Austurland - 27.10.1956, Síða 1
Málgagn sósfalista á Anstnrlandi
6. árgangur. Neskaupstað, 27. október 1956.
35. tölublað.
Elías Eyvindsson
rádinn yfirlæknir
vid sjúkrahúsið
Sjúkrahússstjórnin í Neskaup-
stað hefur ráðið Elías Eyvinds-
son, lækni, til að vera yfirlæknir
hins nýja sjúkrahúss. Er hann
þegar fluttur hingað með fjöl-
skyldu sína og starfar að því að
koma sér fyrir og undirbýr
rekstur sjúkrahússins.
Elías Eyvindsson er fertugur
að aldri, fæddur 14. júní 1916.
Hann lauk læknaprófi veturinn
1944 með I. einkum, 157 st. Sett-
ur héraðslæknir var hann í Kópa-
skershéraði mánuðina febr.-maí
1944 og lauk síðan námskandi-
datsþjónustu í Landsspítalanum
1. júní 1944-31. maí 1945. Að-
stoðarlæknir héraðslæknisins á
Patreksfirði var hann ráðinn frá
1. júlí 1945, og hlaut almcnnt
lækningaleyfi þá um haustið.
Haustið 1945 fór Elías til
Bandaríkjanna og lagði þar stund
á handlækningar til ársloka 1947.
Var síðan um skeið aðstoðarlækn.
ir í Ólafsvíkurhéraði og síðan
settur héraðslæknir á Bíldudal.
Prá 1. okt. 1948 til 31. des.
1950 dvaldi Elías í Bandaríkjun-
um við sérnám í svæfúigum og
blóðbankastörfum og hlaut sér-
fræðiviðurkenningu sem svæf-
'figalæknir haustið 1951 og var
ráðinn svæfingarlæknir við hand-
læknisdeild Landsspítalans frá 1.
apríl 1951 og forstöðumaður
Blóðbankans frá stofnun hans í
nóvember 1953 eftir að hann
hafði sérstaklega búið sig undir
það með dvöl í Bandaríkjunum
um þriggja mánaða skeið. Harn
fékk frí frá svæfingarlæknis-
F ] ór ðungsþing
Fjórðungsþing Austfirðinga
kemur samat.i til fundar á Egils-
stöðum í dag. Verður væntanlega
í næsta blaði unnt að skýra frá
störfum þingsins og birta eitt-
hvað af ályktunum þess.
störfum frá því í maí 1952 þar
til í apríl 1953 til að gegna starfi
aðstoðarlæknis við handlækninga-
deild Landsspítalans, og aftur
frá því í september 1955 til maí-
loka í vor og mun nú hafa hlotið
sérfræðiviðurkenningu í hand-
lækningum.
Eins og af þessu má sjá hefur
hirt.i nýi sjúkrahússlæknir aflað
sér mikillar reynslu með námi og
Btarfi og má fyllilega vænta þess,
að rekstur sjúkrahússins undir
hans stjórn tákni tímamót í sögu
heilbrigðismála byggðarlagsins,
en til þessa hefur mjög skort
skilyrði til að veita fólki þá þjón-;
ustu í þessum efnum, sem nauð-
synleg er, vegna skorts á sjúkra-
húsi með tilheyrandi útbúnaði..
Fulltrúakjöri til 25. þings Al-
þýðusambands Islands er nú lok-
ið og hefur þingið verið kvatt
caman 20. nóv. Um 150 verklýðs-
félög hafa kosið yfir 300 fulltrúa.
Alþýðusambandið er vissulega
áhrifamikil samtakaheild, sem
taka verður tillit til. Og viðbrögð
þess geta ráðið miklu um galig
þjóðmála. Þessvegna eru kosning-
ar til Alþýðusambandsþings oft
harðsóttar og með þeim fylgzt af
alhug.
Augljóst er, að einingaröflin
hafa unnið sigur í þessum kosn-
ingum og er því öruggur stuðn-
ingur sambandsins við framfara-t
stefnu ríkisstjórnarinnar tryggð-
ur. íhaldið reytidi að koma ár
sinni fyrir borð í þessum kosning-
um, en fór hvarvetna hinar mestu
hrakfarir.
