30. júní - 28.06.1968, Page 1

30. júní - 28.06.1968, Page 1
V. 30. JÚNÍ BLAÐ STUÐNINGSMANNA KRISTJÁNS ELDJÁRNS — 5. TBL. — 28. JÚNI 1868 Vilji þjóðarinriar íslendingar! Þjóöin vill að forseti lýðveldisins sé óbundinn af öllum stjórnmálaviðjum. Hann á að vera sameiningartákn þjóð- arinnar, hafinn yfir deilur einstaklinga, stétta og stjórn- málaflokka. Þjóðin vill að forsetinn sé kurteis og virðulegur, en þó alþýðlegur og Ijúfur ( viðmóti, Hann á að vera jafningi hárra sem lágra, en þó fremstur í flokki jafningja. Þjóðin vill að forsetinn sé gáfaður maður og vel mennt- aður, málsnjall og afreksmaður til andlegra verka. Þjóðin vill að forsetinn sé rausnarmaður heim að sækja, en gæti þó hófsemdar og ráðdeildar. Þjóðin vill að forsetinn hafi órjúfandi samband við þegnana, hvetji þá í baráttu lífsins, sameini þá til mikilla átaka og gleðjist með þeim á hátíðarstundum. Þjóðin vill að forsetinn sé mannasættir og beri klæði á vopn, ef deilur rísa milli stétta þjóðfélagsins. Þjóðin vill að forsetinn standi vökulan vörð um æðstu hugsjónir lýðræðisins — frelsi, jafnrétti og bræðralag. Til þess hefur hann vald samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins, til þess er hann kjörinn af öllum þegnum þessa lands. Kristján Eldjárn fyllir allar þær kröfur sem þjóðin gerir tll forseta síns. Hann hefur aldrei verið bundinn neinum stjórnmála- flokki. Einu skipti hans af þjóðmálum hafa verið f þvf fólgin að standa vörð um frelsi Islands og sjálfstæði, tungu þess og menningu. Hann er alþýðumaður að uppruna, en hefur með hæfi- leikum sínum og dugnaði hafizt til mikilla metorða og trúnaðarstarfa fyrir land sitt og þjóð. Hann er gáfaður maður og gagnmenntaður og þekkir sögu fslenzku þjóðarinnar, lífskjör hennar og örlög frá upphafi vega og allt til þessa dags. Hann hefur um langt skeið gegnt einu af virðulegustu og vandamestu embættum landsins, með þeim ágætum að enginn skuggi hefur fallið á embættisverk hans, en Þjóð- minjasafnið vaxið og dafnað undir góori og viturlegr! stjórn. Hann er ágætur fræðimaður og snjall rithöfundur og kann þá íþrótt sem ávallt hefur verið f heiðri höfð meðal fslenzkra sagnfræðinga: að rita um fræðileg efni á Ijósan Halldóra og Kristján Eldjárn og auðskilinn hátt, svo að almennlr lesendur hrffast af orðum hans. Hann er prýðilegur ræðumaður, raddfagur og snjallorð- ur. Hann hefur haldið fyrirlestra um sögu islands og forn- fræði bæði hérlendis og erlendis og aukið hróður lands síns meðal annarra þjóða. Hann er hófsemdarmaður í einkalífi sínu og hefur jafn- an sýnt gætni í meðför almannafjár. Hann á gáfaða konu, vel menntaða og myndarlega bæðl í sjón og raun, sem stendur óhvikul við hlið eiginmanns síns í blíðu og stríðu. Þau hjón eru alvön að taka á mótf erlendum gestum í Þjóðminjasafni, og munu með sama hætti halda uppi þjóðlegri gestrisni á heimili forseta. Kristján Eldjárn er vammlaus maður í öllu líferni sínu. Um hann verður ekkert illt orð sagt með sannindum. Því fylkir íslenzka þjóðin sér einhuga um Kristján Eldjárn og kýs hann forseta íslands. Kjósum öll! — Kjósum Kristján Eldjárn!

x

30. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 30. júní
https://timarit.is/publication/815

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.