Austurland - 14.09.1956, Síða 2
2
AU9TURLAND
Neskaupstað, 14. september 1956.
Nauðsynleg framkvœmd
Ur mannfjöldaskýrslum
Því atriði í málefnasamningi
hinnar nýju stjórnar sem almenn-
ingur hefur hvað mest fagnað, er
fyrirheitið um kaup á 15 nýjum
togurum til atvinnujöfnunar út um
landið. Löndunarbannið í Bret-
landi hefur orðið okkur mjög til
góðs að því leyti til, að það hefur
stóraukið vinnslu fisksins innan-
lands. Af því hefur svo leitt hvort
tveggja að meiri atvinna hefur
skapazt og aukið gjaldeyrisverð-
mæti. En þrátt fyrir þetta hafa
þau verið mörg frystihúsin sem
tilfinnanlega hefur skort hráefni
til vinnslu og þ. a. 1. ekki skapað
eins mikla atvinnu á staðnum og
ef hráefnið hefði verið nóg.
Með tilkomu 15 nýrra togara
dreifðra um landsbyggðina eða
ríkisrekna með löndunum á ýms-
um stöðum, sem þarfnast mest
hráefna í það og það skiptið, er
vitanlega bætt úr brýnni þörf og
það verður áreiðanlega ,ein bezta
trvggingin fyrir jafnvægi í byggð
landsins. En því meiri verður
munurinn á þeim stöðum sem
hraðfrystihús hafa og hinum sem
engin hafa. Einn þeirra staða er
enn getur ekki tekið fisk til
vinnslu er Reyðarfjörður. Það
stendur þó mjög til bóta, því nú
er í smíðum hraðfrystihús á veg-
um Kaupfélags Héraðsbúa. Hef-
ur það þegar tekið til starfa hvað
hraðfrystingu kjöts áhrærir. En
enn mun alllangt í land, að húsið
geti tekið á móti fiski til vinnslu.
1 ráði er að skapa þá aðstöðu við
húsið og er vonandi að Kaupfélag-
ið sjái sér fært að gera það mögu-
legt sem allra fyrst. Slíkt framtak
yrði mjög vel þegið hér, enda
myndi það verða atvinnulífinu á
Reyðarfirði mikil lyftistöng, en at-
vinnulíf er ekki of blómlegt hér
fyrir. Reyðfirðingar eiga eins og
kunnugt er tvo togara í félagi við
nágrannaþorpin, svo ekki væri ó-
sanngjarnt, að þeir fengju meiri
hlutdeild í afla þeirra en nú er.
Að vísu er hér nokkur vinna við
saltfiskverkun og eins er netagerð
fyrir togarana hér, en að skað-
lausu mætti fiskvinnsla til hrað-
frystingar bætast við en til þess að
svo verði þarf stórt átak.
Flestir Reyðfirðingar hafa mik-
inn stuðning af landbúskap og
sumir beinar tekjur. Svo kveður
rammt að þessu, að enginn mark-
aður er í þorpinu fvrir mjólk frá '
bæjunum í grenndinni. Bændur
hafa þess vegna enga mjólkursölu
í þorpið, eins og víðast er í námd
við kaupstaði og kauptún. Með
aukinni atvinnu á staðnum myndi
þetta breytast þannig að þorps-
búar myndu smám saman leggja
landbúnaðinn niður. Myndu bænd-
ur í grenndinni þá geta selt mjólk
í þorpið, en það væri þeim mikil
búbót.
Ég álít, að hraðfrystihús með
fiskmóttöku sé stærsta mál Revðn
firðin'ga, enda þeirra lífsnauðsyn
atvinnunnar vegna. Aukin atvinna
getur ein stöðvað flóttann utan af
landi. Það verður að gera eins líf-
vænlegt þar og er við Faxaflóa. Á
þann hátt einan getur jafnvægi í
byggð landsins orðið að veruleika. ,
Það verkefni bíður hinnar nýju
rikisstjórnar og ég treysti því að
hún geti leyst það svo, að allir
geti vel við unað. Y. Z.
