Austurland - 11.08.1956, Page 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 11. ágúst 1956.
Skreyíing Norð-
fjarðarkirkju
1 sumar hafa hjónin Gréta
Björnsson, listmálari og Jón
Björnsson, málarameistari, unnið
að því að skreyta kirkjuna hér í
Neskaupstað og er því verki nú
lokið. Að því tilefni kom sóknar-
nefnd saman ásamt nokkrum
gestum og voru þeim hjónum
færðar þakkir safnaðarins fyrir
vel unnið starf.
Þau Gréta og Jón Björnsson
hafa að undanförnu málað og
skreytt ýmsar kirkjur. Hér eystra
hafa þau unnið að skreytingu
kirknanna á Djúpavogi og Hofi í
Álftafirði, auk Norðfjarðarkirkju.
Verk þsirra hjóna í kirkjunni
hér virðist mjög vel af hendi leyst.
Hefur kirkjan verið máluð í hólf
og gólf og skreytt helgitáknum og
skrautmyndum. Auk þess hafa
kirkjugripir verið smekklega mál-
aðir.
Norðfjarðarkirkja er 60 ára
gömul og mun ekki fyrr hafa ver-
ið kirkja hér á Nesi. Kirkjustaður
Norðfirðinga hafði öldum saman,
svo langt aftur í tímann, sem
beimildir greina, verið að Skorra-
stað. En eftir að kirkjan hafði
fokið í ofviðri á seinasta tug síð-
ustu aldar, var hún flutt að Nesi,
en þar var þá tekið að myndast
þorp.
I Norðfjarðarkirkju eru a. m. k.
tveir munir komnir úr Skorra-
staðarkirkju. Er annar númera-
tafla gerð árið 1855, en hinn er
prédikunarstóll meir en 250 ára
gamall.
Stóll þessi er áttstrendur og er
einn hlutinn opinn og þar er „stig-
ið í stólinn". Á hina fletina eru
litmálaðar myndir af Kristi, Pétri
postula og guðspjallamönnunum 5.
Á stólnum eru áletranir. Á efri
brík er svohljóðandi áletrun sem
færa má í ljóðlínur:
GUD TALER SELF AF DETTE
STED
LAD OP ET VILLIGT ÖRE
HVERT HIERTE VÆRE VEL
BERED
DER EFTER RET AT GIÖRE.
Áletrunin á neðri bríkinni er
svohljóðandi:
GUD TIL ÆRE KIRCHEN TIL
ZIRAT ER D : P : STOEL GIVET
AF RÖDEFIORS KIÖBM : IACOB
NIELSEN A 1700.
Það hefur semsé verið kaupmað-
urinn á Reyðarfirði, en þar var þá
verzlunarstaður Norðfirðinga og
lengi síðan, sem gefið hefur
Skorrastaðarkirkju þennan stól.
Ekki veit ég hvort þessi gamli
prédikunarstóll gstur talizt lista-
verk, en hann er merkisgripur í
sögu þessa byggðarlags og margir
merkisklerkar hafa flutt þaðan
boðkap kirkjunnar. Veit ég ekki
um annan grip svo gamlan hér í
byggð. Sjálfur vitnar hann greini-
lega um aldur sinn, því kaupmað-
urinn hefur verið svo hugulsamur
að láta mála á hann ártalið.
Sóknarnefnd hefur ákveðið að
kaupa pípuorgel í kirkjuna, en
innflutnings-i og gjaldeyrisleyfi
hafa enn ekki fengizt.
Minningarg j öf
Frú Emma Jónsdóttir hefur ný-
lega afhent mér minningargjöf til
Norðfjarðarkirkju að upphæð 1000
kr. til minningar um eiginmann
hennar Halldór Einarsson, húsa-
smíðameistara, sem lézt s. 1. vetur.
Þakka ég gefanda kærlega gjöf
þessa og þann hlýhug sem með
þessu er sýndur kirkjunni.
Ingi Jónsson.
Slarksamar
Um langt árabil hafa tveir
stjórnmálaflokkár efnt til „sum-
arhátíða“ hér á Austurlandi. Hafa
Framsóknarmenn haldið sínar
samkomur í Atlavík í Hallorms-
staðarskógi, venjulega fyrri hluta
júlímánaðiar, en Sjálfstæðismenín
sína að Egilsstöðum um verzlunar.
mannabslgina.
