Austurland - 16.11.1956, Blaðsíða 1
Málgagn sósfalista á Aistiílaidi
6. árgangur. Neskaupstað, 16. nóvember 1956. 38. töluþlað.
Að geínu iilefni
Sigurjón Ingvarsson, hafnar-
nefndarmaður, gerir hafnarmál
Neskaupstaðar, eða nánar tiltekið
fyrirhugaða hafnargerð, að um-
talsefni í síðasta Austra. Þó mér
þyki miður, að opinberar deilur
eigi sér stað um málið á þessu
stigi, því ég tel að þær geti skað-
að það, tel ég þó ekki annað fært,
bæjarbúa vegna, en að svara að
nokkru grein Sigurjóns.
Það er ofur eðlilegt, að skiptar
skoðanir séu um staðarval báta-
hafnar og að nokkur átök hafi um |
það orðið innan hafnarnefndar og
bæjarstjórnar, en eftir að endan-
lega hafði verið ákveðið, hvar
gera skyldi höfnina, hefði verið
skynsamlegast að láta þær deilur
niður falla, en taka í þess stað
höndum saman um að hrinda mál-
inu í framkvæmd, enda mun ekki
af veita.
Það sé fjarri mér að drótta því
að Sigurjóni, að hann sé að gera
sér leik að því að spilla fyrir mál-j
inu. Til þess þekki ég of vel áhuga
hans fyrir framgangi þess og veit
að þetta er hans hjartans mál eins
og margra fleiri, ekki sízt sjó-
manna. En grein hans er gott
dæmi um það, hv© mikill áhugi
getur leitt menn af leið.
Mishermi leiðrétt
Sigurjón segir frá hafnarnefnd-
arfundi, sem haldinn var með Þor-
láki Helgasyni, verkfræðingi,
þegar hann var nýkominn hingað
til að athuga skilyrði til að gera
hér bátakví. Hefur hann það eftir
mér, að ég hafi lýst erindi Þor-
láks svo, að hann væri hingað
kominn til að athuga hafnarstæði
við bæjarbryggjurnar og að ég
hefði jafnframt látið þess getið,
að aðrar tillögur um staðarval
væru aðeins til að tefja eða stöðva
framgang málsins. Hinsvegar
hefði Reynir Zoega komið því til
vegar, að verkfræðingurinn hefði
lofað, að athuga einnig möguleika
til hafnargerðar af svipaðri stærð
innan Neseyrar.
Hið rétta í málinu er þetta:
Þegar bæjarstjórn sendi þá Ár-
mann Eiríksson og Vigfús Gutti
ormsson til Reykjavíkur að aflíð-
andi sumri til að ræða um þessi
mál við yfirstjórnendur þeirra,
munu þeir einkum hafa rætt um
um hafnargerð við bæjarbryggj-
urnar. Og á áðurnefndum hafnar-
nefndarfundi var samþykkt að
biðja verkfræðinginn að athuga
skilyrði til hafnargerðar við
bryggjurnar. Jafnframt var svo
um það rætt, og man ég ekki til
að R. Z. hefði þar nokkra for-
göngu um, að athuga fleiri staði,
a. m. k. ef verulegir tæknilegir
örðugleikar væru á hafnargerð
við bryggjurnar, og var þá helzt
minnzt á svæðið vestan við Eyrina.
Missögn Sigurjóns er ofur eðli-
leg, því hann var alls ekki á þess-
um fundi og hefur ekki haft sann-
ar spurnir af honum og kann ég |
því illa að hann leggi mér þannig
orð í munn.
Niðurstaða verkfræðingsins
Á öðrum hafnarnefndarfundi(
lagði verkfræðingurinn svo fram
niðurstöður sínar og voru þær í
stuttu máli á þá leið, að frá tækni-
legu sjónarmiði væri ekkert því til
fyrirstöð.u, að bátakví yrði gerð
milli bryggjanná. Eins og Sigur-
jón tekur réttilega fram, varð að
liætta við athugun við Eyrina
vegna vélbilunar, en verkfræðing-
urinn taldi líklegt að tæknilega
séð væru einnig skilyrði til hafn-
argerðar þar. Og við skulum
gangá út frá því, að svipaðir
mcguleikar séu fyrir hendi á báð-
um stöðunum.
„Kommúnistar“ og annað fóllc
Sigurjón reynir að telja sjálfum
sér og öðrum trú um, að það séu
aðeins ,,kommúnistar“, sem vilji
byggja höfnina við bryggjurnar.
Ég hef h'ns vegar alltaf gert ráð
fyrir því, að höfnin yrði ópóiitísk
á hvorum staðnum, sem hún yrði
gerð. Og það má Sigurjón vita, að
ég veit ekki um annan Framsókn-
armann en hann, sem vill að höfn-
in sé gerð út við Eyri, en ég ef-
ast ekki um, að þeir eru til og eins
tcl ég mjög sennilegt, að til séu
þeir „kommúnistar“, sem eru að
meira eða minna leyti sammála
Sigui’jóni um staðarvalið, þó bæj-
arfulltrúar sósíalista hafi, eftir
vandléga athugun, komizt að þeirri
niðurstöðu, að þegar alls væri ;
gæt.t, mundi höfnin bezt sett dð !
bryggjurnar, þó okkur sé ljóst, að |
sumt mæli með hafnargerð við i
Eyrina.
