Morgunblaðið - 01.09.2011, Page 20

Morgunblaðið - 01.09.2011, Page 20
bílar20 1. september 2011 Sem hugur manns og líðurvel á vegi. Er fljótur aðgrípa afl vélar og nýtirkraftinn til að ná spyrn- unni. Fer vel með ökumann jafnt sem farþega, hvort sem ekið er um bugðótta sveitavegi, hraðbrautir eða á strætum stórborgar. Er katt- liðugur og kemst allt. Ný útgáfa Toyota Yaris, sem nú er að koma á markað og var kynnt blaðamönnum á fundi í Kaupmannahöfn í fyrri viku, er athyglisverður bíll sem reikna má með að fái góðar viðtökur hér á landi og annars staðar í Evr- ópu. Einfaldari og nettari „Í Evrópu er þróunin sú að fólk vill einfaldari og nettari bíla og þeirri þörf erum við einfaldlega að svara,“ sagði einn sölustjóra Toyota á áðurnefndum kynningarfundi. Ýmsar nýjungar fylgja þessari út- gáfu af Toyota Yaris. Útlitið er tals- vert breytt frá því sem var. Útlínur eru kúptar og ávalar og sportlistar eru ávalir að ekki sé sagt bólulaga. Sama má segja um spegla og auka- hluti. Þá eru ljós bæði að framan og aftan skásett og líkust „kínverskum augum“ eins og einn aðalhönnuður bílsins komst að orði. Aukreitis við snoturlega hönnun bílsins á ytra byrði þá er öllu einkar vel fyrir komið innan dyra. Vissu- lega er Yaris enginn framúr- stefnubíll að þessu leyti en flottur þó. Er sérstaklega bjartur og þar munar mjög um opnanlegan þak- glugga. Er rúmgóður, bæði fótrými og eins milli sæta. Sama má segja um farangursrými, þar sem fólk á ferðinni getur komið nauðsynlegum farangri fyrir, þó fjölskyldur á ferð- inni þurfi stærri bíl, t.d. ef koma þarf barnakerru fyrir í skottinu. Fjöltækniskjár er búhnykkur Í mælaborði er hin hefðbundna þrenning þriggja mæla sem segja til um snúningshraða vélar, aksturs- hraða og bensínstöðu á tanki. Þá er í stýrinu haganlega fyrir komið ljósa- stillingum og fartímanema. Í gegn- um þessi tæki og fleiri má í raun stjórna öllu sem þarf, enda er í þess- um bíl ekki tækjastokkur milli sæta eins og er þó í mörgum bílum í dag. Mesti búhnykkurinn er samt í fjöltækniskjá sem er til hliðar við mælaborðið, milli ökumanns og far- þega. Meðal þæginda þar er til dæmis útvarp, geislaspilari og GPS- leiðsögukerfi, sem raunar er komið í allmarga bíla í dag. Er því engin nýjung frekar en til dæmis að skjár- inn bregður upp mynd þegar öku- maður setur í bakgírinn – en þannig er hægt að sjá hvort rétt sé lagt í stæði eða einhverjar fyrirstöður. En það hlýtur samt að teljast til nýj- unga að í gegnum fjöltækniskjá opn- ast möguleiki til gagnvirkra sam- skipta við vini og vandamenn t.d. um Fésbók. Einnig getur ökumaður áður en lagt er upp í ferð forritað leiðina sem skal feta inn tölvuna sína og fært svo leiðarlýsingu með USB-kubbi yfir í tölvu bílsins. Ýmsir svona mögu- leikar eru til staðar og vissulega má spyrja hver gagnsemi þessa sé. Bíll er auðvitað ekkert annað en tæki til að komast frá A til B og kannski er þetta bara óþarfa íburður, þó taka beri viljann fyrir verkið. Toyota Yaris fæst bæði sem bens- ín- og díselbíll, sem er með ögn stærri vél en fyrrnefnda gerðin. Tví- aflsbílar þessarar gerðar (Hybrid) eru svo væntanlegir á næsta ári. Eyðslan er hófleg. Díselbílarnir eyða að jafnaði 4,0 l á hverja 100 ekna km. Eyðsla bensínbílsins er um það bil einum lítra meiri miðað við sömu