Morgunblaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 10
10 1. september 2011fasteignir Það er hægt að kokka upp trilljón afsakanir fyrirþví að komast ekki í ræktina. Nú hefur hönn-unarfyrirtækið Czech design fundið svarið fyrirþá sem eiga erfitt með að mæta því hönnuðir þess hafa hannað húsgagnalínu sem er ekki hefðbundin á neinn hátt. Húsgagnalínan státar af skrifstofuhúsgögnum sem hægt er að breyta í æfingatæki með nánast einu handtaki. Skrifborðið lítur kannski ekki út fyrir að vera eitthvað annað en venjulegt skrifborð en þegar búið er að velta því við breytist það í þetta fína æfingatæki til að þjálfa efri hluta líkamans. Það sama má segja um skjalaskápinn. Hægt er að hanga í höldunum og festa lappirnar í þeim þegar magaæfingar eru gerðar. Það besta við þessa húsgagnalínu er að hún ber þess ekki merki að búa yfir tvöföldu lífi. Húsgögn fyrir þá sem komast ekki í ræktina Sjáið umfjöllun og fleiri myndir á mbl.is Húsgögn í stofuna Fjölnota húsgagnalína Skutulsfjarðardsbraut MiðtúnSætún Seljalandsvegur Vallartún Urðarvegur Stakkanes M. Í. Héðan úr Miðtúni flutti égfyrir 22 árum en í síð-ustu viku sneri ég aftur.Mér líkar sú lending vel og stundum er sagt að sagan end- urtaki sig alltaf. Líklega er nokkuð til í því,“ segir Daníel Jakobsson, bæj- arstjóri Ísafjarðarbæjar. Hann er uppalinn á Ísafirði og bjó þar með foreldrum sínum fram á unglingsár. Fyrir rúmu ári, þá í kjölfar kosninga, var hann ráðinn bæjarstjóri Ísafjarð- arbæjar. Flutti þá vestur og bjó fyrsta kastið við Urðarveginn, sem er efsta gatan á Ísafirði. Nú eru Daníel og Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, eiginkona hans, ásamt þremur börn- um flutt í Miðtún og búa þar í húsi númer fjórtán. Nágrannar hýstu strákinn Foreldrar Daníels eru hjónin Auð- ur Daníelsdóttir og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, lengi prestur á Ísafirði. Þjónustu vestra fylgdi prests- bústaður í Miðtúni 12 og þar bjó fjöl- skyldan uns Jakob tók við embætti prests við Dómkirkjuna í Reykjavík síðla sumars 1989. „Sumarið 1989 vann ég hjá Íshús- félagi Ísfirðinga. Hafði góðar tekjur og vildi ekki sleppa þeim þótt for- eldrar mínir væru farnir suður. Því varð úr að hjónin Gunnar Stein- dórsson og Bryndís Baldursdóttir hýstu mig síðustu vikurnar vestra og þau bjuggu þá einmitt í húsinu þang- að sem ég er fluttur nú. Milli þeirra og fjölskyldu minnar var alltaf tals- verður samgangur, hjá þessum góðu nágrönnum átti ég alltaf skjól sam- anber máltækið að heilan bæ þurfi til að ala upp barn. Húsin, sem standa hlið við hlið, eru byggð eftir sömu teikningu og stundum olli það rugl- ingi. Einhverju sinni man ég eftir að Hjálmar Ágústsson afi minn, sem var eftirlitsmaður hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, kom með stóran kassa af fiski og setti í frystikistuna hjá Gunnari og Binnu. Þau áttuðu sig auðvitað ekkert á því hvaðan þetta kom, enda þótt misskilningurinn leið- réttist um síðir þannig að mánudags- soðningin skilaði sér í rétt hús. Og hlutir þessu líkir gerast enn. Fyrir fáeinum dögum var vinur sonar míns kominn hér inn í næsta hús og hefur líklega brugðið svolítið þegar hann sá hvers kyns var,“ segir Daníel. Átján strákar í einum bíl Árin milli 1980 og 1990 voru upp- gangstími á Ísafirði. Norðurtanginn og Íshúsfélagið voru á þeim tíma ein- hver stærstu og afkastamestu fisk- vinnsluhús landsins. Starfsemin þar kallaði á allar vinnufúsar hendur. Bærinn blómstraði og unnið var að margvíslegum framkvæmdum þar sem horft var til langrar framtíðar. Og svo sem venja er voru hálfbyggð húsin leikvöllur athafnasamra stráka. „Annars fór tilveran fljótt að snú- ast um íþróttir. Á íþróttavellinum á Torfnesi hér beint fyrir neðan Mið- túnið var hægt að vera á gönguskíð- um frá í október og fram á vor. Þá tók fótboltinn við og hann stunduðum við af kappi allt sumarið. Allir flatir urðu fótboltavöllur, til dæmis Rikkat- ún hér við Seljalandsveginn, sem raunar var völlur sem hallaði upp í mót. Svo var þvílíkur barnaskari í bænum að hægt var að safna saman í fjögur fótboltalið yngri flokka og ein- hvern tíma fórum við Ísafjarð- arstrákar og kepptum við Súðvík- inga. Þá var mikið lagt undir og pabbi keyrði okkur út eftir á sínum Volvo Station, sem bar skráningarnúmerið Í 76. Þetta væri ekki í frásögur fær- andi nema sakir þess að prestinum tókst að koma átján strákum fyrir í bílnum og geri aðrir betur. Ætli svona væri ekki harðbannað í dag?“ Sést yfir fjörðinn Miðtúnið er hallandi gata og frá henni sést vel yfir innanverðan Skut- ulsfjörð. Í fjallinu andspænis kaup- staðnum blasir Nausthvilft við og í botni fjarðar setur fjallið Kubbur sterkan svip á umhverfi sitt. „Við er- um afar vel sveit í sett í þessari götu og Hólmfríði, konunni minni, finnst líkt og mér stundum að hún sé aftur komin heim, enda alin upp í svipuðu umhverfi og hér norður á Ólafsfirði. Og hér eru börnin okkar alsæl; líður vel, hafa nóg við að vera og líkar vel við skólann sinn. Er hægt að biðja um eitthvað betra,“ segir bæjarstjór- inn Daníel Jakobsson. sbs@mbl.is Gatan mín Miðtún á Ísafirði Allir flatir urðu fótboltavöllur Morgunblaðið/Sigurður Bogi „Og hér eru börnin okkar alsæl; líður vel, hafa nóg við að vera og líkar vel við skólann sinn. Er hægt að biðja um eitthvað betra,“ segir Daníel Jakobsson bæjarstjóri sem býr við Miðtún á Ísafirði. Húsið er vandað að allri gerð og mjög vel staðsett með útsýni í allar áttir, Það er teiknað af Guðmundi Kr.Guðmundssyni arkitekt. Lóðin er stór og mögulegt að byggja við húsið í suðurátt. Svefnherbergi eru 3-5, tvö böð og stórar stofur. Verð 125 milljónir. Til sölu glæsilegt 320fm einbýlishús að Barðaströnd 18, Seltjarnarnesi UPPLÝSINGAR gefur Ólafur Garðarsson í síma 515 7400

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.