Austurland - 31.08.1956, Blaðsíða 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 31. ágúst 1956.
Lúðrasveitin ráð-
gerir hlj ómleikaför
Lúðrasveit Neskaupstaðar hefur aflað sér mikilla vinsælda bæði
innanbæjar og utan, enda hefur hún náð mjög góðum árangri. Fé-
lagar svsitarinnar hafa líka lagt mikið kapp á að æfa sig sem bezt,
þrátt fyrir það, að þeir eru önnum kafnir menn og þurfa að leggja
hart að sér til að sækja æfingar. Fyrir félags- og skemmtanalíf
bæjarins, og raunar í öðrum byggðarlögum líka, hefur lúðrasveitin
ómetanlegt gildi. Hún hefur líka átt því láni að fagna, að eiga kost
á ágætum stjórnanda, sem leggur mikla alúð við þjálfun hennar, en
stjórnandi hsnnar er Haraldur Guðmundsson, prentari.
Lúðrasveitin hefur nú á prjónunum áform um að fara í hljóm-
leikaför um Austfirði og í tilefni af því hitti blaðið formann lúðra-
sveitarinnar, Jón Karlsson, verzlunarmann og spurði hann fregna af
starfsemi sveitarinnar.
— Hvað kemur lúðrasveitin oft
saman til æfinga?
— Við æfum tvisvar í viku,
tvær stundir í senn. Árið 1955 voru
æfingar 120 talsins.
— Og hvernig eru æfingar
sóttar ?
— Ágætlega. Og áhugi félag-
anna er mikill.
Hafið þið oft leikið opinber-
lega á þessu ári?
— Utanbæjar. höfum við leikið
á þessum stöðum: Eskifirði 17.
júní, Reyðarfirði fyrir Alþýðu-
bandalagið eftir kosningar og á
sumarhátíðum Framsóknarmanna
á Hallormsstað og Sjálfstæðis-
manna á Egilsstöðum. Hér í bæ
hefur lúðrasveitin leikið 9 sinnum
Árbók S.V.F.Í.
Blaðinu hefur borizt Árbók
Slysavarnarfélags Islands 1955—
1956.
Af efni bókarinnar skal geta
þessa: Minningargreinar um Sig-
urjón Á Ólafsson, alþm. og Jón
E. Bergsveinsson, erindreka, en
þeir voru báðir í fremstu röð
slysavarnarstarfseminnar, grein
um björgunarbátinn Gisla J.
Johnsen, grein um aldarafmæli
norsku slysavarnarstarfseminnar.
Þá er og í ritinu að finna mikinn
fróð’eik um starfsemi Slysavarn-
arfélagsins og skýrslur um björg-
un og slysfarir. Þar af vil ég nefna
þessar greinar og skýrslur:
Björgunarsýning Slysavarnarfé-
lags íslands á Reykjavíkurflug-
velli, sjúkraflugið 1954 og
1955, starfsemi Slysavarnarfélags-
ins 1954 og 1955, björgun og að-
stoð úr sjávarháska 1954 og 1955,
skýrslur björgunarskipanna 1954
og 1955 og margt fleira.
Árbókin er prýdd miklum fjölda
mynda og hin vandaðasta að öllum
frágangi.
Hún verður borin í hús og boðin
til sölu nú um helgina.
það sem af er þessu ári, við ýms
tækifæri. Alls höfum við því leikið
opinberlega 13 sinnum frá ára-
mótum.
— Ég hef beyrt, að þið séuð að
undirbúa hljómleikaför. Hvað get-
ur þú sagt mér um það?
Lúðvíl( Jósepsson:
Áfmæliskveðja
Mér er sagt að blaðið okkar,
Austurland, sé 5 ára nú um þessar
mundir. Það er að vísu ekki hár
aldur og ekki af miklu að státa þó
að haldið hafi verið úti prentuðu
blaði hér eystra þennan tíma.
Útgáfa Austurlands þessi ár er
þó á margan hátt mikilsverð og
merkileg fyrir okkur.
Austurland hefur verið eina
prentaða blaðið hér eystra og eina
blaðið sem komið hefur út reglu-
lega og fyrst og fremst hefur helg-
að sig austfirzkum málefnum.
Útgáfa blaðsins hefur jafnan
verið miklum erfiðleikum bundin.
1 byrjun var hér engin prent-
smiðja og hana varð því að kaupa
hingað, ef hægt átti að vera að
gefa hér út prentað vikublað.
í þetta var ráðizt, auðvitað af
miklum vanefnum, og því urðum
við að sætta okkur við mjög ó-
fullkomna prentun fyrstu árin.
Nú hefur tekizt að gera prentun
blaðsins góða svo það er að allra
áliti fyllilega sambærilegt að öll-
um frágangi við blöð annars stað-
ar á landinu.
Útgáfa Austurlands hefur verið
fjárhagslega mikið átak fyrir okk-
ur, en auk þess er öll vinna við
blaðið mikið verk, sem mest hefur
verið unnið í aukavinnu og án allr-
ar greiðslu.
Ýmsir góðir menn eiga hlut að
máli, að tekizt hefur að halda
blaðinu úti, en enginn einn maður
á þar eins stóran þátt í og ritstjóri
blaðsins, Bjarni Þórðarson.
Bjami hefur ekki einasta skrif-
— Já, það er rétt. Við höfum
ákveðið, að byrja hljómleikaför
um Austfirði laugardaginn 8. sept.
