarna í
grenndinni. Framleiðir það eink-
um mjólk, ávexti og grænmeti
handa hvíldarlieimilunum. Mikið
er þar af gróðurhúsum, sem notuð
eru að vetrinum.
Þrifnaður allur var að sjá á háu
stigi og mjólkurstöð, þar sem
mjólkin var gerilsneidd, rekin í
sambandi við búið.
Kýrnar á þessu búi voru af
sænsku kyix'i, miklu stórvaxnari
en við eigum að venjast. Nyt-
hæsta kýrin á síðasta ári mjólkaði
um 7000 kg.
Aftur í Moskva
Dvöl okkar í þessari fögru og
gróðurmiklu borg var lokið 20.
maí. Þá um kvöldið var fiogið
áleiðis til Moskva með viðkomu í
Krasnodar, Rostov og Voronisj.
Flugstjóri í þessari ferð var kona.
Við dvöldum að þessu sinni tvo
daga í höfuðborginni. F.yrri daginn
skoðuðum við m. a. dýragarð
borgarinnar, þar sem er mjög
mikið af allskonar dýrum.
Síðari dagi’nn skoðuðum við
verzlanir og gerðum lítilsháttar
kaup. Og um kvöldið sátum við
kveðjuveiz’u með forystumönnum
verklýðssamtaka og nokkrum
öðrum sendinefndum.
líiámieiðis
Aðfaranótt 23. maí var svo lagt
af stað heimleiðis með rússneskri
flugvél til Kaupmannahafnar með
viðkomu í Riga. Vorum við í
Kaupmannahöfn þar til daginn
eftir og nofuðum tækifærið til að
koma í hinn þekkta skemmtistað
Iiafnarbúa, Tívolí. Er það mjög
glæsi’egur skemmtistaður, en fjár-
plógsstarfsemi virtist þar mjög
mikil.
Til Reykjavíkur héldum við svo
með Gullfaxa 24. maí og þaðan
hélt ég svo heimleiðis með Esju
eftir tveggja stunda dvöl og þar
með var þessari fróðlegu og
skemmti’egu ferð lokið.
Lífskjörin í Sovétríkjunum
Ég má til með að láta ofurlítinn
eftirmála fylgja ferðasögunni.
Margir hafa spurt mig um launa-
kjör og verðlag í Sovétríkjunum.
Ég hef ekki getað svarað þessu á
fullnægjandi hátt, því ég tel mig
ekki hafa þá þekkihgu á þessum
málum til að bera, sem með þarf,
til þess að unnt sé að gera saman-
burð á lífskjörum íslenzks og
rússnesks verkafólks. Fyrirkomu-
lag allt er svo gjörklíkt, að allur
raunhæfur samanburður-er óhugs-
andi, nema að undangenginni
ræki’egri rannsókn þar sem m. a.
er tekið tillit til húsnæðishlunn-
inda, trvgginga og skattamála. Ég
tel mig því ekki mann til að leysa
úr þessari spumingu.
En ef til vill má þó fá nokkra
hugmynd um lífskjör fólksins af
útliti þess og framkomu. Fólkið,
sérstaklega þó börnin, er mjög
hraustlegt í útliti og frjálsmann-
. legt í framkomu og verður ekki á
því séð, að það skorti neitt.
Klæðnaður fólks er með svipuð-
! um hætti og hér, en virðist bera
! vott um jafnari lífskjör. Skraut-
klæðnað sá ég ekki og á fínni
skemmtistöðum, t. d. leikhúsum,
voru konur í svipuðum klæðum og
venjulegt er um spariklæðnað ís-
lenzkra kvenna. íburður er enginn
klæðnaði.
Lókaorð
Þessari frásögn er nú lokið. Að-
ns hefur verið unnt að drepa á
i .okkur aLriði úr ferðinni, en frá
! engu er ítarlega sagt og mjög
mörgu hefur orðið að sleppa alveg.
1 matviiruverzlun.
Margt bar fyrir augu og eyru í
þessari ferð, sem ástæða hefði ver-
ið að skýra ítarlegar frá. En hitt
er líka satt, að til þess að gefa
mönnum rétta mynd af hlutunum
skortir mig orðgnótt. Mörgu af
því verður ekki lýst með orðum
svo að gagni verði.
Að endingu vil ég þakka gest-
gjöfum mínum, þótt í mikilli fjar-
lægð séu, fyrir móttökurnar, sen:
voru áþekkastar því að koma til
vina og ættingja hér heima á Is-
landi. Einnig vil ég þakka sam-
ferðafólki mínu fyrir góða við-
kynningu og þá sérstaklega for-
manni nefndarinnar Sigurvini
Össurarsyni.
Mótornámskeið í
Neskaupstað
Erindreki Fiskifélagsins í þess-
um fjórðungi, Árni Vilhjálmsson
á Seyðísfirði, var hér í bænum í
fyrradag. Erindi hans var að at-
huga möguleika á að koma hér á
fót mótornámskeiði i vetur.
Árna sagðist svo frá, að ákveð-
ið væri að halda hér í vetur mót-
ornámskeið, ef næg þátttaka fæst.
Mun honum hafa tekizt að útvega
húsnæði til kennslunnar.
