Morgunblaðið - 01.09.2011, Qupperneq 8
8 1. september 2011fasteignir
Gerið gæða- og verðsamanburð
NÝ SENDING AF HÚSGÖGNUM
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
12 mána
ða
vaxtalau
sar
greiðslu
r
Reynisstaður - Vestmannaeyjum Húsgagnaval - Höfn í Hornafirði Lúxus húsgögn - Egilsstöðum
Umboðsaðilar:
Mikið fjör og húllumhæverður í leikhúsinuNorðurpólnum á Sel-tjarnarnesi næstu
sunnudagana en þar er sýnt
barnaleikritið Kallinn sem gat kitl-
að sjálfan sig. Tinna Þorvalds
Önnudóttir leikkona fer með annað
aðahlutverkið í þessari nýju ís-
lensku barnasýningu en verkið
segir frá uppátækjum og ævintýr-
um vísindamanns sem er sérfræð-
ingur í hlæju- og kitluvísindum.
Blaðamaður náði tali af Tinnu og
fékk hana til að segja frá óskalist-
anum sínum og ljóstra upp að hún
er veik fyrir kjólum.
Draumastarfið? „Ég starfa við
draumastarfið mitt, sem er leiklist.
Mig langar auðvitað að gera alls
konar annað líka, en leiklistin sam-
einar svo margt, og er, eins og
bekkjarbróðir minn orðaði það ein-
hvern tímann, ágætis afsökun til
þess að læra mismunandi hluti um
allt milli himins og jarðar.“
Versta vinnan? „Það var vigtun og
pökkun í Sláturfélagi Suðurlands –
með gráan steinvegginn fyrir
framan mig og vigt-
ina mína, næsta
manneskja of langt
í burtu fyrir nokk-
urs konar samskipti
eða spjall, og
manneskjan á vigt-
inni næst útvarps-
tækinu ekki sam-
mála mér um tónlistarsmekk. Gat
ekki annað en gónt á klukkuna á
veggnum fyrir ofan mig, á meðan
ég vann, og talið niður í næstu
kaffipásu.“
Draumabíllinn? „Mig langar alveg
rosalega lítið í bíl, eiginlega bara
ekki neitt. Það er yfrið nóg af bíl-
um á götunum fyrir minn smekk,
og ekki á það bætandi. Fyrir utan
hvað mér finnst hroðalega leið-
inlegt að keyra. En í staðinn fyrir
einkabíl væri ég til í skilvirkari al-
menningssamgöngur, og fleiri
svona stóra gula bíla í borgina.“
Hvað vantar á heimilið? „Fataslá,
eða stærri fataskáp, fyrir alla kjól-
ana mína. Ég er svolítið veik fyrir
alls konar kjólum og á svo marga,
og frá mismunandi tímabilum, að
það er eiginlega hægt að líta á
skápinn minn (og stólinn – vegna
vöntunar á stærri skáp) sem hálf-
gerða búningageymslu, sem getur
stundum komið sér vel. Svo vantar
mig kökuform og stóran súpupott.“
Hvað langar þig í? „Mig langar í
blandara. Það er hægt að gera svo
agalega margt sniðugt í svoleiðis,
alls konar safa, ís, sósur og ég veit
ekki hvað og hvað. Og svo langar
mig líka í ítalska espresso-könnu –
svona sem maður skrúfar saman
og setur á eldavélarhelluna, og
vínilspilara og selló. Mun síðan
einhvern tímann læra að spila á
það.“
Hvað er best heima? „Ég get aldr-
ei valið bara eitt uppáhalds, og
verð því að fá að nefna nokkra
hluti. Mér finnst afar indælt að
mála á meðan ég horfi á góða
mynd eða hlusta á góðan þátt á
Gufunni. Gufan er í miklu uppá-
haldi því þar eru svo margir mis-
munandi þættir um allt mögulegt,
og ef maður hlustar á hana að
staðaldri lærir maður „óvart“ svo
margt um alls konar, sem manni
hefði annars ekki dottið í hug að
fræðast um. Svo er
alltaf huggulegt að
kúra í stofusófanum
og lesa góða bók eða
horfa á kvikmynd.
Eða að dúlla mér við
að baka og búa til de-
serta – þeir eru óum-
deilanlega uppáhalds-
máltíðin mín. Og að sötra gott
kaffi uppi á eldhúsbekk við
gluggann. Mig dreymir reyndar
um ævintýralegra útsýni en stofu-
gluggann hjá nágrönnunum á móti,
en það verður víst ekki á allt kos-
ið.“
ai@mbl.is
Óskalisti Tinnu Þorvalds Önnudóttur
Lærir margt af
að hlusta á
gömlu gufuna
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
„Mér finnst gaman að dúlla mér við að baka og búa til deserta, þeir eru óumdeilanlega uppáhaldsmáltíðin mín.“ Tinna.
Leiklistin er ágætis
afsökun til þess að
læra mismunandi
hluti um allt milli
himins og jarðar.