Heyskap mun nú um það að
verða lokið í Reyðarfirði. Hefur
hann yfirleitt gengið með ágætum,
engin teljandi hey hrakizt, enda
nú um langt skeið samfelldir
þurrkar. Heyfengur mun vera, vel
í meðallagi, enda var vöxtur all-
góður í fyrri slætti. Hins vegar var
háarspretta afar léleg vegna
þurrka og kulda. Þeir einir fengu
teljandi há, sem snemma slógu
og báru á milli slátta. Útengi er
nær ónýtt af völdum þurrkanna.
En mestu skiptir þó hin afbragðs- |
góða nýting heyjanna. Hér eru
menn að mestu háðir veðri um
þurrkun heysins, því súgþurrkun
er mjög óvíða. Mun betur staddir
eru bændur með vélakost við hey-
skapinn. Súgþurrkun hafa aðeins
4 bændur, þar af 3 er búa í kaup-
staðnum eða rétt við hann. Drátt-
arvélaeign í öllum hreppnum er
hins vegar mikil, munu dráttar-
vélar vera 15, þar af komu 2 þeirra
í sumar. Um sumar þessara véla
eru tveir bændur.
1 sumar var byrjað að ryðja
veg um Sléttublá. Hefur jarðýta
unnið þar nokkuð. Vegur þessi á
að koma þrem bæjum í vegasam-
band, Stuðlum, Grænuhlíð og Ár-
eyjum. Stuðlar hafa nú um nokk-
ur ár verið í eyði, en túnið þar er
nytjað af þorpsbúum. Æskilegt
væri að jörðin byggðist á nýjan
leik, en Stuðlar eru ein bezta jörð
sv-eitarinnar. Gæti vegasamband-
ið e. t. v. aukið líkurnar á því að
svo yrði, enda er vegurinn fyrst
og fremst þægilegur væntanlegum
ábúanda á Stuðlum.
Húsbyggingar eru hér miklar í
sumar. Munu um 5 íbúðarhús vera
í smíðum í þorpinu og eitt í sveit-
inni. Auk þess er haldið áfram við
byggingu hraðfrystihúss K. H. B.
Skapar þetta allmikla atvinnu, en
atvinnulíf á Reyðarfirði er ekki
fjölskrúðugt.
Dansskemmtanir hafa verið
margar í Félagslundi í sumar og
flestar mjög fjölmennar. Hefur
fólk sótt þær víðsvegar að af
Austurlandi og víðar. Lítið hefur
verið um aðrar samkomur síðan
stjórnmálafundunum lauk. Mjög
I ágústhefti Hagtíðinda eru
birtar skýrslur um mannfjölda á
Islandi 1. des. 1955.
Mannfjöldi á öllu landi var þá
159.480, en 1. des. 1954 var íbúa-
talan 156.033. Hafði því lands-
mönnum fjölgað á árinu um
3.447.
hefur áfengisneyzlan sett svip sinn
á skemmtanir þessar og hafa sum-
ar verið all óeirðasamar. Er það
miður að drykkjulæti skuli svo
mjög spilla samkomum sem þess-
um. En slíkt er svo algengt orðið,
að enginn virðist neitt hafa við
það að athuga.
Enn er ekki vitað hvenær slátr-
un sauðfjár hefst hér, en búizt er
við mikilli slátrun. Lömb munu
vera í meðallagi, en þurrkamir og
kuldarnir hafa án efa dregið úr
vexti þeirra. 8. september 1956.
Nefnd f jallar um öfl-
un og dreifingu
atvinnutækja
I stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar er svo að orði komizt, að
hún muni beita sér fyrir öflun
nýrra atvinnutækja fyrst og
fremst með uppbyggingu atvinnu-
lífsins í þeim þrem landsfjórðung-
um, sem aftur úr hafa dregizt
fyrir augum.
Með þessu hyggst ríkisstjórnin
stuðla að hinu margumtalaða
„jafnvægi í byggð landsins“ og
víst er um það að ekkert er lík-
legra til að skapa slíkt jafnvægi
en dreifing fjármagnsins í mynd
atvinnutækja.