Það er athyglisvert, að enda
þótt all víða væru hörð átök milli
stuðningsflokka ríkisstjómarinn-
ar, var mjög víða um samkomu-
Nýr viðskiptasamn-
ingur við Sovétríkin
I lok septembermánaðar var í
Reykjavík undirritaður nýr samn-
ingur um viðskipti Islands og Sov-
étríkjanna og gildir hann næstu
þrjú árin, frá 1. jan. 1957 til 31.
des. 1959. Er það mikilsvert fyrir
þjóðarbúskapinn, að tekizt geti að
gera verzlunarsamninga til nokk-
urra ára í senn.
Saimingurinn gerir ráð fyrir
mikilli aukningu á sölu freðfisks
til Sovétríkjanna. Á freðfisksalan
að nema 32 þús. tonnum á ári á
móti 20 þús. í gildandi samningi.
Auk þess á árlega að flytja út til
Sovétríkjanna 15 þús. tonn af
saltsíld og eitt þúsund tonn af
freðsíld.
Frá Sovétríkjunum kaupum við
einkum allskonar olíur og bet.izin,
járn. og stálvörur, kornvörur og
bifreiðar (300 árlega). Er hér yf-.
irleitt um sömu vörutegundir að
ræða og fluttar hafa verið frá
Sovétríkjunum undanfarin ár, en
kaup á olíum, benzíni og hveiti
eru áætluð meiri en áður.
lag að ræða. Og í ýmsum félög-
um, sem íhaldið hefur undanfarið
ráðið öllu í, tapaði það nú fyrir
samfylkingu stjórnarflokkanna
allra. Má þar mii.ina á bifreiða-i
stjórafélagið Hreyfil í Reykjavík.
Þsgar allt kemur til alls verður
að telja, að Alþýðusambands-
kosningarnar í heild hafi borið
vitni um einingarvilja alþýðunn-
ar. Spáir það góðu fyrir Alþýðu-
sambandsþinginu.
Siglt á bryggju
Það óhapp varð, þegar norska
fiskitökuskipið Canopus var að
lcggjast að bryggju hér í Nes-
kaupstað í fyrradag, að stefni
skipsins rakst á bryggjuna og
braut hana talsvert.
Mat hefur farið fram á skemmd
unum. Voru. þær metnar á kr.
82.500.00.
Frá Alþingi
Alþingi kom saman til funda
10. okt. í fyrsta sinn eftir kosn-
ingarnar í sumar. Hafa miklar
breytingar átt sér stað á skipan
þingsins þcnnig, að margt er þar
nýrra manna, þótt ekki hafi orðið
miklar breytingar á fylgi flokka.
Fyrsta vika þingsins fór í um-
ræður um gildi kjörbréfa upp-
bótamanna Alþýðuflokksins og
héldu íhaldsmenn uppi miklu
málþófi.
Enda þótt mjög orki tvímælis,
svo ekki sé sterkar að orði kveð-
ið, um það hvort kosningabanda-
lag Alþýðu- og Framsóknar-
flokksins hafi verið lögmætt, var
ekki stætt á því að gera þing-
mmnina afturreka, nema efna þá
til nýrra kosninga, því kjósendur
höfðu greitt atkvæði í samræmi
við úrskurð meirihluta kjör-
stjórnar.
Stjórnarflokkarnir höfðu sam-f
starf um kjör þingforseta og
nefnda.
Forseti Sameinaðs þings var
kosinn Emil Jónsson, 1. varafor-
seti Gunnar Jóhannsscl.i og 2.
varaforseti Karl Kristjánsson.
Forseti Efri deildar var kosinn
Bernharð Stefánsson, 1. varafor-
seti Friðjón Skarphéðinsson og 2.
varaforseti Alfreð Gíslason.
Forseti Neðri deildar var kos-
inn Einar Olgeirsson, 1. varafor-
seti Halldór Ásgrímsson • og 2.
varaforseti Áki Jakobssca.
Stjórnin hefur lagt ýms frum-
vörp, sem sumra verður nánar
getið síðar, fyrir þingið, m. a.
frumvarp um smíði 15 togara og
6 stórra fiskibáta. — Fjárlagaj
frumvarpið fyrir árið 1957 var
lagt fram í þingbyrjun og flutti
fjármálaráðherra fjárlagaræðuna
sl. mánudag og var henni útvarp-
að svo og ræðum þingmanna allra
flokka.
Endurvarpsstöð í
Skuggahlíð ?
Útvarpsstjóri hefur látið hafa
það eftir sér, að á þessu hausti
verði reist endurvarpsstöð í
Skuggahlíð í Norðfirði. Vonandi
reynist þetta rétt, því hlustunar-
skilyrði hér eru nú vægast sagt
slæm oft og einatt.
Alþýðusambandsþingið