Austurland - 24.08.1956, Blaðsíða 1
Málgagn sósfalis&a á Aostnrlandi
6. árgangur. Neskaupstað, 24. águst 1956. 30. tölublað.
Neskaupstaður sigr-
adi í bæjarkeppninni
Fékk 71 stig, Hafnarfj. 51, Akranes 49
Vinna að hafn-
armálum
Bæjarstjórn hefur falið þeim
Vigfúsi Guttormssyni og Ármanni
Eiríkssyni að fara til Reykjavík-
ur til að vinna að hafnarmálum
bæjarins og ræða við hlutaðeig-
andi stjórnarvöld um hafnarbæt-
ur.
Verkefni það, sem þeim var fal-
ið að vinna að er þríþætt.
í fyrsta lagi skulu þeir vinna
að undirbúningi hafnargerðar með
því að fá sérfræðilega umsögn um
möguleika til að gera hér höfn af
þeirri stærð, sem hentaði fiski-
skipaflota bæjarbúa. Ennfremur
skulu þeir leita upplýsinga um
hvað slík höfn muni kosta svo og
athuga hvaða fjárhagslegir mögu-
leikar kunna að vera fyrir hendi
til að ráðast í þessar framkvæmdv
ir og þá sér í lagi hverjir láns-
möguleikar ætla má að fyrir hendi
séu æða verði.
í öðru lagi skulu þeir vinna að
því að útvega lán til fyrirhugaðr-
ar bryggjugerðar við Fiskvinnslu-
stöð Sún, bryggjusmíði þar er
orðin knýjandi nauðsyn.
1 þriðja lagi skulu þeir leita
samþykkis vísa- og hafnarmála-
stjóra fyrir því, að fjölgað verði
görðum dráttarbrautarinnar.
Vegna þrengsla á görðunum hafa
bátar orðið að bíða lengi eftir
slipppláss, en vegna ágalla hafnar-
innar er mikil áhætta samfara því
að geyma báta við múrningar um
vetrartímann. Ætlazt er til að
garðarnir vierði gerðir austan við
brautina, sjávarmegin við garða
þá, sem fyri,r f'ru þeim megin I
hennar.
Gott heyskapar-
sumar
í sumar hefur viðrað vel til hey-
skapar, nema þá helzt í útkjálka-
sveitum á Norður. og Norð-Aust-
urlandi.
Kalt hefur verið í sumar um
ftorðan- og austanvert landið og
grasspretta misjöfn.
Þó sumarið í sumar hafi ekki
Verið sólríkt hér á Norðfirði, hafa
þurrkar verið miklir og varla
komið dropi úr lofti og hefur þetta
þurrviðri verið til baga.
Heyfengur bænda mun víðast
hvar orðinn mikill og góðui’.
Sundkeppni sú er hér fór fram
s. 1. sunnudag er tvímælalaust all-
merkur íþróttaviðburður og þykir
mér ekki ósennilegt að hún marki
tímamót í norðfirzku sundlífi.
Ksppni þessi á að verða upph ,f
árlegrar sundkeppni milli þeirra
bæja er nú tóku þátt í henni, jafn-
framt því sem fleiri bæjum verður
boðin þátttaka. Hér fæst því ár-
lega takmark að keppa að, en það
er nauðsynlegt ef áhuginn fyrir
íþróttinni á að haldast.
Sundfólkið, sem nú heimsótti
okkur, kom til Egilsstaða síðla
laugardags. Þar tóku á móti því
Bjarni Þórðarson bæjarstjóri, Jó-
hannes Stefánsson, forseti bæjar-
stjórnar og stjórn Þróttar. Fyrst
var ekið með gestina í Hallorms- ■
stað. Þar var skógurinn skoðaður
undir leiðsögn Sigurðar Blöndals,
skógarvarðar. Að lokinni skógar-
göngunni var setzt að kvöldverði,
sem bæjarstjórn Neskaupstaðar
bauð til. Þar ávarpaði bæjar-
stjórinn gestina en fararstjórarn-
ir, þeir Ingvi Rafn Baldvinsson,
Hafnarfirði, og Hallur Gunnlaugs-
son, Akranesi, þökkuðu með stutt-
um ræðum boðið, sem þeir töldu
að öllum þátttakendum mundi
verða ógleymanlegt þar sem eng-
inn þeirra hefði áður komið í hinn
fagra Hallormsstað.
Kl. 2 á sunnudag hófst svo
sundkeppnin. Um úrslit þessarar
keppni hafði litlu verið spáð, en
flestir reiknuðu þó með sigri
Akraness. Svo fór þó ekki. Nes-!
kaupstaður vann keppnina með all-
miklum yfirburðum, hlaut 71 stig.
