Morgunblaðið - 22.07.2011, Síða 3
Leiknis með hörkuskoti á 67. mínútu og þar við sat.
Með sigrinum komust Leiknismenn, sem unnu
ekki leik í fyrstu ellefu umferðunum, upp í 10. sæti
og sendu KA niður í fallsæti, þó aðeins á markamun.
KA á leik til góða í kvöld kl. 20 á ÍR-velli.
HK-ingar eru hins vegar áfram á botni deild-
arinnar með 5 stig og eiga enn eftir að landa fyrsta
sigri sínum. Stefán Jóhann Eggertsson lék fyrsta
leik sinn fyrir HK eftir að hafa snúið aftur frá Val en
það dugði ekki til.
Þrettánda umferð deildarinnar heldur áfram í
kvöld með tveimur leikjum. ÍR og KA mætast í
Breiðholti eins og áður segir og með sigri er KA
einu stigi á eftir ÍR-ingum. Víkingur Ó. tekur á móti
Fjölni fyrir vestan og getur með sigri haft sæta-
skipti við Grafarvogsliðið sem er í sjötta sæti deild-
arinnar. sindris@mbl.is
rs á botninum
Afrek Zilina lék í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vetur en Baldur Sigurðsson og félagar í KR létu það ekki á sig fá.
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
KR-ingar unnu mikið afrek með því
að slá Zilina frá Slóvakíu út úr Evr-
ópudeild UEFA í knattspyrnu, 3:2
samanlagt. Zilina vann seinni leik lið-
anna á heimavelli í gær, 2:0, en for-
skotið sem KR náði í Vesturbænum
dugði til þó það stæði ansi tæpt undir
lokin. Zilina komst í 1:0 eftir tæplega
hálftíma leik og jók muninn í 2:0 þeg-
ar enn voru 20 mínútur eftir. Rúnar
Kristinsson þjálfari KR viðurkenndi
að hafa verið órólegur eftir það mark
enda vantaði Slóvakana þá aðeins eitt
mark til að knýja fram framlengingu.
„Fyrsta markið skoruðu þeir þegar
Guðjón Baldvinsson var utan vallar
til aðhlynningar. Við höfðum svo
ágæta stjórn á þessu fram að seinna
markinu sem var algjör gjöf af okkar
hendi. Við vorum nýbúnir að vinna
boltann eftir þeirra skyndisókn en
Magnús [Már Lúðvíksson] missti
boltann til leikmanns Zilina. Þá voru
20 mínútur enn eftir og þeir settu
bara alla sína menn fram og press-
uðu gríðarlega á okkur. Hannes [Þór
Halldórsson] varði nokkrum sinnum
vel og við náðum að bægja hættunni
frá, en áttum líka tvær eða þrjár
skyndisóknir sem hefðu vel getað
gefið mark. Þetta var mikil spenna,“
sagði Rúnar.
„Hentu markverðinum fram“
„Ég var rólegur allan leikinn þar
til að þeir skoruðu annað markið. Þá
var eins og að menn færu ósjálfrátt í
að verjast því að fá eitt mark í viðbót
á sig og við vorum nánast allir í eigin
vítateig síðustu tíu mínúturnar.
Menn voru orðnir þreyttir og þjak-
aðir eftir öll þessi hlaup og ekkert
óeðlilegt að hafa lagst svona í vörn en
við áttum líka okkar skyndisóknir.
Þeir hentu markverðinum fram í síð-
ustu hornspyrnuna og reyndu allt.
Þetta var erfitt hjá strákunum en
engu að síður frábær úrslit. Lyk-
ilatriðið var að komast áfram og
þetta er flott afrek hjá þeim. Þegar
við höfðum dregist gegn þessu liði
átti maður ekki von á miklu enda
voru þeir í Meistaradeildinni í fyrra
og riðlakeppni Evrópudeildarinnar
þar á undan. Metnaður félagsins er
mikill að vera í þessum keppnum ár
eftir ár og þetta er hörkugott fóbol-
talið sem er langt fyrir ofan okkur á
styrkleikalistanum,“ bætti Rúnar við
en hann vill þó ekki gera of mikið úr
afreki KR.