Og það má Sigurjón líka vita,
að ég héf vissu fyrir þvi, að marg-
ir Framsóknarmenn í fremstu röð
eru ,,korr.múnistar“ í þessu máli.
Vil ég nefna tvo: Guðröð Jónsson,
kaupfélagsstjóra og Ármann Ei-
ríksson, bæjarfulltrúa, sem oft
hefur rætt þetta mál við mig og
aldrei látið í ljós aðra skoðun en
þá, að höfnina ætti að gera við
bryggjurnar. Breytir hér engu þótt
Ármann hafi af tilhliðrunarsemi
við Sigurjón, setið hjá við at-
kvæðagreiðslu í bæjarstjórn um
staðarvalið.
Hitt mun rétt, að ihaldsmenn
munu nokkuo sammála um að
liöfnina eigi að gera við Eyrina en
sú afstaða markast af annarlegum
sjónarmiðum, sem bæjarstjórn
getur ekki tekið tillit til.
Á 8. landsþingi Slysavarnarfé-
lagsins var samþykkt, að tillögu
slysavarnardeildarinnar Bára á
Djúpavogi, að hefja undirbúning
að söfnun til björgunarskútu
Austurlands.
Fyrir aðra landsfjórðunga hafa
þegar verið byggð eða eru í bygg-
ir.gu björgunar- og gæzluskip.
Hafa áhugamenn um þessi mál
lagt á sig miklar fórnir til að koma
þeim í höfn.
Austfirðingar þurfa sannarlega
að eignast björgunar- og gæzlu-
skip, sem væri reiðubúið til hjálp-
ar, ef hennar yrði þörf og gæti
jafnframt varið landhelgina fyrir
veiðiþjófum og eftir því sem unnt
væri bægt togurum frá veiðarfær-
um fiskibátanna.
Enginn efi getur talizt á því, að
allir Austfirðingar muni taka
höndum saman um að gera þennan
draum að veruleika. Þetta er eitt
þeirra mála, sem allir geta sam-
einazt um, hvað sem skoðunum á
almennum málum líður.
Vissulega þurfa Austfirðingar
að leggja hart að sér, ef þeir eiga
í náinni frnmtíð að ná því marki
að -eignast .björgunar. og gæzlu-
skiþ.' Forvstan ve'rður að sjá.lf-
sogðu i höndum slysavamadeild-
; Hvað réði staðarvalinu ?
! Nauðsynlegt er, úr því farið er
| að ræða þessi mál á annað borð
| fyrir opnum tjöldum, að gera grein
fyrir því, hvað réði ákvörðun
meirihiuta bæjarstjórnar. Skal því
gerð nokkur grein fyrir kostum
og göllum beggja staðanna frá
okkar sjónarmiði.
Við bryggjurnar fæst 4000 fer-
metra bátakví en við Eyrina 4300
fermetra. Það er því ljóst að
nokkru rýmri hofn fengist útfrá.
ííinsvcgar fæst mikið á annað
hundrað metra lengra viðlegupláss
innfrá. Yrði höfnin byggð útfrá
og bryggjunum haldið við, mundi
viðleguplássið samt styttra en það
yrði, ef höfnin er byggð við
bryggjurnar.
Milli bryggjanna hefur verið
gerð uppfylling og er þar með
nokkur hluti hafnargerðarinnar
kominn í framkvæmd. Útfrá þyrfti
að gera samskonar uppfyllingu,
Framh. á 4. síðu.
a.nna og er áreiðanlega vel komin
þar. Og deildirnar eiga vísan
stuðning hvers manns.
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins í Neskaupstað samþykkti á
fundi sl. mánudag að hefjast
handa í þessu máli. Gengst það
fyrir dansleik í barnaskólanum
annað kvöld til ágóða fyrir björg-
unarskútusjóðinn. Hljómsveit
Neskaupstaðar leikur fyrir dans-
inum og Svavar Lárusson syngur.
Gerpi seinkar
Hinum nýja togara Norðfirð-
inga hefur enn verið seinkað og
hefur verið tilkynnt að hann verði
afhentur 10. jan.
Upphaflega átti að afhenda
skipið 1. okt., en þegar í fyrravet-
ur va.r afhendingu seinkað um
hálfan mánuð vegna tafa af völd-
um vetrarharðinda.
Síðan kom í Ijós, að smíði gírs
í aðalvél hafði mistekizt og stafar
þessi seinkun að mestu af þeim
ástæðum.
Standist það, að skipið verði
afhent 10. jan., ætti það að geta
komið hingað um eða upp úr miðj-
um þeim mánuði.
BJörgunarskúta Austurlands