Hafnarfjörður hlaut 51 stig og
Akranes 49 stig. Sundfólk Nes-
kaupstaðar náði engum frábærum
árangri en var mjög jafnt. Hafn-
firzka sundfólkið var flest mjög
ungt og margt hið efnilegasta í
íþróttum, má þar einkum nefna þá
Birgi Dagbjartsson, sem er 15 ára
og Guðlaug Gíslason 14 ára.
Sterkasti sundmaður Hafnfirðing-
anna var íslandsmethafinn á 50 m
baksundi Ólafur Guðmundsson, en
hann er mjög fjölhæfur sundmað-
ur. Lið Akraness var ekki full-
skipað svo að þair gátu ekki tekið
þátt í öllum keppnisgreinum, en í
þeirra liði voru sterkustu ein-
staklingar mótsins. Þar er fremst-
ur í flokki Sigurður Sigurðsson,
sem er snjallasti bringusundmað-
ur, sem íslendingar eiga. Þá var og
mættur íslandsmethafinn í 100 m
baksundi, Jón Helgason. Helgi
Hannesson er og með sterkari
skriðsundmönnum.
Alls var keppt í 6 einstaklings-
greinum og tveim boðsundum.
Tveir riðlar voru í hverri grein.
Stig voru reiknuð út sem hér seg-
ir: Fyrsti maður 7 stig, annar 5
stig, þriðji 4 stig, fjórði 3 stig,
fimmti 2 stig og sjötti 1 stig. Fyr-
ir boðsund: fyrsta sveit 11 stig,
önnur 8 stig og þriðja 6 stig.
Á þriðjudaginn voru gefin út
bráðabirgðalög, að tilhlutan
Hannibals Valdimarssonar, félags-
málaráðherra og er þar bannað að
notá til annars en íbúðar, íbúðar-
hús eða hús, sem teiknuð hafa
verið sem íbúðarhús.
Fréttatilkynning félagsmála-
ráðuneytisins um þetta er svo-
hljóðandi:
„Að tilhlutan félagsmálaráðu.
neytisins hefur forseti íslands í'
dag gefið út bráðabirgðalög um
afnot íbúðarhúsnæðis:
I þessum bráðabirgðalögum er
lagt bann við því að nota íbúðar-
húsnæði í kaupstöðum til annars
en íbúðar, en íbúðarhúsnæði telst
það húsnæði, sem við gildistöku
laganna er notað til íbúðar og er
íbúðarhæft án verulegra endur-
bóta, svo og húsnæði, sem ætlað er
Hér á eftir fara árangrar í
hverri grein:
50 m baksund konur
Guðný Þorsteinsdóttir N 45.8 sek.
Hanna R. Jóhannsdóttir A 49.1
Lára Ólafsdóttir N 50.4
Guðrún Ólafsdóttir H 55.0
Ingibjörg Böðvarsdóttir H 59.8
Elínbjörg Magnúsdóttir A 60.3
Hér s'graði Guðný Þorsteins-
dóttir mjög auðveldlega. Guðný er
efnileg sundkona og ætti að geta
náð góðum árangri ef hún æfir vel.
Hún varð stigahæsti einstaklingur
þessa móts.
Eftir fyrstu grein stóðu stigin
þannig: Nesk, 11 — Akranes 6 —
Hafnarfjörður 5.
100 m skriðsund, karlar
Hslgi Hannesson A 1.07.9 mín.
Ólafur Guðmundsson H 1.08.1
Eiríkur Karlsson N 1.11.4
Steinar Lúðvíksson N 1.11.5
Helgi Haraldsson A 1.12.4
Guðlaugur Gís'ason H 1.16.5
Hér var háð allhörð barátta
milli Ólafs Guðmundssonar og
Framhald á 2. síðu.
til íbúðar samkvæmt teikningu
hlutaðeigandi húss og hefur ekki
verið tekið til annarra afnota við
gildistöku laganna. Þá leggja lög-
in einnig bann við því að halda ó-
notuðu íbúðarhúsnæði, sem kostur
er á að leigja.
Brot gegn framangreindum á-
kvæðum varða 10.000.00 til
1.000.000.00 króna sektum, er
renna i varasjóð hins almenna
veðlánakerfis til aðstoðar við hús-
byggingar samkv. lögum nr. 55
20. maí 1955, en eftirlit með því
að ákvæðum laganna sé fylgt er
í höndum ”húsnæðismálastjórnar.
Félagsmálaráðherra er heimilt
að veita einstökum kaupstöðum
undanþágu frá ákvæðum laga
þessara, enda liggi fyrir umsókn
um það frá hlutaðeigandi bæjar-
stjóra og ekki sé þar um að ræða
skort á íbúðarhúsnæði".
íbúðarhús verði
notuð til íbúðar