„Ég ætla ekki að ganga svo langt
að segja að þetta sé eitthvað gríð-
arlegt afrek í íslenskri knatt-
spyrnusögu en þetta er virkilega já-
kvætt fyrir íslenskan fótbolta. Það er
það sem gleður okkur mest,“ sagði
Rúnar sem hefur eins og gefur að
skilja lítið getað kynnt sér næsta
andstæðing KR, sem er Dinamo Tbil-
isi frá Georgíu, en liðin mætast í 3.
umferð forkeppninnar. KR á heima-
leik á fimmtudaginn en svo er leikið í
Georgíu viku síðar. Í millitíðinni sæk-
ir KR lið BÍ/Bolungarvíkur heim í
undanúrslitum bikarkeppninnar á
sunnudegi verslunarmannahelg-
arinnar.
„Ég veit ekki mikið um þetta lið
núna en ég spilaði í Tbilisi með Loke-
ren á sínum tíma og það var mjög
erfitt. Þetta lið er ekki eins hátt
skrifað og Zilina þannig að við eigum
alveg möguleika á að slá þá út líka,
en það veltur líka á því hvernig
mönnum gengur að jafna sig á milli
leikja því nú er spilað þétt.“
„Virkilega jákvætt fyrir
íslenskan fótbolta“
KR sló út gríðarsterka andstæðinga Georgíumenn í heimsókn á fimmtudag
Morgunblaðið/Ernir
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2011
Þór Akureyri hefur gengið frásamkomulagi við Clark Keltie,
27 ára gamlan miðjumann frá Eng-
landi, um að hann leiki með liðinu í
Pepsi-deildinni í knattspyrnu það
sem eftir lifir leiktíðar. Keltie kemur
frá borginni Newcastle á Englandi,
eftir því sem fram kemur á heima-
síðu Þórs.
Clark Keltie lét fyrst að sér kveða
hjá Darlington árið 2001 þar sem
hann spilaði 130 leiki og skoraði í
þeim 10 mörk. Eftir nokkurra ára
veru hjá Darlington fór Clark til
Rochdale í frjálsri sölu. Þar náði
hann ekki að festa sig í sessi og var
lánaður fyrst til Chester City, síðan
Gateshead og loks til Lincoln. Clark
var á mála hjá Lincoln til 1. júní.
Hann verður gjaldgengur með
Þór gegn Víkingi þegar liðin leiða
saman hesta sína á Þórsvelli á
sunnudaginn.
Ísland sigraðiSvíþjóð, 2:0, í
annarri umferð á
alþjóðlega knatt-
spyrnumótinu
fyrir landslið U18
ára en leikið var í
Svíþjóð í gær. Ís-
lensku strákarnir
eru því með 6 stig
og markatöluna 7:1 eftir leikina tvo
en þeir burstuðu Wales, 5:1, í fyrra-
dag. Árni Vilhjálmsson skoraði bæði
mörk Íslands í dag, sitt í hvorum
hálfleik.
Íslensku strákarnir mæta Noregi
í lokaleiknum á laugardaginn. Norð-
menn töpuðu fyrir Wales í dag, 1:2.
Ísland er með 6 stig, Svíþjóð 3, Wa-
les 3 og Noregur ekkert stig. Ísland
hefur þegar tryggt sér sigurinn í
mótinu vegna innbyrðis sigranna á
bæði Svíþjóð og Wales.
Átjánda dag-leið Frakk-
landshjólreið-
anna, Tour de
France, var hjól-
uð í gær. Andy
Schleck frá Lúx-
emborg var fljót-
astur á þessari
sögulegu leið.
Aldrei hefur verið farið jafn hátt til
að ná í endamark eða 2.645 metra og
er leiðin um 23 kílómetrar. Bróðir
Andys, Frank Schleck, varð annar á
leiðinni og kunnu þeir bræður
greinilega vel við sig í hallanum.
Frakkinn Thomas Voeckler heldur
enn gula vestinu en hefur nú aðeins
fimmtán sekúndna forskot á Andy
Schleck. Bróðir hans er þriðji í heild-
arkeppninni.
Evrópumeist-arar Barce-
lona hafa samið
við sóknarmann-
inn Alexis Sánc-
hez til fimm ára
en hann kemur til
spænska félags-
ins frá Udinese
fyrir 26 milljónir
evra, jafnvirði 4,3 milljarða króna,
en sú upphæð getur hækkað um 11,5
milljónir evra. Sánchez, sem er 22
ára Sílebúi, hefur verið afar eft-
irsóttur en ggur nú í raðir besta fé-
lagsliðs heims. Hann mun gangast
undir læknisskoðun og skrifa undir
samning við Barcelona á mánudag-
inn.
