Austurland - 14.09.1956, Page 1
Málgagn sósf alis ta á Áusturlamii
6. árgangur.
Neskaupstað, 14. september 1956.
33. tölublað.
Bálahöfn í Neskaupsiað
Rannsókn á skilyrðum til byggingar bátahafnar fer nú fram
Oft hefur verið um það rætt og
ritað, að knýjandi nauðsyn væri á
að bæta hafnarskilyrði hér í Nes-
kaupstað. Einkum hefur verið rætt
um nauðsyn þess að gera bátakví
og bæta á þann hátt aðstöðu fiski-
bátanna.
Allir Norðfirðingar, og fjölda
margir aðrir, vita að höfnin hér
er á margan hátt slæm af nátt-
úrunnar hendi. Aldrei geta menn
verið öruggir um báta sína hér á
höfninni. Hver bátur þarf að eiga
öfiug legufæri, og dugir þó ekki
alltaf til. Hin slæmu hafnarskil-
yrði valda líka auknum viðhalds-
kostnaði á bátum.
Hafnargerð er mjög dýr og von-
lítið, að slíkt mannvirki hér geti
borið sig fjárhagslega. En óbeinn
hagnaður af bátahöfn mundi á-
reiðanlega verða mikill.
Pjárhagslegir möguleikar til
hafnargerðar hafa ekki virzt vera
fyrir hendi fram að þessu. En rík-
isstjórnin hefur á prjónunum fyr-
irætlanir um að taka erlent lán,
sem m. a. á að verja til hafnar-
gerðar. Ekki er heldur útilokað,
að hægt væri að útvega hafnar-
sjóði erlent lán án milligöngu rík-
isstjórnarinnar.
Þörfin fyrir hafnargerð verður
stöðugt brýnni. Bátaflotinn hefur
stækkað mikið upp á síðkastið og
fyrirsjáanlegt er að hann stækkar
enn á næstunni. Bæjarstjórn hefur
verið þessi nauðsyn ljós og vill
grípa það tækifæri, sem nú kann
að bjóðast.
Þorlákur Helgason, verkfræð-
Sjálfboðavinna
I sambandi við byggingu félags-
heimilis hefur oft verið minnzt á
sjálfboðavinnu, en ekkert orðið úr
€nn sem komið er.
Nú er gert ráð fyrir að steypu-
vinna hefjist eftir helgina og má
gera ráð fyrir að hún standi fram
eftir eða jafnvel alla næstu viku.
1 þá vinnu vantar menn og gefst
Því þeim, sem hafa hugsað sér að
Sefa einhverja vinnu gott tækifæri
^sestu daga. Þeir sem vildu sinna
Þessu ættu að snúa sér til bygg-
mgameistarans, Ivars Kristinsson-
ar> núna fyrir helgina.
ingur hafnarmálaskrifstofunnar er
nú staddur hér í bænum og með
honum Vilhjálmur Aðalsteinsson,
verkstjóri. Hafa þeir meðferðis
nauðsynleg tæki til að kanna skil-
yrði til hafnargerðar. Hefur hafn-
arnefnd ákveðið, í samráði við
verkfræðinginn, að rannsakað
skuli hvernig skilyrði eru til að
gera- bátakví milli bæjarbryggj-
anna. Reynist það iekki hagstætt,
munu aðrir staðir, sem til greina
koma, athugaðir.
Verði þessi staður valinn, mun
verkið í stórum dráttum unnið sem
hér segir:
Stálþil verður rekið meðfram
allri uppfyllingunni svo og utan og
innan á bryggjurnar og þær lengd-
ar svo að ekki verði nema um 25
metra bil á milli þeirra. Síðan
verða bryggjurnar fylltar með
jarðvegi. Höfnin verður svo grafin
upp svo þriggja metra dýpi verði
við uppfyllinguna og allt að fimm
metra dýpi annars staðar í höfn-
inni. Er talið, að dýpkunin muni
taka um 10 daga, ef dýpkunar-
skipið Grettir verður notað.
Það, sem vinnst við þetta, auk
bátakvíarinnar, er stóraukið legu-
pláss utan á bryggjunum, en það
er nú oft alltof lítið. Ennfremur
losnum við við trébryggjurnar,
sem eru mjög dýrar í viðhaldi og
aðra bryggjunar yrði óhjákvæmi-
legt að endurbyggja að öllu leyti
innan örfárra ára, þó ekki sé hún
nú nema 12 ára gömul.
Vafalaust munu ýmsir telja, að
lítt athuguðu máli, að bátahöfnin
yrði of lítil. En áreiðanlega má
bátafloti okkar vaxa mikið enn
til þess að hann rúmist ekki þarna.