Þann dag leikum við á Fáskrúðs-
firði og á Reyðarfirði á sunnudag.
Hér heima ráðgerum við að leika
föstudaginn 14., en laugardaginn
15. ætlum við okkur að leika á
Seyðisfirði og á Eskifirði daginn
eftir 16. sept. Fleirj. hljómleika
höfum við ekki ráðgert.
— En hvemig er efnisskráin?
— Það hefur enn ekki verið
gengið endanlega frá henni, en
leikin verða létt, klassísk lög eftir
innlenda og erlenda höfunda.
— Hvað eru hljóðfæraleikar-
arnir margir:
— 18 að meðtöldum stjórnanda.
— Verður nokkuð annað efni en
hljómleikar á dagskrá hjá ykkur?
— Já, Jónas Árnason mun
flytja frásöguþátt, en eins og allir
vita er hann í hópi þekktustu og
vinsælustu fyrirlesara landsins og
er ég þess fullviss, að áheyrendum
muni falla það vel og þykja það
góð uppbót á hljómleikana.
til Áusturlands
að megnið af efni blaðsins, heldur
hefur hann einnig orðið að leggja
á sig stórfellda bagga fjárhagslega
því til stuðnings. Austurland hef-
ur verið áhugamál Bjarna frá upp-
hafi og það var hann, sem brauzt
í því að kaupa hingað prentsmiðju
og hefja hér rekstur hennar.
Nú er Austurland búið að fá þá
viðurkenningu hér í Neskaupstað
og reyndar um allt Austurland, að
menn mega ekki hugsa til þess að
það hætti að koma út.
Hér í bæ er blaðið orðið fastur
og óhjákvæmilegur þáttur í bæjar-
lífinu. Útbreiðsla þess fer vaxandi
og þess má greinilega finna merki
að það er að verða ómissandi
þáttur í lífi Austfirðinga almennt.
Austurland hefur þegar gert
austfirzkum málefnum mikið gagn.
Það er enn eina austfirzka blaðið
og þar af leiðandi eina blaðið sem
stöðugt hlýtur að ræða aðaláhuga-
mál okkar hér eystra.
Á þessu fimm ára afmæli blaðs-
ins er nauðsynlegt að allir velunn-
arar þess sýni í verki að þeir meti
starfsemi blaðsins.
Nú ættu þeir að styrkja blaðið
fjárhagslega og vinna kappsam-
lega að útbreiðslu þess og aðstoða
ritstjórann með skrifum í blaðið.
Það er von mín að næstu 5 árin
verði blaði okkar hagstæð og að
á þeim tíma megi það stækka og
stórfjölga kaupendum um allt
Austurland.
Lúðvík Jósepsson.
Or bænum
Kirkjan
Messað verður á sunnudaginn
kl. 2.
H jónaband:
Gefin voru saman í hjónaband
25. ágúst ungfrú Bergsveina
Gísladóttir, Neskaupstað og Geir
Sigurjónsson, stýrimaður, Hval-
eyrarbraut 5, Hafnarfirði. Séra
Ingi Jónsson framkvæmdi hjóna-
vígsluna.
Trúlofun:
Ungfrú Guðrún He](gadóttir,
Hvammi, Hrunamannahreppi og
Steinar Lúðvíksson (Jósepssonar),
sundkennari, Neskaupstað, opin-
beruðu trúlofun sína 23. ágúst.
Afmæli:
Ásmundur Guðmundsson, Skuld,
varð 70 ára 26. ágúst. Hann
fæddist á Kömbum við Stöðvar-
fjörð, en fluttist hingað 1914. Ás-
mundur stundaði lengst af sjósókn
og útgerð, en auk þess verka-
mannavinnu, fiskmat og fleira.
Óla Sveinsdóttir, kona Þorsteins
Stefánssonar, trésmíðameistara,
varð 50 ára 27. ágúst. Hún er borin
og bamfæddur Norðfirðingur, en
allra síðustu árin hafa þau hjón
átt heima í Reykjavík. En Óla hélt
upp á afmælið í hópi bama sinna,
j vina og annarra vandamanna hér
í bænum.
Jósef Halidórsson, verkamaður,
Bifröst, varð 60 ára í gær, 30. ág-
úst. Hann fæddist á Þuríðarstöð-
um í Eiðaþinghá, en fluttist ung-
ur, með foreldrum sínum til Sand-
víkur. Hér hefur hann verið bú-
settur síðan 1933.
Austurland 5 ára
Framhald af 1. síðu.
ekki niður falla og vanda betur til
efnis þess og gera það fjölbreytt-
ara þó smæð blaðsins skeri því
nokkuð þröngan stakk.
Ég vil við þetta tækifæri þakka
þeim, sem á einn eða annan hátt
hafa stutt mig í því að halda blað-
inu úti og ennfremur vil ég þakka
þeim mönnum, sem annazt hafa
afgreiðslu blaðsins, en þeirra verk
er mikið.
Og loks vil ég þakka þeim, sem
prentað hafa blaðið, Sverri Jóns-
syni, Ingvari Bjarnasyni og Har-
aldi Guðmundssyni störf þeirra.
Ég vona, að Austurlandi verði
langra lífdaga auðið og að það
megi vinna gagn samtökum alþýð-
unnar bæði á faglegu og stjórnr
málalegu sviði. Og ég vona að
Austurland geti orðið skeleggur
málsvari Austurlands, túlkað sjón-
armið Austfirðinga og flutt mál
þeirra.
Bjarni Þórðarson.