Austurland - 07.09.1956, Qupperneq 1
M á 1 g a g n sósf. alista á A is s t n r 1 a n d i
6. árgangur. Neskaupstað, 7. september 1956. 32. tölublað.
Glíman víð dýrtíðina
Það kemur æ betur og betur í
Ijós, eftir því sem á líður, að al-
menningur tekur vel aðgerðum
ríkisstjórnarinnar til að stemma
stigu við dýrtíðarflóðinu. Sjá
menn, að stjórnin meinar fyrir.
heit sín alvarlega.
íhaldið ærist
Eins og vænta mátti hefur þó
forystulið verðbólgubraskaranna,
íhaldsforkólfarnir og íhaldsblöðin,
snúizt öndverð gegn þessum til-
raunum. Það mun færa mörgum
manninum heim sanninn um, að
ríkisstjórnin er á réttri braut. Á
meðan braskaralýðurinn í Reykja-
vík barmar sér og kvartar og
skammar ríkisstjórnina, geta menn
verið þess fullvissir, að hún er á
réttri leið. Verði hinsvegar lát á
óhróðrinum, er full ástæða fyrir
stuðningsmenn stjórnarinnar að
gefa því gætur, hvort hún sé ekki
að tapa áttunum.
Eitt rekur sig á annars horn
En mjög er málflutningur í-
haldsins mótsagnakenndur. Á
einni síðu Moggans eru aðgerðir
stjórnarinnar bannsungnar og
þeim fundið allt til foráttu, Á ann-
ari síðu er þeim jafnað við vísi-
tölubindingu Stefáns-Jóhanns-
stjórnarinnar og tillögur Ingólfs
Jónssonar nú í vor um fölsun vísi-
tölunnar. Hvort tveggja þetta lof-
söng íhaldið og taldi standa mjög
til bóta.
Það er því von að menn spyrji:
HversVsgna styður íhaldið ekki
aðgerðir stjómarinnar, úr því þær
eru í eðli sínu eins og vísitölubind-
ing Stefáns Jóhanns og vísitölu-
fölsunartillögur Ingólfs Jóns-
sonar?
Svarið er ofur einfalt. Það er
Vegna þess, að hér er um gjör-
ólíkar aðgerðir að ræða, sem nú
skal skýrt.
Stjórn Stefáns Jóhanns batt
vísitöluna við 300 stig, en hún
batt ekki verðlag. Verðlagið í
landinu hélt áfram að stíga og var
framfærsluvísitalan, þegar þessar
aðgerðir voru brotnar á bak aftur,
komin upp í 355 stig, en launþegar
fengu kaup greitt eftir vísitölunni'
300. I stjómartíð Stefáns Jóhanns
átti sér því stað mjög mikil kjara-
skerðing launþega.
Tillögur Ingólfs Jónssonar voru
á þá leið, í stórum dráttum, að
verja skyldi úr rikissjóði 30 millj.
kr. til niðurgreiðslu nokkurra
vörutegunda, sem mest gætti í
vísitöluútreikningi. Með því móti
átti að vera hægt að falsa vísitöl-
una svo að launþegar væm sviptir
230—240 millj. kr. af árstekjum
sínum, en í staðinn áttu þeir að
fá 30 millj. — Tillögur þessar
stefndu með öðrum orðum að því
‘að hafa fullar 200 millj. kr. af
launþegunum.
En eins og kunnugt er festi nú-
verandi ríkisstjórn kaupgjald og
verðlag um fjögurra mánaða skeið.
Kaupmáttur launa helzt því ó-
breyttur frá því í ágúst til árs-
loka. Hvað þá tekur við, er ekki
ljóst ennþá, en þennan frest
hyggst ríkisstjórnin nota til að
undirbúa framtíðarlausn þessa
mikla og erfiða máls.
Ekki kjaraskerðing
Hver sá, sem skoðar mál þetta
ofan í kjölinn, hlýtur að sannfær-
ast um, að í þassum aðgerðum felst
ekki skerðing á kjörum vinnu-
stéttanna. Athugum þá staðhæf-
ingu nánar.