Á samkomur þessar hefur
þyrpzt mikill mannsöfnuður víðs-
vegar að og hefur það ekkert far-
ið eftir stjórnmálaskoðunum, og
vissulega hefur oft verið til þess-
ara mannfunda stofnað af mynd-
arskap, þó fjárplógsstarfsemi hafi
oft verið meiri en góðu hófi gegnir.
T. d. um það hve langt er gengið
í þessu efni, má geta þess, að fólk
sem dvaldi í sumarbústað í Egils-
staðarskógi um síðustu verzlunar-
mannahelgi fékk heimsókn af
borðalögðum lögregluþjóni sem
krafði það um aðgangseyri að
samkomunni.
Á „sumarhátíðum“ þessum hef-
ur oft verið æði sukksamt og slark
mikið. Það er sjálfsagt erfitt fyrir
forgöngumenn samkomanna að
koma í veg fyrr drykkjuskap með
tilheyrandi illindum og leiðindum,
en illt er til þess að vita, að feg-
urstu reitir Austurlands skuli
gerðir að vettvangi fyrir þennan
ófögnuð.
Hátíð Sjálfstæðismanna á Egils-
stöðum um síðustu verzlunar-
mannahelgi mun hafa verið með
versta móti hvað þetta snertir.
Mjög margt fólk sótti þangað, og
þó allur þorri þess hafi að sjálf-
sögðu verið í hópi þeirra sem ekki
mega vamm sitt vita í neinu, ber
þess að gæta, að misjafn sauður
er í mörgu fé.
Um þessar mundir var áfengis-i
útsölunni á Seyðisfirði lokað og
því ýmsir erfiðleikar fyrir menn
að afla sér vínfanga. Hér var því
gullið tækifæri fyrir leynivínsala,
enda mun það óspart hafa verið
samkomur
notað. Reykvískir sprúttsalar
hafa það mjög fyrir sið, að fara
með áfengi á bílum til að selja
það á ýmsum mannamótum og
gengur vara þeirra vel út. Ekki
munu þeir hafa látið sig vanta á
Egilsstaðarskemmtuninni en birgð
ir þeirra munu hafa þrotið, því
vart var við samkomugesti í áfeng-
isleit niðri á fjörðum og bíll mátti
ekki koma svo að Egilsstöðum að
ekki þyrptust um hann áfengis-
þyrstir menn í leit að víni.
En það er ekki nóg með að
drukkið hafi verið og drabbað á
þessari samkomu. Einhverjir
fingralangir náungar hafa líka
verið þar á ferðinni, því mörgum
hurfu ýmsir munir úr tjöldum og
bílum, svo sem svefnpokar, fatn-
aður og jafnvel peningar. Þá
hurfu og ýmsir hlutir af bílum,
svo sem benzínlok og hjólkoppar.
Þessi samkomuhöld eru engum
til sóma og þyrfti að leytast við
að fyrirbyggja í framtíðinni að
slark og drykkjuskapur verði
mest áberandi þáttur þeirra. En
þar er sjálfsagt hægar um að tala
en við að gera. Til bóta mundi það
líklega, ef samkomurnar stæðu að-
eins einn dag. Mjög aukin lög-
gæzla er nauðsynleg og ströng á-
fengisleit í öllum þeim bílum sem
ástæða er til að gruna að séu í
þeim erindum að selja áfengi. Og
það er ekki nóg að leita áfengis
samkomudagana. Það þarf að
leita þess í nokkra daga áður, því
vel geta leynivínsalar öryggis
vegna komið austur með varning
sinn alllöngu fyrr en samkomur
hefjast.
Þeir sem fyrir þessum „sumar-
hátíðum" standa verða að gera
allt sem þeir mega til að losa þær
við þann ómenningarbrag, sem á
þeim befur verið og farið hefur í
vöxt.
Goðanes með
Norðfjarðarldrkja.
fullfermi
Goðanes er nú á leið til Esbjerg
rr.eð fullfermi af saltfiski og mun
selja þar 15. eða 16. ágúst. Fiskur
þessi ve'ddist við Bjarnareyjar.
Veiðiferðin frá því skipið fer úr
höfn þar til það k?mur til Es-
bjerg mun taka um 6 vikur.
Br feeiuíiii
Kirkjan
Mcssað verður á sunnudaginn
lil. 2.
Afmæli.
Guðrún Björnsdóttir, kona Örn-
ólfs Sveinssonar, trésmiðs, varð 60
ára 6 .ágúst. Hún fæddist á Vaði
í Skriðdal, en flutti hingað 1920.