vegalengd. Hönnun og þróun vélbúnaðar skilar þessu og eins er Yarisinn um það bil 20 kg. léttari en fyrri útgáfa. Kemur þar til að all- margir hlutir í bílnum eru úr áli og það munar um slíkt í eyðslu. Íslandsverð Yaris kom fyrst á markað árið 1998 og hefur eðlilega breyst tals- vert frá fyrstu gerð. Ofmælt væri að segja þessa nýjustu útgáfu fram- úrstefnlega. Margur er knár þótt hann sé smár, eins og máltækið hermir, og það á vel við hinn nýja Yaris. Pistlahöfundur hafði aldrei tilfinningu fyrir því að hann æki smábíl; miklu frekar að vera á fólks- bíl eða jepplingi. Þetta var satt að segja líkast því þegar Stuðmenn í kvikmyndinni Með allt á hreinu gengu inn í litla samkomuhúsið á Stokkseyrarbakka sem svo reyndist vera heljarstórt hús þegar inn var komið. Því er óhætt að gefa hinum nýja Yaris góða einkunn, enda þótt boðað Íslandsverð hans sé kannski helst til of hátt. Slíkt ætti þó varla að koma að sök því Íslendingar vilja Toyota og treysta bílum þeirrar gerðar flestum betur. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson reynsluekur nýrri útgáfu af Toyota Yaris Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sú útgáfa af Toyota Yaris sem nú kemur á markaðinn er sú hin þriðja. Útlitið er breytt og útlínur bílsins eru kúptar sem gefur bílnum býsna framandi svip. Toyota Yaris árg. 2011 1,0 l bensín •Beinskiptur •69 hö/93 Nm Eyðsla frá: •4,8 l/100 km •CO2 g/km: 110 Hámarkshraði: •155 km/klst •0–100: 15,3 sek. Verð: •2.645.000 – 2.745.000 •Farangursrými: 286 l 1,33VVT-i bensín •Sjálfsk. CVT •99hö/125Nm Eyðsla frá: •5,1 l/100 km •CO2 g/km: 118 Hámarkshraði: •175 km/klst •0–100: 12,3 sek. Verð: •2.945.000 – 3.045.000 •Farangursrými: 286 l 1,4 l D-4D dísil •Beinskiptur •90hö/205Nm Eyðsla frá: •3,9 l/100 km •CO2 g/km: 103 Hámarkshraði: •175 km/klst •0–100: 10,8 sek. Verð: •3.195.000 – 3.430.000 •Farangursrými: 286 l Í mælaborði er hefðbundin þrenning en mesta nýjungin felst í fjöltækniskjánum sem felur í sér margvíslega möguleika, t.d. að hafa samband við fólk á fésbók. Hönnun og þróun vélbúnaðar bílsins skilar því að eyðslan er hófleg sem er gott nú þegar olíuverð fer sífellt hækkandi. Dísebíllinn eyðir ögn minna en bensínbíll. Kattliðugur bíll með kínversk augu Stefnuljósum er smekklega fyrir kom- ið í speglum hinar nýju útgáfu Yaris. Margur er knár þótt hann sé smár, eins og máltækið hermir og það á vel við hinn nýja Yaris. Pistlahöfundur hafði aldrei tilfinningu fyrir því að hann æki smábíl; miklu frekar að vera á fólksbíl eða jepplingi. „Við væntum þess að fyrstu nýju Yaris-bílarnir komi hingað til lands síð- ari hlutann í október eða um það leyti,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Ís- landi. „Þessir bílar hafa notið einstakra vinsæla hér á landi síðustu árin enda hæfa þeir fjölmörgum markhópum. Er til dæmis mikið keyptir af yngra fólkinu sem er að koma undir sig fótum í lífinu og þarf að vera á ódýrum og traustum bílum en umfram allt spar- neytnum. Síðan hefur Yaris mikið farið til bílaleignanna og hentar almennt vel þeim sem vilja vel búinn bíl á góðu verði. Hann myndar með öðrum teg- undum smábíla uppistöðuna í flota sumra leignanna.“ Fyrstu bílarnir til Íslands í október Mikið keyptir af yngra fólki Páll Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.