Hið fyrirhugaða hafnarsvæði er
um 4000 fermetrar að flatarmáli.
Uppfyllingin er um 140 metrar á
lengd og má þar afgreiða sam-
tímis 7 báta 60 til 100 lesta og
miklu fleiri bátar geta legið þar,
ef þeir snúa stafni að uppfylling-
unni eða liggja hver utan á öðrum.
Gert er ráð fyrir, að hægt verði
að taka togara inn í höfnina ef
þeir þurfa að stöðva vélar sínar
og eins til afgreiðslu að vetrinum
þegar súgur er mestur, enda yrðu
þá bátar ekki í höfninni svo neinu
næmi.
En í sambandi við höfnin má
ekki gleyma trillunum. Þeim þarf
að ætla þar ákveðið svæði.
Með byggingu bátakvíar mundi
sparast mikið í viðhaldi báta,
slippleigum og vátryggingar-i
gjöldum.
Eftir eina viku eða svo ætti að
vera fengin niðurstaða um það,
hvort hafnargerð milli bryggjanna
er viðráðanleg frá verkfræðilegu
sjónarmiði.
Næsta sporið er svo að útvega
fé og hefja verkið. Auðvitað ligg-
ur ekkert fyrir um kostnaðarverð
mannvirkisins, en reynist skilyrði
sæmileg er talið að ekki sé ósenni-
legt að það verði rúmlega 6 millj.
kr. Af þeirri upphæð mundi ríkis-
sjóður greiða um 2.5 millj. kr.
Hafnargerð, sem kostar hafnar-
sjóð um 3.5 millj. kr. má teljast
viðráðanleg frá fjárhagslegu sjón-
armiði. Mjög dýr höfn, sem kost-
aði t. d. 10—20 millj. kr., væri
vonlaust fyrirtæki hér hvað fjár-
hagsafkomu snertir.
I sambandi við bátahöfnina
þyrfti svo að koma útgerðarað-
staða. Sýnist ekki fráleitt að láta
sér detta í hug að reist yrði hús
vestan innri bæjarbryggjunnar og
væri þar beitt línan og veiðarfæri
geymd.
Sjálfsagt eiga menn eftir að
þrefa um það hvar eigi að byggja
bátahöfn og sjálfsagt er hægt að
finna stað, síem væri að sumu
leyti heppilegri og fæ'rði okkur
rýmri höfn. En svæðið milli
bryggjanna hefur þá höfuðkosti,
að hafnargerð þar virðist viðráð-
anlegust fjárhagslega bæði hvað
snertir stofnkostnað og rekstur.
Þar er líka ýmislegt, sem ella
þyrfti að byggja og á ég þar fyrst
og fremst við uppfyllinguna, auk
þess, sem bryggjurnar munu gera
sitt gagn við framkvæmdir. Og
svo hefur þetta svæði þann megin
kost, að telja má víst, að höfn þar
komi í gagnið miklu fyrr, en ef
hún væri gerð annars staðar.
Vonandi er nú að komast sá
skriður á málið, að nægur reynist
til að sigla því í höfn á stuttum
tíma. Bæjarstjórn mun vaka yfir
hverjum möguleika, sem opnast
til að útvega fé til framkvæmd-
anna.
Gerpir mun afhentur
í nóvember
Gerpi, hinum nýja togara Neskaupstaðar, var hlpypt af
stokkunum 4. sept, eins og upphaflega var ákveðið. Athöfnin
hófst kl. 17 og var lokið kl. 19.
Frú Áslaug Tulinius skírði skipið, en aðrir íslendingar, sem
voru viðstaddir athöfnina voru Axel Tulinius, bæjarfógeti, Er-
lingur Þorkelsson, vélfræðingur, eftirlitsmaður með smíðinni,
Kristmann Hjörleifsson, framkvæmdastjóri Bjólfs á Seyðisfirði,
Sigurgeir Pétursson, skipstjóri á Isólfi, Seyðisfirði, Sverrir Sig-
urðsson, bankaritari á Seyðisfirði og sonur hans. Voru Seyðfirðj
ingar þessir staddir í Bremerhaven með ísólfi, sem þar er í
klössun.
Hóf var haldið í skipasmíðastöðinni í tilefni þessa atburðar
og sátu það 24 boðsgestir.
Erlingur Þorkelsson skýrir svo frá, að allar líkur séu á því,
að skipið verði afhent seint í nóvember og lætur þess jafn-
framt getið, að það hefði orðið fyrr, ef ekki hefði misheppnazt
smíði á einum vélahlut.
Allar hjálparvélar, þrjár talsins, eru komnar niður, en lítið
annað. Ekkert er byrjað að innrétta, en allar innréttingar eru
tilbúnar á verkstæði.