Roy Hodgson, knattspyrnustjóriWBA, er á höttunum eftir nýj-
um markverði eftir að Scott Carson
var seldur til tyrkneska félagsins
Bursaspor í sumar. Robert Green,
markvörður West Ham, hefur verið
nefndur í þessu sambandi en nú
virðist WBA ætla að reyna að fá Ben
Foster, markvörð Birmingham, ann-
aðhvort að láni eða með því að greiða
uppsett verð. Foster lék áður með
Manchester United en festi sig aldr-
ei í sessi í byrjunarliði félagsins.
Fólk sport@mbl.is
Stjörnumenn hafa misst spón úr aski sínum fyrir
komandi leiktíð í Iceland Express-deild karla í
körfuknattleik því Daníel Guðni Guðmundsson mun
ekki leika með þeim áfram. Daníel Guðni er á leið til
Svíþjóðar í nám í íþróttafræðum en þessu greinir
vefsíðan karfan.is frá.
Daníel Guðni segist ætla að reyna fyrir sér í
sænska körfuboltanum.
„Varðandi lið þá er ég að fara að skoða hvort það
sé eitthvað spennandi þarna í kring, fer yfir það
fljótlega með manni sem kannast nokkuð við Sví-
ann. Ætlunin er að spila og þá á sæmilegu stigi og
halda áfram að þróast sem leikmaður,“ er haft eftir
Daníel á karfan.is.
Stjarnan komst í úrslitaeinvígið á síðasta Íslands-
móti en tapaði þar fyrir KR-ingum eins og flestum
er eflaust í fersku minni. sindris@mbl.is
Daníel til Svíþjóðar
Stadión pod Dubnom, Evrópudeild
UEFA, 2. umferð í forkeppni, seinni
leikur, fimmtudag 21. júlíu 2011.
Skilyrði: Rigning með köflum en
völlurinn góður.
Skot: Zilina 21 (9) – KR 6 (5).
Horn: Zilina 9 – KR 2.
Lið Zilina: (4-4-2) Mark: Martin
Dúbravka. Vörn: Stanislav Angelo-
vic, Jozef Piacek, Prince Ofori,
Marcel Ondrás. Miðja: Roman Ger-
gel (David Strihavka 64.), Viktor
Pecovský, Miroslav Barcík, Róbert
Pich (Nemanja Zlatkovic 81.).
Sókn: Ivan Lietava (Momodou
Ceesay 46.), Tomás Majtán.
Lið KR: (4-3-3) Mark: Hannes Þór
Halldórsson. Vörn: Magnús Már
Lúðvíksson, Skúli Jón Friðgeirsson,
Grétar S. Sigurðarson, Guðmundur
Reynir Gunnarsson. Miðja: Bjarni
Guðjónsson, Baldur Sigurðsson,
Viktor Bjarki Arnarsson (Ásgeir
Örn Ólafsson 75.). Sókn: Kjartan
Henry Finnbogason, Guðjón Bald-
vinsson (Gunnar Örn Jónsson 82.),
Óskar Örn Hauksson.
Dómari: Ken Henry Johnsen frá
Noregi.
Áhorfendur: Ekki vitað.
Zilina – KR 2:0
Brynjar Björn Gunnarsson skor-
aði eina mark enska B-deildar-
liðsins Reading þegar það tapaði
fyrir tyrkneska liðinu Karab-
ukspor, 3:1, í síðasta leik sínum í
æfingaferðalagi um Slóveníu.
Markið skoraði Brynjar Björn
með skalla en Brynjar, sem verð-
ur 36 ára gamall í haust, fékk
nýjan samning hjá Reading í vor.
Hann hefur verið á mála hjá fé-
laginu frá árinu 2005.
Reading komst í umspil um sæti í úrvalsdeild
með því að verða í 5. sæti B-deildarinnar á síðustu
leiktíð en tapaði í umspilinu fyrir Swansea sem leik-
ur í úrvalsdeildinni á komandi leiktíð sem hefst sem
kunnugt er í næsta mánuði. sindris@mbl.is
Brynjar skoraði
Brynjar Björn
Gunnarsson