Ríkisstjórnin hefur nú skipað
nefnd til að fjalla um öflun og
dreifingu nýrra atvinnutækja og
fer fréttatilkynnifi'g hennar um
þetta hér á eftir:
„Ríkisstjórnin hefur í dag (þ. e.
7. sept.) skipað nefnd, er gera skal
tillögur um öflun nýrra atvinnu-
tækja og dreifingu þeirra um
landið. Er til þess ætlazt, að til-
lögur nefndarinnar verði miðaðar
við alhliða atvinnuuppbyggingu í
landin, einkum 1 þeim landsfjórð-
ungum, sem nú eru verst á vegi
staddir í atvinnulegum efnum.
í nefndina hafa verið skipaðir
þeir Gísli Guðmundsson, alþm.,
sem jafnframt er skipaður for-
maður nefndarinnar, Birgir Finns-
son, forseti bæjarstjórnar Isa-
fjarðarkaupstaðar og Tryggvi
Helgason, formaður Sjómannafé-
lags Akuréyrar“.
Frá Reydaríirdi
Karlar í meirihluta
1. des. 1955 voru karlar 80.325
en konur 79.155. Sama dag 1954
voru karlar 78.558, en konur
77.475. 1 Reykjavík eru konur þó
í meirihluta, 32.934 (32.012 árið
1954), en karlar 30.922 (30.023
árið 1954).
I kaupstöðunum utan Reykja-
víkur vohi 19.997 karlar (19.112
árið áður) en konur 19.805 (18.928
árið áður).
Utan kaupstaða eru konur í
verulegum minnihluta, 26.416
(26.535 árið áður) á móti 29.406
körlum (29.423 árið áður.
Meirihluti landsmanna býr
Við Faxafióa
1 kaupstöðunum á Suðvestur-
landi var mannfjöldi sem hér seg-
ir:
1954 1955
Reykjavík 62.035 63,856
Kópavogur 3.249 3.783
Hafnarfj. 5.712 5.948
Keflavík 3.452 3.742
Akranes 3.135 3.293
77.583 80.622
í kaupstöðunum við Faxaflóa
býr því fullur helmingur þjóðar-f
innar og nær öll fólksfjölgunin er
þar. Sé Gullbringu- og Kjósarsýsla
talin með, kemur í Ijós, að við
Faxaflóa fjölgar íbúunum lítir eitt
meira en nemur allri fólksfjölgun-
inni í landinu. Má af þeirri stað-
reynd draga nokkra ályktun um
jafnvægisleysið í byggð landsins.
Raunveruleg fólksfækkun í
kaupstöðunum utan Faxaflóa
Ef kaupstaðirnir á Vestur-,
Norður- og Austurlandi eru teknir
sem heild, kemur í ljós, að fólki
þar fjölgar úr 18.422 í 18.923 eða
um 501. Þegar þess er gætt að á
árinu var Glerárþorpi, sem 1954
hafði 560 íbúa, bætt við lögsagnar-
umdæmi Akureyrar, er ljóst, að í
þessum kaupstöðum hefur fólkli
raunverulega fækkað.
Ibúatölu þessara kaupstaða má
sjá á eftirfarandi töflu.
1954
ísafjörður 2,711
Sauðárkrókur 1.061
Siglufjörður 2.806
Ólafsfjörður 922
Akureyri 7.518
Húsavík 1.349
Seyðisfjörður 728
Neskaupstaður 1.327
1955
2.675
1.068
2.744
914
8.108
1.384
702
1.328
18.422 18.923
Á Isafirði hefur því fólki fækk-
að um 36, á Siglufirði um 72, á
Ólafsfirði um 8 og á Seyðisfirði
um 26.
Á Sauðárkróki hefur fjölgað um
7, á Akureyri um 590, í Húsavík
um 35 og í Neskaupstað um 1. Á
Akureyri hefur fólki ekki fjölgað
Framhald á 3. eíðu.