Eins og kunnugt er, átti kaup-
gjald að hækka um 6 vísitölustig
1. sept. Ef ekkert hefði verið að
gert, hefði verð landbúnaðaraf-
urða stigið um miðjan mánuðinn
sem svaráði rúmum 5 vísitölustig-
um. Einnig var vitað um aðrar
hækkanir, sem að öllu óbreyttu
hefðu skollið á, og hækkað hefðu
vísitöluna um mörg stig. Enn er
þess að gæta, að enda þótt verð-
hækkun landbúnaðarafurða hefði
numið fullum 5 vísitölustigum,
hefði kaupgjaldsvísitalan vegna
þeirrar hækkunar, aðeins hækkað
um 1 stig, vegna lagafyrirmæla. —
Kauphækkunin sem verða átti 1.
sept, hefði því þegar í þessum
mánuði verið étin upp af dýrtíð-
arófneskjunni.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru
launþegum sízt í óhag, enda eru
höfð um þær samráð við alþýðu-
samtökin. Alþýðusamtökin vissu,
að ef þau hefðu ekki fyrirfram
fallizt á þessar aðgerðir, hefði
aldrei verið til þeirra gripið. — I
því að hafa samráð við alþýðu-
samtökin, er styrkur stjórnarinn-
ar fólginn.
Eiskimennirnir og dýrtíðar-
stöðvunin
I síðasta ’blaði var á það drepið,
að umræddar ráðstafanir væru
bein kjarabót fyrir hlutarráðna
fiskimenn og smáútvegsmenn.
Þessa mikilvægu staðreynd eru
Stjórn Tónlistarfélagsins hefur
nú undanfarið unnið að því að fá
tónlistarkennara til bæjarins.
Stendur okkur nú til boða að fá
hingað ungan og vel menntaðan
píanista og organista til þess að
kenna á þessi hljóðfæri. Maður
þessi er Jón Ásgeirsson frá
Reykjavík. Hefur hann stundað
nám í Tónlistarskólanum í Reykja.
vík og Músíkakademíinu í Glas-
gow. Auk þess hefur hann kennt
við Tónlistarskóla Siglufjarðar.
Stjórn Tónlistarfélagsins er
nauðsynlegt að vita nokkurn veg-
inn hve margir óska þess að njóta
kennslunnar, því að félagið er fá-
tækt og getur ekki ráðið kennara
nema nokkur þátttaka fáist. Eru
því væntanlegir nemendur beðnir
að gefa sig fram við undirritaðan
eða Harald Guðmundsson fyrir 15.
þ. m. Gert er ráð fyrir tveimur
kennslustundum í viku í píanó-
eða orgelleik, tónfræði og tónlist-
arsögu. Ennfremur er hægt að fá
tilsögn í lúðrablæstri.
Skólagjald er áætlað 150 kr. á
mánuði og mun skólinn starfa
a. m. k. til nýárs, en í allan vetur,
ef næg þátttaka fæst.
Ég vil skora á Norðfirðinga að
nota sér þetta einstaka tækifæri
til þess að læra hljóðfæraleik.
Börnum og unglingum verður vart
gefin dýrmætari gjöf, en að Ijúka
stuðningsblöð ríkisstj órnarinnar
furðu sein að grípa, en við, sem
búum í fiskiþorpunum úti á landi
erum fljót að koma auga á þetta
atriði og við skiljum hvert gildi
það hefur.
Þessi þýðingarmikla stétt hefði,
að öllu óbreyttu, orðið að líða
bótalaust allar þær verðhækkanir,
sem yfir vofðu, því hún tekur laun
sín í fríðu ef svo má að orði kveða,
og hefur breytt vísitala engin
áhrif á laun þessara manna.
Undir|búningur frekari
aðgerða
Af hálfu ríkisstjórnarinnar er
Framhald á 2. síðu.
upp fyrir þeim töfraheimi tónlist-
arinnar og það er víst, að sá sem
hefur lært hljóðfæraleik býr að
þ'SÍrri kunnáttu alla ævi.
Að öðru leyti vísa'st til auglýs-
ingar Tónlistarfélagsins í þessu
blaði.
Davíð Áskelsson.
Mikill ágangur
togara
Sjómenn kvarta nú mjög yfir
ágangi erlendra togara á fiski-
slóðum Norðfjarðarbáta. Hafa
margir bátar orðið fyrir talsverðu
vefðarfæratjóni af þeirra völdum
og hrökklast af miðum sínum.
Einnig hafa menn beinlínis legið
í landi í bezta sjóveðri, þegar þoka
hefur verið, vegna þess að þeir
hafa ekki viljað hætta veiðarfær-
um sínum.
Koiuiun á flot
Eins og frá hefur verið sagt,
átti að hleypa Gerpi af stokkun-
um 4. sept., en þann dag tilkynnti
skipasmíðastöðin, að þeirri athöfn
hefði verið frestað um einn dag og
er ekki annað vitað, en að Gerpir
hafi hlaupið af stokkunum s. 1.
miðvikudag, 5. sept.
Tónlistarskóli í
I .
Nes kaupstad