Allmörg ár eru nú liðin síðan
hér var haldið mótornámskeið og
því líklegt að það verði vel sótt
af ungum sjómönnum héðan úr
bænum. Hörgull er á vélstjórum
með réttindum, bæði vegna þess,
að flotinn hefur stækkað mikið á
síðustu árum og svo hafa ýmsir
eldri vélstjórar, eins og eðlilegt
er, leitað sér vinnu í landi. Það
hefur því verið alltítt að menn hafi
fengið undanþágu til að annast vél-
gæzlu. Vonandi láta slíkir menn
ekki þetta tækifæri til að afla sér
réttinda sér úr grepum ganga.
Byggingarmálin
Framhald af 1. síðu.
ingarfélög, Byggingarfélag alþýðu
og Byggingarsamvinnufélag Nes-
kaupstaðar. Um árabil hafa þessi
félög ekki lagt í neinar nýjar
framkvæmdir, enda hafa þau ekki
átt kost á lánum. Væri full ástæða
' il að þessi félög athuguðu nú
nögu’eika á að útvega fé í bygg-
ingar. Sérstaklega þýðingarmikið
væri, ef unnt reyndist að byggja
verkamannabústaði, því það er
1 efnalitlu fólki' helzt viðráðanlegt
, að búa í þeim, vegna þess hve
lánskjörin eru hagstæð.
En hér þyrfti líka að vera fyrir
hendi nokkru meira lei'guhúsnæði
! til þess að fólk, sem ekki hefur
; þegar aðstöðu til að eignast eigih
i íbúð, eigi þess kost að fá leigt.
Bærinn getur ekki vaxið eins og
eð’ilegt og nauðsynlegt er, nema
byggingar íbúðarhúsa hefjist aft-
ur. Einstaklingar, byggingarfélög
og hið opinbera verða að leggjast
á eitt til að svo megi verða.
Forsetiun tekur vid
embætti
Herra Ásgeir Ásgeirsson tók við
forsetaembættinu að nýju í fyrra-
dag, 1. ágúst, við hátíðlega at-
höfn og flutti hinn endurkjörni
forseti ræðu við það tækifæri.
Á hjóli frá Horna-
firði til Neskaupst.
í öllum þeim mikla ferðamanna-
straumi, sem nú er, er helzt til
sjaldgæft eða jafnvel einsdæmi að
hitta fsrðafólk sem ferðast á reið-
hjólum, Mannskepnan leggur ekki
slíkt og þvílíkt á sinn arma kropp.
Ég varð því býsna hissa þegar ég
hér á dögunum hitti tvo stálpaða
krakka sem höfðu komið langleið-
ina frá Hornafirði til Egilsstaða á
reiðhjólum. Börn þessi heita Sig-
urður Eymundsson, sem er 13 ára,
og Anna systir hans 12 ára, og
eiga þau heima á Höfn í Horna-
firði. Þau langaði til að hitta hana
ömmu sína á Norðfirði en af því
að það er anzi dýrt að ferðast með
bílum eða skipum og nóg brúk
fyrir aura, þar sem systkinin eru
mörg, þá var ákveðið að notast við
hjólhestinn.
Ég spjallaði lítilsháttar við börn-
in um ferðina, sem hefur sjálfsagt
verið nokkuð erfið, þó þau létu
ekki mikið yfir því, enda höfðu
þau meðferðis talsverðan flutning,
tjald, tvo svefnpoka og bakpoka.
Börnin voru 5 daga á milli Hafnar
og Neskaupstaðar, þar af voru þau
veðurteppt á Þiljuvöllum á Beru-
fjarðarströnd og Höskuldsstöðum
í Breiðdal samtals á þriðja dag.
Þau hrepptu vont veður og leið-
inlegastur þótti þeim mótvindur-
inn og þokan.
Ferðalangarnir hafa í hyggju að
taka skipsferð til baka.
Ferðalög á reiðhjólum geta ver-
ið býsna skemmtileg og frjálsleg
og gætu börn og unglingar tekið
sér til fyrirmyndar þessi Horna-
fjarðarbörn. Það væri áreiðanlega
j tilvinnandi fyrir böm og unglinga
héðan úr bænum að grípa reiðhjól-
in sin og viðleguútbúnað um helg-
| ar og fara á ýmsa sérkennilega
j staði hér í nágrenninu, svo ekki
sé minnzt á lengri ferðalög. S.
i______________________-______t
Karfalöndun
Ingólfur Arnarson, togari Bæj-
arútgerðar Reykjavíkur, kom hing-
að í gærmorgun með fullfermi af
! karfa, sem lagður var hér á land
, til vinnslu.
i Karfi þessi veiddist við Austur-
Grænland á nýjum miðum, sem
togarinn Fylkir fann, en hann hef-
ur nú um skeið leitað nýrra fiski-
I miða. Hið nýja fiskimið er nefnt
Fylkisbanki og er nokkru fyrir
sunnan Jónsmið. Þangað varð ekki
komizt í fyrra sökum ísa,
Mjög mikið hefur aflazt á Fylk-
isbanka undanfarið, en veiði mun
j vera farin að minnka þar mikið.